Dagur - 01.07.1987, Page 1
Gústaf Axel Guðmundsson með
15 punda urriðann, Hafþór Axel
Einarsson með afa sínum á mvnd-
inni.
Metfiskur
úr Litluá
Oskadraumur veiðimannsins
rættist hjá Gústaf Axel Guð-
mundssyni á mánudag er
hann dró stærsta fisk sem vit-
að er til að veiðst hafi í Litluá
í Kelduhverfi. Fiskurinn var
15 punda urriði, 78 cm á
lengd og ummálið 51 cm.
Gústaf fékk fískinn á flugu
sem hann hnýtti sjálfur og var
það Black Ghost Streamer 2.
Margrct Pórarinsdóttir í
Laufási sagði að fiskur sem
veiðst hefði í ánni í sumar væri
mun fallegri og áberandi stærri
en áður. I fyrra veiddust 2244
fiskar í ánni en 500 fiskum fleira
árið áður og voru þetta metár.
Veiði hófst 1. júní í sumar og á
laugardag höt'ðu 032 fiskar
veiðst, margir þeirra 4-6 pund
en einn 9 punda. Gústaf var
einn og hálfan dag við veiðar í
ánni og fékk alls 13 fiska en
þann stóra veiddi hann á svæði
no. 5. IM
ístess hf:
Fluttu út
500 tonn
af fóðri
„Það gengur vel hjá okkur, við
erum með um 90% aukningu
miðað við fyrstu fjóra mánuði
ársins,“ sagði Guðmundur
Stefánsson hjá ístess hf., þegar
hann var spurður um afkomu
fyrirtækisins.
ístess hf. framleiðir fiskeldis-
fóður í verksmiðju sinni í Krossa-
nesi, og að sögn Guðmundar var
réiknað með 40 til 60% aukningu
í sölu á fóðri á árinu. „Við verð-
um sjálfsagt yfir áætlun á árs-
grundvelli. Annars eru bestu
sölumánuðirnir júní, júlí, ágúst
og september. Það er ekki raun-
hæft að reikna með 100% aukn-
ingu miðað við árið í fyrra en
prósentutölur segja ekki allt.
Aðalatriðið er að þetta gengur
vel og betur en við áttum von á, í
maí og júní fluttum við út liðlega
fimm hundruð tonn af fóðri,“
sagði Guðmundur Stefánsson.
EHB
Sæluhúsið á Öxarfjarðarheiði:
Smjör í dýnum oo
hrossaskítur á gólfum
- umgengnin vægast sagt hroðaleg
„Gangnamenn hýsa þar hross-
in sín, og við þurfum að moka
undan þeim skítinn,“ sagði
Guðni Oddgeirsson hjá Vega-
gerð ríkisins á Þórshöfn er
hann var inntur eftir því,
hvernig umgengni í sæluhúsinu
á Öxarfjarðarheiði væri.
Blaðamenn áttu þar leið um
nýlega og fannst aðkoman
vægast sagt ömurleg. Skálinn
leit vel út að utan, nýmálaður
og laglegur. En þegar inn var
komið var sagan önnur. í
fremri skálanum var, eins og
sjá má á myndinni spýtnabrak,
hey og skítur á gólfum en það
er þar sem hrossin eru hýst.
Inn af þessum skála, er svo
skáli með kojum, lítilli kola-
eldavél eða kabyssu og Ieifar af
kexi, salt og lítið fleira matar-
kyns. A loftinu voru drullu-
skítugar dýnur, sem fáir geta
haft löngun til að sofa á.
Guöni sagði að vissulega væri
það í þeirra verkahring að sjá um
þetta hús og að þeir hafi e.t.v
ekki staðið sig nógu vel, en kom-
in væri í þá uppgjöf vegna hræði-
legrar umgengi. Matarbirgðir er
ekki hægt að setja þar yfir sumar-
tímann, þær þýöir ekki að fara
með fyrr en eftir að ófært er orð-
ið á haustin, því þeim er stolið,
dreift um húsið, smjöri klínt í
dýnurnar og annað í svipuðum
dúr. Annars finnst honum
umgengni heldur hafa skánað
upp á síðkastið, svo kannski sé
von til að hægt verði að fara að
halda þessu viö.
Hann sagði það undarlegt, að
það virðist eins og að því- minni
sem umferðin sé um heiðina, þá
komi villidýrið upp í mönnum.
Samkvæmt gestabókinni gista
þarna ekki margir, sem von er.
Einstaka útlendingar gera það
þó, en nú mun kofinn næstum
eingöngu vera notaður sem
gangnakofi. „Norður-þingeyskir
þændur ganga ekki vel um
skálann, því miður. Þcir hreinsa
ekki einu sinni skítinn undan
hrossunum sem þeir hýsa inni í
j húsinu. Umgengnin er vægast
sagt hroðaleg. Það er leiðinlegt
að koma þarna eftir göngur."
Það er Vegagerð ríkisins sem á
að sjá um þetta hús, en víðast
hvar mun það vera Slysavarnafé-
lag íslands sem sinnir slíku, og
fannst Guðna að samræma þyrfti
þetta.
Annað vildi Guðni benda á
sem ákaflega bagalegt er. En það
er að skotmönnum virðist laus
byssan þegar þeir eru á ferð, og
fá útrás fyrir skotgleði sinni á
umferðarmerkjum á heiðinni.
Þetta er Ijótur leikur sem fullorð-
ið fólk á ekki að láta kenna sig
við.
VG
Inni í sæluhúsinu á Öxarfjarðarheiði. Þarna munu vera hýst hross í göngum á haustin.
Mynd: VG
Farsímar:
Renna út eins og heitar lummur
Farsímar seljast geysivel þessa
dagana. Þeir aöilar sem Dagur
hafði samband við sögðu skýr-
inguna einkum vera ótta fólks
um að við ríkisstjórnarskipti
yrði settur söluskattur á þessi
tæki. Fólk hefði því ekki beðið
boðanna og fjárfest í farsíma.
Símarnir kosta um 100 þúsund
krónur þegar búið er að festa
þá í bílinn. Leyfí þarf frá Pósti
og síma og kostar það 6250
krónur.
„Við höfum greinilega orðið
varir við mikinn kipp í sölunni
síðustu daga,“ sagði Þorsteinn
Jósepsson sölumaður hjá Höldi
hf., en fyrirtækið er með umboð
á Akureyri fyrir Mobira Talkman
farsíma.
„Það má alveg segja að farsím-
arnir renni út eins og heitar
lummur," sagði Þorsteinn, en
hann selur 2-4 síma að meðaltali
á dag sem gerir 10-20 síma á
viku. Hann sagði algengt að fyrir-
tæki og verktakar keyptu farsíma
en einnig væru einstaklingar í
vaxandi mæli að fjárfesta í þess-
um tækjum. Einkum og sér í lagi
væru það karlmenn sem keyptu
sér farsíma og nefndu þeir aðal-
ástæðuna þá að láta konur sínar
vita af ferðum sínum.
Farsímar þeir sem Höldur hf.
selur kosta frá 82 þúsund krónum
og upp í 110 þúsund, en þá fylgir
allur búnaður með í kaupunum,
s.s. festingar í bíl, leiðslur og
annað.
„Salan er gífurleg," sagði Val-
ur Finnsson hjá Straumrás sf.,
sem hefur umboð fyrir Dancall
farsíma. Hann sagði að á föstu-
degi í síðustu viku hefðu selst 22
símar og á milli 30-40 símar
undanfarna 10 daga.
Staðgreiðsluverð á Dancall far-
síma er kr. 88.800. Valur sagði
að til að byrja með hefði salan
verið mest í skip og báta, en upp
á síðkastið hefðu æ fleiri einstakl-
ingar fest kaup á farsíma. mþþ