Dagur - 23.11.1987, Síða 3
23. nóvember 1987 - DAGUR - 3
Sauðárkrókur:
Fyrsta
billjardmót
vetrarins
Nýlega fór fram í Billjardstofu
Sauðárkróks fyrsta stigamótið
í snóker af þrem sem haldið
verður þar á vegum fyrirtækis-
ins í vetur.
Það var Sigurbjörn Kristjáns-
son frá Skagaströnd sem sigraði á
þessu fyrsta móti. Ágúst Kárason
varð annar og Ægir Asbjörnsson
þriðji. Þeir eru báðir frá Sauðár-
króki. Að þessu sinni voru kepp-
endur aðeins staðarmenn og
nemendur fjölbrautaskólans, en
að sögn Bjarna Bjarnasonar ann-
ars eiganda billjardstofunnar er
vonast eftir þátttöku billjardspil-
ara úr nágrenninu í stigamótunum
í vetur. Næsta stigamót verður í
lok janúar og það þriðja í mars.
Að lokum verður síðan úrslita-
keppni milli þeirra sem náðu
bestum árangri á mótunum. -þá
Missti
framan
affæti
í gær varð slys um borð í línu-
bátnum Núpi frá Grenivík er
báturinn var að veiðum í
Reykjafjarðarál. Einn skip-
verja missti framan af fæti er
hann lenti með fótinn í lykkju
á línunni. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar sótti manninn og
var hann fluttur á Borgarspít-
alann í Reykjavík.
Þyrlan lagði af stað frá Reykja-
vík um hádcgisbil í gær en er hún
kom að bátnum var mikill sjór og
sjö vindstig. Eftir að læknir hafði
farið um borð og gert að fæti
piltsins voru þeir hífðir um borð í
þyrluna sem flaug til Reykjavík-
ur. Þar lenti hún um kl. 16.
Pilturinn gekkst undir aðgerð í
gærkvöld. JÓH
Dalvík:
Senn lýkur
breytingum
í verslun KEA
Á næstunni verður tekið í
notkun viðbótarhúsnæði í
verslun Kaupfélags Eyfirðinga
á Dalvík. Um er að ræða hús-
næði það sem hýsti matvöru-
deild og vefnaðarvörudeild
áður en Svarfdælabúð var tek-
in í notkun. Búið er að breyta
húsnæðinu og innrétta upp á
nýtt en í þessum hluta verður
byggingavörudeild og sport- og
búsáhaldadeild.
Rögnvaldur S. Friðbjörnsson,
útibússtjóri KEA á Dalvík sagði
að í heild væri þetta pláss um 380
fermetrar að stærð. Bygginga-
vörudeild flytur úr því húsnæði
sem hún er nú í og einnig fær
sport- og búsáhaldadeild aukið
pláss með þessum breytingum.
Innangengt verður úr Svarfdæla-
búð í þessar deildir og sagði
Rögnvaldur að með þessum
breytingum mætti heita að lokið
væri þeim breytingum á verslun-
inni á Dalvík sem áætlaðar voru
er ráðist var í að byggja Svarf-
dælabúð. JÓH
Sigurvegarinn Sigurbjörn Kristjánsson mundar kjuðann.
Ný aðstaða mæðra-
vemdar tilbúin í vor
„Samkvæmt björtustu vonum,
ættum við að geta hafið starf-
semi í nýja húsnæðinu í byrjun
apríl,“ sagði Konny Kristjáns-
dóttir hjúkrunarforstjóri á
Heilsugæslustöðinni á Akur-
eyri þegar hún var spurð
hvernig vinna við nýja aðstöðu
mæðraverndar gengi.
Að sögn Konnyar verður í
fyrstu aðeins flutt inn í helming
húsnæðisins, sem er á 4. hæð í
Amaro-húsinu. Þar verður starf-
rækt mæðravernd og Heyrna- og
talmeinastöð íslands verður þar
með aðstöðu. í samvinnu við
stöðina var ákveðið að setja þar
upp fullkominn heyrnarmælinga-
klefa.
Arkitektar hafa lokið við að
teikna innréttingar og eru smiðir
byrjaðir að starfa.
í hinum helmingi húsnæðisins
verður í framtíðinni ungbarna-
eftirlit, sónarskoðun og krabba-
meinsleit. VG
EFSTÁ
HVERJU SINNI
Húsnæöislánin eru hagstæð lán, eins og vera ber.
En af þeim þarf að greiða, jafnt sem af öðrum lánum og dráttarvextir eru háir
ef ekki er greitt á réttum tíma.
Þegar innheimtukostnaður bætist við að auki, fer greiðslubyrðin
óneitanlega að þyngjast.
Viö minnum á þetta núna vegna þess aö
haustgjalddagi var 1. nóvember sl. og greiösluseölar
hafa verið sendir gjaldendum.
Greiöslur er aö sjálfsögðu hægt aó inna af hendi í
hvaöa banka, bankaútibúi og sparisjóði sem er.
Dráttarvextir lögðust á lán meö lánskjaravísitölu
frá og með 16. nóvember s.l.
Dráttarvextir leggjast á lán með byggingar-
vísitöiu frá og með 1. desember n.k.
Viö viljum auk þess benda á að þú getur greitt lániö
upp.hafir þú tök á því. Þá greiðir þú eftirstöðvar þess,
ásamt veröbótum, frá upphafi lánstímans til
greiðsludags.
Á síðustu 12 mánuöum hafa 12 þúsund lán verið
greidd upp, áöur en lánstíma lauk.
Einnig getur þú lækkað höfuðstól lánsins, viljir þú
greiöa inn á hann. Það getur komiö sér vel þegar til
lengri tíma er litið.
HAFÐU HOSNÆÐISLÁNID ÞITTEFSTÁ BLAÐI.
ÞAÐ BORGAR SIG.
llúsnæðisslol’nun rikisins