Dagur


Dagur - 21.08.1987, Qupperneq 6

Dagur - 21.08.1987, Qupperneq 6
V - FIUÐAG - \-ser fei'jgé .rs 6 - DAGUR - 21. ágúst 1987 Golf er íþrótt sem upprunnin er frá Skotlandi, þótt heimildir bendi til að Kínverjar hafi leikið golf allt að 200 árum fyrir Krist. íþróttin breiddist út á milli landa og náði fljótt miklum vinsældum. Til íslands barst golfið í upphafi 20. aldar og árið 1934 var fyrsti golfklúbburinn stofnaður, ári síðar var svo G.A. stofnaður. G.A. fer ört stækkandi og sífellt fleiri smitast af golfbakteríunni og þeir sem smitast verða svo ákafir unnendur golfsins að þeir hugsa um það öllum stundum og er það margsönnuð staðreynd að það sem byrjendur eiga erfiðast með að læra, er, AÐ TALA EKKI UM ÞAÐ. Björn Axelsson. Björn Axelsson Á veturna má sjá ungan pilt með langt og mjótt prik dinglandi upp úr skólatöskunni sinni. Þeir sem vita hver pilturinn er þekkja að þar hefur aðaláhugamálið hans fengið að fljóta með í skólann, en öðrum er þetta prik óþrjótandi umhugsunarefni. Björn hefur líklega verið lengst akureyrskra unglinga í golfinu, en hvenær skyldi hann hafa byrjað. „Ja, ég var 7 eða 8 ára þegar ég byrjaði og hefði líklega ekki byrj- að nema af því að ég átti ættingja í þessu, það er mjög algengt að krakkarnir sem byrja í golfi eigi foreldra eða ættingja í golfi eða var, því núna er mikið um það að krakkar séu að byrja í þessu eftir að kennarinn, David, kom hingað í klúbbinn.“ - Heldurðu að hin glæsilega aðstaða að Jaðri dragi að? „Já, og ábyggilega mjög mikið, því það eru margir unglingar sem hafa byrjað í þessu síðustu 2-3 ár, og þeim er alltaf að fjölga.“ - Er einhver unglingaklúbbur innan G.A.? „Það eru kennslutímar þrisvar í viku og svo eru nýliðatímar einu sinni í viku, svo er starfandi sér- stök unglinganefnd innan G.A. sem sér um að koma unglingun- um á mót og nú í sumar hafa ver- ið 4-5 mót.“ - Er ekki dýrt að koma sér upp setti? „Það fer allt eftir því hvar þú byrjar, það er hægt að fá svona hálft sett á kannski 15.000 kr. en ef maður ætlar að vera með eitthvað toppsett þá kostar það allt að 70-80 þúsundum.“ - Á nýloknu landsmóti var þér vikið úr keppni, var það ekki sárt? „Jú það var svolítið sárt, ég var búinn að æfa fyrir landsmótið, að vísu hafði það ekki gengið mjög vel en það var samt sárt að missa svona af þessu.“ - Gerist það oft eins og gerðist hjá þér að menn skrifi undir skorkort sem er vitlaust? „Nei, sem betur fer gerist það sárasjaldan, þetta er eina tilfellið í sumar sem ég veit um.“ - Nú ert þú í meistaraflokki, hvað er það sem ræður því í hvaða flokki maður er? „Flokkarnir fara eftir því hvað maður er með í forgjöf, en for- gjöf er svona hálfgerður afsláttur sem maður fær. t.d. ef þú mundir byrja þá værir þú líklega með í kringum 36 í forgjöf, svo ef þú lékir einn hring og kæmir hring- inn inn á 100 höggum þá er skor- ið komið niður í 64 högg, ég er núna með 5 í forgjöf þannig að ég þyrfti að spila hringinn á 69 högg- um til að jafna þig.“ - Er til unglingalandslið í golfi? „Já, já það er til og ég er búinn að vera í því síðan í fyrrahaust, er að vísu sennilega á góðri leið með að spila mig út úr því aftur, ég er búinn að spila hálfilla í sumar, þangað til núna að ég er að fara í gang.“ -- Nú er starfandi mini-golf á sundlaugarlóðinni, hefur þú reynt það? „Nei ekki hérna en ég hef próf- að svona fyrir sunnan." - Og hvernig fannst þér það í samanburði við það golf sem þú stundar? „Æi, það er nú ekkert varið í mini-golfið í samanburði við þetta. Og maður æfist nú ekki mikið í „alvöru-golfi“ á að vera þarna.“ - Þarf maður ekki að vera mjög þolinmóður til að ná langt í golfi? „Jú til að ná sem bestum árangri þarf maður að vera það, en nákvæmni og heppni spila svo töluvert inn í.“ - Að lokum Björn, þig dreym- ir kannski um atvinnumennsku? „Það væri náttúrlega gaman að geta prófað það en samkeppnin er bara svo hörð að það er næst- um vonlaust að gera sér vonir.“ Magnús Halldór Karlsson Magnús er viðloðandi fleiri íþróttir en eina, hann stundar meðal annars skíði á veturna en á sumrin, hvað annað en golf. Þrátt fyrir ungan aldur í golfinu er hann með 8 í forgjöf og á hann því aðeins tvö högg eftir í meist- araflokkinn. En hvað dró Magnús í golfið? „Ég fór með vini mínum sem býr hérna við hliðina, upp á völl Árný Lilja Árnadóttir. og ég fékk bakteríuna svotil strax.“ - Fórstu strax útí að kaupa græjur? „Nei ekki alveg en svo keypti ég sett sem kostar um 60.000 krónur.“ (Og er að sögn alveg rosalega flott.) - Nú ert þú í fleiri íþróttum, af hverju golf? „Ja, ég æfi skíði á veturna og mér finnst golf og skíði eiga vel saman, svo þetta gengur vel upp.“ - Nú finnst manni að golf sé íþrótt sem taki ansi mikið á taugarnar, hvað fær krakka til að koma og æfa golf? „Kannski er það aðstaðan, hún hefur skánað heilmikið á síðustu árum og þá fara krakkarnir að koma.“ - Eru það jafnt stelpur og strákar sem sækja í golfið? „Nei, strákar eru í miklum, MJÖG, miklum meirihluta, ég veit ekki af hverju, hef ekkert pælt í því.“ - Áttu þér einhver markmið í golfinu, svo sem að komast í landsliðið? „Nei, ég hef engin sérstök markmið sem ég stefni á, bara það að vera með.“ Árný Lilja Árnadóttir Magnús talaði um að strákar væru miklu fleiri en stelpur í G.A. og það eru svo sannarlega orð að sönnu, því í golfklúbbn- um eru aðeins tvær stelpur, þær eru Andrea sem er 12 ára og svo hún Árný sem var tilbúin að koma í smá viðtal. Ég spurði hana fyrst, hvers vegna hún hefði byrjað í golfinu. „Ég var að vinna á Jaðri, þegar ég var 14 ára, þar voru allir úti á velli að spila og maður vildi prófa það sem hinir voru að gera, svo er ég að segja má í golf-fjöl- skyldu." - Þú hefur þá notast við golf- sett foreldra þinna til að byrja með? „Já fyrst var ég bara með græj- : urnar hans pabba og græjurnar hennar mömmu, en keypti mér að lokum eigin græjur. Það segja allir að ég hafi verið snobbuð : þegar ég keypti mér þær, en þeg- . ar maður kaupir sér sett er maður að kaupa hlut sem maður ætlar að nota, alltaf, og þá er ekki verra að það sé almennilegt, því það er ekki hægt að vera með kylfu sem svo kannski dettur í sundur." - Byrjaðir þú strax að keppa? „Nei, nei, ég fór bara út einn og einn dag fyrsta árið, svo sein- asta ár keppti ég tvisvar og núna er ég að byrja á fullu.“ - En þú hefur samt sem áður unnið einhverja titla? „Já ég hef unnið stelpnaflokk á Akureyrarmótinu, svo hef ég tvisvar lent í öðru sæti á unglinga- meistaramótinu, á nýliðnu lands- móti vann ég svo annan flokk kvenna.“ - Nú hækkaðir þú úr öðrum í fyrsta flokk eftir landsmótið, hvernig hækkar maður? „Ja, þú ert með forgjöf sem segir hvað þú er góð og þegar þú

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.