Dagur - 30.06.1987, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 30. júní 1987
AStyrkur til háskóla-
Tgiannacst? náms í Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til há-
skólanáms í Japan háskólaárið 1988-’89 en til greina kemur
að styrktímabilið verði framlengt til 1990. Ætlast er til að
styrkþegi hafi lokið háskólaprófi eða sé kominn nokkuð áleið-
is í háskólanámi. Þar sem kennsla við japanska háskóla fer
fram á japönsku er til þess ætlast að styrkþegi leggi stund á
japanska tugu um a.m.k. sex mánaða skeið.
Umsóknir um styrkinn, ásamt staðfestum afritum prófskír-
teina, meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir
1. ágúst nk. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 25. júní 1987.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Menntaskólann við Hamrahlíð vantar stundakennara í
stærðfræði og tölvufræði. Upplýsingar gefur skólameistari.
Kvennaskólann í Reykjavík vantar kennara í líffræði, enn-
fremur stundakennara í landafræði, skólameistari gefur upp-
lýsingar um þá stöðu.
Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarastöður við
Menntaskólann og Iðnskólann á ísafirði framlengist til 10.
júlí. Óskað er eftir kennurum í íslensku, dönsku, efnafræði og
þýsku, tvær stöður í stærðfræði og hlutastööur í ensku og
frönsku. Ennfremur kennarastöður í rafmagns- og rafeinda-
greinum, vélstjórnargreinum, siglingafræði og öðrum stýri-
mannagreinum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykja-
vík.
Menntamálaráðuneytið.
Kennara vantar
við Grunnskólann í Bárðardal.
Húsnæði á staðnum. Góðir tekjumöguleikar.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 96-43291 til
9. júlí.
Konu vantar
við ræstingar á Hótel Stefaníu frá og með 1. júlí.
Upplýsingar veittar á staðnum.
Hótel Stefanía.
Rafvirki eða maður með
hliðstæða menntun
óskast til framtíðarstarfa í Raflagnadeild KEA.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma 21400.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Stúlku vantar
í hannyrðaverslun.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar í Hannyrðaverslun Maríu
Hafnarstræti 103.
Starfsmaður óskast
í Byggingavörudeild KEA, miðstöðvalager.
Sumarvinna.
Upplýsingar gefur Kristján Erlingsson
í Byggingavörudeild KEA.
Kaupfélag Eyfirðinga.
_/jb róttiL_________________________________
Pollamót UMF Reynis í knattspyrnu 6. flokks:
A-lið Þórs sigraði
- sigraði B-lið Þórs í úrslitaleik
A-lið Þórs sigraði í afmælis-
móti Ungmennafélagsins
Reynis í knattspyrnu 6. flokks,
sem fram fór á Árskógsvelli á
laugardag. Liðið lék til úrslita
við B-lið Þórs og sigraði 4:1
eftir að staðan hafði verið 1:1 í
hálfleik. Um 3.-4. sæti léku
UMFS og Tindastóll og höfðu
Sauðkrækingar betur 4:3, eftir
framlengingu og vítaspyrnu-
keppni. Mótið sem haldið var í
tilefni af 80 ára afmæli UMF.
Reynis, fór mjög vel fram og
var framkvæmd þess til mikill-
ar fyrirmyndar.
Alls tóku 10 lið frá 6 félögum
þátt í mótinu, frá Þór, Tindastól,
Leiftri, UMFS, KS og UMSE.
Hver leikur var 2x10 mín. og var
leikið í tveimur riðlum. Sigurveg-
arar í hvorum riðli léku til úrslita
á mótinu en liðin sem urðu í öðru
sæti í hvorum riðli, léku um 3.-4.
sæti. Veitt voru verðlaun fyrir 3
efstu sætin og einnig fékk sigur-
liðið farandgrip til varðveislu en
stefnt er að því að gera þetta mót
að árlegum viðburði. Það var
fyrirtækið Straumrás sf. á Akur-
eyri sem gaf öll verðlaunin.
Úrslit leikja í riðlakeppninni
urðu þessi:
A-riðll:
Þór A-Tindastóll B 2:1
UMFS A-KS B 9:0
Leiftur-Þór A 0:3
Tindastóll B-UMFS A 1:3
KS B-Leiftur 0:5
Þór A-UMFS A 3:0
Tindastóll B-KS B 5:0
Leiftur-UMFS A 1:3
KS B-Þór A 0:9
Tindastóll B-Leiftur 6:1
B-riðill:
Þór B-Tindastóll A 4:0
Þór C-KS A 2:3
UMSE-Þór B 2:3
Tindastóll A-Þór C 2:1
KS A-UMSE 3:0
Þór B-Þór C 4:0
Tindastóll A-KS A 5:1
UMSE-Þór C 1:0
KSA-ÞórB 2:1
Tindastóll A-UMSE 2:0
Þór A sigraði með miklum yfir-
burðum í A-riðli en A-lið UMFS
hafnaði í 2. sæti. í B-riðli var
keppni mun jafnari en Þór B
komst í úrslitaleikinn á betri
markatölu en Tindastóll og KS A
en öll liðin töpuðu einum leik í
riðlakeppninni. Tindastóll vann
sér rétt til þess að keppa við A-lið
UMFS um 3.-4. sætið, þar sem
liðið vann KS A í riðlakeppninni
en liðin höfðu einnig jafna
markatölu.
Þór A sigraði Þór B sem fyrr
sagði í úrslitum 4:1 og skoruðu
þeir Bjarni Guðmundsson 2,
Arnar Lyngdal Sigurðsson og
Þóroddur Hjaltalín mörkin en
Ingólfur Pétursson skoraði mark
B-liðsins.
Það var meiri hasar í leik
UMFS A og Tindastóls í keppn-
inni um 3. sætið. Davíð Þ. Rún-
arsson skoraði fyrir Tindastól í
fyrri hálfleik en Anton Ingvars-
son jafnaði fyrir UMFS í síðari
hálfleik og úrslitin 1:1. Því varð
að framlengja en hvorugu liðinu
tókst að skora í framlengingunni
og því fór fram vítaspyrnu-
keppni. Alls tóku 8 leikmenn víti
úr hvoru liði og það voru Tinda-
stólsmenn sem fögnuðu sigri,
þeir skoruðu úr þremur spyrnum
en Svarfdælir aðeins úr tveimur
og úrslitin því 4:3 fyrir Tindastól.
Þessi tvö lið léku til úrslita á pollamóti Reynis, A-lið Þórs í aftari röð en B-liðið í fremri röð, ásamt þjálfara sínum
og liðsstjóra.
f ' MS& ’ , ' ' . &js> JHk
mmwm |||i
■ mBm yz', 4
í 2 \ Æ á&' ■ mh/Wl: Mmm. 1
Lið Tindastóls í aftari röð og lið UMFS í fremri röð léku um 3.-4. sætið á mótinu. Með þeim á myndinni eru þjálf-
arar liðanna. Myndir:KK
Knattspyrna:
Völsungur vann Aftureldingu
Stelpurnar í 2. flokki Völsungs
unnu góðan sigur á jafnöldrum
sínum úr Aftureldingu er liðin
léku á Húsavík á laugardag í
íslandsmótinu í knattspyrnu.
Pálína Bragadóttir skoraði fyr-
ir Völsung í fyrri hálfleik og
reyndist það sigurmark leiksins.
Stelpurnar í Aftureldingu áttu
meira í síðari hálfleik en þeim
tókst ekki að koma boltanum í
netið hjá þeim húsvísku, sem
fögnuðu sigri.