Dagur - 14.10.1987, Blaðsíða 11
14. október 1987 - DAGUR - 11
Verkmenntaskólinn:
Tvö tilboð
bárust í
hluta 5.
áfanga
Fyrir helgi voru opnuð tilboð í
fyrsta hluta 5. áfanga Verk-
menntaskólans. Um er að
ræða undirstöður og steypu á
gólfplötu en gert er ráð fyrir að
verkinu verði lokið 25.
nóvember næstkomandi.
Kostnaðaráætlun Verkfræði-
þjónustunnar hljóðaði upp á
3.162.780 kr. en flatarstærð þessa
flatar er 1400 fermetrar.
Tvö tilboð bárust í verkið en
þau kornu frá Híbýli hf og
Fjölnismönnunr. Híbýli bauð
3.501.355 kr. í verkið en Fjölnis-
menn voru heldur lægri, tilboð
þeirra hljóðaði upp á 3.486.151
kr. Bæði þessi tilboð eru því um
10% yfir kostnaðaráætlun sem að
sögn byggingafulltrúa Verk-
menntaskólans er ekki óeðlilegt
miðað við stærð verksins og
árstíma.
Um áramót er gert ráð fyrir að
útboðsgögn fyrir annan hluta 5.
áfanga verði tilbúin en það útboð
er mun stærra, nær yfir alla upp-
steypu og frágang á húsinu, bæði
innanhúss og utan.
JÓH
„Er það sem mér sýnist? Já, snjórinn er greinilega að hverfa, sem betur fer.“
- Skammgóður vermir kisa mín, veturinn er rétt að byrja. Mynd: tlv
Verkstjórnarfræðslan:
„Verkstjórar geta gert
líf starfsfólks óbærilegt“
- segir Árni Björn Árnason hjá
Verkstjórafélagi Akureyrar og nágrennis
Nýlega hófust á Akureyri
námskeið á vegum Iðntækni-
stofnunar sem nefnist Verk-
stjórnarfræðslan. Samkvæmt
skilgreiningu er þetta, 180
stunda grunnnám fyrir verk-
stjóra, stjórnendur og aðra
sem starfa með og þurfa að
segja fólki fyrir verkum, stand-
ast áætlanir, hagræða rekstri,
koma á breytingum og bæta
mannleg samskipti og samstarf
á vinnustað.
Árni Björn Árnason hjá
Verkstjórafélagi Akureyrar og
nágrennis sagði þetta vera þriðja
árið sem námskeiðin eru haldin.
Helstu breytingar sem orðið hafa
eru þær að í fyrra voru námskeið-
in 4 daga löng en eru nú aðeins 2
dagar í senn frá 9 á morgnana til
5 á daginn. Ástæða þessarar
breytingar er sú, að hægara ætti
að vera fyrir fólk að losna úr
vinnu í tvo daga í stað fjögurra.
í vetur verða haldin 13 nám-
skeið á Akureyri fyrir áramót og
23 eftir áramót. Námskeiðin eru
öll sjálfstæð eining og því er sama
hvert þeirra er tekið fyrst. Efni
þeirra er fjölbreytilegt og má
nefna þætti eins og: Stjórnunar-
aðferðir og starfshvatning, örygg-
ismál, verkáætlanir, verktilsögn
og vinnutækni og verkefnastjórn-
un. Árni sagði að aðsókn hefði
verið misjöfn, en þó hefði aldrei
fallið niður námskeið.
Það eru oftast fyrirtækin sem
senda starfsmenn sína á þessi
námskeið. Þau greiða námskeiðs-
kostnað sem er 7.400 á nám-
skeið auk þess sem starfs-
mennirnir eru á launum á meðan
námskeiðið stendur yfir. Þarna
væri að vísu um kostnað að ræða
fyrir fyrirtækin, en þau bæru
ríkulega úr býtum í staðinn. Þátt-
takendur námskeiðana hafa verið
ánægðir með þau og talið þau
nýtast sér vel.
Árni sagði jafnframt að sér
þætti undarleg sú staðreynd, að
verkalýðsfélög skuli ekki hafa
farið fram á það við gerð kjara-
samninga, að verkstjórar séu
Fyrsti formlegi fundur Alþing-
is var haldinn á mánudaginn.
Stefán Valgeirsson aldursfor-
seti stýröi fundi og gengið var
til atkvæða um embætti þings-
ins.
Eins og vitað var þá var
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
kosinn forseti Sameinaðs þings
og fékk hann 43 atkvæði í það
embætti. Athygli vakti að Salóme
Þorkelsdóttir fékk 9 atkvæði en
fimm atkvæðaseðlar voru auðir.
Einnig fékk Valgerður Sverris-
dóttir eitt atkvæði í embætti for-
seta Sameinaðs þings. Fyrsti
varaforseti var kosinn Guðrún
menntaðir. „Við eyðum þriðjungi
og jafnvel hálfri ævinni við vinnu
og því ætti fólki að líða þar vel.
Mannleg samskipti geta verið
margs konar og það eru ekki allir
í stakk búnir að mæta þannig erf-
iðleikum. Verkstjórar geta svo
sannarlega gert líf og vinnu
starfsfólks óbærilegt og tel ég
nauðsynlegt fyrir fyrirtæki að
gera sér grein fyrir því. Þátttaka
er ekki bundin aðild í verkstjóra-
félaginu. Námskeiðin höfða til
allra þeirra sem hafa mannafor-
ráð, bæði hátt og lágt settra."
VG
Helgadóttir en Jóhann Einvarðs-
son annar varaforseti.
Jón Kristjánsson var kosinn
forseti neðri deildar. Athygli
vakti að Ólafur Ragnar Gríms-
son fékk eitt atkvæði til em-
bættisins en hann situr nú á
Alþingi sem varamaður Geirs
Gunnarssonar. Geir er staddur í
Bankok á fundi alþjóðasambands
þingmanna. Fyrsti varaforseti var
kosinn Óli Þ. Guðbjartsson en
annar varaforseti Sighvatur
Björgvinsson.
Karl Steinar Guðnason var
kosinn forseti efri deildar en
Guðrún Agnarsdóttir og Salóme
Þorkelsdóttir varaforsetar. AP
Forsetar Alþingis
- kosnir á mánudag
Eru verk miðla
verk Guðs?
Ástæðan fyrir þessum skrifum
mínum cr grein eftir Ómar
Torfason, sem birtist í Degi
mánudaginn 5. október síðastlið-
inn. Ómar fer þar lofsömum orð-
um um huglækningar, miðla og
þess háttar, og furðar sig á því,
jafnvel ásakar þjóðkirkjuna fyrir
að taka ekki þátt í starfi þcirra.
1 örfáum orðum ætla ég að
benda þessum bróður og öllum
þeim sem aðhyllast miðla, lækn-
ingar þeirra, fréttir að handan og
annan spiritisma á orð Biblíunn-
ar um þessa hluti og um leið
ástæðuna fyrir afskiptaleysi kirkj-
unnar.
Staðreyndin er sú að Biblían,
sem er orð Guðs og leiðarbók
kristinna manna bannar okkur öll
afskipti af hinum dauðu. í 5.
Mósebók 18:10-12 stendur m.a.
að hver sá sem fari með spár eða
leiti frétta hjá framliðnum sé
Guði andstyggð og þar af leið-
andi eru afskipti miðla af hinurn
dauðu ekki réttlætanleg undir
neinum kringumstæðum jafnvel
þótt það líti út sem líknarstarf og
einhverjir fái lækningu, því það
sem ekki er frá Guði er frá Satan,
segir Biblían. Rifjum einnig upp
ófarir Sáls sem var konungur í
ísrael á undan Davíð. I I. Kron.
10:13-14 segir: „Þannig lét Sál líf
sitt sakir ótrúmennsku sinnar við
Drottin, sakir þess að hann
hafði gengið til frétta við vofu en
við Drottin hafði hann eigi
gengið til frétta. Hann lét hann
þess vegna deyja.“
Og í II. Kron. 16:12 segir frá
Asa konungi sem gjörðist fóta-
veikur „og varð sjúkdómur hans
mjög mikill. En í sjúkleik sínum
leitaði hann ekki til Drottins
heldur læknanna". Einnig hann
lét Guð deyja vegna þess að hann
gerði það sem Guð hafði óbeit á.
Kæru vinir, verk miðla og
spámanna eru fordæmd í Biblí-
unni og ef einhverjir miðlar eru
starfandi í dag, þ.e. þeir sem leita
frétta hjá framliðnum eða lækna
gegnum látið fólk með orð Biblí-
unnar á bakinu mega allir vita að
í augum Guðs eru þeir fordæmdir
þangað til þeir snúa sér frá þess-
um verkum myrkurs, „því þeir
hafa engan morgunroða". (Jes.
8:19-20.) Ef þeir segja við yður
leitið til andasæringamanna og
spásagnarmanna sem hvískra og
umla. Á ekki fólk að leita frétta
hjá guðum sínum og leita til
hinna dauðu vegna hinna lifandi?
Þá svarið þeim til kenningarinnar
og vitnisburðarins. Ef menn tala
ekki samkvæmt þessu orði hafa
þeir engan morgunroða. (Kól.
2:8.) Gætið þess að enginn verði
til að hertaka yður með heim-
speki og hégómavillu sem byggist
á mannasetningum er runnið
hafa frá heimsvættinum en ekki
frá Kristi.
Að lokum vil ég benda þeim á,
heilbrigðum, sjúkum og sorg-
mæddum að Jesús Kristur cr
almáttugur og læknar í dag á
sama hátt og hann geröi þegar
hann gekk um með lærisveinum
sínum forðum. Hann sagði:
„Biðjið og yður mun gefast."
Akureyri 12. októbcr 1987.
5137-4886.
Athugið! Húsgögn og innréttingar
seldar á hagstæðu verði.
útsölunnar
er í dag
Opið frá kl. 1-6.
Aukaafsláttur á prjónagarni
æmman
Glerárgötu 34.
Stýrimaður óskast
í afleysingar í 2-3 mánuði á Særúnu
frá Árskógssandi.
Upplýsingar í síma 61946.
Framtíðarstarf
Stórt framleiðslufyrirtæki á Akureyri óskar
eftir að ráða skrifstofumann til starfa.
Um er að ræða vinnu við telex, tölvur og vélritun.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Dags merkt:
Samstarf.