Dagur - 16.07.1987, Blaðsíða 3

Dagur - 16.07.1987, Blaðsíða 3
16. júlí 1987 - DAGUR - 3 Guðmundur Ármann við merkin sem cndurteiknuð hafa verið fyrir Akur- eyrarbæ. Lengst til hægri er hátiðarútgáfa, þá útgáfa í einum lit, útgáfa í svörtum lit og loks Ijósrit af frumteikningu Tryggva Gunnarssonar. Teiknistofan Stíll: Meriti Akureyrar endurteiknað Plastiðjan Bjarg: Pantar vélar til prentunar á poka - einnig aðrar fullkomnari til framleiðslu ingarnar, tvo menn í sorphreins- un allan tímann og tvær stúlkur í þrifum á snyrtingunum. Gestir lýstu ánægju sinni með aðstöð- una og hvernig um hana var hugsað. Klukkan fimm á morgn- ana fórum við á stað með vinnu- skólann og vorum búnir að þrífa bæinn klukkan átta eða níu.“ - Hvað heldur þú að margir hafi tjaldað á tjaldstæðunum Sigmundur? „Einu upplýsingarnar sem ég hef eru frá landsmótsnefnd um að á laugardaginn hafi verið hérna 15-16 þúsund manns en trúlega hefur ekki allur sá fjöldi gist. Viðskilanaður á tjaldstæð- unum var góður nema á tjald- stæðinu sunnan við bæinn, þar var hann vægast sagt hræðilegur og allt vaðandi í rusli.“ „Ég reyndi mikið að tína upp og ná öllu gleri sem ég sá svo það yrði ekki brotið,“ sagði Guð- mundur. „Það er voðalega mikill munur að fá dósirnar miðað \ ið glerið því ef maður nær ekki gler- inu upp snemma á morgnana er það brotið og mér finnst það alveg furðulegt." - Urðu miklar skemmdir á gróðri eða mannvirkjum, Sig- mundur? „Það þarf að gera smálagfær- ingar nánast alls staðar umhverfis íþróttasvæðið en ég held að þetta sé sæmilega sloppið. Runnar sem við settum upp við efri inngang- inn á íþróttahöllinni eru alveg horfnir og það var lagt upp á graseyjar jafnvel þó bílastæði væru laus en það á eftir að koma í Ijós hvort þökurnar jafna sig.“ - Gátuð þið eitthvað notið mótsins sjálfir? „Ég sá þann hluta Víkingaleik- anna þegar báturinn var dreginn, það var í matartíma en annars naut ég ekki. Mér fannst stemmningin alveg stórkostleg og mér finnst bara stórkostlegt að hafa upplifað þetta, t.d. að sjá bílalest frá Fiskiðjuveri og út á leiti, báðar akreinar alveg fullar og menn voru sérlega kurteisir í umferðinni,“ sagði Guðmundur en Sigmundur svaraði: „Ég sá eina grein, það var fjárhundasýn- ingin. Mér heyrist að allir séu ánægðir með mótið og þetta skil- ur náttúrlega mikið eftir sig og það er ekkert nema eðlilegt að eitthvað þurfi að lagafæra eftir svona stóra samkomu.“ IM Afmæli Akureyrarbæjar: Heimiluð kaup á Ijósabúnaði Á afmæli Akureyrarbæjar, sem haldið verður hátíðlegt 29. ágúst nk. verður margt gert til hátíðabrigða. Þar á meðal munu fara fram leiksýningar í Iþróttaskemmunni, en hún hefur verið notuð til ýmissar menningarstarfsemi í sumar. Skemman hefur verið máluð og keypt í hana skilrúm en lýsing hefur hingað til verið ófullnægj- andi. Af þessu tilefni hefur bæj- arráð heimilað, að keyptir verði ljóskastarar vegna fyrirhugaðra leiksýninga, og samþykkt að veita til þess aukafjárveitingu að upphæð 260 þúsundum króna til kaupa á búnaðinum. Hann verð- ur síðan fluttur í Samkomuhúsið til nota þar á vegum Leikfélags Akureyrar. VG Teiknistofan Stíll á Akureyri hefur að undanförnu unnið við endurteikningu á merki Akur- eyrarbæjar. Það er Guðmund- ur Ármann Sigurjónsson sem unnið hefur við merkið og er verkinu nýlokið. Um er að ræða þrjár útgáfur af merkinu, hátfðarútgáfu í lit, útgáfu í bláum lit og svart/hvíta útgáfu. í hátíðarútgáfunni legg- ur Guðmundur til að notaðir verði þrír litir. Ultramarin blár litur, sá sami og notaður er í íslenska fánanum, en þessi litur er litur himinsins og fjarlægra fjalla og þannig má hugsa sér að fuglinn í merkinu beri við himin. Rauði liturinn er rauður og heitur litur eldsins og sá litur sem fellur best að þeirri hugmynd er Panton warm red. Guli liturinn er blandaður rauðu og fellur þannig vel að axinu í merkinu. Merkið var einnig unnið til prentunar í svörtum lit en sam- kvæmt skjaldarmerkjafræði ber að túlka liti á þann veg að fletir með bláum lit eru táknaðir með láréttum strikum en rauður litur með lóðréttum strikum. Merkið er hugsað þannig að það þoli bæði mikla stækkun og mikla minnkun. Fuglinn í merkinu, Gammur- inn, er einn af landvættunum í skjaldarmerki íslands og í þessari vinnslu er ekki vikið frá þeirri hugmynd. Þessi fugl er í upphafi tekinn úr Heimskringlu Snorra en þar segir: „...en hann lagðisk á brott vestr fyrir landit allt fyrir Eyjafjörð. Fór hann inn eptir þeim firði. Þar fór móti honum fugl svá mikill att vængir tóku út fjöllin tveggja og fjöldi annarra fugla, bæði stórir og smáir. Braut fór hann þaðan...“ Upphaflega var merkið teikn- að af Tryggva Magnússyni en um aldur þess er ekki vitað nákvæm- lega þó er vitað að Tryggvi teikn- aði fjölda merkja fyrir Alþingis- hátíðina 1930 og gæti merkið ver- ið frá þeim tíma. Með tímanum hafði það breyst í meðförum manna og því var merkið nú endurteiknað sem mest með hlið- sjón af upphaflegu útgáfunni. Gefin verður út sérstök reglu- gerð um það hvernig ber að nota merkið, hvaða útgáfu ber að nota í hverju tilfelli. JÓH Nú er verið að ganga frá endanlegri pöntun á nýjum vélasamstæðum fyrir Plastiðj- una Bjarg, sem koma m.a. til með að prenta á plastpoka. „Það hefur verið gerðmarkaðs- könnun og er talið að við munum ná góðri fótfestu á landsbyggðinni,“ sagði Tryggvi Sveinbjörnsson framkvæmda- stjóri Bjargs í samtali við Dag. Um er að ræða þrjár vélar. Ein mun prenta á pokana, önnur framleiða þá og sú þriðja er svo- kölluð hliðarsuðuvél. Vélarnar sem fyrir eru, verða áfram þannig að um er að ræða bæði viðbót og endurnýjun. Plastiðjan kaupir hráefni bæði frá Reykjalundi og erlendis frá. Framleiðslan hefur verið allt frá litlum heimilispokum og upp í stóra ruslapoka. Þá munu þeir áfram framleiða einnota svuntur og hanska, en ekki hefur áður verið hægt að prenta á plastið. Tryggvi sagðist vonast til þess, að vélarnar kæmust í gagnið í haust ef allt gengur samkvæmt áætlun. Kostnaðaráætlun vegna kaupanna hljóðar upp á 67 millj- ónir og koma þeir til með að fjár- magna þau með eigin fé og láns- fé. „Þetta er arðbært fyrirtæki,“ sagði Tryggvi að lokum. VG Siemens innbygg- ingartæki íeidhús Hjá okkur fáiA þið öll tæki á sama staA: Eldavól- ar, uppþvottavélar, kæliskápa, frystiskápa, ör- bylgjuofna, kaffivélar, hrærivélar, brauöristar og þannig mætti langi telja. SIEMENS er trygging ykkar fyrir góðum tækjum og samræmdu útliti. íslenskir leiðarvísar fylgja með. Reynishúsinu ■ Furuvöllum 1 ■ 600 Akureyri ■ Sími27788 Mótorsláttuvélar Verðaðeíns Husqvama kr. 15.900 staðgreitt. , , . slattuvelar. Orf og Eylandsljáir. Glerárgötu 20 • Akureyri • Sími 22233 EEMNGA BRÉF Einingabréf 1 nú 13-14% umfram verðbólgu. Einingabréf 2 nú 9-10% umfram verðbólgu. Einingabréf 3 nú 35-39% nafn- vöxtun. Raunvöxtun háð verð- bólgu. Aukið öryggi vegna dreifingar áhættu. Óbundið fé. Einingabréfin eru alltaf laus til útborgunar. Allir geta eignast Einingabréf, því hægt er að kaupa þau fyrir hvaða upphæð sem er. Gengi bréfanna: Einingabréf 1 2.176 kr. Einingabréf 2 1.289 kr. Einingabréf 3 1.345 kr. Lífeyrisbréf 1.094 kr. Kaupþing Norðurlands hf. Ráðhústorgi 5 * Pósthólf 914 602 Akureyri • Sími 96-24700.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.