Dagur - 29.07.1987, Blaðsíða 6

Dagur - 29.07.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 29. júlí 1987 „Stjómarflokkarnir hafa jafiiað ýmsan ágreining - og geta nú snúið sér samhentir að framgangi þeirra velferðarmála sem ríkisstjómin leggur áherslu á“ Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingaráðherra er lík- lega fyrsti Húsvíkingurinn, fæddur þar og uppalinn, sem gegnir ráðherraembætti. Reyndar hafa menn sem tengjast Húsavík áður setið á ráðherrastóli og nægir þar að nefna Áka Jakobsson, sem fæddist á Húsavík en fluttist þaðan snemma. Hann átti sæti í Nýsköpunarstjórninni svonefndu. I»á gegndi Húsvíkingurinn Jóhann Hafstein ráðherraembætti í Viðreisnarstjórninni, en Jóhann og allt hans fólk hélt mikilli tryggð við Húsavík. En Jóhann fæddist ekki á Húsavík, heldur á Akureyri og mun Guð- mundur því vera fyrsti „eiginlegi“ Húsvíkingurinn sem gegnir þessu embætti og sá eini sem er þingmaður þeirra. Guðmundur skrapp til Húsavíkur fyrir skömmu þegar örlítið hlé gafst frá annríkinu í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu. Hann sló reynd- ar tvær flugur í einu höggi eins og þar stendur og heimsótti í leið- inni nokkrar heilsugæslustofnanir í heimabæ sínum til þess að fá innsýn í það sem þar fer fram. Hann gaf sér einnig tíina til viðtals við Dag um stjórnarmyndunarviðræðurnar og þau viðfangsefni sem bíða úrlausnar í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu og fleira sem tengist þeim málaflokki. Við spurðum Guðmund fyrst um stjórnarmyndarviðræðurnar. „Auðvitað var það ljóst strax að kosningum loknum að stjórn- armyndun yrði erfið og myndi taka langan tíma. Kosningaúrslit- in voru þannig að ekki var ljóst hvað við tæki og einnig var sýnt að ekki yrði hægt að mynda meirihlutaríkisstjórn öðruvísi en með þátttöku a.m.k. þriggja flokka. Við framsóknarmenn lentum til að byrja með nokkuð út úr umræðunni, enda virtist það komið fram strax fyrir kosningar hjá formönnum nokkurra stjórn- málaflokka, að það bæri að reyna myndun ríkisstjórnar án þátttöku Framsóknarflokksins og að rétt væri að gefa honum frí frá stjórn- arþátttöku að þessu sinni. Fyrsta verk Jóns Baldvins að tala við Framsókn Niðurstaðan varð hins vegar sú eins og stundum áður, að þegar fram í sótti náðu aðilar ekki sam- komulagi og gátu ekki myndað ríkisstjórn án okkar. Annað mynstur virtist ekki geta gengið upp. Eins og menn muna fékk Jón Baldvin, formaður Alþýðu- flokksins, umboð til stjórnar- myndunar eftir nokkurn tíma, og það er kannski svolítið spaugilegt að það varð að vera hans fyrsta verk að kveðja Framsóknar- flokkinn til viðræðna við sig um ríkisstjórnarmyndun, þótt Jón Baldvin hafi kannski talað manna mest um möguleikana á ríkis- stjórn án Framsóknarflokksins. Þessar viðræður fóru ágætlega af stað og vel var unnið strax frá upphafi. Þrír fulltrúar frá hverj- um flokki fóru saman yfir hina ýmsu málaflokka og reyndu að samræma mismunandi sjónarmið og finna út hver helstu ágrein- ingsefnin væru. Að þessum umræðum loknum var eins og kæmi talsvert uppihald í þetta og það tók töluverðan tíma að þoka málum í þann farveg að menn færu af alvöru að ræða um stjórn- arsáttmála og skiptingu ráðu- neyta, sem er auðvitað líka mjög mikilvægt atriði. Verkaskiptingin mikilvæg Það var töluvert rætt um það í fjölmiðlum að viðræðurnar hefðu að langmestu leyti snúist um ágreining um einstök ráðuneyti eða ráðherrastóla. Það kann að vera að svo hafi litið út. en ég vil ekki gera lítið úr þeim þætti stjórnarmyndunarinnar. því það er síst minnsta atriðið hvaða flokkur fer með hvern málaflokk. Sem dæmi má nefna að nú. eftir að stjórnarmyndunin er afstaðin. hafa fjölmargir framsóknarmenn komið að máli við okkur sem í þessu stóðum og sagt að við hefð- um aldrei átt að gefa það eftir að formaður okkar flokks yrði for- sætisráðherra. Flvað er þetta annað en áhersla okkar flokks- manna á það að við hefðum átt að láta sverfa til stáls um forsætis- ráðherrastólinn? Það er ákveðin mótsögn fólgin í þessu; að segja fyrst að þetta snúist allt um einskisverðan stólaslag, en segja síðan að við hefðum aldrei átt að gefa þetta eða hitt eftir. Það sama var uppi á teningnum varð- andi fleiri ráðuneyti. Við lögðum t.d. mikla áherslu á að halda sjávarútvegsráðuneytinu og eins býst ég við að einhverjum hefði þótt það undarlegt ef við hefðum gefið eftir landbúnaðarráðuneyt- ið til Alþýðuflokksins. Ég legg því áherslu á að verkaskipting innan ríkisstjórnar er ekki síður mikilvæg en þær leiðir sem menn koma sér saman um að fara til að leysa einstök vandamál. ítarlegur stjórnarsáttmáli Mjög langur tími fór síðan í að fara yfir drögin að stjórnarsátt- málanum, sem að þessu sinni er mikið lengri og ítarlegri en ég a.m.k. þekki til frá tveimur ríkis- stjórnum þar á undan. Núna er reynt að taka á sem flestum rhálaflokkum og þeim gerð skil í stjórnarsáttmálanum og starfslýs- ingu þessarar ríkisstjórnar. Það finnst sjálfsagt einhverjum að hér sé um að ræða nokkurs konar óskalista og því er auðvitað ekki að neita að þegar þrír flokkar með ólíkar áherslur koma saman, vill hver flokkur um sig koma sínum málum á framfæri og láta þau njóta sín í endanlegri mynd málefnasamningsins. Allt þetta tók því sinn tíma en mér finnst tíminn ekki skipta sköpum, aðalatriðið er að menn ■^standi saman og vinni að þeim málum sem fram eru sett í stjórn- arsáttmálanum og leggi sig fram um að ná þeim markmiðum sem þar er stefnt að. Þótt þau náist e.t.v. ekki öll, þá eru þau þó lýs- ing á vilja þessarar ríkisstjórnar og mest er um vert að flokkarnir vinni saman af fullum heilindum í framhaldi af þessu mikla undir- búningsstarfi." - Sumir hafa sagt að í þessu samstarfi séu ákveðnir brestir og því sé ekki líklegt að ríkisstjórn þessara flokka nái að sitja út kjörtímabilið. Hvað viltu segja um þær hrakspár? „Ég skal ekki á þessu stigi leggja neinn dóm á það hversu lengi þessi ríkisstjórn kemur.til með að sitja - reynslan verður að leiða það í Ijós. Ég vonast þó til þess að svo ítarleg undirbúnings- vinna sé líkleg til að styrkja stoð- ir þessa samstarfs og ætti að hafa leitt til þess að stjórnarflokkarnir séu þegar búnir að jafna ýmsan ágreining og geti snúið sér sam- hentir að framgangi þeirra vel- ferðarmála sem ríkisstjórnin leggur áherslu á. Rætt við Guðmund Bjamason heilbrígðís- og tngginga- ráðherra Fyrri hluti Sögulegt samstarf Mér finnst sjálfum það vera nokkuð sögulegt atvik að Fram- sóknarflokkur og Alþýðuflokkur skuli nú hafa tekið upp stjórnar- samstarf. Ég hef verið og er reyndar enn þeirrar skoðunar að þetta séu flokkar með svo líka grundvallarstefnu að þeir eigi mjög auðveldlega að geta unnið saman. Ágreiningurinn sem verið hefur mörg undanfarin ár þarna á milli, hefur oft verið persónuleg- ur eða persónubundinn og slíkt á auðvitað að leggja til hliðar og reyna að forðast þegar menn eru að vinna í stjórnmálum og takast á unt stefnur. Vissulega hafa þessir flokkar haft ólíkar áherslur í einstaka málaflokkum og má þar m.a. nefna landbúnaðarmál, þar sem þessa flokka hefur greint nokkuð á á undanförnum árum. En ég fagna því að nú skuli hafa tekist samstarf milli þessara tveggja flokka og ég vona að það samstarf geti varað og orðið báð- um þessum flokkum, sem eru af sama meiði í raun og veru, til far- sældar. Hvað stjórnarsamstarfiö varð- ar að öðru leyti tel ég aðalatriöið vera það að hafa stjórn á efna- hagsmálunum og þar meö hemil á verðbólgunni. Traust efnahags- líf og traust undirstaða atvinnu- lífs er auðvitað það sern mestu máli skiptir. Hitt kemur allt á eftir. Dæmin sýna að ef óvissa ríkir í atvinnumálum og efna- hagsmálin fara úr böndunum, getum við ekki búist við því að það verði auðvelt að byggja upp aðra þá þætti mannlífsins sem við viljum leggja áherslu á.“ Framsókn með fjögur og hálft ráðuneyti - Ertu sáttur við þau embætti sem komu í hlut Framsóknar- flokksins í þessari ríkisstjórn? „Ég held að hlutur Framsókn- arflokksins varðandi skiptingu ráðuneyta sé góður. Ég hef ekki ástæðu til annars en að láta mér það vel líka. Auðvitað hefðum við gjarnan viljað að formaður Framsóknarflokksins yrði áfram forsætisráðherra. Hann á mikið traust til þess embættis, það hafa skoðanakannanir sýnt og úrslit kosninganna í hans kjördæmi sýndu það auðvitað líka en þar vann hann stóran persónulegan sigur. Skoðanakannanir síðan hafa einnig sýnt að mikill meiri- hluti þjóðarinnar vildi hafa Steingrím Hermannsson áfram sem forsætisráðherra. En um þetta náðist ekki samkomulag og við það verða menn að sætta sig. Að því frágengnu lögðu fram- sóknarmenn áherslu á það að utanríkisráðuneytið kæmi í þeirra hlut - að því tilskildu að utanríkisviðskiptin yrðu færð þangað og því má segja að fram- sóknarmenn hafi a.m.k. fjögur og hálft ráðuneyti út úr þessum uppskiptum. Og það að hafa tvö atvinnumálaráðuneyti, bæði sjávarútveginn og landbúnaðinn, er líka mjög mikilvægt fyrir Framsóknarflokkinn því við vilj- um áfram beita okkur fyrir því að

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.