Dagur - 14.10.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 14. október 1987
ViÖtalstími
Halldór Blöndal,
alþingismaður og
Sigurður J. Sigurðsson,
bæjarfulltrúi
verða með viðtalstíma
fimmtudaginn 15. október
nk. kl. 20-22 á skrifstofu
Sj álfstæðisflokksins
í Kaupangi.
Sjálfstæðisfélögin,
Akureyri.
Starfsfræðsla Samvinnuskólans
Verkstjórar fiskvinnalu
Tveirvikulangir áfangar með7-10 vikna hléi á milli.
Meðal efnis: Mannaforráð - vinnuskipulag - framlegð-
arútreikningar - vinnsluferli - o.fl.
Byrjunaráfangi fyrsta námshópsins hefst 26. október
nk.
Umsjónarmaður: Gfsli Svan Einarsson útvegstæknir,
Bifröst.
Verslunarstjórar
Þrír vikulangir áfangar með 7-10 vikna hléum á milli
Meðal efnis: Mannaforráð - kennitölur - tölvunotkun
- framlegðarútreikningar - búðarstörfin - o.fl.
Byrjunaráfangi fyrsta námshópsins hefst 2. nóvember
nk.
Byrjunaráfangi annars námshóps hefst í febrúar nk.
Umsjónarmaður: Ólafur Gunnarsson viðskiptafræðing-
ur, Bifröst.
Milliuppgjör
Einn vikulangur áfangi.
Meðal efnis: Framkvæmdin - tölvunotkun - stöðumat
- kennitölur - arðsemisgreining - o.fl.
Námskeiðið hefst fyrsta sinn 9. nóvember nk.
Umsjónarmaður: Vésteinn Benediktsson viðskiptafræð-
ingur, Bifröst.
Tölvustjórar
Tveir vikulangir áfangar með 7-10 vikna hléi á milli.
Meðal efnis: Vélbúnaður - hugbúnaður - ritvinnsla -
bókhald - áætlanir - meðferð upplýsinga - o.fi.
Byrjunaráfangi fyrsta námshópsins hefst 16. nóvember
nk.
Umsjónarmaður: Vésteinn Benediktsson viðskiptafræð-
ingur, Bifröst.
Iðnverkstjórar og verkstæðisformenn
Tveir vikulangir áfangar með 7-10 vikna hléi á milli.
Meðai efnis: Tilboðsgerð - mannaforráð - kostnaðarút-
reikningar - verkbókhald - stýrt viðhald - o.fl.
Byrjunaráfangi fyrsta námshópsins hefst 19. janúar nk.
Umsjónarmaður: Helgi G. Björnsson iðnrekstrarfræð-
ingur, Bifröst.
Skrif8tofu8tjórar - starfsmannastjórar
Tveir vikulangir áfangar með 7-10 vikna hléi á milli.
Meðal efnis: Mannaforráð - hagræðing - fjármál -
starfsmannahald - samningar - o.fi.
Byrjunaráfangi fyrsta námshópsins hefst væntanlega
16. febrúar nk.
Umsjónarmaður: Helgi G. Björnsson iðnrekstrarfræð-
ingur, Bifröst.
Leiðbeinendur eru kennarar Samvinnuskólans og aðrir
sérfræðingar. Auk sérfræðiefnis eru á hverju námskeiði
stuttir þættir um jafnréttismál á vinnustöðum, félags-
málastörf og ræðumennsku, framkomu og samskipti,
samvinnumál o.fl.
Samvinnustarfsmenn ganga fyrir um þátttöku en að
öðru leyti er aðgangur öllum opinn.
Einnig ýmis námskeið fyrir verslunar-, skrifstofu- og
tölvustarfsmenn og félagsstjórnarmenn.
Þátttakendur búa í bústöðum á Bifröst og fá fæði og
þjónustu í mötuneyti.
Dæmi um verð: Heil vika (5 dagar): Fræðsla, fæði,
húsnæði 24.000 kr.
Tekið á móti umsóknum og upplýeingar
veittar á skrifstofu Samvinnuskólans á
Bifröst, sfmi 93-50000.
„I þessum tillögum
felst viss valddreifing“
- rætt við Áskel Einarsson um staðgreiðslukerfi skatta og samband
ríkis og sveitarfélaga varðandi innheimtu opinberra gjalda
,,í þessum tillögum felst viss
valddreifing. Staðgreiöslukerfið
kemur til framkvæmda um
næstu áramót og þó er eftir að
setja ákvæði um fjölmarga
hluti, t.d. hvernig sjálfstæðir
atvinnurekendur greiða sína
skatta, hvort staðgreiðsla nái
til þeirra eða eitthvað annað.
Einnig er eftir að kanna skatt-
greiðslur félaga og fyrirtækja
nánar, t.d. leiðir til staðgreiðslu
aðstöðugjalda,“ sagði Áskell
Einarsson, framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Norð-
lendinga.
Fjórðungssambandið hefur skrif-
að öllum sveitarfélögum á
Norðurlandi og beðið um álit
þeirra á þeim tillögum sem gjald-
heimtunefnd leggur fram varð-
andi innheimtu opinberra gjalda
með staðgreiðslukerfi. Blaða-
maður hafði samband við Áskel
og bað hann að útskýra hvað í til-
lögunum felst og hvernig sam-
bandi ríkis og sveitarfélaga verð-
ur háttað varðandi gjaldheimtur
með nýja kerfinu. Hann hafði
m.a. þetta um málið að segja:
„í fyrsta lagi gera lögin ráð fyr-
ir þvf að allt landið verði eitt
staðgreiðslusvæði þannig að allir
atvinnurekendur greiða svokall-
aðan afdrátt af launum starfs-
manna. Frá þeirri upphæð dregst
persónuafsláttur. Petta á við um
alla starfsmenn í aðalstarfi. Ef
starfsmaður er í hlutastarfi er
afdráttur dreginn af öllum laun-
um hans. Þetta innheimtukerfi
skilar síðan sveitarfélögunum
7,5% aftur miðað við innheimtu-
stofn í hverju sveitarfélagi.
Ef eitthvað af opinberum
gjöldum er vangreitt við uppgjör
framtals í árslok fá gjaldendur
viðbótarútsvar og tekjuskatt og
þessar upphæðir munu ríki og
sveitarfélög innheimta sitt í
hvoru lagi. Ef gjaldendur eiga
inni um áramót verður innstæð-
an endurgreidd til þeirra. Van-
greiðslur og/eða endurgreiðslur
koma þó af eðlilegum orsökum
ekki til framkvæmda fyrr en um
áramótin 1988-’89.
Frádrættir leggjast niður í
flestum tilvikum en þeir sem
haldast eru endurgreiddir í pen-
ingum þannig að kerfið ruglist
síður. Enginn afsláttur er því tek-
Áskell Einarsson
inn til greina nema beinn per-
sónuafsláttur sem þó má færa til
milli hjóna.
Sveitarfélögin eiga sjálf að inn-
heimta fasteignaskatta og
aðstöðugjöld. Samband íslenskra
sveitarfélaga hefur óskað eftir
því að tekið verði upp annað
fyrirkomulag í þá veru að komið
verði á gjaldheimtum víða um
Iandið.
Menn óttast að með því að
senda allar upplýsingar um inn-
heimtu á einn stað, þ.e. til
Reykjavíkur, verði innheimtueft-
irlit ekki nægilega virkt þó er ætl-
ast til að skattstjórar líti eftir
málum hver í sínu umdæmi.
Gjaldheimtunefnd gerði tillögur
um að skipta landinu í gjald-
heimtusvæði og á sú hugmynd að
koma til framkvæmda á næsta ári
eftir að farið er að innheimta eftir
nýju kerfi.
Gert er ráð fyrir því að stað-
greiðsla skatta muni því fara
gegnum tíu gjaldheimtur, þar af
tvær á Norðurlandi eftir kjör-
dæmum, sem annast fyrst í stað
lítið annað en staðgreiðslukerfið.
Síðar er heimilt að fela þeim alla
innheimtu sveitarfélaga, útsvar,
aðstöðugjöld o.s.frv. Hinar nýju
gjaldheimtur eiga að vera sam-
vinnufélög ríkis og sveitarfélaga
og ríkið gæti falið gjaldheimtun-
um ýmsar innheimtur aðrar, t.d.
skatta af félögum og fleiri gjöld.
Það sem vakir fyrir mönnum
með að hafa gjaldheimtusvæðin
ekki fleiri á þessu stigi málsins er
eftirfarandi: í fyrsta lagi að hafa
gjaldheimturnar það stórar að
hægt sé að koma á verkaskipt-
ingu fyrir þrjá menn við hverja
gjaldheimtu, en þessir starfs-
menn myndu hafa glögga verka-
skiptingu. Pá er það spurning
hvort sveitarfélögin vilja raun-
verulega fela gjaldheimtunum
innheimtur sem þau hafa sjálf séð
um til þessa. í lögunum er engin
þvingun í þá átt. Stærð gjald-
heimtusvæðanna og innheimtu-
svæði skipta hér höfuðmáli.
Að lokum vil ég taka það fram
að skoðun mín er sú að meðan
þetta kerfi er að festa rætur þurfi
innheimtusvæðin að vera nokkuð
stór því það er íslenskur eigin-
leiki og slæm venja hér á landi að
illmögulegt er að sameina það
sem einu sinni er búið að sundra.
Ef við byrjum með lítil svæði sem
eru vanmegnug til að sinna hlut-
verki sínu er hætt við að erfitt
yrði að snúa til baka þótt slíkur
rekstur væri greinilega óhag-
kvæmur fyrir alla aðila.“ EHB
UTIHURDIR
>00
000
00?
Trésmiðjan Fjalar hf. Húsavík
Pósthólf 50. Sími 96-41346.
Félagar í styrktarfélagi vangefinna
Almennur félagsfundur
verður miðvikudaginn 14. október kl. 20.30.
í Iðjulundi.
Fundarefni: Vetrarstarfið.
Fjölmennum! Stjórnin.