Dagur - 14.10.1987, Side 5

Dagur - 14.10.1987, Side 5
14. október 1987 - DAGUR - 5 hann ekki. Ég vildi ekki fara heim með barn sem var svona afmyndað. Ég horfði á hinar mæðurnar með fallega sköpuðu börnin sín og komst ekki hjá því að hugsa hversu óréttlátt þetta væri. Seinna sögðu læknar mér að hann ætti við fleiri vandamál að stríða og voru í vafa um að hann myndi lifa.“ William vantaði 5 bein, tvö úr handleggjunum, tvö úr fótleggj- unum og eitt úr nefinu. En hann var fullkomlega andlega heill. Móðir hans sagði: „Eftir fyrsta áfallið, ákváðum við að við vild- um eiga hann og reyna að hjálpa honum eins og við gætum. Við gátum ekki yfirgefið hann. Næstu 18 mánuðina gekkst hann undir ótal aðgerðir og þurfti ofan á allt annað að vera heilt ár í gipsi. Þegar ég loks fékk að fara með hann heim, var mér sagt að leggja hann á gólfið þegar ég mataði hann, því þar færi best um hann! í gegnum árin hefur hann þurft að vera í stöðugum meðferðum, en þrátt fyrir það berst hann áfram. Hann lifir lífinu og nýtur frelsisins. Og hundurinn Timmy hefur aldrei áður fengið eins mik- ið af löngum gönguferðum." Hundurinn Timmy fær nú meira af löngum gönguferðum. Fjarlagafrum- varpið mun verða hitamál - Mikiö um stefnumarkandi breytingar Fjárlagafrumvarp ríkisstjórn- arinnar var lagt fram á Alþingi í gær. Þetta er mikið plagg upp á tæpar 340 síður þannig að það mun taka tíma fyrir stjórn- arandstöðuna að kynna sér hugmyndir ríkisstjórnarinnar í fjármálum. Samkvæmt þessum fjárlögum eiga þau að vera hallalaus og er langt síðan það gerðist síðast. Mikið er um róttækar ráðstafanir til þess að svo megi verða og mun m.a. starfsemi stofnana eins og Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins, Veiðimálastofnun- ar og Iðntæknistofnunar verða tekin til endurskoðunar. Ekki er ólíklegt að miklar og heitar umræður verði um þetta frumvarp Jóns Baldvins Hanni- balssonar á þessu þingi því óvenju mikið er um stefnumark- andi breytingar frá fyrri fjárlaga- frumvörpum. Þar má í fyrsta lagi nefna jöfnuð í ríkisfjármálum. Samkvæmt frumvarpinu verða engin ný erlend lán tekin og er það hluti af aðgerðum til að draga úr þenslu í þjóðfélaginu. í öðru lagi er hlutverk ríkisins skilgreint upp á nýtt og verkefn- um raðað í nýja forgangsröð. Það þýðir að verulega verður dregið úr tilfærslum á fjármagni til atvinnuvega og fyrirtækja. Þar má nefna að niðurgreiðslur og útflutningsbætur lækka að raun- gildi. Framlög samkvæmt jarð- ræktarlögum lækka, styrkir sam- kvæmt búfjárlögum afnumdir og framlög til Áburðarverksmiðj- unnar felld niður. Framlög til iðnráðgjafa verða afnumin og endurgreiddur söluskattur í sjáv- arútvegi mun verða helmingi lægri en á þessu ári. I þriðja lagi er gert ráð fyrir heildarendurskoðun á tekju- öflunarkerfi ríkissjóðs. Skatta- kerfið mun verða einfaldað og fækkað er frádráttarheimildum fyrirtækja. Er það liður í endur- skoðun tekju- og eignaskatts atvinnurekstrar. Eru þetta fyrstu skrefin í þá átt að taka upp virð- isaukaskatt en ríkisstjórnin mun að öllum líkindum flytja frum- varp þar að lútandi á þessu þingi. I fjórða lagi er gert ráð fyrir kerfisbreytingum í ríkisrekstri. Gerðar verða auknar kröfur um sjálfstæði og rekstrarábyrgð ríkisstofnana. Einnig er ætlast til að ríkisfyrirtæki skili arði í ríkis- sjóð. Þá er gert ráð fyrir því að selja ríkisfyrirtæki sem betur væru sett í höndum almennings. Þar má nefna fyrirhugaðar breyt- ingar á Bifreiðaeftirliti ríkisins. Ennfremur eru felldar niður flestar heimildir fjármálaráð- herra til niðurfellingar aðflutn- ingsgjalda og söluskatts skv. 6.gr. Þetta þýðir að draga mun stór- lega úr svokölluðum aukafjár- veitingum sem margfrægar eru. Annað sem vert er að minnast á í þessu frumvarpi er valddreif- ing til sveitarfélaganna. Gert er ráð fyrir að sveitarfélögum verði veittur ákvörðunarréttur yfir mikilvægum málaflokkum t.d. heilsugæslu. Allir beinir styrkir til tilraunabúa landbúnaðarins, nema Sámsstaða, munu verða afnumdir. Ekki er þó bara skorið niður. Framlög til húsnæðismála og til Lánasjóðs íslenskra námsmanna munu verða aukin. Framlög til samgöngumála munu verða auk- in um tæp 20% og ekki er ólík- legt að göngin í gegnum Ólafs- fjarðarmúla verði hluti af þessari aukningu. Hvað sem öðru líður þá eru margar róttækar breyting- ar í þessu frumvarpi og ekki lík- legt að fjármálaráðherra kom þessu frumvarpi þegjandi og hljóðalaust gegnum Alþingi. AF ÖKUM EINS OG MENN! Drögum úr hraða ökum af skynsemi! UUMFERÐAR RÁÐ NQRÐLENSKUR TOLVUPAPPIR - SÉRPRENTUN - LAGERVARA - EFLUM NORÐLENSKAN IÐNAÐ OG ÞJONUSTU PRENTLUNDUR sr 96-26511 VIÐJULUND! 2A ■ AKUREYR! 96-26987 LYFTARAR Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns- og diesellyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyft- ara. Varahluta- og viðgerðaþjónusta. Líttu inn - við gerum þér tilboð. Tökum lyftara í umboðssölu. „ LYFTARASALAN HF. _________________| Vatnagörðum 16. Símar 82770 og 82655. u FUNDUR Eiginkonur meistara í Meistarafélagi bygginga- manna Norðurlandi! Áríðandi félagsfundur verður haldinn að Hótel KEA fimmtudaginn 15. október kl. 20.30. Rætt verður um undirbúning Iðnþings íslendinga sem haldið verður í október. Mætum allar stundvíslega. Stjórnin. AIVTNNA Nú er vetur konungur að taka völdin og mál til komið að fá sér góöa vinnu inni I hlýjunni. ★ Við getum bætt við starfsfólki við ýmiss störf, sérstaklega á dagvaktir. Aðrar vaktir koma þó einnig til greina. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra. IÐNAÐARDEILD SAMBANDSINS GLERÁRGÖTU 28 AKUREYRI SÍMI (96)21900 Breyttur opnunartími á laugardögum Frá og með laugardeginum 17. október verður verslunin opin frá kl. 10-14 Röng mynd frá Laufskálarétt I blaðinu á mánudag birtist röng mynd með grein frá Laufskálarétl. Þar átti að vera mynd af Steinþór bónda í Kýrholti t.h. þar sem hann fær aðstoð til að handsama eitt hrossa sinna, en í staðinn birtist mynd, líklega af Magnúsi Jóhannssyni. Rétta myndin er að ofan og leiðréttist þetta hér ineð. HAGKAUP Akureyri

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.