Dagur


Dagur - 21.08.1987, Qupperneq 5

Dagur - 21.08.1987, Qupperneq 5
21. ágúst 1987 - DAGUR - 5 Þarna er verið að tyrfa leiksviðið, vissulega óvenjulegt, en hæfir vel tiiefninu. Akureyri 125 ára: Leikfélagið treður upp á grasi grónu sviði - Afmælisveisla handa Eyrarrós verður sýnd 29. og 30. ágúst Afmælisveisla handa Eyrarrós, nefnist dagskrá Leikfélags Akureyrar sem flutt verður í tilefni af 125 ára afmæli Akur- eyrarkaupstaðar. Frumsýning verður í íþróttaskemmunni á afmælisdaginn 29. ágúst kl. 20.30 en daginn eftir verða tvær sýningar. Við fylgdumst með fram- kvæmdum í íþróttaskemmunni á dögunum og þá var verið að tyrfa leiksviðið. Já, leiksviðið verður grasi gróið og prýtt trjám, enda viðeigandi umgjörð um afmæli Akureyrarkaupstaðar. Nákvæmt líkan af sviðinu er haft til hlið- sjónar og á því má sjá að sviðið verður á tveimur, mismunandi háum pöllum. Sannarlega ólíkt því sem menn eiga að venjast. Afmælisveisla handa Eyrarrós er, eins og segir í tilkynningu frá L.A., leikin dagskrá, samsett úr sönglögum, hljóðfæraslætti, leiknum myndum, sögum, vís- um, kvæðum, bröndurum, prakkaraskap, lýðhvetjandi hug- vekjum, bulli og spakmælum. Dálaglegur samtíningur þetta og fróðlegt verður að sjá útkomuna. Höfundar eru þeir Óttar Ein- arsson og Eyvindur Erlendsson, ásamt Jóni Hlöðveri Áskelssyni sem valdi tónlistina, o.fl. Leik- stjóri er Eyvindur Erlendsson, hljómsveitarstjóri Jón Hlöðver, leikmynd er í höndum Hall- mundar Kristinssonar, búninga gerir Freygerður Magnúsdóttir, lýsingu annast Ingvar Björnsson og Gunnar Sigurbjörnsson fram- kallar leikhljóð. Leikhópurinn er fróðleg blanda af eldri sem yngri leikur- um, þrautreyndum og lítt reynd- um: Marinó Þorsteinsson, Þráinn Karlsson, Theodór Júlíusson, Skúli Gautason, Erla Ruth Harð- ardóttir, Björg Baldvinsdóttir, Jón Kristinsson, Kristjana Jóns- dóttir, Jón Hlöðver Áskelsson, Jón Stefán Kristjánsson, Pétur Einarsson, Örn Birgisson, Þuríð- ur Baldursdóttir, Eyvindur Erlendsson, Erlingur Sigurðar- son, kór sýningarinnar, hljóm- sveit sýningarinnar, Blásarasveit Tónlistarskólans, lúðrasveit, karlakór o.fl. Þetta verða Akur- eyringar að sjá og heyra. SS Flugskóli Akureyrar Sími 27900 eða 22000. Flugið er heillandi tómstundagaman fyrir fólk á öllum aldri Fyrirhugað er bóklegt einkaflugmannsnámskeið í haust, nánar auglýst síðar. Upplýsingar gefa: Jóhann Skírnisson, flugkennari, sími 26409. Ármann Sigurðsson, flugkennari, sími 26149. Gylfi Magnússon, flugkennari, sími 22531. Ragnar Olafsson, flugkennari, sími 27465. Súlnaberg opið frá kl. 8.00-22.00. Heitur matur allan daginn. Höfðaberg veitingasalur annarri hæð. Opið frá kl. 7.30-23.30. Ath. kvöldverður afgreiddur frá kl. 18.00-22.00. ★ A matseðli helgarinnar bjóðum við uppá meðal annars: Hvítvínssoðinn hörpufisk með blaðlauk Ofnsteikt léttlamb með túnfíflasósu Bláberjafrauðís á skyrgrunni Kristján Guðmundsson leikur fyrir matargesti föstudags- og laugardagskvöld Dansleikur laugardagskvöld Hljómsveitin Heiena fagra heldur uppi stanslausu fjöri til kl. 03.00. Borðapantanir fyrir matargesti hjá veitingastjóra í síma 22200.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.