Dagur - 07.10.1987, Síða 9
—íþróttir.
Umsjón: Kristján Kristjánsson
7. október 1987 - DAGUR - 9
Handbolti 1. deild:
Fær KA sín lyrstu
stig gegn Fram í kvöld?
- Þórsarar mæta Valsmönnum í Reykjavík
I kvöld fer fram heil umferð
1. deild Islandsmótsins í hand-
knattleik. í íþróttahöllinni á
Akureyri leika KA og Fram kl.
20, Valur og Þór ieika í hinu
nýja íþróttahúsi Valsmanna kl.
18, Stjarnan og Breiðblik í
Digranesi í Kópavogi kl. 20,
KR og Víkingur í Laugardals-
höll kl. 20.15 og ÍR og FH í
íþróttahúsi Seljaskóla kl. 20.
Nýliðar Þórs fengu slæma út-
reið gegn FH í 1. umferð. Loka-
staðan varð 36:21 eftir að Þórsar-
ar höfðu hangið í FH-ingum
framan af leiknum. Valsmönnum
er spáð mjög góðu gengi í vetur
og af flestum taldir meistara-
kandidatar í ár. Liðið er mjög
sterkt og því varla hægt að reikna
með því að Þórsarar hljóti stig í
kvöld.
KA-menn ollu miklum von-
brigðum í leiknum gegn Stjörn-
unni í Höllinni á miðvikudag.
Stjarnan vann næsta auðveldan
sigur 26:20 og KA-menn verða
að gera mun betur ef þeir ætla að
blanda sér í efri hluta deildarinn-
ar. Óheppni hefur elt Framara og
liðið leikur í kvöld án þriggja lyk-
ilmanna. KA-menn eiga því alla
möguleika á því að hljóta sín
fyrstu stig í kvöld.
Stjarnan verður að teljast lík-
legri sigurvegari í viðureigninni
gegn UBK, þó reikna megi með
nokkuð jöfnum leik. Víkingar
ættu ekki að verða í vandræðum
með KR-inga og heldur ekki FH-
ingar með IR-inga.
„Ég er hæfílega bjartsýnn á sigur í kvöld,“ segir Friðjón Jónsson KA-
maður. Mynd: TLV
„Verðum að vinna
þennan leik“
- segir Friðjón Jónsson
fyrirliði KA í handbolta
,Það er nú lítið hægt að segja kvöld en miðað við árangur ykk-
um leikinn gegn Stjörnunni.
Þetta var frekar dapurt hjá
okkur og fátt eins og það átti
að vera. Það er erfitt að finna
einhverja einhlíta skýringu á
tapinu en það var óþarfa stress
á okkur í þessum fyrsta Ieik,“
sagði Friðjón Jónsson fyrirliði
KA í handbolta í samtali við
blaðið.
- En nú eigið þið að leika gegn
Fram í kvöld. Hvernig líst þér á
þá viðureign?
„Við verðum að vinna þennan
leik og ég er hæfilega bjartsýnn á
að okkur takist það. Við höldum
okkar striki og ég held að menn
komi með betra hugarfari í leik-
inn í kvöld en gegn Stjörnunni
fyrir viku. Við komum mjög vel
undirbúnir til leiks í mótið og
ekkert út á það að setja."
- Nú hafið þið misst Pétur
Bjarnason í bili vegna meiðsla og
Atli Hilmarsson hefur bæst á
sjúkalistann hjá Fram, þar sem
fyrir voru þeir Hannes Leifsson
og Egill Jóhannesson. Standið
þið ekki nokkuð vel að vígi mið-
að við þá?
„Það er slæmt að missa Pétur
og ég vona að hann verði leikfær
sem fyrst. En það kemur maður í
manns stað. Hvað varðar meiðsli
Framara, þá veit ég ekki hvað
er að marka þær fréttir. Það er nú
oft gert meira úr meiðslum
leikmanna í fjölmiðlum en efni
standa til. Við höfum t.d. heyrt
að Atli hafi æft með liðinu af full-
um krafti að undanförnu. Það
skýrist því ekki fyrr en í kvöld
hverjir verða með og hverjir
ekki.“
- Þið eigið heimaleik aftur í
ar á heimavelli í fyrra, virðist
hann ekki nýtast ykkur sem
skyldi. Þið fenguð jafn mörg stig á
útivelli og á heimavelli. Hvað
skýringu hefur þú á því?
„Auðvitað ættum við að ná
mun fleiri stigum heima en úti.
En einhvern veginn þróaðist
þetta nú þannig í fyrra að við
fengum jafn mörg stig heima og
úti. Áhorfendur hafa stutt vel við
bakið á okkur og það mætti
hvaða lið sem er vera ánægt með
þá stuðningsmenn sem við höfum.
Þetta hefur fyrst og fremst verið
okkar eigin klaufaskapur að ná
ekki betri árangri á heimavelli.“
- Hvað lið heldur þú að verði í
toppslagnum?
„Það reikna flestir með Vals-
mönnum á toppnum en það geta
ein 6 önnur lið sett þar strik í
reikinginn og því er erfitt að fara
að raða liðum í sæti. Við KA-menn
eigum að geta spilað betri bolta í
ár en ég á þó ekki von á okkur
ofar en um miðja deild,“ sagði
Friðjón Jónsson að lokum.
„Getum vel unnið Val“
- segir Gunnar Gunnarsson fyrirliði Þórs í handbolta
„Það er alveg hægt að vinna
þetta lið eins og hvert annað og
það er líka hægt að tapa fyrir
því en við munuin leika til
sigurs gegn Val í kvöld eins og
alltaf. Valsliðið er ekkert sér-
stakt ef marka má leikinn við
Fram í síðustu viku og alls ekki
ósigrandi,“ sagði Gunnar
Gunnarsson fyrirliði Þórs í
handbolta í samtali við blaðið.
„Þetta er fyrsti leikurinn í nýja
íþróttahúsinu þeirra og þeir ætla
sér örugglega að byrja með látum
þar.“
- En hvernig var leikurinn
gegn FH um daginn?
„Þetta var allt í lagi hjá okkur
þar til 20 mín. voru eftir af leikn-
um. Leikurinn varð miklu hrað-
ari í lokin og þá réðum við ekkert
við þá og þeir hreinlega gengu
yfir okkur. Við vorum líka allt of
góðir við þá og verðum að spila
mun fastar en við gerðum í Hafn-
arfirði.“
- Hvernig líst þér á sjálft
keppnistímabilið?
„Þetta verður gífurlega erfitt hjá
okkur en við eigum vel að geta
unnið eitthvað af þessum liðum í
1. deild. En það hefst ekki nema
að menn leggi sig alveg 100% í
hvern leik. Hin liðin í deildinni
eru mun reynslumeiri en okkar
nema þá helst ÍR-ingar sem eru á
svipuðu plani og við.“
- Nú þurfið þið að byrja á
tveimur erfiðum útileikjum, eruð
þið ekkert með óhressir með þá
niðurröðun?
„Bæði og, það er svo sem ágætt
að ljúka þessum erfiðu útileikj-
um. Við fáum síðan ÍR heim á
laugardag. ÍR-ingar virðast vera
nokkuð sprækir um þessar
mundir. Þjálfarar liðanna voru á
því að hvorugt liðið yrði komið
með stig er þau mætast á laugar-
dag en við skulum ekkert afskrifa
Valsleikinn í kvöld,“ sagði
Gunnar Gunnarsson fyrirliði
Þórs.
„Valsarar eru alls ekki ósigrandi,“ segir Gunnar Gunnarsson Þórsari.
Mynd: Rt»B
Knattspyrna:
Leikið við Portú-
gala í kvöld
I kvöld leika Islendingar og
Portúgalar landsleik í knatt-
spyrnu. Leikurinn sem er liður í
undankeppni Ólympíuleikanna
fer fram í Portúgal. Þetta er
fjórði leikur beggja liða í
keppninni. Islendingar töpuðu
0:2 fyrir Itölum ytra, gerðu þá
jafntefli 2:2 við Hollendinga
heima og unnu loks A.-Þjóð-
verja hér heima 2:0. Portú-
galar gerðu 1:1 jafntefli heima
gegn Hollendingum og 0:0
KA - Fram í kvöld:
Atli ekkí með Fram
„m-av er alveg Ijóst að Atli
,Það
Hilmarsson mun ekki leika
með Fram gegn KA í kvöld.
Hann er í gipsi en á að mæta í
skoðun seinni partinn í dag og
þá kemur í Ijós hvort hann er
brotinn,“ sagði Sigurður I.
Tómasson formaður hand-
knattleiksdeildar Fram í sam-
tali við Dag. En eins og komið
hefur fram í fréttum, meiddist
Atli illa á hendi í leiknum gegn
Val á miðvikudaginn.
„Atli mun ekki leika með lið-
inu næstu leiki og ef það kemur í
ljós í dag að hann er handarbrot-
inn, mun hann örugglega missa af
allri fyrri umferðinni," sagði
Sigurður einnig.
- En hvað með Egil Jóhannes-
sem
son og Hannes Leifsson
einnig hafa verið meiddir?
„Hvorugur þeirra verður með.
Hannes er að vísu byrjaður að
æfa á ný en hann verður ekki
með í kvöld. Þá hefur Pálmi
Jónsson hafið æfingar og það gæti
verið að hann yrði í liðinu í
kvöld. En ástandið er allt annað
en glæsilegt hjá okkur,“ sagði
Sigurður að lokum.
jafntefli heima gegn A.-Þjóð-
verjum en töpuðu 2:0 fyrir
ítölum á útivelli.
íslendingar standa því betur að
vígi fyrir leikinn í kvöld en ljóst
er að róður okkar manna verður
þungur enda Portúgalar snjallir
knattspyrnumenn. Þorsteinn
Guðjónsson KR-ingur tók stöðu
Sveinbjörns Hákonarsonar
Skagamanns í hópnum en Svein-
björn meiddist í Evrópuleiknum
gegn Kalmar FF. Aðrir í íslenska
hópnum eru:
Markverðir:
Friðrik Friðriksson Fram
Birkir Kristinsson ÍA
Aðrir leikmenn:
Þorsteinn Þorsteinsson Fram
Viðar Þorkelsson Fram
Ormarr Örlygsson Fram
Pétur Arnþórsson Fram
Guðmundur Steinsson Fram
Halldór Áskelsson Þór
Guðmundur Torfason Wintersl.
Ólafur Þórðarson ÍA
Heimir Guðmundsson ÍA
Njáll Eiðsson Val
Valur Valsson Val
Guðni Bergsson Val
Ingvar Guðmundsson Val