Dagur - 16.07.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 16. júlí 1987
132. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Boðað hefur verið verkfall á
virkjunarsvæði Blöndu. Það
eru Iðnsveinafélag A.-Hún. og
Verkalýðsfélag A.-Hún sem
boða verkfallið. Verkfallið
nær til allra iðnaðar- og
verkamanna á svæðinu.
Samningar þessara félaga hafa
verið lausir frá áramótum og að
sögn Jakobs Jónssonar er verk-
fallið boðað til að reyna að ná
fram leiðréttingu á kauptöxtum
verkamanna á virkjunarsvæði
Blöndu en laun þar hafa staðið í
stað frá því fyrir áramót. Ef
af verður mun verkfallið skella á
um miðnætti á þriðjudagskvöld.
Þreifingar hafa verið meðal
samningsaðila allt frá áramótum,
en raunverulegir samningsfundir
hafa engir verið. nj
Loðnukvóti ákveðinn:
Veiðar hefjast vart
fyrr en í ágúst
- kvótinn verður endurskoðaður
fyrir októberlok
Margar hendur vinna létt verk . . . í góða veðrínu á Akureyri. Mynd: G.T.
Ábúendur á Grísará:
Stefna Akureyrarbæ og
þremur ráðherrum
- til greiðslu skaðabóta og afhendingar á heitu vatni
Heildarloðnukvótinn á tímabil-
inu frá 15. júlí til 31. október
1987 hefur verið ákveðinn 500
þúsund lestir. Þar sem ekki
hefur náðst samkomulag um
skiptingu heildarmagnsins
milli íslands, Noregs og Græn-
lands kemur til skiptingar
heildarkvótans milli íslands og
Noregs samkvæmt ákvæðum
samnings frá 1980.
Nýr bátur til
Dalvíkur
Um helgina heldur til veiða frá
Dalvík nýr bátur sem keyptur
var á dögunum. Það er útgerð-
arfélagið Stefán Rögnvaldsson
hf. á Daivík sem á bátinn en
hann var keyptur frá Patreks-
fírði.
Útgerðarfélagið Stefán Rögn-
valdsson hf. átti áður 23 tonna
trébát sem látinn var upp í þann
nýja. Nýi báturinn er 68 tonna
trébátur, smíðaður árið 1960 í
Þýskalandi. Kaupverð hans var
tæpar 23 milljónir króna en gamli
báturinn var seldur fyrir 11 millj-
ónir. Fyrst um sinn verður bátur-
inn á rækjuveiðum en sá gamli
hafði 300 tonna kvóta. Kvóti á
nýja bátnum verður um 400 tonn
af fiski upp úr sjó. Skipstjóri á
bátnum verður Símon Páll
Steinsson en auk hans verða 3
menn á bátnum. JÓH
í hlut íslendinga koma 85%
heildarkvótans en Norðmenn fá
15%. Vegna leiðréttingar frá síð-
ustu vertíð fá Norðmenn auka-
lega rúmar 8000 lestir í sinn hlut
og verður því hlutur þeirra
83.109 lestir en hlutur íslendinga
416.891 lest. Heildarkvóti þessi
er bráðabirgðakvóti sem verður
endurskoðaður fyrir lok október-
mánaðar í samræmi við niður-
stöður leiðangurs Hafrannsókn-
arstofnunar í október þar sem
fram fara bergmálsmælingar á
loðnu á svæðinu milli íslands,
Grænlands og Jan Mayen.
Norðmenn hófu veiðar í gær.
Alls hefur 104 norskum skipum
verið úthlutað leyfi til veiða á
loðnu og eru um 40 skip komin á
miðin. íslendingum var einnig
heimilt að hefja veiðar í gær en
ekki er búist við að íslensk skip
hefji veiðar fyrr en eftir verslun-
armannahelgi. Loðnuskipin eru
nú flest á úthafsrækjuveiðum og
gera það gott.
Eins og undanfarin ár verður
49 skipum úthlutað kvóta. Kvót-
anum verður skipt eftir sömu
reglum og gilt hafa undanfarin ár
þ.e. að 67% kvótans er skipt
jafnt en 33% eftir burðargetu
skipanna. Heimilt er að framselja
loðnukvóta milli skipa en séu
stundaðar úthafsrækjuveiðar
skerðist framsalsréttur á loðnu
um 25 tonn fyrir hverja lest af
óskelflettri rækju sem veidd er á
árinu 1987. ET
Ábúendur á Grísará, þeir
feðgar Hreiðar Eiríksson og
Eiríkur Hreiðarsson, hafa
stefnt Akureyrarbæ, vegna
Hitaveitu Akureyrar, landbún-
aðarráðherra, dóms- og
kirkjumálaráðherra og fjár-
málaráðherra til greiðslu og
afliendingar á heitu vatni. Fara
þeir fram á að fá tvo og liálfan
sekúndulítra af heitu vatni frá
1980 og til frambúðar auk
skaðabóta vegna jarðrasks og
landspjalla á jörð sinni.
Að sögn Sigurðar J. Sigurðs-
sonar, formanns stjórnar veitu-
stofnana, keypti Hreiðar Eiríks-
son umrædda jörð af ríkissjóði
árið 1954 en vatnshitaréttindi
voru undanskilin. Þó var ákvæði í
samningnum sem sagði að ábú-
andi ætti vatnsréttindi sem svar-
aði til heimilisþarfa. Var það
metið af landbúnaðarráðuneyt-
inu sem tveir og hálfur sekúndu-
lítri.
Árið 1977 boraði Hitaveita
Akureyrar eina holu í landi Grís-
arár og kom nokkurt magn af
heitu vatni úr henni en þó ekki
það mikið að talið væri borga sig
fyrir veituna að virkja það.
Ábúandi hafði áður starfrækt
gróðurhús á jörðinni og nýtt til
þess vatn sem var á henni fyrir en
eftir að hið aukna vatnsrennsli
kom til sögunnar byggði hann
fleiri gróðurhús og jók starfsem-
ina í samræmi við það.
Tveimur til þremur árum síðar
stöðvaðist rennsli úr holunni auk
þess sem vatnið, er fyrir hafði
verið, hvarf. Stefna feðganna
kom síðan í framhaldi af þessu.
Sigurður sagði að undanfarin
ár hefðu 30 mínútulítrar af heitu
vatni verið látnir renna til jarðar-
innar án endurgjalds í þeirri von
að samkomulag myndi takast en
það hefði ekki gerst enn. Við-
komandi aðilar hefðu neitað að
gera sams konar samkomulag og
gert hefði verið við aðra sem
svipað væri ástatt um. Sagði hann
að þessa dagana væri verið að
ræða hvort vatnsrennsli til jarðar-
innar yrði stöðvað eða hvort vatn
yrði áfram látið renna þangað
frítt.
Fiskmarkaður Norðurlands hf.:
Stefnt að uppboðum í september
Veikfall við Blöndu?
Lokaundirbúningur starfseini
Fiskmarkaðar Norðurlands hf.
er nú að fara í hönd. Fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins
hefur verið ráðinn Sigurður P.
Sigmundsson og er hann
nýkominn til Akureyrar.
Stefnt er að því að uppboðs-
starfsemi markaðarins geti haf-
ist í byrjun september.
Leyfi fyrirtækisins til að reka
uppboðsmarkað fyrir sjávarafla
var afgreitt frá sjávarútvegsráðu-
neytinu 25. júní og veitt til eins
árs. Leyfið er háð þeim skilyrð-
um sem sett eru í nýsettum lögum
um uppboðsmarkaði.
Húsnæði hefur þegar verið tek-
ið á leigu að Strandgötu 53.
Húsnæðið allt er um 300 fermetr-
ar að stærð og þar verður innrétt-
að skrifstofupláss og um 250 fer-
metra salur fyrir lítinn gólf-
markað.
Eins og komið hefur fram
verður fyrst og fremst um að
ræða uppboð á ólönduðum afla,
sem fara fram með fjarskiptum á
milli kaupenda og seljenda með
milligöngu stjórnstöðvar mark-
aðarins. Þrjár tegundir fjarskipta
komu til greina í þessu sambandi,
sími, talstöðvar og tölvur en nú
hefur stefnan verið sett á síðast-
nefnda kostinn. Þessa dagana er
gengið frá kaupum á tölvukerfi
fyrir markaðinn.
Hlutafé fiskmarkaðarins er nú
um 2,6 milljónir en stefnt er að
því að auka það í um 5 milljónir.
Stofnkostnaður við markaðinn er
að sögn Sigurðar um 2,5 milljónir
en inni í þeirri upphæð eru inn-
réttingar tölva og húsaleiga í eitt
ár. Stefnt er að því að öllum
undirbúningi starfseminnar verði
lokið 1. september og uppboð
hefjist um það leyti.
í blaðinu í dag er viðtal við
Sigurð P. Sigmundsson fram-
kvæmdastjóra og hlaupara. ET
Þess má geta að fyrir skömmu
kom til framkvæmda samningur
við Hrafnagilshrepp um að hann
yfirtaki vatnssölu í hreppnum. í
þeim samningi eru engin ákvæði
um frítt vatn til Grísarár
„Það eina sem ég hef um þetta
að segja er að það er búið að
reyna í mörg ár að ná samningum
en eftir viðræður í vetur var sam-
dóma álit aðila að fá þyrfti dóms-
úrskurð í málinu," sagði Eiríkur
Hreiðarsson. JHB