Dagur - 19.11.1987, Síða 2
2 - DAGUR - 19. nóvember 1987
Sauðárkrókur:
Steypusala
meiri en
í fyrra
Þrátt fyrir slæmar horfur með
steypusölu hjá Steypustöð
Skagafjarðar á Sauðárkróki í
vor er steypusalan orðin
meiri en hún var í fyrra. Þetta
ár hefur verið mjög annasamt
hjá byggingaiðnaðarmönnum
í sýslunni og yfirvinna meiri
en oft áður.
Það er ekki hægt að segja
annað en blessuð tíðin undan-
farið hafi leikið við bygginga-
menn vestan Tröllaskaga eins
og víða annars staðar. T.d. er
þessa dagana verið að steypa
botnplötur á Sauðárkróki, sem
hlýtur að teljast gott þegar ekki
er nenta rúmur ntánuður í svart-
asta skammdegið. Er það í
steypufrekustu framkvæmd
haustsins á staðnum, á Suður-
götu 1, þar sem bæjarfógeta-
embættið byggir ásamt Brynjari
Pálssyni bóksala.
Að sögn Gísla Sæmundsson-
ar hjá steypustöðinni hefur
steypusala verið mikil nú í
haust. Var septembermánuður
góður og í góða kaflanum núna
undanfarið hefur verið steypt á
hverjum degi. Þó nokkuð hefur
verið um steypur úti um sveitir í
sumar og hafa þær framkvæmd-
ir aðallega verið í bygginu loð-
dýraskála. Þá hafa framkvæmd-
ir á Hólum í Hjaltadal verið
miklar. Nú er verið að byggja
þar yfir útibú Veiðimálastofn-
unar. -þá
Snjókoma
á Stöð 2
„Það sem þarna er um að ræða
má sennilega fyrst og fremst
rekja til þess að við höfum ver-
ið að fá sendinguna frá
Reykjavík á svokallaðri vara-
línu Pósts og síma,“ sagði
Bjarni Hafþór Helgason sjón-
varpsstjóri Sjónvarps Akur-
eyrar aðspurður um hvað valdið
hefði truflunum á útsendingum
stöðvarinnar að undanförnu.
Undanfarið hefur talsvert bor-
ið á því að útsendingin á efni frá
Stöð 2 hefur dottið alveg út og í
stað hennar komið hin velþekkta
„snjókoma" á skjáinn.
Önnur ástæða fyrir truflunun-
um sagði Bjarni Hafþór að gæti
verið vinna við loftnet á Gyrðis-
holti í Borgarfirði.
Þessa dagana eru starfsmenn
Pósts og síma að vinna að upp-
setningu varanlegrar línu fyrir
útsendingar Stöðvar 2 unt allt
land. Að sögn Jóns Þórodds
Jónssonar hjá sambandadeild
Pósts og síma á þeirri uppsetn-
ingu að ljúka á næstu vikum. Jón
staðfesti skýringu Bjarna á fyrr-
greindum truflunum og sagði að
þegar aðalflutningkerfið bilaði
flyttust svo og svo mörg símtöl
yfir á varalínuna og „blokker-
uðu“ þannig sjónvarpssending-
arnar.
En þetta stendur allt til bóta og
þær myndir sem dottið hafa út að
hluta verða endursýndar eins og
aðrar myndir á stöðinni. ET
Hreppsnefnd Blönduóss:
Enga atvinnustarfsemi í
bílskúrum eða álíka húsnæði!
Á fundi hreppsnefndar
Blönduóss sem haldinn var 20.
október sl. var samþykkt sam-
hljóða tillaga þess efnis, að
atvinnustarlsemi í bílskúrum
eða álíka húsnæði yrði ekki
leyfð eftir árið 1990. Töluverð-
ur urgur er í aðilum sem hlut
eiga að máli, sumum að
minnsta kosti, en Ijóst er að
þarna er um ákvarðanatöku að
ræða sem kemur illa við
marga, mismikið að vísu.
Við fórum á stúfana til að fá
nánari upplýsingar um málið og
eins hvort að sveitarfélagið ætlaði
á einhvern hátt að veita aðstoð í
sambandi við öflun atvinnuhús-
næðis, þessum aðilum til handa
og höfðum því samband við
sveitarstjóra.
„Við sendum að mig minnir
sextán aðilum bréf, þar sem gerð
er grein fyrir samþykkt hrepps-
nefndar og jafnframt tekið fram
að viðkomandi eru beðnir um að
hafa samband við okkur ef að
ástæða er til, það segir sig sjálft
að alltaf eru einhver mál á
mörkunum, mál sem þurfa
umræðna við,“ sagði Haukur Sig-
urðsson sveitarstjóri.
Eins og áður er sagt þá kemur
þessi ákvörðun hreppsnefndar
sér illa fyrir marga, við spurðum
því sveitarstjóra hvort ætlunin
væri að aðstoða á einhvern hátt
það fólk sem t.d. í dag er með
rekstur í einhverri mynd í eða við
heimahús og eins hvort að þetta
ætti við um öll fyrirtæki sem væru
rekin við þessar aðstæður í dag.
„Þetta er almenn samþykkt
sem þarna er gerð og einungis
verið að gera hlutaðeigandi við-
vart um þessa ákvörðun. Síðan
verður væntanlega unnið að þess-
um málum í ró og næði, það eru
jú þrjú ár sem fólk hefur til
umhugsunar og það á töluvert
vatn eftir að renna til sjávar á
þeim tíma. Við erum með þessu
að leitast við að gera fólki það
ljóst að atvinnustarfsemi á heima
á tilteknum stöðum, við tilteknar
aðstæður og fullkomlega eðlilegt
að sveitarfélagið bendi á það, að
húsnæði sé byggt í samræmi við
þá notkun sem því er ætlað að
uppfylla,“ sagði sveitarstjóri að
lokum. pbv
Siglfirsk skólaæska:
Lögboðin íþrótta-
og sundkennsla
„Við leggjum mikla áherslu á
að steypa gólflð í íþróttahúsinu
á næstunni. Og gott útlit er á
að okkur takist með aðstoð
góðra manna að útvega fjár-
magn til þess,“ sagði Kristján
Möller íþróttafulltrúi á Siglu-
fírði í samtali við Dag.
Kristján kvað mjög mikilvægt
að steypa gólfið og koma hita í
húsið. Það færi illa að standa
óupphitað þar sem klæðing er
komin á veggi. Eftir áramótin
yrði síðan hægt að snúa sér að
Landssamband
iðnverkafólks:
Kröfugerð í
undirbúningi
Um síðustu helgi kom hluti af
stjórn Landssambands iðn-
verkafólks saman á Akureyri
til skrafs og ráðagerða. Áð
sögn Kristínar Hjálmarsdóttur
hjá Iðju var hér um vinnufund
að ræða og engar opinberar
ályktanir voru gerðar.
„Kjaramálin voru númer eitt,
tvö og þrjú. Þetta var vinnufund-
ur vegna undirbúnings kröfu-
gerðar og við eigum eftir að fara
víða til okkar fólks áður en við
förum að gera einhverjar álykt-
anir um þessi mál,“ sagði Kristín.
SS
Þessi unga stúlka sat og las skræðurnar þegar TLV hitti hana í MA.
Framhaldsskólarnir á Akureyri:
4-500 nemendur vinna með náminu
Töluvert er um að nemendur
framhaldsskólanna á Akureyri
stundi atvinnu samhliða námi
sínu ef marka má tölur
könnunar og það sem skóla-
menn í bænum hafa á tilfínn-
ingunni. Svo virðist sem þetta
sé algengara meðal nemenda
Verkmenntaskólans en
nemenda Menntaskólans en
tekið skal fram að engar
nákvæmar upplýsingar liggja
fyrir um fjölda útivinnandi
nemenda.
Gunnar Frímannsson, kon-
rektor við MA, sagði að sam-
kvæmt þriggja ára gamalli könn-
un hefði komið í ljós að 19%
nemenda við MA stunduðu
atvinnu með námi sínu en 37%
nemenda VMA. „Ég hef ekki trú
á að þetta hafi mikið breyst á
þessum þremur árum. Við yrðum
fljótlega varir við það en duglegir
nemendur geta stundað ein-
hverja vinnu með náminu en
ekkert að marki því þetta nám er
full vinna,“ sagði Gunnar Frí-
mannsson.
Baldvin Bjarnason, aðstoðar-
skólameistari VMA, sagði að nem-
endur í tilteknum félagsfræðiáfanga
á uppeldisbraut myndu gera
könnun á vinnu nemenda með
námi á vorönn. Að því loknu
myndu nákvæmar upplýsingar
liggja fyrir en sú tala sem nefnd
væri í könnuninni, 37%, væri að
sínu mati í lægri kantinum því
ekki væri fráleitt að áætla að 40-
50% nemenda stunduðu vinnu
með náminu.
„Ég álít að það sé full vinna að
stunda nám við skólann og því er
sá fjöldi sem vinnur aðra vinnu
með náminu í efri kantinum. Þó
kemur stundum í ljós ef um dug-
mikla unglinga er að ræða að þau
geta unnið eitthvað með náminu
ef þau skipuleggja tíma sinn vel,“
sagði Baldvin Bjarnason.
Miðað við upplýsingar um
fjölda nemenda í skólunum
tveimur stunda a.m.k. 4-500
framhaldsskólanemendur vinnu
með náminu. EHB
innivinnu í húsinu, en þá er að
vænta frekari fjárveitinga frá ríki
og bæ til verksins. Nú er unnið að
fullnaðarhönnun á rafmagni og
lýsingu.
Plötusteypan var boðin út fyrir
nokkru og bárust í hana 2 tilboð.
Berg hf. var með lægra tilboðið,
tæpar 3 milljónir, sem er 93,9%
af kostnaðaráætlun.
„Ef okkur tekst að steypa
plötuna núna verðum við orðnir
samstíga Akurnesingum, en þeir
eru að byggja svipað hús. Báðir
þessir aðilar hafa ákveðið parket
á salargólf og við stefnum á að
vera með þeim í útboði á því.
Við buðum ásamt þeim út lím-
tréð á sínum tíma og ég held að
það hafi orðið til þess að við náð-
um hagstæðara verði en ella.
Ef vilji er fyrir hendi ætti að
vera hægt að taka húsið í notkun
næsta haust. Og mundi þá sigl-
firsk skólaæska í fyrsta skipti í
sögunni fá lögbundna íþrótta- og
sundkennslu,“ sagði Kristján
Möller. -þá
Húsavík:
Mjólkur-
samlagið
40 ára
Mjólkursamlag Kaupfélags
Þingeyinga á Húsavík varð
fjörutíu ára 10. október sl.
í tilefni af afntælinu verður
opið hús í mjólkursamlaginu á
föstudaginn frá kl. 7 til 19. Öllum
er boðið að líta inn, bragða á
framleiðslu mjólkursamlagsins
og þiggja aðrar góðgerðir.
Vinnslu verður seinkað þennan
dag, þannig að fram undir klukk-
an 18 gefst gestum kostur á að
fylgjast með vinnslunni.
Einnig verður gestum gefið
afmælisrit mjólkursamlagsins,
sem Þormóður Jónsson safnaði
efni í. IM
Frá Húsavík.