Dagur - 20.07.1987, Síða 6
6 - DAGUR - 20. júli 1987
íþróttiL
Halldór Áskelsson átti stórleik í gær og hér er hann í þann veginn að skora þriðja mark Þórs. Mynd: gt.
SL-mótið 1. deild:
Þórsarar gjörsigruðu
meistarana
- Halldór með enn einn stórleik
2. deild:
Leiftur hrinti
Víkingum
af toppnum
Þórsarar standa nú mjög vel að
vígi í 1. deild SL-mótsins. í
gærkvöld lagði liðið að velli
Islandsmeistara Fram, 4:1, í
skemmtilegum leik. Sigur
Þórsara var sanngjarn en þó
full stór miðað við gang leiks-
ins. Staðan í hálfleik var jöfn
1:1.
Leikurinn fór mjög rólega af
stað og liðin þreifuðu fyrir sér
með varfærnum sóknum. Það
voru Framarar sem fengu fyrstu
færin í leiknum og þegar á heild-
ina er litið fengu þeir fleiri færi.
Það sannaðist hins vegar sem
menn vissu að færin er ekki nóg
að fá, þau verður að nýta.
Pétur Ormslev náði forystunni
fyrir Fram á 16. mínútu. Pétur
fékk boltann frá Arnljóti Davíðs-
syni og renndi sér á fleygiferð í
gegnum vörnina og skoraði með
föstu skoti.
Jöfnunarmark Þórsara kom á
25. mínútu. Þórsarar fengu þá
dæmda hornspyrnu og þeir Valur
og Kristján spiluðu úr henni.
Kristján sendi boltann fyrir
markið þar sem Einar Arason
kastaði sér fram og skallaði í
markið.
spyrnu, báðir á laugardag.
Magni á Grenivík fékk Reyni
Árskógsströnd í heimsókn og
sigruðu heimamenn 2:1 eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 1:1.
Jón Ingólfsson skoraði fyrra
mark Magna eftir að hafa fengið
boltann frá Heimi Ásgeirssyni.
Garðar Níelsson jafnaði fyrir
Reyni beint úr aukaspyrnu.
Sigurmarkið skoraði síðan Heim-
ir Ásgeirsson úr vítaspyrnu í síð-
ari hálfleik.
Þá sigraði HSÞ-b Austra frá
Eskifirði með tveimur mörkum
gegn einu.
Skömmu síðar fékk Einar
Ásbjörn gullið færi á að ná for-
ystunni fyrir Fram en tókst á
ótrúlegan hátt að skalla yfir af
markteig. Stuttu síðar átti hann
annan skalla yfir en nú af lengra
færi.
Framarar áttu einnig fyrsta
færið í síðari hálfleik þegar Pétur
Ormslev skallaði í hliðarnetið
eftir fyrirgjöf frá Ragnari. Ragn-
ar sást varla nema rétt framan af
leiknum því Árni Stefánsson sem
nú lék að nýju með Þór hélt hon-
um algerlega niðri.
Á 60. mínútu náði Jónas
Róbertsson forystunni fyrir Þór.
Hann æddi þá upp vallarhelm-
ing Framara og skaut föstum
jarðarbolta af 20 metra færi
Ekki leit út fyrir annað en Friðrik
markvörður réði auðveldlega við
skotið þar sem hann lagði sig
niður, en yfir hann fór boltinn og
inn. Friðrik varði hins vegar vel
skot frá Guðmundi Val skömmu
síðar.
Það fór vel á því að Halldór
Áskelsson skoraði þriðja mark
Þórs. Kristján átti þá langa send-
KA-menn lágu fyrir KR-ingum
í gærkvöldi er liðin léku í
Reykjavlk. KR-ingar sigruðu
með tveimur mörkum gegn
engu og var staðan 1:0 KR-ing-
um I vil I leikhléi.
Leikurinn fór rólega af stað en
þó virtust KA-menn öllu ákveðn-
ari í byrjun. KR-ingar komu þó
meira inn í leikinn er líða tók á
og tóku öll völd á miðjunni.
Jósteinn Einarsson átti fyrsta fær-
ið í leiknum, vann boltann
skemmtilega og lék inn að mark-
teig en skaut framhjá. Stuttu
seinna átti Pétur Pétursson
þrumuskot af 30 metra færi að
marki KA sem Haukur varði
frábærlega í horn. Tveimur
mínútum síðar átti Björn Rafns-
son þrumufleyg af 20 metra færi
að marki KA en Haukur sýndi
markvörslu eins og hún gerist
best og varði. Og mínútu síðar
voru KR-ingar enn á ferðinni. Þá
gaf Andri Marteinsson fallegan
ingu áleiðis að marki Fram. Við-
ar ætlaði að senda boltann til
Friðriks en með sínum dæma-
lausa dugnaði og hraða stal Dóri
boltanum, skaut „að gamni sínu“
í stöngina en svo aftur í markið,
staðan 3:1.
Fimm mínútum síðar varði
Baldvin mjög vel skot frá Einari
Ásbirni og Ragnari.
Það var svo Hlynur Birgisson
sem innsiglaði sigur Þórsara.
Viðskiptum Hlyns og Janusar
Guðlaugssonar lauk með því að
Hlynur stal boltanum lék honum
að marki og renndi snyrtilega
undir Friðrik, 4:1.
Skömmu fyrir leikslok átti svo
Siguróli Kristjánsson firnafast
skot rétt fram hjá marki Fram.
Halldór Áskelsson var yfir-
burðamaður á vellinum á sífelld-
um þönum um allan völl. Hjá Þór
var Árni einnig mjög góður og
Baldvin var öruggur ef undan eru
skilin eitt eða tvö glæfraleg út-
hlaup í fyrri hálfleik. Hjá Fram
var Pétur Arnþórsson bestur.
Magnús Theódórsson dæmdi
leikinn stórslysalaust.
bolta fyrir mark KA en Haukur
nánast stal boltanum af kolli Pét-
urs Péturssonar. Á 34. mínútu
fékk Björn Rafnsson boltann inn
í vítateig KA en gott skot hans
fór rétt framhjá. Mínútu síðar
fékk hann boltann á sama stað og
nú urðu honum engin mistök á,
skoraði stöngin inn, óverjandi
fyrir Hauk í marki KA. Það sem
eftir var fyrri hálfleiks var í eigu
KR-inga.
Síðari hálfleikur byrjaði eins
og sá fyrri endaði þ.e. KR-ingar
sóttu en KA varðist. Og eftir
aðeins fjórar mínútur voru KR-
ingar búnir að bæta við öðru
marki. Það kom eftir mikla
pressu. Björn Rafnsson gaf fyrir
mark KA en Haukur sló boltann
út á völlinn. Þá skaut Andri að
marki KA og Haukur varði. Will-
um átti þriðja skotið en KA-
menn björguðu á markteig og
loks skoraði Júlíus Þorfinnsson í
fjórðu tilraun KR-inga, annað
Sigurganga Leifturs á heima-
velli stöðvaðist ekki þó að liðið
fengi efsta lið annarrar deildar
í heimsókn á laugardaginn.
Leiftursmenn unnu sanngjarn-
an sigur á Víkingum 3:1, en
fengu þar með á sig fyrsta
mark sumarsins á heimavelli.
Heimamenn fengu óskabyrjun
í leiknum því strax á 10. mínútu
skoraði þjálfari þeirra Óskar
Ingimundarson fyrsta markið.
Sigurbjörn Jakobsson nikkaði þá
boltanum yfir Jón Otta Jónsson
markvörð Víkinga eftir langt
innkast. Boltinn datt fyrir fætur
Óskars sem afgreiddi hann snar-
lega í netið, staðan 1:0.
Víkingar voru meira með bolt-
ann í fyrri hálfleik en náðu þó
ekki að skapa sér umtalsverð
færi. Þorvaldur varði vel ágætt
skot frá Atla Einarssyni eftir
þunga sókn Víkinga.
En það er ekki nóg að vera
með boltann ef menn skapa sér
ekki færin, það gerðu Leifturs-
menn hins vegar aftur á 25. mín-
útu. Óskar fékk þá boltann á
miðjum vallarhelmingi Víkinga,
sneri sér við og sendi inn á miðj-
una til Hafsteins Jakobssonar
sem sendi boltann örugglega yfir
Jón Otta, staðan 2:0. Jóni var
skömmu síðar skipt útaf fyrir Pál
Guðmundsson.
Liðin fengu eftir þetta sín tvö
færin eða svo. Þorvaldur bjargaði
tvisvar mjög vel í marki Leifturs
og skömmu fyrir leikhlé varði
Páll í marki Víkings glæsilega
skallabolta frá Halldóri Guð-
mundssyni.
í síðari hálfleik færðist aukin
harka í leikinn en eins og í þeim
fyrri var ekki mikið um fallegan
samleik. Þriðja mark Leifturs
skoraði Helgi Jóhannsson á 53.
mínútu þegar hann skallaði bolt-
ann í netið eftir horn.
Skömmu síðar skall hurð nærri
hælum Víkinga þegar Gústaf
Ómarsson átti skot í þverslá.
Víkingum tókst svo að minnka
muninn á 62. mínútu. Þar var á
mark KR. Nokkru síðar átti
Tryggvi Gunnarsson skot að
marki KR frá vítateig en hátt
yfir. Næstu mínúturnar pressuðu
KR-ingar og greip Haukur
Bragason, besti maður KA oft
skemmtilega inn í og klippti á
sókn KR-inga. Á 11. mínútu síð-
ari háifleiks sluppu KA-menn vel
er Andra Marteinssyni var
brugðið á vítateigslínu KA en
ekkert dæmt. Nokkru síðar átti
KA hættulegasta færi sitt í leikn-
um er Þorvaldur Örlygsson skaut
þrumuskoti að marki KR en Páll
Ólafsson, markvörður KR-inga
varði stórglæsilega.
Það sem eftir lifði leiksins sóttu
KR-ingar nokkuð stíft og máttu
KA-menn þakka markverði sín-
um og máttarvöldum að sigur KR
varð ekki stærri. Erlingur Krist-
jánsson og Arnar Freyr Jónsson
fengu að líta hið fagurgula spjald
hjá ágætum dómara leiksins,
Sveini Sveinssyni. HB
ferðinni Björn Bjartmars.
Liðin skiptust á um að sækja
það sem eftir lifði leiksins og áttu
bæði sæmileg færi. Besta færið
fékk Leiftursmaðurinn Helgi
Jóhannsson þegar hann komst
einn í gegn en lét verja frá sér.
í liði Leifturs var Þorvaldur
Jónsson markvörður langbestur
og sannarlega maður leiksins.
Halldór og Friðgeir voru einnig
góðir. Hjá Víkingum var Trausti
Ómarsson bestur. Árni Arason
dæmdi erfiðan leik þokkalega og
gaf þrjú spjöld.
Völsi
hefndi
- s
„Þetta var ætlun okkar, við
komum til að sigra þá hérna,
ekkert annað kom til greina en
að hefna fyrir 2:4 tapið á Húsa-
vík,“ sagði Guðmundur Ólafs-
son þjálfari Völsunga eftir að
þeir höfðu lagt Keflvíkinga að
velli syðra I gærkvöld, 0:1,
fremur óvænt.
Það voru heimamenn sem voru
meira með boltann framan af
fyrri hálfleik án þess þó að skapa
sér færi.
Fyrsta færið var Húsvíkinga á
16. mínútu. Aðalsteinn Aðal-
steinsson slapp þá inn fyrir vörn
ÍBK en skaut naumlega framhjá í
dauðafæri.
4. deild:
HSÞ-C
komið í
úrslit
Um helgina voru tveir leikir I
E-riðli 4. deildar og tveir í F-
riðli.
I E-riðli sigraði Kormákur
Árroðann 5:7. Leikurinn var sér-
lega sögulegur fyrir þær sakir að
Árroðamenn léku aldrei fleiri en
10 og byrjuðu aðeins 9. f hinum
leiknum sigraði UMFS Neista
með fimm mörkum gegn engu.
í F-riðli fékk Æskan HSÞ-c í
heimsókn og sigruðu gestir 1:3.
HSÞ-c er þá búið að tryggja sig í
úrslitakeppni 4. deildar, liðið er
með fullt hús stiga og á aðeins
eftir leik við Vask. Vaskur sigr-
aði Austra á Raufarhöfn með
tveimur mörkum þeirra Sigurðar
Skarphéðinssonar og Jóns Berg
Hjaltalín gegn einu. Vaskarar
áttu einnig við mannavandræði
að etja en leystu þau á þann veg
að þjálfari þeirra Magnús Jóna-
tansson lék með eftir 6 ára hlé frá
boltanum.
SL-mótið 1. deild:
Sanngjam sigur KR á KA