Dagur - 26.08.1987, Síða 3
26. ágúst 1987 - DAGUR - 3
Vilt þú bætast í stóran hóp
ánægðra þvottavélaeigenda?
Veldu þá eina af hinum frábæru
EUMENIA þvottavélum, þær koma
þér þægilega á óvart.
Nokkur atriði sem við bendum á:
1. Þvo mjög vel.
2. Þvottatími aðeins 65 mín.
3. Orkunotkun aðeins 'A miðað við
eldri gerðir véla.
4. Tekur mjög lítið pláss, og er létt
og meðfærileg.
5. Góð þjónusta.
Verð frá kr. 26.600,-
Ingvi R. Jóhannsson
Brekkugötu 7 - sími 26383
EUMENIA
Alvöru þvottavél
í takt við tímann.
Mýflug:
Byggja flugskýli
Flugfélagið Mýflug í Mývatns- kvæmdum. Verið er að byggja
sveit stendur nú í stórfram- flugskýli fyrir flugvélar félags-
Afmælisdagskráin:
Fjölþætt síðdegis-
skemmtun fyrir
alla aldurshópa
Þegar skrúðgangan hefur skil-
að sér inn á Ráðhústorg um kl.
14.30 á laugardaginn hefst
samhangandi dagskrá á leik-
sviði, göngugötu og nágrenni.
Vopnafjörður:
Tíð
umferðar-
slys í
sumar
Nokkuð virðist bera á því að
óhöppum í umferðinni hafl
fjölgaö hér úti á landsbyggðinni
sé miðað við tölur um óhöpp á
síðasta sumri. Þannig hafa á
sumum svæðum orðið margfalt
fleiri slys á þessu sumri en í
fyrra t.d. á svæði lögreglunnar
á Vopnafirði.
Svæði Vopnafjarðarlögreglu
markast að norðan við Gunnólfs-
víkurfjall en að sunnan við Hellis-
heiði. Á tímabilinu frá 1. júli til
15. ágúst urðu hvorki fleiri né
færri en 8 umferðarslys á þessu
svæði, í sumum tilfellum nokkur
slys á fólki og í fjórum síðari
óhöppunum fóru allir farþegar á
sjúkrahús. Miklar skemmdir
urðu á bifreiðum í þessum
óhöppum og í síðustu fjórum til-
fellunum eyðilögðust jafn margar
bifreiðar.
„Á þessu tímabili í fyrra urðu
mun færri slys, kannski tvö eða
þrjú. Manni finnst þessi aukning
því alltof mikil og við vonum
bara að þessi slysaalda sé gengin
yfir hér á svæðinu,“ sagði Sigur-
jón Andri Guðmundsson, lög-
reglumaður á Vopnafirði er rætt
var við hann um þessa slysaöldu.
JÓH
Þá verða Davíðshús, Náttúru-
gripasafnið, Nonnahús, Minja-
safnið og Sigurhæðir opin frá
9-17 og er aðgangur ókeypis
fyrir gesti á afmælisdaginn.
Síðdegisdagskráin verður mjög
fjölbreytt. Á leiksviðinu í göngu-
götunni verða sýndir ævintýra-
þættir á vegum götuleikhúss
Sögu. Stúlkur frá Dansstúdíó
Alice verða með danssýningu,
skátar bjóða upp á söng og
skemmtiþætti og fimleikasýning
verður á vegum Fimleikaráðs
Akureyrar.
Einnig fer fram kraftlyftinga-
keppni á vegum Kraflyftingaráðs
Akureyrar, Blásarasveit Tónlist-
arskólans leikur létta tónlist og
Ingimar Eydal og félagar sjá um
tónlistarflutning á milli atriða.
Á göngugötunni verða félagar
úr götuleikhúsi Sögu á ferð og
flugi, fimleikafólk mun spreyta
sig á handahlaupi norður eftir
götunni og félagar úr Hjálpar-
sveit skáta munu sýna klifur á
nálægum húsum. Ýmis leiktæki
verða í gangi fyrir börnin, bæði á
Ráðhústorgi og neðantil í Skáta-
gili;
Á flötinni austan við
Samkomuhúsið verður hesta- og
reiðsýning á vegum Hestamanna-
félagsins Léttis. Á svipuðum
slóðum munu stökkvarar úr Fall-
hlífarklúbbi Akureyrar koma
niður með nýja Akureyarfánann.
Við Torfunefsbryggjuna verða
félagar úr Siglingaklúbbnum
Nökkva með fjölbreytta dagskrá
og í Innbænum verða tívolíbátar
í gangi á tjörninni, rétt innan við
Minjasafnið.
Rétt er að geta þess að síðdegis
verða strætisvagnaferðir á hálf-
tíma fresti úr miðbænum í söfnin
í Innbænum. Fleiri sýningar
verða í gangi og má nefna sýn-
ingu á höggmyndum Hallgríms
Sigurðssonar í Gamla Lundi og
svo auðvitað iðnsýninguna í
íþróttahöllinni. SS
ins. Mýflug er í eigu nokkurra
aðila, en stærsti hluthaflnn er
Leifur Hallgrímsson, bóndi á
Vogum.
Byrjað var að reisa flugskýlið
um verslunarmannahelgina og
sagði Leifur að ætlunin væri að
taka skýlið í notkun í haust.
Verður það 315 fermetrar að
stærð. Ekki sagðist Leifur vita
hvað skýlið kostaði fullbyggt,
annað en að það kostaði mikið.
Mýflug á tvær flugvélar og hlut í
þeirri þriðju, sem er kennsluvél.
Hafist verður handa við leng-
ingu flugbrautarinnar í haust.
Sagði Leifur að fengist hefðu í
það 2Vi millj. kr. sem væri alltof
lítið og myndi sennilega duga til
að taka kúpuna af vellinum, sem
mun ekki vera sléttur heldur
kúptur.
Mýflug er aðallega með útsýn-
isflug og sagði Leifur að það
hefði verið þokkalegt að gera í
sumar. „Það hefur verið heldur
minna að gera í sumar en síðasta
sumar, júlí var lélegur en ágúst er
búinn að vera ágætur," sagði
Leifur. HJS
IÐNSYNINGIN
VERÐUR
ÆVINTÝRI LÍKUST
Mikill ágangur
sauðfjár
- á veginum frá Víkurskarði til Akureyrar
„Ágangur sauðijár hefur
verið mikill í alli sumar á
veginunt frá Víkurskarði til
Akureyrar. Orsök þess er
að búið er að sá í kanta á
þessiim vegi og sauðféð ligg-
ur í þessu eins og í túni,“
sagði Guðmundur Svafars-
son, iimdæmisverkfræðing-
ur Vegagerðar ríkisins á
Akureyri, en talsvert er um
að kvartað hafi verið undan
ágangi sauðljár við veginn
undaufaríð.
íbúar á Svalbarðsströnd
muna eftir ristarhliði sunnan
við bæinn Garðsvík, sem
hindraði sauðfé í að komast
lengra á sínum tínta. Þegar nýi
vegurinn yfir Víkurskarð var
iagöur var hlióiö t'jariægt, og
þykir inörgum sent sauðfé hafi
lagsl þyngra á byggöirnar fyrir
sunnan Garðsvík en áður var
og valdi talsverðri slysahættu.
Guðmundur Svafarsson
sagði aö gamla ristarhliðið
hel'ði verið sett upp af hreppn-
unt á sinum tfma en þá var
vegurinn um Svalharðsströnd
minniháttar þjóðbraut en
hringvegurinn lá um Vaðla-
heiöi. Þegar vegurinn yfir Vík-
urskarð var byggður var þessi
vegur gerður að stofnbraut og
þar með hluti af hringvegin-
um. Hjá Vcgagerðinni eru til
vinnureglur um að ristarhlið
eru ekki sett upp á vegum af
þessari gerð því slík hlið eru
miklar slysagildrur. Þó eru á
þessu tvær undantekningar því
ristarhliö eru sett upp við
mœðuveikigirðingar og við
innakstur í þéttbýli, en hvor-
ugu er til að dreifa í þessu tii-
viki.
„Eins og þarna háttar telj-
um við að ágangur sauðfjár sé
ekki rnál Vegagerðarinnar því
við girðum meðfrant öllutn
vegum á Svalbarðsströndinni.
Ég bendi einnig á að ekkert
ristarhlið er austan t heiðinni.
Við vitum vel aö bændum
gengur ntisvel að hemja sauð-
fé en við þessu er ekki mikið
að gera nema reyna að sjá til
þess að það þvælist ekki inn á
þessi svæöi,“ sagði Guðntund-
ur Svafarsson. EHB