Dagur - 21.08.1987, Blaðsíða 11

Dagur - 21.08.1987, Blaðsíða 11
10 - DAGUR - 21. ágúst 1987 21. ágúst 1987 - DAGUR - 11 loka hann inni á morgnana og þar var hann einn allan daginn með- an hún vann fyrir þeim. Daginn sem við komum til Guatemala hafði verið komið með barn í nærbol og engu öðru og bolurinn var svo skítugur að við hefðum ekki einu sinni skúrað gólfin hjá okkur með honum. Neyðin þarna leyndi sér ekki. Það var ekki nein hugsjón hjá okkur að ættleiða barn, það var fyrst og fremst vegna þess að við gátum ekki átt barn. Maður hafði heyrt sögur af því hvernig ástand- ið er í þessum löndum, en trúir því ekki fyrr en maður sér það. Fólkið býr í ótrúlegum kofa- hreysum.“ Alfreð segir að það hafi verið mjög spennandi eftir að Almar var kominn í heiminn. Þau fóru út í desember að sækja hann og komu heim 19. desember. „Við gátum ekki beðið fram yfir jól með að sækja hann.“ Sagði Alfreð að þau hefðu aldrei fundið annað en vinsemd í garð Almars og sagðist halda að Islendingar taki þessum börnum almennt vel. „Það eru margar skoplegar sögur í kringum þetta. Stuttu eftir að við komum heim spurði kona okkur hvaða mál hann myndi svo tala þegar hann færi að tala. Þetta er dagsönn saga. Auðvitað segir fólk þetta í hugsunarleysi. En hann fór nú bara að tala íslensku þegar hann byrjaði og trúi því hver sem vill,“ segir Alfreð og hlær. Það hefur verið gaman að tala við Alfreð en hér setjum við amen á eftir efninu. HJS ingu, hvers vegna hann fluttist norður. „Þannig var að eftir að ég útskrifaðist úr Samvinnu- skólanum árið 1975 bjó ég í Borgarnesi í 1 ár. Bekkjarfélagi minn var að vinna hjá Gefjun og hann benti á mig. Ég var á laustí og sló til. Ég fór þá að vinna hjá Heklu. Þá voru tvær deildir hjá Heklu, prjónadeild og vinnufata- deild. Ég var í vinnufatadeild- inni, og upplifði skemmtilegt tímabil hjá Heklu, það var Duffys tímabilið. Ég tel okkur Sigurð Arnórsson höfuðpaurana í því ævintýri.“ Er mikil félagsvera Alfreð var hjá Heklu í 5 ár, en fór þá út í sjálfstæðan verslunar- rekstur. Nánar tiltekið átti hann tískuverslunina Chaplin. „Ég átti Chaplin í 3 ár. Ég kunni ágætlega við að reka þá búð, en ég velti þessu mikið fyrir mér eftir að ég hætti. Það er auðvitað ágætt að vera eigin herra, frjálsræðið og allt það, en ég er svo mikil félags- vera að mér leiddist. Þetta var lengi vel þannig að við vorum tvö, ég og starfskraftur hálfan daginn. Ég áttaði mig ekki á því þegar ég hætti á Heklu að þar drakk maður kaffi með 40-50 Tónlistin ermitt áhugamál - Alfreð Almarsson, vöruhússtjóri KEA í helgarviðtali „Já, já, alveg heilmikið," segir Alfreð þegar ég spyr hann hvort hann muni eftir sér á Dalvík. „Þetta var á síldarárunum og ég þvældist mikið á bryggjunum og síldarplönunum. Ég átti tvo góða vini á Dalvík og við vorum mikið saman. Annar er nú orðinn spari- sjóðsstjóri þar, Friðrik og hinn er Kári Gestsson, kallaður Dalli. Ég held að hann sé nú fluttur frá Dalvík. Það er nú svolítið gaman að rifja þetta upp. Á þessum árum var maður að nafni Dalai Lama mikið í fréttum. Hann var land- flótta munkur. Við vorum mikið á síldarplönunum, eins og ég sagði og skírðum okkur upp á nýtt. Dalli hét Dalli Lama plan plan og ég hét Alli Lama plan plan. Það snérist allt um síldina og planið og bryggjan var stóra málið. Nei, nei, ég datt aldrei í sjóinn, það gerðist ekki fyrr en seinna á Iífsleiðinni." AUtaf rigning Haustið 1959 flutti fjölskyldan frá Dalvík og settist að á Hellis- sandi þar sem Alfreð bjó til full- orðinsára. „Þetta er mér mjög minnisstætt. Við fluttum úr veður- sældinni í Eyjafirði í rigning- una á Hellissandi. Ég held að það hafi rignt á hverjum degi fyrstu mánuðina eftir að við fluttum. Við bróðir minn, sem er einu og hálfu ári yngri en ég, hjóluðum mikið og vorum oft við það að gefast upp vegna rigningarinnar. Við hugleiddum mikið að það væri nú bara best að flytja norður aftur. En það stytti upp á endan- um.“ sagði Alfreð. Á unglingsárum byrjar Alfreð að gutla á gítar, en segist fyrst hafa verið í fótbolta. „Þótt ég segi sjálfur frá þá þótti ég efnileg- ur. En ég var einn af þessum sem þykja efnilegir en síðan ekkert meira. Þegar ég var 17 ára fer ég, ásamt vini mínum, sem spiiar á píanó í þetta hljómsveitagutl. Þá var enginn tími til að vera í fót- bolta lengur. Maður verður að velja og hafna. Komum aldrei nálægt bflskúrum Á þessum árum eru Bítlarnir á toppnum. Þetta var mikið gróskutímabil og það hafði mikil áhrif á okkur. Það voru margir að glamra á gítar. Ég hef aldrei lært neitt í tónlist. Jú, jú, ég var í nokkrum svokölluðum bílskúrs- hljómsveitum. En þær voru reyndar ekki kallaðar bílskúrs- hljómsveitir því við komum aldr- ei nálægt neinum bílskúr. Við þekktum húsvörðinn í félags- heimilinu Röst og fengum að æfa þar.“ Alfreð segir að þegar mynd hafi verið komin á hljómsveitirn- ar hafi þeir félagarnir farið að spila fyrir fólk. „Fyrst var þetta auðvitað mest fyrir okkur sjálfa. Ég man ekki lengur hvað þessar hljómsveitir hétu, jú, ein hét Diamonds, önnur Intermezzo og Júnísvítan svo nokkur nöfn séu nefnd." Alfreð fór fyrst í Húsafell um verslunarmannahelgina þegar hann var 15 ára og það var í fyrsta skipti sem hátíð var haidin þar um þessa merku helgi sem kennd er við verslunarmenn. „Þá voru Hljómar frá Keflavík að spila fyrir dansi og þeir voru tví- mælalaust bítlar Islands. Ég fór síðan í Húsafell 7 ár í röð. Þetta var svipað og í Vaglaskógi á sín- um tíma, það eru margir sem fóru þangað mörg ár í röð. Þar voru hljómsveitir eins og Dátar og Tempó. Þá voru strákar eins og Þorgeir Ástvaldsson popp- stjörnur, eða öllu heldur unglingastjörnur. Þeir voru ekki nema 16-17 ára. - Lituð þið ekki upp til popp- stjarnanna? „Jú, jú, eins og ég sagði voru Hljómar hátt skrifaðir, nokkurs konar bítlar íslands og við litum mikið upp til þessara manna. Nei, ég tók ekki neinn sérstakan mér til fyrirmyndar. Það gengu miklar sögur um að krakkar væru að brjóta í sér tennur til að líkjast Björgvin Halldórssyni, en ég held að það sé ekki satt. Ég hef þá skýringu að múgæsingin og stjörnudýrkunin sem er svo mik- ið erlendis nái aldrei til íslands. Menn fá að vera í friði hérna. Ef það er t.d. auglýst eiginhandar- áritun á plötu hér þá koma ekkert voðalega margir. Ef þetta er gert erlendis myndast alltaf örtröð. Þar eru auðvitað stærri stjörnur en geta nokkurn tíma orðið hér.“ Frekar söngvari en gítarleikari Alfreð er ennþá í hljómsveita- bransanum. Hann segist þó ekki hafa verið samfleytt í tónlistinni frá unglingsárum. „Ég hætti um tíma, fór í skóla og fleira. í fyrstu leit ég á mig sem gítarleikara, söng jú eitt og eitt lag. Ég fór í Samvinnuskólann og þar eru allt- af skólahljómsveitir. í skólanum voru um 80 manns, helmingur stelpur og helmingur strákar. Það segir sig sjálft að í ekki stærri hóp eru ekki margir gítarleikarar, trommuleikarar og svo framveg- is. Það varð því að notast við það sem til var. Það kom í ljós að það var enginn söngvari. Þeir sem voru líklegastir voru prófaðir og ég kom út sem einn skásti söng- varinn og í dag tel ég mig frekar vera söngvara en gítarleikara. Ég gutla þó á gítarinn með.“ Sumarið 1977 spilaði Alfreð með Örvari Kristjánssyni og hætti síðan að spila í hljómsveit- um þar til 1981. Það ár byrjaði hann að spila í hljómsveit Finns Eydal og hefur verið með henni síðan. Hann hefur því upplifað miklar breytingar í íslensku poppi. Allt frá grósku og upp í það að enginn mætti á sveitaböll og diskóið var allsráðandi. „Árin 1971-73 var spilaði ég í hljóm- sveit sem hét Lúkas og var gerð út frá Ólafsvík því flestir úr hljómsveitinni voru þaðan. Þá gekk maður f hermannajakka, með hárið niður á herðar og spil- aði það sem f dag er kallað „hard rock“, Deep Purple og slíkt, ásamt öðru auðvitað. Þegar verið er að spila fyrir dansi þýðir ekk- ert annað en að hafa fjölbreytt lagaval.“ Jukkmúsíkin gengur alltaf Þótt ótrúlegt megi virðast finnst Alfreð lítill munur að spila núna og þegar hann byrjaði að spila fyrir dansi. „Það er viss tónlist sem alltaf gengur. Það er stuðmúsík sem fólkið kann. Ég kalla þetta jukkmúsík, það eru bara gömlu góðu slagararnir. Meira að segja hljómsveit eins og Skriðjöklarnir taka gömul jukk- lög og spila á böllum.“ - Er ekki tímafrekt að vera í hljómsveit? „Ég var einu sinni spurður hvernig ég nennti þessu ár eftir ár, að vera að spila um hverja helgi, þeytast út um hvippinn og hvappinn og æfa þess á milli. Maðurinn sem spurði mig að þessu á snjósleða. Hann þvælist upp um fjöll og firnindi á sleðan- um. Ég sagði við hann að spila- mennskan væri mitt áhugamál, eins og fjallaferðirnar hjá honum. Ég lít ekki á spila- mennskuna sem atvinnu heldur tómstundagaman, þetta er það illa borgað. Þessi snjósleðaeig- andi fer helgi eftir helgi upp á fjöll, gistir þar og lendir í allskyns hrakningum og kemur síðan í bæinn endurnærður. Þannig er þetta líka hjá mér.“ En vendum okkar kvæði í kross. Alfreð flutti til Akureyrar 1976. Hann fær þá sígildu spurn- manns og hafði því mikinn félagsskap. í þessu tilviki er óhætt að segja að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Mér bauðst síðan að vinna hjá KEA og sló til, seldi búðina. Ég held að félagsskapurinn hafi skipt þar miklu. Nei, nei, ég sé ekkert eftir að hafa hætt með verslunina og líkar vel hjá KEA.“ Alfreð er vöruhússtjóri hjá KEA og segir það vera mikið starf. „Ég sé meðal annars um innkaup ásamt deildarstjórum, allt starfsmannahald í vöruhús- inu, auglýsingar o.fl. o.fl. sem viðkemur rekstrinum. Við erum að fara til Kölnar, Hamborgar og Kaupmannahafnar, á sýningar í Kaupmannahöfn og Köln og síð- an förunt við í fyrirtæki í Ham- borg til að panta inn. í þessari ferð verslum við bara fatnað. Ég fer alltaf tvisvar á ári í svona ferðir og tvisvar til að panta skó. Reyndar fer ég í þessari ferð einnig til Jótlands að versla jóla- gjafavöru. Fatnaðurinn sem við verslum núna eru fyrir næsta vor og sumar.“ í framhaldi af rabbi okkar um verslun förum við að tala um opnunartíma verslana. „Ég er með þá hugmynd að hafa búðir og þjónustufyrirtæki opin fyrsta laugardag í hverjum mánuði. Það er mín skoðun að það sé varla hægt að hafa opið á hverjum laugardegi. Það er búið að berj- ast fyrir því í mörg ár að hafa lok- að á laugardögum og svo koma bara einhverjir kallar úti í bæ og vilja hafa opið. Víða erlendis er opið fyrsta laugardag eða sunnu- dag í hverjum mánuði. Ef svo yrði hérna þá yrðu að vera sam- tök um þetta. Bankar yrðu að hafa opið, áfengisverslunin, bæjarskrifstofur og bæjarfógeti og svo auðvitað verslanir, það þyrfti að hafa opið fyrir aðra „Ég er með þá hugmynd að hafa búðir opnar fyrsta laugardag í hverjum mánuði.“ þjónustu en bara verslanir. Veit- ingastaðir gætu síðan verið með uppákomur þessa daga, hlaðborð eða eitthvað slíkt.“ Þurftu aö senda út tvö nöfn Alfreð og Helga Haraldsdóttir kona hans ættleiddu dreng frá Guatemala fyrir 7 árum, og heitir hann Almar. Ég fer varlega í að spyrja hann út í ættleiðinguna því eflaust kæra ekki allir sig um að ræða mál af þessu tagi á opinber- um vettvangi. En Alfreð er strax tilbúinn til að tala um Almar. „Uppruni barnsins leynir sér ekki og þetta hefur heldur aldrei verið neitt feimnismál hjá okkur,“ seg- ir Alfreð. „Ég fór í lengsta ferða- lag á ævinni þegar við sóttum Almar. Guatemala er í Mið- Ameríku. Við fengum hann í höfuðborginni, Guatemala City. Það var heilmikið ævintýri að greiddum sjúkrahúsvistina fyrir móður hans og urðum að senda út tvö nöfn því við vissum ekki hvort það yrði strákur eða stelpa. Börnin eru skírð strax við fæð- ingu. Ekki verið að kaupa þessi börn Það halda kannski einhverjir að það sé verið að kaupa þessi börn frá mæðrum sínum, en það er ekki rétt. Við borguðum að- eins kostnaðinn við fæðingu hans og uppihald til tveggja mánaða aldurs. Við gátum ekki sótt hann fyrr því það var verið að ganga frá öllum pappírum. Fólk á erfitt með að trúa því hvernig ástandið er þarna. Ef ógift kona í Guate- mala verður ófrísk og segir við föðurinn að hann eigi barnið, þá getur hann bara sagt nei og þar með er málið búið. Hún getur ekkert gert. „Ég er fæddur í Reykjavík árið 1951. Foreldrar mínir kynntust þar og ég er elstur af mínum systkinum. Faðir minn er frá Dalvík og móðir mín frá Hellissandi á Snæfellsnesi. En ég bjó ekki lengi í Reykjavík því við fluttum til Dalvíkur þegar ég var nýfæddur og þar bjuggum við þar til ég var 8 ára gamall.“ Það er Alfreð Almarsson, vöruhússtjóri hjá KEA og tónlistarmaður með meiru sem svo segir frá fyrstu árum ævinnar. Alfreð er hér kominn í helgarviðtal og við tölum um tónlistina, verslun, ættleiðingu barna og fleira. Alfreð á skrifstofu sinni hjá Vöruhúsi KEA. Alfreð með son sinn og Helgu, Almar. fara þarna út. Við fengum Alniar ekki í gegn- um íslenska ættleiðingu, heldur höfðu Benedikt Ólafsson, lög- fræðingur og kona hans, María komist í samband við konu í Guatemala sem rak heimili fyrir börn sem átti að gefa. Hún var af aðalsættum en giftist niður fyrir sig. Hún tók að sér börn sem voru á götunni eða ákveðið hafði verið að gefa. Þannig fengum við Almar. Um svipað leyti og við fengum Almar voru hjón ein, Bob og Katy, að taka við þessu heimili. Við vorum búin að eignast Almar áður en hann fæddist. Við Konan sem gaf okkur Almar var sjálf einbirni og mamma hennar hafði átt hana utan hjóna- bands og hún gat ekki hugsað sér að hennar börn lifðu sama lífi og hún hafði lifað. Það búa mörg börn þarna við mjög lélegar aðstæður. Við sáum t.d. tveggja ára gamlan strák þarna á heimil- inu. Hann hafði verið hjá móður sinni fram að því og hún var ein- stæð. Þegar hann fékk rnatinn sinn hljóp hann með hann út í horn og borðaði þar. Hann kunni ekkert að tala. Það eina sem hann gat sagt var aqua, eða vatn. Mér skilst að mamma hans hafi ekkert getað gert annað en að

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.