Dagur - 26.08.1987, Síða 5
26. ágúst 1987 - DAGUR - 5
Um borð í Flugleiðavélinni ■ upphafí ferðar á leið út í óvissuna. Haukur,
Fanney ásamt þriðja skiptinemanum, hvers nafn þau þekktu ekki.
að unglingarnir tækju virkan þátt
í íþróttum. „Félagslífið var
mörgum sinnum betra, fullt af
klúbbum og íþróttastarfsemi.
Skólarnir hérna heima gætu mik-
ið af þessu lært, mórallinn í
skólunum verður betri með þessu
móti. Þó var annað sem okkur
þótti verra en það voru stunda-
skrárnar. Þær voru eins alla daga
vikunnar; við byrjuðum alla daga
á því sama og enduðum á sömu
greinunum. Maður gat orðið
þreyttur á þessu til lengdar.“
Varðandi kennsluna þá voru
skiptinemarnir ánægðir með
hana nema sá sem hafði dvalið í
Kanada. Taldi hann að kennarar
hefðu hjálpað nemendum of mik-
ið t.d. við úrlausnir verkefna.
Einn skiptineminn sagði að aðal-
munurinn væri sá að í bandarísku
skólakerfi þyrftu nemendur að
leggja talsvert á sig til að ná próf-
um og reglur um mætingaskyldu
væru miklu strangari en hér
heima. „Það er vonlaust að
skrópa þarna,“ sagði einn.
Varðandi daglegt líf fólksins
þá var það álit skiptinemanna að
sem slíkt væri það ekki verulega
frábrugðið daglegu lífi fólks
heima. Þó sagði ein stúlka - en
hún dvaldi í sveit í Bandaríkjun-
um - að snemma hefði verið farið
að sofa eða um kl. 9 á kvöldin.
Allir voru skiptinemarnir sam-
mála um að minni streita væri
almennt í fólki.
Að lokum spurði blaðamaður
skiptinemana að því hvernig
þeim hefði líkað sjónvarpsdag-
skráin í Bandaríkjunum. Voru
þau öll á einu máli um að geysi-
legt framboð væri af sjónvarps-
efni. Tugir sjónvarpsstöðva
kepptust um að ná athygli fólks
en eins og einn sagði: „Þótt við
höfum um margar stöðvar að
velja þá eru fréttir yfirleitt á sama
tíma hjá flestum stöðvunum og
margt annað efni er svipað þann-
ig að fjöldi rásanna ruglar mann
ekki verulega í ríminu. Mér
fannst besta efnið yfirleitt vera á
föstudagskvöldum.“ EHB
Þessa mynd tók Fanney í „Edinburg High School“ af nokkrum vinkonum
sínum. Greinilega líf og fjör í þeim skóla.
Landsvirkjun tekur lán
Mánudaginn 24. ágúst 1987 var
undirritaður í London láns-
samningur milli Landsvirkjun-
ar annars vegar og Hambros
Bank Limitcd, London, og sjö
annarra erlendra banka hins
vegar um lán til Landsvirkjun-
ar að fjárhæð 40 milljónir
Bandaríkjadollara að jafnvirði
um 1560 milljónir króna á
núverandi gengi.
Af hálfu Landsvirkjunar var
lánssamningurinn undirritaður af
Halldóri Jónatanssyni, forstjóra
Landsvirkjunar.
Lánið er til 10 ára og er það
tekið með einfaldri ábyrgð eig-
enda Landsvirkjunar. Það er
afborgunarlaust fyrstu 5 árin, en
endurgreiðist síðan með 11 jöfn-
um hálfsárslegum greiðslum.
Landsvirkjun er þó heimilt að
greiða lánið upp að meira eða
minna leyti hvenær sem er á láns-
tímanum. í lok hvers vaxtatíma-
bils má breyta skuld samkvæmt
láninu úr Bandaríkjadollurum í
aðra þá gjaldmiðla, sem yfirfæra
má hömlulaust á hverjum tíma í
Bandaríkjadollara og einnig má á
sama hátt breyta skuld úr slíkum
gjaldmiðlum í Bandaríkjadoll-
ara.
Vextir af láninu eru
millibankavextir í London eins
og þeir eru á hverjum tíma að
viðbættu vaxtaálagi sem er 3/16%
p.a. Þannig reiknaðir eru vextir
þessir nú um 7,5% p.a. að með-
töldu vaxtaálaginu.
Lánið er tekið samkvæmt
heimild í lánsfjárlögum og kemur
í stað eldra og óhagstæðara láns
hjá Hambros Bank Limited.
Reykjavík, 24. ágúst 1987
Landsvirkjun.
Hótel Reynihlíð:
Svipuð nýting
og í fyrra
„Sumarið hefur verið ágætt.
Gistinýtingin er svipuð og í
fyrra, en þá var algjört toppár.
Eg man ekki eftir öðru eins í
þau þrjátíu ár sem ég hef verið
hér,“ sagði Arnþúr Björnsson
hótelstjóri á Hótel Reynihlíð.
Arnþór sagði að reiknað hefði
verið með einhverri aukningu frá
því í fyrra, „en þó ekki eins
mikilli og ýmsir ferðamálafröm-
uðir töluðu um.“ Arnþór sagði
að gistinýtingin í júlí í ár hefði
verið 94% og að ágúst hefði verið
góður. Enn væri nokkur straum-
ur, en hann hefði dottið dálítið
niður.
Miðað við árið í fyrra hefur
matarsala á Reynihlíð minnkað,
en endanlegar tölur liggja ekki
fyrir. Ástæðan er fyrst og fremst
sú að skemmtiferðaskip sem
koma til Akureyrar eru seinna á
ferðinni en var á síðasta sumri,
en ferðafólk á þeim hefur við-
komu í Mývatnssveit og er nú á
ferðinni þar um miðjan daginn,
en ekki í hádeginu eins og var.
Salurinn á Hótel Reynihlíð er að
sögn Arnþórs orðinn of lítill, en
þó hafa 500 manns verið
afgreiddir þar í hádeginu og þá í
þremur hollum. Árið 1982 var
nýr salur tekin í notkun við
I hótelið og tekur hann rúmlega
60 manns í sæti.
Á síðasta sumri var sett upp
aðstaða til svefnpokagistingar í
Hraunbrún, sem er vinnuskúr
sem keyptur var frá Kröflu. Þar
er pláss fyrir á milli 40-50 manns
og sagði Arnþór að þar hefði oft
verið fullt í sumar. mþþ
Þrjár nætur í Hospitality Inn hótel (4rá stjörnu)
með morgunverði frá Akureyri til Akureyrar
á aðeins
Brottför
26. sept.
10. okt.
Heimkoma
29. sept.
13. okt.