Dagur - 29.07.1987, Blaðsíða 1

Dagur - 29.07.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur Akureyri, miðvikudagur 29. júlí 1987 141. tölublað A//t -fyrir- Siglufjörður: Sigluvíkin farin í viðgerð til Þýskalands - Enginn íslenskur aðili gerði tilboð í verkið Sigluvík, togari Þormóðs ramma hf. á Siglufirði, selur afla sinn, 155-160 tonn, í Bremerhaven í Þýskalandi í dag. Strax eftir söluna verður skipinu siglt til Flensburg þar sem skipið verður í viðgerð næstu 5 vikurnar. Runólfur Birgisson, skrifstofu- stjóri Þormóðs ramma hf. sagði í samtali við Dag að gert verði við dekk skipsins sem hafi verið farið að skemmast. Einnig verður sett nýtt aðgerðakerfi í skipið þ.e. nýjar þvottavélar, ný færibönd og fleira er viðkemur aðgerð á milli- dekki. Öll spil á dekki verða endurnýjuð og aðalspilbúnaður verður gerður upp frá grunni. Skrúfa skipsins verður gerð upp og aðalvél yfirfarin. Stálvíkin er 450 tonna skip smíðað á Spáni árið 1974. Það er útbúið fyrir ísfisk, ekki hefur ver- inn settur útbúnaður fyrir laus- frystingu í skipið og að sögn Run- ólfs stendur ekki til að gera það á næstunni. Aðspurður um hvort útbúa ætti skipið nú fyrir tvö troll sagði Runólfur að þessar breyt- ingar væru byrjunin, seinna meir þyrfti að breyta spilbúnaði og fleiru til að hægt verði að hafa tvö troll um borð. Skipasmíðastöðin Neue Flens- burg gerði tilboð ásamt 5 öðrum aðilum í verkið en tilboð þeirra hljóðar upp á 13 milljónir. Auk þess kaupir útgerðin tæki hér heima, t.d. spilbúnað, og lætur setja í skipið og í heild er gert ráð fyrir að breytingarnar kosti um 35 milljónir króna. Enginn íslenskur aðili gerði tilboð í verk- ið og tilboð þau er útgerðin fékk voru á bilinu 13-18 milljónir króna. JÓH Undanfarið hafa bílaumboðin auglýst að þau taki gamla bíla upp í nýja, en mörg eru nú að gefast upp á því vegna þess að gömlu bílarnir seljast ekki og hrannast upp hjá umboðunum. Mynd: GT Bílamarkaðurinn: Erfitt að losna við eldri bíla - Ekki teknir upp í nýja nema auðseljanlegir séu „Það hefur dregið verulega úr því að við tökum eldri bíla upp í nýja. Það er fyrst og fremst út af því að við eigum núna mikið af notuðum bílum og það er lít- il hreyfing í sölu á þeim,“ sagði Eyjólfur Agústsson hjá Höldi þegar hann var inntur eftir því, hvort erfitt væri að selja not- aða bíla um þessar mundir. Hann sagði ástæðurnar fyrst og fremst þær, að bæði væri þessi tími árs erfiður og að svo væri markaðurinn hreinlega orðinn mettaður. Mjög mikið hefur ver- ið pantað hjá þeim af nýjum bíl- um árgerð ’88, og sagðist hann reikna með því að þegar þeir kæmu, yrði mjög erfitt að losna við alla bíla eldri en ’82. Eyjólfur nefndi einnig, að eldri bílar væru of hátt verðlagðir, þannig að munur á verði nýs bíls og 3-4 ára væri orðinn of lítill. „Á endanum ná menn sönsum. Það er tómt rugl að ætla að selja þessa bíla á því verði sem sett er upp.“ Varðandi hvort aukning væri á bílasölu frá í fyrra þegar sem mestur kippur kom í sölu nýrra bíla samfara verðlækkuninni, sagði hann svo ekki vera, heldur væru hún álíka ntikil. Á öðrum bílasölum sem Dagur hafði samband við var sömu sögu að segja. Flestir vorú sammála um aukna eftirspurn nýrra bif- reiða, of hátt verðlag á þeim gömlu og að dregið hefði verið úr ! því að taka gamla bíla upp í nýja. VG Lífeyrissjóðir: Litil eftirspurn eftir lánum Mjög hefur dregið úr eftir- spum eftir lífeyrissjóðslánum á þessu ári og seinni hluta síðasta árs og er það vegna nýja hús- næðislánakerflsins. Blaðið hafði samband við Jón Helga- son hjá lífeyrissjóðnum Sam- einingu og Braga Jóhannsson hjá lífeyrissjóði KEA og spurði þá út í stöðuna hjá þessum líf- eyrissjóðum. „Eftirspurnin er lítil núna og það er ósköp skiljanlegt þegar farið er að greiða lánin niður fyrir fólk. Það eru aðeins þeir sem ekki geta fengið lán hjá Hús- næðisstofnun sem koma til okkar,“ sagði Jón. Auk þess sem eftirspurn eftir lánum hefur dreg- ist mikið saman hefur það aukist að fólk greiði upp eftirstöðvar af eldri lánum. Það sama kom fram hjá Braga Jóhannssyni. „Úthlutunum hjá okkur hefur fækkað um nærri helming það sem af er þessu ári samanborið við síðustu ár og upphæðin væri meira en helmingi lægri. Eftirspurnin minnkaði mikið strax á síðasta ári og það er vegna þess að samið var um nýja húsnæðisiánakerfið í febrúar- samningunum. Þá var strax ljóst hvað var framundan og fólk beið eftir að fá lán með niðurgreidd- um vöxtum." Þeir Bragi og Jón voru spurðir hvort þessi þróun væri á einhvern hátt slæm fyrir lífeyrissjóðina. „Alls ekki fjárhagslega, þvi það bjóðast ýmsir fjárfestingakostir. Við getum ávaxtað féð hjá ýms- um fjárfestingalánasjóðúm og stofnunum fyrir miklu hærri raunvaxtaprósentu en við mynd- um veita sjóðfélögunum. En það verður líka að taka það með í dæmið að 55% af fé lífeyrissjóð- anna renna til Húsnæðisstofnun- ar og vextir þar eru ekki nema 6,25% sem er slæmt þvi við gæt- um lánað þetta fé til sjóðfélaga á sömu vöxtum og eru í bönkunum og þeir eru komnir í 8-9%. Félagslega sjónarmiðið er svo aftur önnur hlið á þessu máli og á ég þá við að samband sjóðfélaga við eigin sjóð minnkar og það er slæmt,“ sagði Bragi. Jón sagðist hafa litið svo á að best væri að lána féð beint til sjóðfélaga. „Ég held að þessi vaxtakjör rugli alla í ríminu og ef það á að fara að hækka þá enn einu sinni þá hækka verðbréfa- markaðirnir vextina hjá sér og þeir eru að sölsa undir sig stóran hluta af þessu fjármagni. í sjálfu sér er það goít fyrir lífeyrisþeg- ana að féð sé vel ávaxtað því öflugri verður sjóðurinn,“ sagði Jón. HJS Hafnarstræti 86: Hafnar framkvæmdir við enduibyggingu hússins „Það hefur orðið hugarfars- breyting hvað varðar húsfrið- unarmál á Akureyri,“ sagði Sverrir Hermannsson húsa- smiður, en hann er að hefja framkvæmdir við endurbygg- ingu suðurgafls hússins Hafn- arstræti 86, sem er gamla versl- unin Eyjafjörður. Hús þetta var byggt 1902, og er norskt innflutt plankahús. Þarna var í fyrstu Grundarverslun en síðan Verslunin Eyjafjörður til langs tíma. Stefnan er að taka suðurgafl- inn, sem að sögn Sverris er eflaust fallegasti timburhúsastafn á Akureyri, fyrst í gegn, en yfirfara síðan allt húsið. Reyna á að Ijúka verkinu í áföngum á þremur árum ef allt gengur vel. Sverrir vinnur nú við endur- byggingu fimm annarra húsa, en það var hann sem endurbyggði m.a. Laxdalshús og gamla Barna- skóla Akureyrar. Það eru eigendur hússins sem standa fyrir endurbyggingunni að ósk Þórs Magnússonar þjóð- minjavarðar, en Þjóðminjasafnið mun styrkja verkið að einhverju leyti. Að sögn Guðntundar Ármanns hjá teiknistofunni Stíl, sem er einn eigenda hússins, er húsið ekki friðað og hefur þess vegna ekki fengist styrkur frá Húsfrið- unarnefnd Akureyrar. Ekki hef- ur verið tekin ákvörðun um það hjá eigendum að fara fram á að húsið verði friðað, en þeir hafa stofnað með sér hússjóð sem á að greiða niður þessar framkvæmdir. Þorsteinn Gunnarsson arkitekt hefur gert úttekt á húsinu, þar sem hann gefur því m.a. einkunn- irnar mjög gott fyrir listagildi, gott fyrir viðhald og ágætt fyrir listræna stöðu í umhverfi. VG Endurbætur eru nú hafnar á húsinu sem stendur við Hafnarstræti 86. Það inun áreiðanlega gleðja marga sem muna eftir húsinu eins og það var. Mynd: GT

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.