Dagur - 06.10.1987, Blaðsíða 16
Samið um fiskverð
við togarasjómenn á Dalvík:
Septembersamn-
ingurinn áfram í gildi
- Frystihúsið greiðir 32,56 kr.
fyrir kílóið af 1,9 kílóa þorski
Fyrir stuttu var gerður samn-
ingur milli Frystihúss KEA
á Dalvík og sjómanna um lág-
marksverð á físki í kjölfar
þess að sjómenn á togaranum
Björgúlfí neituðu að halda til
veiða. Þessi samningur gilti
fyrir septembermánuð og var
því laus síðastliðinn fímmtu-
dag.
Að sögn Kristjáns Ólafssonar,
sjávarútvegsfulltrúa KEA var
haldinn fundur með sjómönnum
og fiskkaupendum á Dalvík um
helgina þar sem samkomulag
tókst um að samningur þessi
verði áfram í gndi en sjómenn
samþykktu að taka tilboði fisk-
kaupenda um að samningurinn
gilti áfram.
Samkvæmt samningnum er
miðað við meðalverð á fiski á
Fiskmarkaðinum í Hafnarfirði á
tímabilinu frá 15. júní til 5.
september. Þetta hljóðar upp á
32,56 kr. á kíló fyrir 1,9 kílóa
þorsk. Kristján sagði að síðan
breyttist verðið um 85 aura á
hver 100 grömm hvort sem um
væri að ræða léttari eða þyngri
fisk.
Fyrir aðrar fisktegundir greiðir
frystihúsið fast verð sem miðað
er við það verð sem fæst fyrir þær
tegundir á útgerðarstöðunum
næst Dalvík. Frystihúsið greiðir
30 krónur fyrir hálfs til þriggja
kílóa lúðu, 64 kr. fyrir kílóið af
lúðu frá þremur til 10 kíló og 84
krónur fyrir kílóið af lúðu þyngri
en 10 kíló. Þá greiðir húsið 37 kr.
fyrir kíló af tveggja kílóa ýsu,
14,10 kr. fyrir minni karfa og
17,80 fyrir stærri karfa. Loks
greiðir húsið 14,70 kr. fyrir minni
ufsa en 20 kr. fyrir stærri ufsa.
Togararnir Björgvin og Björg-
úlfur voru í höfn um helgina en
Björgúlfur hélt til veiða á sunnu-
dagsmorgun og Björgvin lét úr
höfn í gær. JÓH
Heilsugæslustöðin
á Akureyri:
Viðræður um
ráðningu
kvensjúkdóma-
læknis í gangi
Sem kunnugt er, hefur ekki
verið starfandi kvensjúkdóma-
læknir í föstu starfí við heilsu-
gæslustöðina á Akureyri frá
því sl. vor. Þar var beðið eftir
að ákvörðun yrði tekin við
FSA varðandi ráðningu sér-
fræðings í kvensjúkdómum.
Forsvarsmenn heilsugæslu-
stöðvarinnar höfðu látið í Ijós
ósk um að á FSA yrðu ráðnir
tveir sérfræðingar í hálft starf
hvor, þeir myndu síðan skipta
með sér þeirri 60% stöðu sem
til boða er við heilsugæslustöð-
ina.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur einn læknir verið
ráðinn við sjúkrahúsið í 100%
stöðu. Að sögn Hjálmars Frey-
steinssonar hafa þeir rætt við yfir-
lækni Fæðingardeildar FSA um
þátttöku lækna þar í starfi
mæðraverndar og krabbameins-
leitar á vegum heilsugæslustöðv-
arinnar. „Þarna er ekki um að
ræöa samning við sjúkrahúsið,
heldur við þessa einstöku
lækna,11 sagöi Hjálmar. „Viðræð-
um er ekki lokið, en ef sam-
komulag næst veröur það lagt
fyrir stjórn heilsugæslustöðvar-
innar til samþykkis eða höfnun-
ar. Málin eru sem sagt í athug-
un.“ VG
Fyrsta skóflustungan???
Mynd: TLV
„Ég stend við mínar
skuldbindingai
- segir Aðalgeir Finnsson vegna verkloka við Hlíð
Aðalgeir Finnsson, verktaki
við Dvalarheimilið Hlíð á
Akureyri, hafði samband við
Dag vegna fréttar sem birtist 2.
október undir fyrirsögninni
„Dvalarheimili aldraðra: Verk-
lokum seinkar um 5 mánuði.“
Aðalgeir vill gera eftirfarandi
athugasemdir við ummæli for-
manns öldrunarráðs í fréttinni.
„Ég vil benda á að gerð verk-
samnings við fyrirtæki mitt dróst
í meira en mánuð og fram-
kvæmdir hófust því seinna en til
stóð vegna þess að fyrri verktaki
hafði ekki lokið við sinn verk-
hluta. Starfsmenn mínir komust
ekki að fyrr en mánuði seinna en
gert var ráð fyrir í verk- og
greiðsluáætlun.
Þessi mynd er frá byggingaframkvæmdum við Dvaiarheimilið Hlíð árið
1984.
Þær fjórar vikur sem hér er um
að ræða færa verklokin því að
öllu eðlilegu fram til 1. nóvember.
Við tókum einnig að okkur auka-
verkefni við Hlíð og það tók tíu
daga. Þarna eru því komnar tæp-
ar sex vikur. Bæjarstjóri hefur
rætt um það við mig að ég þurfi
ekki að flýta verkinu frekar því
fyrsti áfangi muni standa full-
búinn í einhverja mánuði því
ekki fáist greiðslur frá bænum til
að halda áfram svo hægt sé að
taka húsið í notkun. Þetta eru
atriði eins og lyfta, frágangur á
lóð, málning utanhúss, stéttar við
húsið, brunavarnakerfi, hrein-
lætistæki og annar búnaður sem
kemur mínu fyrirtæki ekki við.
Ég hef gert öldrunarráði og
formanni þess grein fyrir þessari
seinkun í bréfi sem ég ritaði þeim
og ég er undrandi á að formaður
ráðsins skuli rugla saman eigin-
legum verklokum og verklokum
frá minni hendi. Ég hef að öðru
leyti staðið við sámninginn og
fengið greiðslur í samræmi við
greiðslu- og verkáætlun eins og
vera ber. Reikningarnir eru upp-
áskrifaðir af embætti húsameist-
ara og þeir eru ánægðir með
vcrkiö. Eg stcfni ákveðið að því
aö verkinu Ijúki 1. ágúst á næsta
ári eins og talað er um í samn-
ingnurn," sagði Aðalgeir að
lokum. EHB
Akureyri:
Stungið af
frá þremur
ákeyrslum
um helgina
- lýst eftir vitnum
Af og til gerist það að ekið er á
kyrrstæða bíla og í mörgum til-
fellum vilja þeir sem slíkt gera
hverfa af vettvangi án þess að
tilkynna brot sitt. Tjón þessi
eru oftast lítil en þó dýr og
mjög bagalegt að verða fyrir
þeim. Um helgina virðist
samviskupúkinn hafa yfírgefíð
óvenju marga klaufska öku-
menn því frá föstudegi til
sunnudags var stungið af frá
þremur ákeyrslum af þessu
tagi.
Um miðjan dag á föstudagin'n
var ekið á bláan bíl af gerðinni
Taunus á bílastæðinu fyrir utan
Hótel KEA. Bíllinn sem ber
einkennisstafina Þ-2767 skemmd-
ist nokkuð að aftan.
Á laugardagskvöld eða aðfara-
nótt sunudagsins var ekið á
bifreiðina A-1653 þar sem hún
stóð við Tjarnarlund 16. Bifreið-
in sem er af gerðinni Volkswagen
Jetta skemmdist á vinstri hlið.
Þriðja ákeyrslan sem stungið
var af frá um helgina varð svo á
sunnudaginn þegar ekið var á
hvíta Chevrolet bifreið með
númerið A-5500 á bílastæðinu
fyrir utan Glerárkirkju. Atburð-
urinn mun hafa átt sér stað á bil-
inu 15.00-16.30.
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri lýsir eftir vitnum að þessum
atburðum eða þeim sem ein-
hverjar upplýsingar geta veitt til
að finna hina seku. ET
Pepsi Cola
hraðskákmótið:
Hannes Hlífar
á sigurbraut
Pepsi Cola hraðskákmótið var
haldið í Víkurröst á Dalvík sl.
laugardag á vegum Taflfélags
Dalvíkur. Sana hf. gaf öll verð-
laun sem námu alls 40.000 kr.
Keppendur voru 32, þeirra á
meðal Helgi Ólafsson stór-
meistari og Hannes Hlífar
Stefánsson heimsmeistari
sveina.
Hannes Hlífar sigraði glæsilega
á þessu móti, hlaut 9 1/2 vinning
af 11 mögulegum. Hann hafði
tveggja vinninga forskot á Helga
Ólafsson þegar tvær umferðir
voru eftir en Hannes tapaði í síð-
ustu umferðinni fyrir Rúnari
Sigurpálssyni sem er ungur og
efnilegur skákmaður frá Akur-
eyri.
Helgi varð í 2. sæti með 8 1/2
vinning. í 3. sæti varð Jón G.
Viðarsson með 8 v. í 4.-5. sæti
lentu þeir Rúnar Sigurpálsson og
Þröstur Þórhallsson með 7 1/2 v.
Þröstur Árnason varð í 6. sæti
með 7 v. og jafnir í 7. sæti urðu
þeir Gunnar Frcyr Rúnarsson,
Davíð Ólafsson og Gunnar
Björnsson með 6 1/2 vinning.
Þessir skákmenn hlutu allir
peningaverðlaun. Jóhann
Tryggvason, umboðsmaður Pepsi
Cola á Dalvík, afhenti verðlaun-
in í mótslok. Mótið þótti takast
mjög vel í aila staði. SS