Dagur - 20.07.1987, Blaðsíða 5

Dagur - 20.07.1987, Blaðsíða 5
20. júlí 1987 - DAGUR - 5 áhuga á fæðingu Navarone og vildu ólmir yngja þann gamla upp, en Marco var ekki alveg á því. Priscilla vildi hins vegar skíra hann Elvis en Marco lét sig ekki. Hann hafði víst engan áhuga á að skíra son sinn í höfuð- ið á fyrrverandi eiginmanni unnustunnar og skildi engan undra. Pau Priscilla eru ekki gift og það mun ekkert vera á döf- inni. Priscilla er mjög treg að ganga upp að altarinu því í hjónabandinu með Elvis heitnum var hún mjög einangruð og Elvis leit svo á að hann ætti hana og gæti alveg ráðskast með hana eft- ir eigin höfði. Hún segist vera mjög hamingjusöm eins og stað- an er í dag og því þá að vera að breyta því. Akureyri: Umfangsmiklar breyt- ingar á Sporthúsinu Nú er lokið umfangsmiklum breytingum á Sporthúsinu á Akureyri. Yerslunin er nú rúmlega tvisvar sinnum stærri en hún var áður auk þess sem allar innréttingar eru gjör- breyttar. „Petta breytir öllu, bæði fyrir okkur og viðskiptavinina,“ sagði Sigbjörn Gunnarsson, verslunar- Afgreiðsla Eimskips: Guðni ráðinn umsjónaimaður Guðni Sigþórsson var ráðinn sem umsjónarmaður afgreiðslu Eim- skips á Akureyri frá 12. júlí sl. Guðni hefur starfað hjá Eimskip frá árinu 1969, fyrst sem stýri- maður og síðan sem yfirverk- stjóri í vöruafgreiðslu Eimskips frá árinu 1976. Árið 1983 tók Guðni við starfi vöruafgreiðslustjóra í Sundahöfn og gegndi því starfi til 1985 er hann tók við starfi aðstoðar- forstöðumanns og umsjónar- manns innanlandsflutninga Norðurlandadeildar á aðalskrif- stofu félagsins. Eiginkona Guðna er Helga Guðmundsdóttir og eiga þau 4 börn. Eimskip vill leggja aukna áherslu á síarfsemi sína á Akur- eyri og bæta þjónustu við við- skiptavini félagsins með því m.a. að flytja starfsmann af aðalskrif- stofu félagsins yfir á skrifstofuna á Akureyri, og um leið efla tengsl á milli skrifstofunnar í Reykjavík og skrifstofunnar á Akureyri. Aðrir starfsmenn á skrifstofu Eimskips, eru Gunnar Jónsson verkstjóri, Stefán Tryggvason skrifstofustjóri, Bergljót Jakobs- dóttir og Aslaug Borg fulltrúar, en fastir starfsmenn Eimskips á Akureyri eru fjórtán. Mál og menning: Aukahefti í tilefni af 50 ára afmælinu Út er komin sjötta bókin sem ber afmælismerki Máls og menning- ar. Þetta er aukahefti af Tímariti Máls og menningar með ýmsu efni sem tengist hálfrar aldar afmæli félagsins. í heftinu eru fyrst tvær greinar. Jakob Benediktsson skrifar minningar frá þeim dögum þegar hann var framkvæmdastjóri Máls og menningar fyrir fjörutíu árum. Og Pétur Gunnarsson birt- ir grein sem hann nefnir Fjögra- blaðasmárinn og eitursveppur- inn, um samspil sósíalisma og þjóðarvakningar, Fjölnismenn og stofnanda Máls og menningar, Kristin E. Andrésson. Meginefni heftisins eru tvær miklar skrár sem Kristín Björg- vinsdóttir bókasafnsfræðingur hefur unnið. Önnur er efnisskrá Tímaritsins frá 1977 til 1986, vandlega flokkuð, og fylgir henni nákvæm nafnaskrá yfir alla sem skrifað hafa í Tímaritið þessi ár og alla sem skrifað hefur verið um. Hin skráin er yfir allar bækur sem út hafa komið á vegum Máls og menningar og Heimskringlu frá upphafi. Þar má finna allar frumútgáfur bóka á vegum þessa forlags og líka endurútgáfur, en ekki óbreyttar endurprentanir. Skrá þessi nær til ársloka 1986 og telur hátt í þúsund titla. Þetta aukahefti Tímaritsins er 142 síður, prentað í Odda hf. Kápumynd tók Guðmundur Ing- ólfsson en kápuna hannaði Teikn. Ritstjóri er Silja Aðal- steinsdóttir. maður í Sporthúsinu. „Vinnu- aðstaða er nú öll önnur en hún var auk þess sem við getum sýnt vörur mun betur en fyrr. Þetta þýðir að við getum bætt þjónust- una og viðskiptavinurinn finnur fyrir þessari breytingu. Búðin er nú björt með léttum innrétting- um sem gnæfa ekki yfir vörurnar sem verið er að selja.“ Aðspurður hvort búast mætti við einhverjum breytingum á þjónustu í kjölfarið sagði Sig- björn að ákveðnar breytingar væru að eiga sér stað, t.d. varð- andi fatnað. „Við erum að fikra okkur meira út í annan fatnað en hreinan sportfatnað enda eru að verða vissar breytingar í sport- fatatísku. Við höfum í gegnum árin oft verið á undan öðrum í þessu og bendi t.d. á að fyrir nokkrum árum fórum við að bjóða upp á skræpóttar stuttbux- ur og fleira í þeim dúr en þetta seldist alls ekki. í dag er þetta rif- ið út. Við byrjum fljótlega að selja Eigendur og starfsfólk Sporthússins í nýrri og rúmgóðri verslun. Mynd: GT gallabuxur og í haust förum við að selja peysur o.fl. sem er nálægt því að vera tískufatnaður en þó frá framleiðendum íþrótta- vara,“ sagði Sigbjörn Gunnars- son. JHB lifpnr JARÐVEGSDÚKUR Hindrar vöxt illgresis • TYPAR kemur í veg fyrir illgresisvöxt í blómabeðum og matjurtagörðum. • TYPAR hleypir regnvatni í gegnum sig. • TYPAR er efnafraeðilega aðgerðarlaus þ.e. gefur ekki frá sér neinar efnablöndur. Hemill á rótarvöxt • TYPAR kemur í veg fyrir óæskilega dreifingu róta lóðrétt og lárétt t.d. við hlaðna veggi. • TYPAR ver t.d. framræslukerfi fyrir ágangi róta. • TYPAR ver t.d. ný beð fyrir rótum trjáa. Ræktun á lélegum jarðvegi y v 'o' j t. ;» v •'« •■’ * '4; " .•.’ .•'•••' :••• •. MKWMWMí Glerárgötu 20 • Akureyri • Sími 22233 Innflytjandi: Orka hf. • Þegar gróðurmold er sett ofan á lélegan (grófan) jarðveg er gott að nota TYPAR dúk á milli til að koma í veg fyrir jarðvegs- blöndun eða sig. • TYPAR hindrar rótarvöxt niður i undirlagið. • TYPAR heldur gróðurmoldinni á sínum stað t.d. í vatnsveðrum. • TYPAR er sparnaður — minnkar undir- vinnu, minna magn gróðurmoldar, t.d. þegar ræktað er ofan á hraun. • é

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.