Dagur - 21.08.1987, Síða 20
Akureyri, föstudagur 21. ágúst 1987
Opnimaitnní
á Bauta í sumar
er frá kl- 9.00-23.30.
Akureyrarbær:
uppseld
Verðbréfín sem Akureyrarbær
gaf út til að fjármagna fram-
kvæmdir við grunnskóla, aðal-
lega Síðuskóla, eru uppseld.
Heildarfjárhæðin var 57,8
milljónir en að sögn Sigfúsar
Jónssonar bæjarstjóra seldust
bréfín með afföllum fyrir rúm-
lega 40 milljónir.
Verður Gestur
fréttamaður
Stöðvar 2?
- Þórir Jökull hættir
hjá útvarpinu
Nokkrar hræringar eru í akur-
eyrskum fjölmiðlahcimi þessa
dagana. Stöð 2 leitar að frétta-
manni á Akureyri og sagði Páll
Magnússon fréttastjóri að búið
væri að prófa þrjá menn og
nokkrir væru inni í myndinni.
„Ég get staðfest að Gestur Einar
er inni í þeirri mynd,“ sagði Páll í
samtali við Dag og átti þá að
sjálfsögðu við Gest Einar Jónas-
son útvarpsstjóra Hljóðbylgjunn-
ar. Gengið verður frá ráðningu
fréttamanns um næstu mánaða-
mót, hver svo sem hnossið
hlýtur.
Pá hefur Pórir Jökull Por-
steinsson fréttamaður útvarps á
Akureyri lagt fram uppsagnar-
bréf, en hann hyggur á háskóla-
nám í Reykjavík. Arnar Björns-
son líka fréttamaður útvarps á
Akureyri er einnig orðaður við
suðurför í haust, og þá til þess að
sjá um íþróttir á móti Samúel
Érni Erlingssyni í stað Ingólfs
Hannessonar, sem hefur sagt upp
störfum hjá útvarpinu. Ekki náð-
ist í Arnar Björnsson, þar sem
hann er nú í sumarfríi erlendis.
mþþ/JHB
Sigfús var beðinn að rekja for-
sögu málsins og sagði hann þá
meðal annars: „Ríkið skuldar
okkur tæpar 58 milljónir vegna
framkvæmda við Síðuskóla. Rík-
ið gerði síðan samning við okkur
um það að borga okkur þessa
upphæð á 6 árum með jöfnum
greiðslum og við gáfum út
skuldabréf sem við seldum á
frjálsum markaði út á þennan
samning við ríkissjóð."
Aðeins tók um 3 vikur að selja
bréfin en þau voru seld í gegnum
Landsbankann. „Ríkið borgar
okkur okkur á næstu 6 árum
verðtryggðar 57,8 milljónir og
við greiðum, í gegnum Lands-
bankann, þeim sem keyptu af
okkur bréfin nákvæmlega þá tölu
sem ríkið greiðir okkur. En við
þurftum að seija þau með afföll-
um og verðbótum fram í tímann
þannig að við fengum rúmlega 40
milljónir fyrir okkar snúð," sagði
Sigfús að lokum, en í viðtali sem
birtast mun í Akureyrarblaði
Dags segir Sigfús m.a. nánar frá
fjárhagsstöðu bæjarins. SS
Þeir voru að vængstýfa gæsir við Andapollinn, en það er gert svo þær verði
ekki eins auðveld bráð veiðirnanna.
Kjörland hf.:
Breytingar á eignarhaldi
og sölufyrirkomulagi
- ekki hefur verið samið um greiðslur fyrir kartöfluverksmiðjuna
Eins og fram hefur komið
fréttum keypti Kjörland hf.
kartöfluverksmiðju Kaupfé-
lags Svalbarðseyrar á nauð-
ungaruppoboði í síðustu viku.
Kaupverðið var tæplega 19
milljónir en ekki hefur verið
samið um greiðslufyrirkomu-
lag við Iðnlánasjóð og Iðnað-
arbankann sem voru stærstu
kröfuhafar. Þá á eftir að semja
við Samvinnubankann eða
hugsanlegan kaupanda ann-
arra eigna um afnot af frysti-
húsi og annarri aðstöðu á Sval-
barðseyri.
„Við erum að sjá það að með
þessari aðstoð sem við höfum
Stórlega dregið úr
kjúklingaframleiðslu
- vegna offramleiðslu að undanförnu
- of lágt verð á eggjum vegna „frjálshyggjustríðs“ framleiðenda
Mjög hefur dregið úr kjúk-
lingaframleiðslu og víða liggur
hún algerlega niðri. Að sögn
Jónasar Halldórssonar, for-
manns Félags kjúklingabænda,
var vitað að um offramleiðslu
hafði verið að ræða og því hef-
ur verið stefnt að því að draga
úr framleiðslunni á seinni hluta
þessa árs.
„Auðvitað kemur þetta sér illa
en við erum búnir að offramleiða
og því er ekkert við þessu að
gera. Við verðum að losa okkur
við birgðirnar og koma fram-
leiðslunni í það horf að hún hæfi
innlenda markaðnum. Pað þurfa
allar greinar að gera sem ekki
geta byggt á útflutningi,“ sagði
Jónas. Sagðist hann eiga von á að
framleiðslan færi aftur í fullan
gang í kringum áramót þó svo að
hún yrði eflaust eitthvað minni
en áður.
Lágt verð er nú á eggjum en
þar hafa engar hækkanir komið
inn þrátt fyrir nýja fóðurskattinn.
Eggjabændur fá nú um 100-120
kr. fyrir kílóið en að sögn Jónas-
ar þyrftu þeir að fá um 50 kr. til
viðbótar.
„Þetta er auðvitað eggjafram-
leiðendum sjálfum að kenna að
nokkru leyti, það er eitthvað
frjálshyggjustríð í gangi. Þeir
vilja miklu frekar berjast inn-
byrðis en reyna að bæta ástand-
ið,“ sagði Jónas Halldórsson.
JHB
fengið frá ríkinu er grundvöllur
fyrir þessum rekstri. Við byrjuð-
um á núlli og menn höfðu litla trú
á fyrirtækinu. Við vorum ekki í
neinum vinsældaleik með þær
aðgerðir sem við þurftum til að
halda þessu á floti en okkur
finnst þær vera að skila árangri,“
sagði Jóhannes Geir Sigurgeirs-
son stjórnarformaður Kjörlands í
samtali við Dag.
Hlutur hf., sem er hlutafélag í
eigu bænda og á 20% í Kjörlandi
hefur lýst yfir áhuga sínum að
eignast stærri hlut í fyrirtækinu
og á stjórnarfundi nýlega var
gerð bókun um að dreifingarfyr-
irtækið Ágæti, sem á 20%, selji
sinn hlut. Ekkert hefur þó verið
ákveðið hvernig hann dreifist.
Þá eru fyrirliggjandi breytingar
á sölufyrirkomulagi en samning-
ur þar um við Ágæti rennur út 1.
september og verður að sögn
Jóhannesar ekki endurnýjaður í
óbreyttri mynd.
Birgðir hjá fyrirtækinu eru nú
um 130 tonn af unnum kartöflum
og sagðist Jóhannes reikna með
að þær myndu klárast áður en
verksmiðjan tæki til starfa að
nýju enda hefði sala aukist mjög
að undanförnu.
Ekki hefur verið ráðinn nýr
framkvæmdastjóri í stað Þórðar
Stefánssonar en Jóhannes sagði
að hringurinn væri mjög farinn
að þrengjast. ET
Skuldabréfin
Nýr preslur til
Skagastrandar
Næstkomandi sunnudag verð-
ur nýr prestur settur í embætti
á Skagaströnd. Enginn prestur
hefur verið á Skagaströnd síð-
an í júní í fyrra en séra Arni
Sigurðsson, sóknarprestur á
Blönduósi hefur þjónað presta-
kallinu þann tíma.
Nýi presturinn heitir Ægir Sig-
urgeirsson og kemur hann frá
Hafnarfirði. Hann útskrifaðist úr
guðfræðideild Háskóla íslands
síðastliðið vor og er þetta því
hans fyrsta prestakall. Séra Odd-
ur Einarsson var áður sóknar-
prestur á Skagaströnd en í fyrra
fluttist hann til Njarðvíkur þar
sem hann tók við starfi bæjar-
stjóra. JÓH
Siglufjörður:
Miklu landað
af rækju
í síðustu viku var landað úr 21
rækjubát á Siglufírði um 180
tonnum af rækju. Eitthvað
hafði slæðst með af öðrum
físki en uppistaðan var rækja
og er þetta með því mesta sem
landað hefur verið af rækju á
einni viku á Siglufírði.
í sömu viku kom Sveinborgin
til Siglufjarðar með rúm 50 tonn
af þorski og sl. sunnudag kom
Stálvíkin með 125 tonn, einnig af
þorski.
Það hefur einnig verið líflegt í
löndunum í þessari viku á Siglu-
firði. Á miðvikudag höfðu 5 bát-
ar landað um 50-60 tonnum af
rækju og þá var verið að landa 22
tonnum úr Sæljóninu frá Eski-
firði. í gær var svo Stapavíkin
væntanleg með rúm 100 tonn af
ísuðum þorski.
Það er því líflegt í fiskvinnsl-
unni á Siglufirði um þessar
mundir og það eina sem vantar er
fleira fólk í vinnu. JHB
Veðrið:
Það besta um
þessa helgi
í mörg ár
„Þetta verður stórfínt veður,
og hefur sjálfsagt ekki verið
betra um þessa helgi í mörg
ár,“ sagði Gunnar Hvammdal
Sigurðsson veðurfræðingur en
hann varð fyrir svörum á
Veðurstofu íslands þegar
kannað var hvernig helgar-
veðrið á Norðurlandi yrði.
Gunnar sagði að spáð væri
hægri norðaustan átt; sólfars-
vindum og andvara. Skýjað verð-
ur um mest allt Norðausturland,
víða verða þokubakkar og þoku-
súld á annesjum, annars þurrt.
Um miðjan sunnudag mun fara
að rofa til inn til landsins eða „í
mannabyggðum eins og Akur-
eyri, Sauðárkróki og sveitunum í
kring,“ eins og Gunnar orðaði
það. Hiti verður á bilinu 10-14
stig. VG