Dagur - 21.08.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur
Akureyri, föstudagur 21. ágúst 1987
157. tölublað
Norðurlandsumdæmi eystra:
Siguröur Hallmarsson
settur fræðslustjóri
- Ólafi Guðmundssyni veitt lausn frá störfum
frá og með næstu mánaðamótum
Sigurður Hallmarsson, skóla-
stjóri á Húsavík, hefur verið
settur fræðslustjóri Norður-
landsumdæmis eystra frá og
með næstu mánaðamótum. Er
þetta gert í fullu samráði við
Þráin Þórisson, formann
fræðsluráðs Norðurlandsum-
dæmis eystra. Ólafi Guð-
mundssyni, scttum fræðslu-
stjóra umdæmisins, hefur ver-
ið veitt lausn frá störfum frá og
með sama tíma. Hann hefur
verið ráðinn til að starfa að
„sérstökum verkefnum“ í
menntamálaráðuney tinu.
Eins og kunnugt er hefur Ólaf-
ur margoft lýst því yfir að hann
væri reiðubúinn til að láta af
störfum ef það mætti verða til
lausnar deilunni sem staðið hefur
um þetta embætti síðan Sturlu
Kristjánssyni var sagt upp störf-
um á síðastliðnum vetri. Sam-
skipti Ólafs við starfsfólk
fræðsluskrifstofunnar hafa geng-
ið mjög stirðlega og starfsemi
skrifstofunnar hefur ekki verið
með eðlilegum hætti síðan hanh
tók til starfa.
Guðmundur Magnússon,
aðstoðarmaður menntamálaráð-
herra, var spurður hvort ástæða
væri til að ætla að meiri friður
myndi ríkja um Sigurð en ríkt
hefur um Ólaf og sagðist hann
ekki þora að spá um það. „En
maður skyldi ætla það þar sem
þetta er gert í fullu samráði við
formann fræðsluráðs. Sigurður er
kunnur skólamaður fyrir norðan
og ég vona að hann geti starfað
þarna í friði og í góðu samstarfi
við okkur í ráðuneytinu."
Orðrómur hefur verið á kreiki
um að Trausta Þorsteinssyni,
skólastjóra á Dalvík, hafi verið
boðin staðan en Guðmundur
vildi ekkert segja um það.
„Ætli hafi ekki verið talað við
mig eins og marga aðra, það er
hugsanlegt," sagði Trausti Þor-
steinsson þegar þetta var borið
undir hann. Trausti var þá spurð-
ur hvers vegna hann hefði hafnað
stöðunni og sagðist hann ekki
hafa séð fram á að hann gæti tek-
ið henni, hann væri í starfi á Dal-
vík og því hefði ekki verið um
þetta að ræða.
Þess má geta að sérkennslumál
í Norðurlandsumdæmi eystra er
nú til athugunar í ráðuneytinu.
„Raunar hafa öll sérkennslumál
verið tekin til sérstakrar athugun-
ar og þá ekki síst í Norðurlands-
umdæmi eystra,“ sagði Guð-
mundur Magnússon. JHB
Séð yfir Hafnarstræti á Akureyri, þann hluta sem nú er göngugata.
Ólafsfjörður:
Enginn sótti
um stöðu
tannlæknis
Þann 17. ágúst rann út
umsóknarfrestur um stööu
tannlæknis á Ólafsfirði. Að
sögn Valtýs Sigurbjarnarsonar
bæjarstjóra, sótti enginn um
starfið en nokkrar fyrirspurnir
bárust.
Að sögn Valtýs ætla þeir að
auglýsa aftur með vorinu og von-
ast þá til þess að nýútskrifaðir
tannlæknar sæki um starf, en
aðstaða hjá þeim er að sögn,
mjög góð.
Óskað verður eftir því, að
tannlæknir sá sem er að yfirgefa
Ólafsfirðinga, muni sinna skóla-
skoðunum í haust áður en hann
fer, en eftir það þurfa bæjarbúar
því miður að leita annað. VG
ÍŒAÍ
Nýr mjólkurbíll
á Dalvíkurleið
Kaupfélag Eyfirðinga hefur
fest kaup á nýjum mjólkurbíl
af gerðinni MAN. Bfllinn, sem
leysir annan jafnstóran af
sömu gerð af hólmi, er vænt-
anlegur um miðjan október.
Bílíinn er frambyggður með
7000 lítra tank og kostar án
tanksins rúmar 4 milljónir króna.
Hann mun verða notaður á Dal-
víkurleið, en á þeirri leið eru nú
tveir bílar sem báðir eru orðnir
11 ára gamlir. Er vonast til að
hægt verði að endurnýja hinn á
næsta ári. JHB