Dagur - 01.07.1987, Blaðsíða 3
1. júlí 1987- DAGUR-3
- Veita stöðvarnar á Hólum
og Gunnarsholti einhverjar leið-
beiningar til einstaklinga?
„Á Hólum er ekki hægt að tala
um neina leiðbeiningaþjónustu.
Par er stunduð ræktun, þröng
stofnræktun, sem er mjög
umdeilanlegt markmið nú til
dags. Þetta dregur úr mögu-
leikunum á því að velja góða
hesta og æxla því besta saman.
Þetta eru vinnubrögð, sem mjög
fáir hrossaræktendur nota í dag.
Það er ekki eðlilegt að hrossa-
kynbótabú ríkisins vinni eftir
slíkum starfsreglum, við verðum
að hafa víðara sjónarhorn."
- Hafa einstaklingar í hrossa-
rækt þá meiri möguleika hvað
varðar breidd?
„Já, miklu meiri. Hinn
almenni ræktandi hefur meiri
möguleika á að ná árangri. Það
er alveg sama hversu miklir pen-
ingar eru í boði ef við höfum ekki
aðgang að bestu hrossunum, þá
segja peningarnir ekki neitt."
- Er samstarf hrossaræktunar-
sambanda í einstökum landshlut-
um nógu mikið með tilliti til kyn-
bóta?
„Það er alltaf að aukast, sam-
böndin lána hesta og fá aðra í
staðinn. Sífellt fleiri hrossarækt-
unarsambönd hafa metnað til að
hafa góða hesta í boði fyrir sína
félagsmenn."
- Er íslenski hesturinn að
breytast fyrir tilstilli ræktunar?
„Já, það er rétt. Við erum að
rækta hann frá þessu lága og
þétta byggingarlagi, sem er for-
senda þess að hann hefur lifað af í
landinu. Við erurn að reyna að
lengja hálsinn og fæturna, auk
þess sem reynt er að létta bolinn.
Þetta gengur þvert á náttúruval
miðað við íslenskar aðstæður.
Við höfum líka betri hús og fóður
en var.“
„Þýðir þetta að við fáum betri
reiðhesta en áður?
„Ég er ekki viss um það. Ég er
persónulega á móti því að stækka
hrossin mikið, mér finnst stærðin
140 til 145 cm að bandmáli á
herðakamb ágætt en mér finnst
ekki ástæða til að fara yfir það.
Það er tilhneiging í þá átt að fá
hávaxnari hross, það er enginn
vafi."
- Hvað verður þá um gamla,
íslenska hestinn, hverfur hann
með tímanum?
„Ef menn eru að tala um litla,
lubbalega og feita hestinn þá er
hætt við því að eftir ákveðinn
tíma, sjálfsagt árhundruð, finnist
ekki „ekta“ íslenskur hestur
lengur í þeirri mynd, sem þarfasti
þjónninn var lengst af þekktur."
EHB
Hljóðbylgjan:
Maraþondagskrá
til styrktar
sundlaugarbyggingu
við Sólborg
í fyrramálið hefst á Hljóð-
bylgjunni maraþondagskrá til
styrktar sundlaugarbyggingu
við Sólborg. Það eru dag-
skrárgerðarmennirnir Guð-
mundur Ómar Pétursson og
Þráinn Brjánsson sem standa
fyrir dagskránni og ætla þeir
sér að senda út samfleytt í 60
klukkustundir án hvíldar og
safna í leiðinni áheitum frá
hlustendum.
Dagskráin hefst kl. 9.30 í
fyrramálið og lýkur kl. 21.30 á
laugardagskvöld. Léttleikinn
mun verða í fyrirrúmi, tónlist,
spjall og óvæntar uppákomur auk
þess sem fréttir verða áfram á
föstum tímum. Hugmyndin er að
hlustendur heiti einhverri upp-
hæð fyrir hverja klukkustund
sem kapparnir sitja í útsending-
unni, ^n takist þeim að sitja þessa
60 tíma hafa þeir að öllum líkind-
um sett fslandsmet í „greininni."
Byrjað verður að taka við áheit-
um um leið og útsending hefst og
verður hægt að koma þeim áleið-
is með því að hringja í síma
27710 og 27711. Þá verður einnig
opið hús á Hljóðbylgjunni allan
tímann og þar getur fólk litið inn,
fengið sér hressingu og tekið þátt
í útsendingunni.
„Ég á nú ekki von á öðru en
okkur takist þetta. Við verðum í
fríi í dag og hvílum okkur en
mætum síðan eldhressir í fyrra-
málið. Við vonum bara að Norð-
lendingar verði duglegir að
hringja inn áheit og styrkja þann-
ig þetta góða málefni,“ sagði
Guðmundur Ómar í samtali við
blaðið
Sundlaugin við Sólborg er nú
fokheld en framkvæmdir við
hana hafa legið niðri í tvö ár sök-
um fjárskorts. Áætlað er að
halda framkvæmdum áfram í
sumar og láta ekki staðar numið
fyrr en hægt verður að taka hana
í notkun. JHB
--------------------------
. ''"Tóbaksreykur
mengar loftiö
S og er
hættulegur
heilsunni.
LANOLÆKNIR
V_________________________>
uu
Tölvuritari
Oskum eftir að ráða
tölvuritara til starfa
í Ullariðnaði.
Æskilegt er að viðkomandi hafi verslunar-
skólamenntun eða hliðstæða menntun
og reynslu í tölvuskráningu.
Um er að ræða áhugavert starf
fyrir duglega manneskju.
Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf fljótlega.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra
fyrir 10. júlí nk.
og gefur hann nánari upplýsingar.
<2S IDNAÐARDEILD
59 SAMBANDSINS
GLERÁRGÖTU 28 AKUREYRI SÍMI (96)21900
Akureyri:
Mávafargan á Brekkunni
Eru mávar algengari en skóg-
arþrestir á Brekkunni? Undar-
lega er spurt en þó hafa Akur-
eyringar fullan rétt til þess að
spyrja að þessu því mávafarg-
anið neðst á Brekkunni er með
ólíkindum. „Ég get ekki sofn-
að fyrir gargi á kvöldin, lóðin
og göturnar eru þaktar þessum
fuglum. Og á morgnana cr bíll-
inn minn alltaf hvítflekkóttur
af mávadriti,“ sagði íbúi við
Helgamagrastræti.
Satt er það að mávar eru áber-
andi t.d. í Helgamagrastræti,
Munkaþverárstræti, Oddeyrar-
götu og Hamarstíg og sést það
vel á hvítu driti á götunum.
Vissulega er það óvenjulegt þeg-
ar íbúar við þcssar götur sofna
við mávagarg í stað þess að sofna
við tístið í skógarþröstunum.
í fljótu bragði mætti hugsa sér
skýringuna á þessu liggja í ákveð-
inni vistræðilegri hringrás. Eins
og sagt hefur verið frá er gríðar-
lega mikiö um grasmaðk í þessu
hverfi og einnig er mikið af kött-
um þarna. Hins vegar eru skógar-
þrestir furðu lítiö áberandi. Þá
getum við sagt að grasmaðk fjölgi
úr hömlu vegna þess að kettirnir
drepa þrestina sem annars
myndu háma maðkinn í sig.
Það er a.m.k. ljóst að ekki hef-
ur gengið vel að stemma stigu við
fjölgun katta og sjaldan hafa
þrastarungar átt eins erfitt upp-
dráttar. Þessir fáu þrestir hafa
ekki getaö hindrað fjölgun
grasmaðks og því eru mávarnir
komnir til hjálpar til að freista
þess að koma hringrásinni í eðli-
legt horf. Eða hvað eru mávarnir
annars að gera þarna? Þeir virð-
ast vera komnir í maðkaveislu og
gott ef þeir geta grisjað ósómann
en hins vegar eru þetta öllu
óskemmtilegri fuglar en blessaðir
skógarþrestirnir. Er þá hægt að
segja að ástæðan fyrir allri þess-
ari brenglun og upphaf hringrás-
arinnar sé sú að kcttir séu of
margir fyrir þetta umhverfi? SS
Tjaldborgartjald
í útileguna
* TVEGGJA MANNA
ÁN YFIRSEGLS
* ÞRIGGJA MANNA
MEÐ OG ÁN YFIRSEGLS
* FJÖGURA MANNA
MEÐ YFIRSEGLI
* FIMM-SEX MANNA
MEÐ OG ÁN YFIRSEGLS
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SlMI (96)21400