Dagur - 14.10.1987, Blaðsíða 2

Dagur - 14.10.1987, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 14. október 1987 mwm, ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 55 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík, ÁSLAUG MAGNÚSDÚTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, TÚMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. leiðari_________________________________ Hallalaus fjárlög og aðgerðir í efnahagsmálum Ríkisstjómin hefur nú kynnt hluta þeirra aðgerða sem hún hyggst grípa til í efnahags- málunum. Aðgerðunum er ætlað að bæta jafnvægi á lánamarkaði, efla innlendan sparn- að og draga úr halla ríkisfjármála. í yfirlýsingu, sem ríkisstjórnin sendi frá sér vegna þessara aðgerða, segir meðal annars. „Framvinda efnahagsmála að undanförnu og horfur fyrir næstu misseri sýna vaxandi verð- bólgu og viðskiptahalla. Við þessar aðstæður þarf að beita samræmdum ráðstöfunum á öll- um sviðum efnahagsmála gegn þenslu.“ í samræmi við þessa yfirlýsingu hefur ríkis- stjórnin lagt fram hallalaus fjárlög fyrir árið 1988 og mun auk þess grípa til fjölþættra aðhaldsaðgerða á sviði fjármála og peninga- mála. Ljóst er að nokkur stefnubreyting hefur átt sér stað hjá ríkisstjórninni frá því í sumar. í samkomulagi núverandi stjórnarflokka við myndun ríkisstjórnarinnar var gert ráð fyrir því að fjárlagahallinn yrði jafnaður á þremur árum með kerfisbundnum hætti. Nú eru fjár- lög næsta árs hins vegar lögð fram hallaiaus og jafnframt er gert ráð fyrir að eyða fjárlaga- halla undanfarinna ára hraðar en áður hafði verið ráðgert. Flestir munu sammála um að þessi breytta stefna ríkisstjórnarinnar er skynsamleg, þótt vissulega greini menn á um aðferðir til að ná settu marki. Það er viðurkennd staðreynd að eitt af því óskynsamlegasta sem nokkur ríkis- stjórn getur gert er að reka ríkissjóð með halla í góðæri og það á þenslu- og verðbólgu- tímum. Það er tvímælalaust nauðsynlegt að draga úr framkvæmdum sem leiða til aukinn- ar og áframhaldandi þenslu á fjármagns- og launamarkaði, með tilheyrandi víxlhækkun verðlags og kaupgjalds. Einnig verður að draga úr viðskiptahallanum við útlönd enda er það forsenda þess að halda genginu stöðugu. Ríkisstjórnin hefur gefið tóninn um stefn- una í efnahagsmálum næstu misserin. Það á eftir að koma í ljós hvort kaupsýslumenn og aðrir atvinnurekendur fylgja fordæmi ríkis- stjórnarinnar að sjálfsdáðum og draga úr umsvifum sínum. Frelsið sem verið hefur við lýði á lánamarkaðinum hefur ýtt undir gegnd- arlausar fjárfestingar, innflutning og kaupæði sem er um það bil að hleypa verðbólguskrið- unni af stað á nýjan leik. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar miða fyrst og fremst að því að stöðva þá skriðu. Hallalaus fjárlög er fyrsta skrefið á langri leið og tor- sóttri. BB. viðtal dagsins. Gréta Sigfúsdóttir og Sigrún Ingvarsdóttir eigendur Arkar í nýja húsnæðinu að Iléðinsbraut 13. „Fólk hélt að við værum ruglaðar" „Við vorum að brjóta vissa hefð, fara inn á karlaveldið og það var hlegið að okkur,“ sagði Sigrún Ingvarsdóttir um kaup hennar og Grétu Sigfús- dóttur á Offsetstofunni Ork. Þær keyptu Örk 13. sept. 1986 og fyrir nokkrum dögum fluttu þær með fyrirtækið í eigið húsnæði að Héðinsbraut 13 á Húsavík, þar sem Dagur ræddi við þær. Það voru hjónin Jóhannes Haraldsson og Sig- rún Rögnvaldsdóttir sem stofnuðu fyrirtækið í nóvem- ber 1970 en hugmyndina um að hefja prentiðnað á Húsavík fékk Jóhannes frá Birni Frið- finnssyni, þáverandi bæjar- stjóra. Árni Haraldsson keypti Örk af Jóhannesi 1981, þá gaf Árni út Skrána, sjónvarpsdag- skrá með auglýsingum sem Örk hefur gefið út síðan. Guðjón, bróðir Sigrúnar keypti fyrirtækið af Árna 1984 en seldi það síðan Sigrúnu og Grétu. „Það eru margir sem gera sér ekki grein fyrir að Örk og Skráin eru eitt og hið sama. Þegar við svörum í símann og segjum „Örk, góðan daginn," segja margir: „Æ, ég ætlaði að hringja í Skrána." Eins halda margir að við prentum bara Skrána og söfn- um auglýsingum í hana en séum ekki með neitt annað, en við erum með alla venjulega prent- þjónustu og nú erum við að fá nýja offsetprentvél af gerðinni Rotaprint R 37 og bindum vonir við að geta sinnt fjölbreyttari verkefnum í framtíðinni. Einnig erum við umboðsaðilar fyrir tölvupappír. Þegar við keyptum þetta hús sögðu allir að það væri ónýtt og að nú værum við alveg orðnar ruglaðar, það lá við að við tryð- um þessu en þetta hús er sko ekki til sölu í dag og allt annar tónn kominn í fólkið.“ - Hvað er húsið gamalt? „Við vitum það ekki nákvæm- lega, við erum með teikningar frá því um 1950 en þær munu hafa verið gerðar eftir að húsið var byggt. Byggingafulltrúi hafði komið, þegar verið var að byggja húsið, og viljað sjá teikningar en fengið þau svör hjá bygginga- meistaranum að ekki væri hægt að teikna hús sem ekki væri til.“ - Nú er ljómandi vistlegt hjá ykkur, eruð þið búnar að vinna mikið í húsinu? „Öll kvöld og allar helgar í einn mánuð og Ingi tók sér hálfs- mánaðar sumarfrí til að vinna við rafmagnið og fleira." Ingi Magnússon rafvirki er eiginmað- ur Grétu en Sigrún er gift Bjarna Bjarnasyni sem einnig vann mik- ið við breytingarnar. Húsið, sem hefur gengið undir nafninu Bessastaðir, er á tveim hæðum, neðri hæðin er um 80 fm en efri hæðin eitthvað minni. Aðstaða til setningar og skrifstofuvinnu er á efri hæð en niðri er prentsalur og lagerrými. - Nú er ekki algengt að konur reki fyrirtæki af þessu tagi, hvernig gengur ykkur? „Okkur gengur vel en þetta er mikil vinna. Pappírinn er náttúr- lega þungur en þá tökum við bara báðar á því sem sterkir karlmenn mundu svipta til einir. Það er í rauninni Iygilegt hvað okkur gengur vel að vinna saman því # Yfirstjórn byggingamála Töluverð umræða hefur undanfarið farið fram um fyrirhugaðar stjórnkerfis- breytingar á Akureyri. Breyt- ingar þessar hafa verið lengi í deiglunni og eru án efa þarfar. Þó breytir þetta ekki þeirri staðreynd að forráða- menn Akureyrarbæjar á ýms- um sviðum hafa algerlega sniðgengið embætti húsa- meistara í mörgum tilvikum og komíst upp með að fram- kvæma hlutina í trausti þess að bæjarráð legði blessun sína yfir verkin eftirá. Um þetta eru mörg dæmi og heyrst hefur eftir forsvars- mönnum meirihlutans að bæjarráð sé of valdamikið, ekkert sé fært til bókar á fundunum o.s.frv. Ekki vill þó neinn láta hafa þetta eftir sér opinberlega enda er málið mjög „viðkvæmt", að sögn. # Fjör í sund- laugunum Sundlaug Akureyrar er hin þarfasta stofnun enda vinsæl meðal bæjarbúa. Fastur kjarni sundlaugargesta sækir gufubaðið heim í viku hverri og eftir einum fastagestanna er eftirfarandi saga höfð: Einu sinni sem oftar var hann staddur i gufunni þegar kvenmaður opnar hurðina og gengur inn. Verður henni hverft við þegar hún varð þess var að hún hafði villst en búningsklefar kvenna eru í næstu dyrum og hún ókunnug. „Eg rak konuna strax út,“ sagði vinurinn, „en karlarnir voru hálfsvekktir yfir því að ég skyldi ekki bjóða henni inn!“ # Gúrka svæðis- útvarpsins Um daginn kom sú fleyga fregn í svæðisútvarpinu að Skinnaiðnaðardeiid SÍS hefði gert samning upp á 53 millj- ónir króna við aðila á Norður- löndunum og væri þetta sá fyrsti af mörgum. Ekki þótti forráðamönnum deildarinnar mikið til þessarar fréttar koma sem ekki er von þvi þeir gera 15 til 20 slíka samninga árlega án þess að slíkt geti talist til frétta. En svona er þetta með sumt í fjölmiðlum - ekki er allt sem sýnist.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.