Dagur - 21.08.1987, Síða 3
21. ágúst 1987 - DAGUR - 3
1987 gott heyskaparár
- en heyfengur skiptir bændur því miður ekki eins mikiu máli
og áður vegna samdráttar í framleiðslu, segir Bjarni Guðleifsson
„Heyfengur er eins og í góðu
ári, þetta hefur víða komið vel
út hjá mönnum og heygæði
skipta ekki minna máli nú en
áður. Margir eru búnir að
tvíslá hér í Skagafiröi og hey-
fengur er almennt mikill og
góður,“ sagði Egill Bjarnason,
ráðunautur hjá Búnaðarsam-
bandi Skagfirðinga.
Bjarni Guðleifsson, ráðunaut-
ur hjá Ræktunarfélagi Norður-
lands, sagði að heyfengur hefði
víðast verið mikill og góður í ár.
Þó gætti þess nokkuð að breyttur
hugsunarháttur ríkti í þessum
efnum. Áður hefðu bændur reynt
að vera með sem stærst bú en nú
væri samdráttur í landbúnaði og
heyfengur skipti menn ekki eins
miklu máli og áður.
„Ég hef orðið var við að bænd-
ur hafa því miður ekki sama
áhugann fyrir því að ná inn miklu
og góðu heyi eins og áður vegna
samdráttar í framleiðslu. Þetta er
í rauninni mikil breyting á hugs-
unarhætti. Nú er fremur auðvelt
að fá keypt hey og þeir sem fóru
illa út úr kalskemmdum hafa
Föstudaginn 28. ágúst verður
haldin ráðstefna að Skipagötu
14 á Akureyri sem ber yfirskrift-
ina: Iðnaður og atvinnumál
flestir fengið að heyja á öðrum
jörðum. Hvað roðamaurinn
varðar þá hefur hann ekki valdið
eins miklu tjóni og útlit var fyrir
um tíma í vor. Það er varla eins
fréttnæmt og áður hvernig hey-
skapur gengur, nú er frekar spurt
um framleiðsluréttinn," sagði
Bjarni Guðleifsson. EHB
á Norðurlandi. Þingmönnum
kjördæmisins hefur verið boð-
ið sérstaklega á ráðstefnuna,
svo og þingfulltrúum á fjórð-
ungsþingi Fjórðungssambands
Norðlendinga og forsvars-
mönnum fyrirtækja er sýna á
Iðnsýningu 1987.
Ráðstefnan, sem stendur frá
kl. 10-16, hefst með því að Friðr-
ik Sophusson iðnaðarráðherra
kynnir iðnaðarstefnu ríkisstjórn-
arinnar. Ólafur Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
iðnrekenda, ræðir síðan um fjár-
mögnun iðnfyrirtækja, Haraldur
Sumarliðason, forseti Fands-
sambands iðnaðarmanna, fjallar
um stöðu iðnaðar á landsbyggð-
inni og höfuðborgarsvæðinu og
Páll Kr. Pálsson, forstjóri Iðn-
tæknistofnunar íslands. skýrir frá
tækniaðstoð opinberra aðila.
Eftir hádegisverðarhlé heldur
Jón Sigurðarson, framkvæmda-
stjóri Iðnaðardeildar Sambands-
ins, fyrirlestur um rekstur stór-
fyrirtækja í dreifbýli. Valtýr Sig-
urbjarnarson, bæjarstjóri í Ólafs-
firði, ræðir um viðhorf sveitarfé-
laga til iðnreksturs. Þá verða
umræður og fyrirspurnir og loks
uppsöfnun og niðurstöður sem
Sigfús Jónsson bæjarstjóri
kynnir. Fundarstjóri er Björn
Jósef Arnviðarson, formaður
atvinnumálanefndar Akureyrar.
SS
Kristnesspítali:
Framkvæmdir fyrir
100 milljónir
- sjúkra- og iðjuþjálfun komið á fót
Akureyri:
Ráðstefna um iðnað
og atvinnumál
íbúðir til sölu!
Til sölu 2ja og 3ja herbergja íbúðir
í Melasíðu 5.
Upplýsingar á skrifstofunni.
|-7jn AÐALGEIR FINNSSON HF
WtkÁ BYGGINGAVERKTAKI
\MM V\| FURUVÖLLUM 5 P.OBOX209 602 AKUREYRl ICELAND
SÍMl: (96)21332
Lítið matvælafyrirtæki
tilsölu
Fyrirtækið er í fullum rekstri og hefur mikla stækk-
unarmöguleika.
Símsvari tekur við skilaboðum
allan sólarhringinn.
Fasteignasalan hf
Gránufélagsgötu 4,
efri hæð, sími 21878
Hreinn Pálsson, lögfræðingur
Guðmundur Jóhannsson, viðskiptafræðingur
Hermann R. Jónsson, sölumaður
Norðlendingar!
Evo-stik —
vatnshelt trélím og snertilím.
IVIagic —
hreinsiefni og túbulím í úrvali.
Walter -
verkfæri, þýsk gæðavara.
Fæst hjá:
Kaupfélagi Húnvetninga, Hvammstanga,
Kaupfélagi Húnvetninga, Blönduósi,
Kaupfélagi Skagfirðinga, Sauðárkróki,
Hegra, Sauðárkróki,
Kaupfélagi Eyfirðinga, Akureyri,
Norðurfelli, Akureyri.
Miklar framkvæmdir eru nú
hafnar við Kristnesspítala, en
stofnunin á 60 ára afmæli 1.
nóvember n.k. Reiknað er
með að framkvæmdirnar kosti
um 100 milljónir króna og
dreifist verkið á sex fram-
kvæmdaár. Lokið er við að
breyta hátíðasal spítalans í
endurhæfingarsal til bráða-
birgða og er salurinn nú full-
búinn tækjum og búnaði.
Á fundi sem Bjarni Arthúrs-
son, framkvæmdastjóri Kristnes-
spítala, hélt með blaðamönnum
fyrir skömmu kom fram að erfitt
hefur reynst að fá sjúkraþjálfara
til starfa við stofnunina. Taldi
hann víst að þetta mætti rekja til
launataxta, sem væru þeim
sjúkraþjálfurum í óhag sem
vinna hjá sjúkrahúsum. Ef ekki
fást innlendir sjúkraþjálfarar til
starfa má búast við að leita verði
til annarra landa eftir starfskröft-
um, þótt æskilegast væri að yfir-
sjúkraþjálfari væri íslenskur.
Kristnesspítali á sér langa og
merka sögu. Fokið var við að
byggja hann árið 1927, en hann
var byggður að tilhlutan Heilsu-
hælisfélags Norðurlands, sem var
opinn félagsskapur allra þeirra er
vildu láta reisa berklahæli á
Norðurlandi. Berklaveikin var á
þessum árum mjög skæður sjúk-
dómur sem herjaði einkum á
Eyjafjarðarsvæðinu og létust
hundruð manna úr sjúkdómn-
um. í sumum tilvikum þurrkuð-
ust heilu fjölskyldurnar út, svo
skæð var veikin.
Verkáfangarnir sex eru sem
hér segir: 1. Byggt nýtt stigahús
með lyftu og komið á fót aðstöðu
fyrir iðjuþjálfun. 2. Viðbygging
við svalagang 3 hæðir og ein hæð
innréttuð fyrir legudeild. 3. Inn-
réttuð dagstofa og borðstofa á
einni hæð og innréttað vatnsmeð-
ferðarhús á jarðhæð. Endurbæt-
ur á legudeild. 4. Viðbygging við
núverandi skrifstofuhús, tvær
hæðir fyrir iðjuþjálfun og eldhús.
5. Steyptar upp tvær hæðir ofan á
núverandi skrifstofuhús fyrir
endurhæfingu og skrifstofur.
Endurbætur á kjallara. 6. Inn-
rétting á endurhæfingar- og
skrifstofuhúsnæði og tenging við
vatnsmeðferðarhús.
Á síðastliðnu ári samþykkti
heilbrigðismálaráð héraðsins og
stjórnarnefnd ríkisspítalanna
nýja framkvæmda- og starfsem-
isáætlun fyrir Kristnesspítala, og
eru þær franrkvæmdir sem hér
var lýst í samræmi við þá áætlun.
Kristnesspítali var rekinn sem
berklahæli allt til ársins 1976. Um
árabil hefir stofnunin vistað
hjúkrunar- og langlegusjúklinga
en nú er verið að koma endur-
hæfingar- og iðjuþjálfunarþætti
starfseminnar í viðunandi horf.
EHB
HITTAST ÞYRHIROS
OG FRINSINN
ÁIÐNSÝNINGU