Dagur - 23.11.1987, Side 2
2 - DAGUR - 23. nóvember 1987
Akureyri:
Laust húsnæði
i Iðngörðum
Fjölmargir hafa sýnt áhuga á
því að fá húsnæði í Iðngörðun-
um á Akureyri til leigu og fyrir
nokkru samþykkti atvinnu-
málanefnd að auglýsa laust
húsnæði til leigu í eitt og hálft
ár. Að sögn Þorleifs Þórs
Jónssonar starfsmanns nefnd-
arinnar verður það ákveðið
nk. þriðjudag hver hreppir
hnossið.
Iðngarðar eru til húsa að
Fjölnisgötu 4b, þar sem fyrirtæk-
ið Kjarnafæði hóf starfsemi sína.
Að sögn Þorleifs hefur Kjarna-
fæði gengið það vel að fyrirtækið
sprengdi utan af sér húsnæðið og
er komið í næsta hús við hliðina.
„Þeir fóru úr 150 fermetrum í yfir.
500 fermetra og veitir ekki af,“
sagði Þorleifur.
SS
Höfðaströnd:
Hvammstangi:
Guðmundar-
mótið
ae
igt
og spennandi
Hið árlega Guðmundarmót í
bridge var haldið á Hvamms-
tanga 7. nóvember sl. Við
töluðum við Sigurð Þorvalds-
son sem var í undirbúnings-
nefnd mótsins og fengum hjá
honum helstu upplýsingar í
sambandi við mótshaldið.
Alls mættu að sögn Sigurðar 29
pör til leiks. Komu keppendur
víða að allt frá Grundarfirði og
austur um til Akureyrar. Spila-
mennskan hófst kl. 10.00 um
morguninn og lauk ekki fyrr en
tólf klst. síðar. Keppendur voru á
allan hátt mjög ánægðir með
framkvæmd mótsins og móttökur
mótshaldara. Keppnisstjóri var
ísak Sigurðsson og var það mál
manna að hann hefði leyst starf
sitt óaðfinnanlega og röggsam-
lega af hendi. Röð efstu fimm
paranna var sem hér segir:
1. sæti Jón Guðmundsson og
Guðjón Stefánsson, Borgarnesi.
2. sæti Jón Sigurbjörnsson og
Ásgrímur Sigurbjörnsson, Siglu-
firði. 3. sæti Unnsteinn Arason
og Rúnar Ragnarsson, Borgar-
nesi. 4. sæti Þorsteinn Pétursson
og Þórir Leifsson, Borgarfirði.
5. sæti Unnar Guðmundsson og
Erlingur Sverrisson, Hvamms-
tanga. pbv
Starfsfólk bankans. Einar Njálsson lengst til vinstri.
Húsavík:
Samvinnubankinn
25 ára
Samvinnubankinn hélt upp á
25 ára afmæli sitt sl. þriðju-
dag, 17. nóv. Viðskiptavinum
voru boðnar veitingar í aðal-
banka og öllum útibúum, en
útibú bankans eru 21, þar af
18 utan Reykjavíkur. Á
afmælisdaginn var opnað nýtt
útibú á Höfn í Hornafirði.
Á Húsavík var afmælisveislan
fjölsótt, í bankanum var boðið
upp á kaffi, gosdrykki, afmælis-
tertu og sælgæti svo allir aldurs-
hópar fengu eitthvað við sitt
hæfi.
Útibú Samvinnubankans á
Húsavík var opnað í júní 1965.
Stefán Sörensson var þá útibús-
stjóri og auk hans vann einn
starfsmaður í bankanum. Nú
eru starfsmenn bankans 9, úti-
bússtjóri er Einar Njálsson, en
hann tók við stöðunni af Stefáni
1969. Frá upphafi hefur umboð
SamvinnUtrygginga verið til
húsa í bankanum og við það
vinna tveir starfsmenn.
Þann 13. október sl. var úti-
búið tengt með beinni línu við
Mynd: IM
Reiknistofu bankanna. Einar
sagði í samtali við Dag að
starfsfólkið hefði aðeins orðið
vart við að viðskiptavinum
fyndist afgreiðslan ganga hægar
eftir þessa breytingu en vonandi
sýndu þeir þolinmæði þar sem
um tímabundið vandamál væri
að ræða. Gjaldkerum fjölgar,
fljótvirkari tæki koma og eftir
því sem fleiri greinar í starfsem-
inni tengjast kemur breytingin
viðskiptavinum til góða, þegar
til lengri tíma er litið, með betri
upplýsingum og fljótari af-
greiðslu.
„Bankinn vill gjarnan þjón-
usta fólk bæði til sjávar og
sveita, auk hins margvíslega
atvinnurekstrar á svæðinu. Við
höfum alltaf reynt að leggja
áherslu á persónulega þjónustu
við fólk og kjörorð okkar er:
Lipurð, öryggi, hraði,“ sagði
Einar.
Dagur óskar Samvinnubank-
anum til hamingju með afmæl-
ið. IM
Hópurinn á námskeiðinu. Mynd: im
Húsavík:
Meirapróf bifreiðastjóra
Meiraprófsnámskeið bifreiða-
stjóra stendur nú yfir á Húsa-
vík. Þátttakendur á námskeið-
inu eru 30, þar af er aðeins ein
kona. Námskeiðið hófst 30.
október, síðasta fræðilega
prófíð verður haldið 28.
nóvember og ef veður helst
skaplegt lýkur ökuprófum 2.
desember.
Umsjónarmaður námskeiðsins
er Jón Gestsson en auk hans
kenna Júlíus Guðmundsson, Vil-
hjálmur Pálsson og Eymundur
Kristjánsson. Kennslan fer að
mestu fram á Hótel Húsavík.
Rúmlega helmingur þátttakend-
anna á námskeiðinu er frá Húsa-
vík en flestir hinna úr nærsveit-
um.
Að undanförnu hafa meira-
prófsnámskeið verið haldin ann-
að hvert ár á Húsavík. Jón sagði
í samtali við Dag að ekki væri
mikill áhugi fyrir námskeiðunum,
síðustu tvö skiptin hefði rétt
með naumindum verið hægt að
halda þau því lágmark væri að 30
manns sæktu hvert námskeið.
Áður hefðu oft verið 40-50
manns á námskeiðunum. Örsök-
in fyrir þessu væri sú að kaup á
þessum tækjum væri yfirleitt lítið
og því ekki eftir neinu að sækjast
að fara í þetta.
Hann sagðist búast við að flest-
ir nemendanna myndu reyna að
ná rútuprófi á eftir meiraprófinu
og flestir væru að afla sér þessara
réttinda mest til gamans. Aðeins
einn nemendanna hefði sagt að
hann biði eftir að ná prófi til að
nota það vegna atvinnu sinnar.
IM
Byggt hesthús fyrir 60 hross
Bæ Höfðaströnd 19. 11.
Héöan úr sveitinni er allt gott
að frétta, og fólk hresst í haust-
blíðunni eftir gott sumar. Tíðin
undanfarið hefur nýst mönn-
um vel og t.d. hefur á Hofsósi
í haust staðið yfír mikil vega-
gerð sem nú er langt komin.
Liggur nýi vegurinn frá félags-
heimilinu norður yfir Hofsá og
niður að höfninni.
Hér um sveitir var lítið um
byggingar í sumar. Aðeins loð-
dýraskálar stækkaðir í Gröf og á
Óslandi, og byggt við fjós á
Krossi. Á Hofsósi hefur í haust
verið unnið að byggingu þriggja
hesthúsa sem alls munu taka 60
hross. En hestaeigendur á Hofs-
ósi þurftu að fara í þessar fram-
kvæmdir vegna þess að gömlu
fjár- og hesthúsin sunnan við
Hofsós voru rifin í haust. Voru
þau fyrir nýja veginum. En fjár-
eigendur byggja ekki og er nú
fjárlaust í aðalhluta þorpsins
sunnan ár. Mér virðist að við
fækkun sauðfjár í landinu hafi
ásókn í merar og folöld aukist og
menn reyni þannig að nýta tún og
annað beitiland. Hingað hafa
komið menn allt austan úr Þing-
eyjarsýslum til hrossakaupa.
Ég undirritaður, Reynir
Gíslason, á von á 9 tonna
plastbáti frá Marki á Skaga-
strönd um næstu mánaðamót.
Það má segja, að þetta sé „hrað-
fiskibátur", því í honum er 275
ha. vél og ganghraðinn því hátt í
20 mílur. Báturinn kemur tilbú-
inn að öðru leyti en því að eftir er
að klæða innan lúkarinn. Mein-
ingin er að taka hann hér inn í
skemmu til þess arna og koma
honum síðan á flot um áramót.
Maður fór út í þessi bátakaup
áður en farið var að ræða um
kvóta á smábátana. Verði af
þeim ráðagerðum, er hætt við að
stokka verði spilin upp á nýtt. En
það kemur í ljós. RG/-þá