Dagur - 29.07.1987, Side 12

Dagur - 29.07.1987, Side 12
Akureyri, miðvikudagur 29. júlí 1987 Fréttamaður Stöðvar 2 á Akureyri: Stefnt að ráðn- ingu fyrir haustið „Jú, það er stefnan hjá okkur,“ sagði Páll Magnússon fréttastjóri á Stöð 2, þegar við inntum hann eftir því hvort ekki væri þar á stefnuskrá að ráða fréttamann á Akureyri. „Við erum í startholunum með að ráða þarna fréttamann í hluta- starf. Trúlega myndi þessi maður líka vinna verkefni í aðra þætti, auk vinnu fyrir Eyfirska sjón- varpsfélagið." Enn hefur ekki verið gengið frá fastráðningu, en fréttamenn af öðrum fjölmiðlum hafa bjarg- Akureyri: Úttekt á rekstri Hótel Varðborgar Þessa dagana er verið að gera úttekt á rekstri Hótel Varð- borgar á Akureyri. Ingimar Eydal, formaður stjórnar fyrir- tækja I.O.G.T., segir að setja þurfi fé í reksturinn þar sem eldri hluti hótelsins sé úr sér genginn og standi höllum fæti gagnvart hinni auknu sam- keppni. „Við erum að skoða öll þessi mál og móta framtíðar- Jón Kristinsson: Enn á ferðinni - Fer í dag í ferð um héraðið í dag hélt Jón Kristinsson af stað í ferð sína um héraðið, en hann heldur ótrauður áfram að safna áheitum til byggingar hjúkrunardeildarinnar Sels á Akureyri. Jón sagðist ætla að fara um allt svæði Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og í dag verður hann á Kópaskeri og Raufarhöfn og á morgun á Pórshöfn og Vopna- firði. Húsavík verður síðasti áfangastaður Jóns í þessari yfirreið. í ferð sinni ætlar Jón að bjóða vistmönnum á dvalarheimilum upp á samskonar dagskrá og hann gerði í hjólreiðarferðinni til Reykjavíkur, auk þess sem fólk fær tækifæri til að veita verkefn- inu stuðning sinn. Vildi Jón koma á framfæri kæru þakklæti til allra þeirra sem greitt hafa götu hans og fyrir þann velvilja og stuðning sem hann hefði notið. „Ég hef hvar- vetna fengið höfðinglegar mót- tökur og er innilega þakklátur öllum sem mig hafa stutt á ferð- um mínurn," sagði Jón. mþþ stefnu fyrir hótelið. Við vorum lengi með það nýjasta í hótelmál- um en samkeppnin hefur aukist mikið og það er kominri tími fyrir ákveðið átak. Við bíðum nú eftir skýrslu sem verið er að vinna fyr- ir okkur og þegar hún kemur ákveðum við hvert framhaldið verður," sagði Ingimar. Nú mun ákveðið að Arnfinnur Arnfinnsson. framkvæmdastjóri hótelsins og Borgarbíós, láti af störfum í haust. Sagði Ingimar að Arnfinnur hefði um skeið hugleitt að draga sig í hlé og hefði nú ákveðið að láta verða af því í haust eftir langt og giftudrjúgt starf í þágu fyrirtækja I.O.G.T. Stjórnin væri byrjuð að líta í kringum sig eftir nýjum manni en enginn hefði enn verið ráðinn. Þá hefur Dagur einnig fregnað að breytingar standi fyrir dyrum á rekstri Borgarbíós en þar hefur Sigurður Arnfinnsson verið bíó- stjóri um nokkurt skeið. Ingimar vildi hins vegar hvorki játa þessu né neita. JHB RAFGEYMAR VIÐHALDSFRÍIR í BfLINN, BATINN, VINNUVÉLINA pörnm HF. Varahlutaverslun ■ Við Tryggvabraut • Akureyn • Sími 22700 að þeim hingað til. „Það hafa nokkrir prófað, og við ætlum að leyfa það fleirum, en ekkert hef- ur verið afráðið.“ Aðspurður um hvort viðbrögð hafi verið góð við þeim frétta- skotum sem verið hafa, sagði Páll svo vera. „Við vitum að það er mikið horft á okkur á þessu svæði og að við þurfum að koma þessu í fast form, þannig að þarna sé maður sem fylgist með fyrir okk- ur og sendi okkur regluleg innslög." Stefnt er að því að ganga frá þessum málum fyrir haustið. VG „Pinnhitt“ í teighöggi. Á landsmóti sem lýkur á laugardaginn, verða sleg- in 16.776 slik! Mynd: GT Landsmót í golfi: 18 holur á 41A klukkustund Á Jaðarsvelli við Akureyri stendur nú landsmót í golii sem hæst. Mótið hófst í fyrra- dag og því lýkur á laugardag- inn. Keppendur á landsmótinu eru 233 að þessu sinni og hafa aðeins einu sinni verið fleiri. Keppend- urnir koma frá 14 golfklúbbum og keppt er í sjö flokkum. í dag hefst keppni í meistara- flokki karla og kvenna en aðrir flokkar hafa þegar hafið keppni. Leiknar eru 72 holur í hverjum flokki, 18 á hverjum degi. Kepp- endum eru sett tímamörk og mega ekki vera lengur en 4'4 tíma að leika 18 holur. Það er því eins gott að allt skipulag og stjórnun gangi vel fyrir sig. Ástæða er til að hvetja fólk til að láta sjá sig að Jaðri og fylgjast með spennandi keppni í fögru umhverfi og njóta hinnar frábæru aðstöðu sem GA hefur komið sér upp. ET Könnun Umferðarráðs: Bílbeltanotkun hefur aukist um 15,6% á einu árí Okumönnum sem nota bílbelti hefur fjölgað í 47,7% úr 32,1% síðan í fyrra ef marka má niðurstöður úr könnun sem Umferðarráð lét gera um land allt fyrr í sumar. Þetta er í þriðja sinn sem þessi könnun er gerð og voru niðurstöðurnar kynntar fjölmiðlum í gær. Heildarfjöldi bíla í úrtakinu var 2365 og samsvarar það 1,84% af bílaeign landsmanna. Öku- menn þessara bíla voru í 72% til- fella karlmenn en 28% voru konur. Ef litið er á heistu niðurstöður þá sést að flest þau atriði er könnuð voru hafa breyst til batn- aðar. Fjölgun ökumanna sem nota bílbelti verður að teljast það markverðasta sem kom fram en hún er 15,6% sem telst mjög gott. Þá var einnig markverð aukning á Ijósanotkun, 46,2% bílanna voru með ljós en það er aukning um tæp 13%. Farþegum í framsæti með bíl- belti fjölgaði úr 41,5% í 55,5% og laus börn í framsæti reyndust aðeins vera í 2% bílanna en sambærileg tala frá fyrra ári var 3,3%. Börn í aftursæti, sem ann- að hvort voru í bílstól eða með bílbelti, voru í 39% bílanna, sem er 7% aukning, og fullorðnir í aftursæti með belti voru í 35,3% bíla sem er svipuð aukning og hjá börnunum. í 44,4% tilfella var ökumaður einn í bílnum. Sjúkrakössum, slökkvitækjum o.fl. hafði fjölgað nokkuð síðan í fyrra, sérstaklega sjúkrakössum, en þeim fjölgaði í 31,1% úr 17,7%. Bílasímar reyndust vera í 6,6% bílanna. Þá var einnig athugað almennt ástand bifreiðanna, hemlabúnað- ur, ljósabúnaður o.fl. og reyndist hann vera góður í 90-94% tilfella. JHB Ríkið skuldar Grýtubakkahreppi 10 millj. vegna skólabyggingar - Útsvarstekjur sveitarfélagsins tæpar 12 milljónir - Þungur róður, segir Stefán Þórðarson sveitarstjóri Síðasta haust var skuld ríkis- ins við Grýtubakkahrcpp vegna skólabyggingar 10 milljónir króna. Gerður var samningur milli ríkisins og sveitarfélagsins á síðasta ári sem byggir á lögum um skólabyggingar, en ríkið greiðir 50% af kostnaði. Á fjárlögum á þessu ári eru 1.200 þúsund af þessari upphæð. „Ef við fáum þessa skuld ekki greidda verður róðurinn þungur fyrir sveitarfélagið," sagði Stef- án Þórðarson sveitarstjóri. Byrjað var á byggingu skól- ans árið 1977. Skólinn er á tveimur hæðum og er hver hæð 611 fermetrar. Flutt var inn í skólann árið 1981 og stefnt er að því að ljúka byggingunni fyr- ir haustið. Leitað hefur verið eftir að fá fé til byggingarinnar hjá fjár- veitinganefnd og menntamála- ráði á undanförnum árum eftir því sem kostur hefur verið á. „Við höfum verið í stöðugu sambandi við þessa aðila og vonum að úr fari að rætast. Þetta hefur valdið okkur mikl- um erfiðleikum og við höfum þurft að draga saman seglin hvað aðrar framkvæmdir varðar. Þetta stendur í vegi fyrir annarri uppbyggingu sveitarfé- lagsins og það er mikið mál fyrir okkur að fá svo háa skuld greidda,“ sagði Stefán. Um 430 manns búa nú í Grýtubakkahreppi og sagði Stefán að til viðmiðunar þessari skuld þá væru útsvarstekjur sveitarfélagsins samkvæmt nýrri áiagningarskrá tæpar 12 millj- ónir króna. „Af því sést best hversu geysilega há þessi skuld er,“ sagði Stefán. mþþ

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.