Dagur - 01.07.1987, Side 9
1. júlí 1987 - DAGUR — 9
—íþróttic
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Sjö mötk og átta spjöld
- er Þór sigraði KA í 2. flokki á Akureyrarvellinum
Alfreð Gíslason lék vel gegn Júgóslövum og skoraði 4 mörk.
Júgóslavíumótið í handbolta:
Einn sætasti
sigur íslands
- íslenska liðið sigraði heims-
og ólympíumeistara Júgóslava
Islenska handknattleikslands-
liðið gerði sér lítið fyrir og sigr-
aði heims- og ólympíumeistara
Júgóslava í leik íiðanna í fyrra-
kvöld á Júgóslavíumótinu sem
stendur yfir um þessar mundir
í Júgóslavíu. Heimamenn
höfðu yfir 8:5 í hálfleik en
íslenska liðið jafnaði 9:9 í síð-
ari háHleik, komst í 14:10 og
sigraði örugglega 18:15. Óhætt
er að fullyrða að þetta sé einn
sætasti sigur sem íslenskt
handboltalandslið hefur unnið.
Einar Þorvarðarson átti mjög
góðan leik í markinu og þeir
Alfreð Gíslason og Þorgils Óttar
Mathiesen voru markahæstir
með 4 mörk hvor en þetta var
fyrst og fremst sigur liðsheildar-
innar. Islenska liðið er því komið
í 4 liða úrslitakeppni á mótinu
'ásamt Sovétmönnum og mun
leika þar við A.-Pjóðverja og
Spánverja, sem urðu í tveimur
efstu sætununr í B-riðli en Júgó-
slavar þurfa að gera sér að góðu
að leika um 5. til 8. sæti ásamt
Norðmönnum og tveimur neðstu
liðunum úr B-riðli.
Þá sigruðu Sovétnrenn Norð-
menn með 25 mörkum gegn 19 í
fyrrakvöld í A-riðli og unnu því
alla sína leiki í riðlinum. í B-riðli
léku auk A.-Þjóðverja og Spán-
verja, B-lið Júgóslava og félags-
liðið Telister sem kom í stað
Ungverja sem hættu við þátttöku
á síðustu stundu. íslenska liðið
tapaði naumt fyrir Sovétmönnum
20:21 í riðlakeppninni og gilda
úrslitin úr þeim leik í úrslita-
keppninni og eins úrslitin úr leik
A.-Þjóðverja og Spánverja í B-
riðli sem A.-Þjóðverjar unnu
22:19.
Mjólkurbikarkeppnin:
Leiftur og
KS leika
-í kvöld kl. 20
I kvöld verður leikin 3. umferð
í Mjólkurbikarkeppni KSÍ og
fer einn stórleikur fram hér
fyrir norðan, Leiftur og KS
leika í Ólafsfirði kl. 20.
Búast má við fjörugum leik en
þessi lið léku á sama stað á föstu-
dagskvöld í 2. deildarkeppninni
og þá höfðu heimamenn betur,
skoruðu eitt mark gegn engu.
Siglfirðingar ætla sér örugglega
að hefna ófaranna og vinna í
kvöld og komast þar með í 16
liða úrslit en þá koma 1. deildar-
liðin inn í keppnina.
Aðrir leikir í kvöld eru, ÍR-
Víkingur, Grindavík-Selfoss,
Leiknir-ÍBV, Reynir Stjarnan og
Þróttur-Einherji.
Þórhalla Gunnarsdóttir varð næst
stigahæst einstaklinga á mótinu.
Inga P. Sólnes ekkja Jóns G. Sólnes afhendir Svavari Þór Guðmundssyni
Sólnesbikarinn. Mynd K1,B
Svavar Þór hlaut
Sólnesbikarinn
Svavar Þór Guðmundsson
sundmaður úr Óðni varð stiga-
hæstur einstaklinga á minning-
armótinu um Jón G. Sólnes
sem fram fór í sundlaug Akur-
eyrar um lielgina og hlaut að
launum Sólnesbikarinn til
varðveislu. Svavar hlaut 607
stig fyrir 100 m skriðsund. Þór-
halla Gunnarsdóttir frá HSÞ
varð í 2. sæti með 503 stig, fyr-
ir 100 m skriðsund og Elsa M.
Guðmundsdóttir Óðni varð í
3. sæti með 485 stig fyrir 100 m
bringusund.
Þetta var opið mót og auk
sundfólksins úr Óðni, mættu
keppendur frá bæði HSÞ og
UMF. Kormáki til leiks. For-
svarsmenn Óðins voru frekar
óhressir með að ekki skyldu fleiri
snjallir sundmenn annars staðar
að af landinu mæta í mótið. Sex
Ak.-met voru sett á mótinu, í
sveina-, drengja- og hnátuflokki
og þá bætti Elvar Daníelsson frá
Kormáki héraðsmetið í hnokka-
flokki í 200 m fjórsundi.
Úrslit í einstökum greinum
urðu þessi:
800 m skriðsund kvenna:
1. Birna H. Sigurjónsdóttir Óðinn 12:13,73.
200 m skriðsund karla:
1. Ottó Karl Tuliníus Óðinn 2:27,94.
2. Ómar Árnason Óðinn 2:41,63.
3. Hlynur Tuliníus Óðinn 2:42,23.
200 m baksund kvenna:
1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 2:54,26.
2. Ingibjörg Gunnarsdóttir HSÞ 3:12,41.
3. Kristianna Jessen Kormákur 3:17,53.
4x100 m ijórsund karla:
1. Sveit Óðins sveinar 6:10,92.
200 m fjórsund karla:
1. Ottó Karl Tuliníus Óðinn 2:44,62.
2. Skúli M. Þorvaldsson Kormákur 3:14,92.
3. Elvar Danielsson Kormákur 3:14,97.
200 m fjórsund kvenna:
1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 2:45,86.
2. Elsa María Guðmundsd. Óðinn 2:54,30.
3. Ingibjörg Gunnarsdóttir HSÞ 2:59,14.
100 m skriðsund karla:
1. Svavar Þór Guðmundsson Óðinn 58,29.
2. Ottó Karl Tuliníus Óðinn 1:03,25.
3. Kjartan Jónsson HSÞ 1:08,10.
100 m baksund kvenna:
1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 1:17,45.
2. Erla Gunnarsdóttir HSÞ 1:25,18.
3. Elsa María Guðmundsd. Óðinn 1:26,97.
200 m bringusund karla:
1. Ottó Karl Tuliníus Óðinn 3:12,89.
2. Skúli M. Þorvaldsson Kormákur 3:23,35.
3. Óttar Karlsson Kormákur 3:26,01.
100 m bringusund kvenna:
1. Elsa María Guðmundsd. Óðinn 1:26,91.
2. Ingibjörg Gunnarsdóttir HSÞ 1:28,39.
3. Hólmfríður Aðalsteinsd. HSÞ 1:33,85.
100 m flugsund karla:
1. Ottó Karl Tuliníus Óðinn 1:17,75.
2. Ómar Ámason Óðinn 1:33,05.
200 m skriðsund kvenna:
1. Birna H. Sigurjónsdóttir Óðinn 2:33,72.
2. Elsa María Guðmundsd. Óðinn 2:33,76.
3. Vala Magnúsdóttir Óðinn 2:42,03.
200 m baksund karla:
1. Hlynur Tuliníus Óðinn 3:16,10.
2. Elvar Danielsson Kormákur 3:16,10.
4x100 m skriðsund karla:
1. Sveit Óðins sveinar 5:12,69.
2. Sveit Kormáks 5:12,98.
4x100 m fjórsund kvenna:
1. Sveit HSÞ HSÞ 5:34,23.
2. Sveit Óðins stúlkur 5:45,09.
800 m skriðsund karla:
1. Hilmar Danielsson HSÞ 10:40,40.
2. Ottó Karl Tuliníus Óðinn 10:59,48.
3. Hlynur Tuliníus Óðinn 12:01,94.
100 m skriðsund kvenna:
1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 1:08,90.
2. Birna H. Sigurjónsdóttir Óðinn 1:09,91.
3. Ásthildur Ólafsdóttir Kormákur 1:15,22.
100 m baksund karla:
1. Ómar Ámason Óðinn 1:28,74.
2. Hlynur Tuliníus Óðinn 1:31,61.
3. Elvar Danielsson Kormákur 1:35,59.
200 m bringusund kvenna:
1. Ingibjörg Gunnarsdóttir HSÞ 3:12,69.
2. Hólmfríður Aðalsteinsd. HSÞ 3:15,29.
3. Birna H. Sigurjónsdóttir Óðinn 3:19,11.
100 m bringusund karla:
1. Ottó Karl Tuliníus Óðinn 1:25,31.
2. Skúli Þorvaldsson Kormákur 1:32,36.
3. Ómar Árnason Óðinn 1:38,50.
100 m flugsund kvenna:
1. Þórhalla Gunnarsdóttir HSÞ 1:21,77.
Fimleika-
námskeið
Fimleikaráð Akureyrar mun
gangast fyrir fimleikanámskeiði í
júlí. Námskeiðið fer fram ■ í
íþróttahúsi Glerárskóla á mánu-
dögum og miðvikudögum frá 18-
19.30. Allir sem áhuga hafa eru
velkomnir að mæta en nám-
skeiðsgjaldið er 1000 krónur.
Þór sigraði KA með fjórum
mörkum gegn þrémur í nokk-
uð sögulegum leik á Akureyr-
arvellinum í fyrrakvöld. Þetta
var fyrri leikur liðanna í Akur-
eyrarmóti 2. flokks í knatt-
spyrnu og þurfti Magnús Jóna-
tansson dómari að sýna sex gul
spjöld og tvö rauð í leiknum.
Þórsarar byrjuðu leikinn mun
betur og sóttu nokkuð í upphafi.
En það voru hins vegar KA-
menn sem náðu forystunni, þegar
rúmt korter var liðið af leiknum.
Jóhannes Valgeirsson fékk bolt-
ann inn í teig og skoraði með
glæsilegri hjólhestaspyrnu. Hlyn-
ur Birgisson jafnaði fyrir Þór 12
mín. síðar. Hann fékk boltann
inn fyrir vörn KA á móts við víta-
teigshornið og vippaði snyrtilega
yfir Ólaf Gottskálksson mark-
vörð KA sem fór í skógarferð og
í markið. Skömmu síðar kom
Ólafur Þorbergsson Þór yfir með
laglegu marki. Hann lék laglega á
tvo varnarmenn KA og skoraði
með góðu skoti frá vítateig í blá-
hornið niðri. Á síðustu mínútu
hálfleiksins bætti Árni Þór Árna-
son við þriðja marki Þórs. Árni
fékk boltann inn í teig, lék á einn
varnarmann og skoraði með
föstu skoti.
Strax á 55. mín. skoraði
Sigurpáll Aðalsteinsson fjórða
mark Þórs. Hlynur lék í gegnum
alla vörn KA og sendi boltann á
Sigurpál sem stóð einn á mark-
teig og hann skoraði af öryggi.
Skömmu síðar minnkaði Grétar
Pálmason muninn er hann fékk
boltann óvænt inn fyrir vörn Þórs
og skoraði auðveldlega. Á 80.
mín. fór síðan að draga til tíð-
inda. Birgir Karlsson sló til
Sigurðar Harðarsonar í vítateign-
um og Magnús dómari dæmdi
réttilega vítaspyrnu og lét Birgi
hafa reisupassann. Sigurður skor-
aði sjálfur af öryggi úr vítinu.
Strax á eftir fékk Grétar Pálma-
son sem hafði komið inn á sem
varamaður í hálfleik síðan að sjá
rauða spjaldið fyrir að yfirgefa
leikvöllinn án leyfis. Það léku því
10 leikmenn í hvoru liði síðustu
mínúturnar. Skömmu fyrir leiks-
lok hefði Árni Þór átt að bæta við
fimmta marki Þórs en hann skaut
yfir í dauðafæri. Fleiri urðu
mörkin ekki og Þórsarar sigruðu
sem fyrr sagði 4:3.