Dagur - 19.11.1987, Side 15

Dagur - 19.11.1987, Side 15
19. nóvember 1987 - DAGUR - 15 r Asta grasalæknir — líf hennar og lækningar og dulræn reynsla Ásta Erlingsdóttir hefur frá unga aldri iðkað hin gömlu fræði íslenskra grasalækna, sem geymst hafa með ætt hennar í margar aldir. Þannig hefst kynning á nýrri bók frá Erni og Örlygi, og í kynn- ingunni segir ennfremur: Þótt nafn Ástu heyrist eða sjá- ist sjaldan eða aldrei í hinum fyrirferðamiklu fjölmiðlum sam- tímans þá mun samt leitun að fólki sem ekki hefur heyrt getið um Ástu grasalækni eins og hún er nefnd manna á meðal. í bókinni gefur Ásta ráðlegg- ingar og uppskriftir. En hví fær þessi lækninga- kunnátta lifað svo góðu lífi, nú á dögum hátækni og vísinda- hyggju? Því svara þrettán ein- staklingar í bókinni, fólk sem enginn þarf að gruna um trú á einhver hindurvitni. Með hjálp Ástu grasalæknis hafa sumir þeirra öðlast nýja lífstrú. Einum hefur hún forðað frá örkumlun, öðrum hefur hún gefið þrótt til þess að heyja erfitt stríð við sjúk- dóma sem taldir voru ólæknandi - og sigrast á þeim. Dulargáfur hafa löngum fylgt hennar fólki og hún rekur hér ýmsar frásagnir því til staðfest- ingar og ræðir um eigin andlega reynslu. Bókin um Ástu er filmusett hjá Alprent, prentuð hjá Prentstofu G. Benediktssonar en bundin í Arnarfelli. Atli Magnússon blaðamaður skráði. Bréf skáldanna til Guðmundar Finnbogasonar Ut er komin hjá Erni og Örlygi bókin Bréf skáldanna til Guð- mundar Finnbogasonar. í bók- inni eru bréf 22ja íslenskra skálda til Guðmundar á árunum 1897-1943. Umsjónarmaður verksins, dr. Finnbogi Guð- ntundsson landsbókavörður, skrifar formála fyrir bréfum hvers skálds og birtir þar oftast einhver ummæli Guðmundar um skáldið, ritdóm, ræðu eða rit- gerðarkafla. Skáldin eru: Matt- hías Jochumsson, Einar Hjör- leifsson, Guðmundur Friðjóns- son, Einar Benediktsson, Bene- dikt Gröndal, Gunnar Gunnars- son, Hannes Hafstein, Guð- mundur Magnússon, Indriði Ein- arsson, Sigurður Sigurðsson, Ólöf Sigurðardóttir, Stephan G. Stephansson, Káinn (Kristján N. Júlíus), Guttormur J. Guttorms- son, Jóhann M. Bjarnason, Kristmann Guðmundsson, Magnús Ásgeirsson, Stefán Vagnsson, Hulda, Guðfinna Jónsdóttir. Magnús Stefánsson og Kolbeinn Högnason. A- , ' ' Í.IDMINDAR H\\B0Í,AS0N.\R Hörpuútgáfan á Akranesi: Fyrirhugað er að halda námskeið á Akureyri í ásetningu gervinögliim Einnig í viðhaldi og snyrtingu á eigin nöglum. Nánari upplýsingar veittar í síma 91-46442. ★ Bankastarf ★ Við leitum að starfsmanni til starfa hjá sparisjóði við alhliða bankastörf. Verslunarmenntun og eða reynsla við sambærileg störf æskileg. Vinnutíminn er frá kl. 11 til 17 (81%) Nánari upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni. FELL hf. Kaupvangsstræti 4 -Akureyri - slmi 25455 Ódýri markaðuriiin Ný verslun í Strandgötu 23 (Áður Sjónvarpsbúðin.) 18 baekurá þessuári Hörpuútgáfan á Akranesi gefur út 18 bækur á þessu ári. Starfsemi útgáfunnar hefur vaxið jafnt og þétt og aldrei áður verið jafn umfangsmikil og nú. Þrjár bækur eru komnar út fyrr á árinu. Þær eru: Akranes - vaxandi bær á Vesturlandi, ný útgáfa Passíu- sálmanna og bókin Til móður minnar. Á næstunni er væntanleg bókin Skóli í 100 ár - saga skól- ans á Akranesi 1880-1980, 130 ljósmyndir prýða bókina, höfund- ur er Stefán Hjálmarsson sagn- fræðingur. Af öðrum bókum má nefna „Aflakóngar og athafnamenn“ viðtalsbók Hjartar Gíslasonar blaðamanns á Morgunblaðinu við fimm landsþekkta skipstjóra og aflakónga, þá Magna Krist- jánsson á Berki NK, Þorstein Vilhelmsson á Akureyrinni EA, Guðjón A. Kristjánsson á Páli Pálssyni Hnífsdal, Sigurð Georgsson á Suðurey Vestmanna- eyjum og Ragnar Guðjónsson á Esjari frá Hellissandi. Lífsreynsla - frásagnir af eftir- minnilegri og sérstæðri reynslu. Allar frásagnirnar eru ritaðar sér- staklega vegna útkomu þessarar bókar. Þeir sem rita eigin frá- sagnir og annarra eru: Hlynur Þór Magnússon, ísafirði, Inga Rósa Þórðardóttir, Egilsstöðum, sr. Bernharður Guðmundsson, Kópavogi, Erlingur Davíðsson, Akureyri, Páll Lúðvíksson, Litlu-Sandvík, Herdís Ólafsdótt- ir, Akranesi, sr. Jón Kr. ísfeld, Garðabæ, Sveinbjörn Beinteins- son, Draghálsi, Óskar Þórðarson Reykjavík og Bragi Þórðarson, Akranesi. Ár og dagur í víngarði drottins, minningabók um hjónin dr. Eirík Albertsson og Sigríði Björnsdótt- ur. Saga Ólafsvíkur - fyrra bindi - eftir Gísla Ágúst Gunnlaugsson sagnfræðing. Á hljóðum stundum, ljóðabók eftir Óskar Þórðarson frá Haga. Orðið er laust - ráð og leið- beiningar fyrir ræðufólk, eftir Sverre Nyflöt. Þá eru þýddar bækur eftir Jack Higgins, Duncan Kyle, Bodil Forsberg og Erling Poulsen. Einnig fjórar litmyndabækur fyr- ir börn um félagana Fúsa og Frikka, sem finna upp á furðuleg- ustu tiltækjum. Framtíð fjármagns íþróttasjóðs óljós -segir Ingi Björn Albertsson alþingismaður „íþróttasjóður á óuppgerðar um 170-180 miljónir, eins og staðan er í dag. Það sem ég hef hins vegar mestar áhyggjur af er hvernig þetta verður í fram- tíðinni,“ segir Ingi Björn Albertsson alþingismaður í samtali við Dag, en hann hefur ásamt Skúla Álexanderssyni lagt fram fyrirspurn á Alþingi til menntamálaráðherra um íþróttasjóð ríkisins. Það eru þrjár spurningar sent koma fram í þessari fyrirspurn. í fyrsta lagi; hver ógreidd hlutdeild íþróttasjóðs í byggingu íþrótta- mannvirkja urn næstu áramót, verður sundurgreint eftir tegund mannvirkis og eignaraðild. í öðru lagi; hver áætlaður kostnaður er við að ljúka þeim íþrótta- mannvirkjum sem nú eru í bygg- inu, sundurgreint eftir tegund mannvirkis og eignaraðild. Og í þriðja lagi; hverju óafgreiddar beiðnir til íþróttasjóðs um bygg- ingu íþróttamannvirkja nema. „Fjármálaráðherra segir að þetta muni verða greitt úr Jöfn- unarsjóði sveitarfélaga í framtíð- inni, en ég er hræddur um að hjá ansi mörgum sveitarfélögum verði íþróttamálin látin sitja á hakanum. Þar að auki eru mörg smærri sveitarfélög sem munu alls ekki ráða við svona fram- kvæmdir. Síðan kemur líka spurningin um hvað á að gera með lands- samtök eins og t.d. HSÍ, seni lýst hefur yfir áhuga sínurn á því að byggja íþróttahús með HM 1994 í huga. Á þá Reykjavík að borga opinbera hlutann, því þetta hús verður að öllum líkindum reist í Reykjavík? Þetta og aðrir hlutir eru dálítið í lausu lofti þannig að mikilvægt er að fá svar við þess- um spurningum," sagði Ingi Björn Albertsson að lokum. AP ★ ★ ★ Sængurveraefni 165 kr. m ★ Bómullarefni með hjartamynstri 165 kr. m ★ Frotte baðsloppar ★ Vefnaðarvara ★ Handklæði ★ Viskastykki ★ Gardínuefni ★ Jólaefni ★ Bútasaumsefni ★ Prjónagarn og margt fleira. Opið kl. 1-6 virka daga oií laugardaua kl. 10-12 Strandgötu 23 Afsöl og sölutilkynningar Afsöl og sölutilkynningar vegna bílaviðskipta a atgreiöslu Dags. OPDE> HUS Mjólkursamlag Kaupfélags Pingeyinga varð 40 ára 10. október sl. í tilefni af afmælinu er öllum boöið að koma, kynna sér framleiðsluna og þiggja góðgerðir á föstudaginn frá kl. 7-19. MJÓLKURSAMLAG KAUPFÉLAGS ÞINGEYINGA

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.