Dagur - 23.11.1987, Blaðsíða 7
íþróttir
23. nóvember 1987 - DAGUR - 7
Þorgils Óttar Mathiesen lék mjög vei gegn Pólverjum í gær og skoraði falleg mörk af línunni. Á innfelldu myndinni er Guðmundur Guðmundsson hetja
Islands tolleraður í leikslok í gær. Mynd: rþb.
KEA fjögurra þjóða mótið í handknattleik:
Guðmundur hetja Islands
gegn Pólverjum!
sigurmark liðsins þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka
-skoraði
íslenska handknattlcikslands-
liðið sigraði á KEA fjögurra
þjóða mótinu sem lauk í Höll-
inni á Akureyri í gær. Liðið
sigraði það pólska í stór-
skemmtilegum og spennandi
úrslitaleik 26:25. Það var
hornamaðurinn snjalli úr Vík-
ingi, Guðmundur Guðmunds-
son sem var hetja íslenska liðs-
ins en hann skoraði sigurmark-
ið úr bláhorninu þegar aðeins
þrjár sekúndur voru eftir af
leiktímanum. Mikill fjöldi
áhorfenda fylgdist með leikn-
um og var stemmningin gífur-
leg.
Kristján Arason náði foryst-
unni fyrir ísland með marki úr
vítakasti í upphafi leiksins. Því
svöruðu Pólverjar með þremur
mörkum. Þeir höfðu síðan yfir
fram á 10. mín. að Kristján jafn-
aði 4:4 en hann hafði þá gert öll
mörk íslands. Félagi hans Þorgils
Óttar kom íslenska liðinu yfir og
það hafði yfirhöndina fram á 20.
mín. að Pólverjar ná að jafna 9:9
og komast yfir 10:9. íslenska lið-
ið komst síðan aftur yfir 11:10 en
Pólverjarnir voru sterkari undir
lok fyrri hálfleiks, skoruðu þrjú
síðustu mörkin og höfðu yfir í
leikhléi 13:11.
Þeir bættu síðan við 14. mark-
inu í upphafi síðari hálfleiks en
íslendingar náðu að jafna leikinn
15:15 á 36. mín. En áfram var
jafnræði með liðunum og um
miðjan hálfleikinn var staðan
20:19 fyrir ísland. Þá skoruðu
Pólverjar þrjú mörk í röð og
breyttu stöðunni í 22:20. En þeir
Kristján og Páll Ólafsson jöfnuðu
fyrir ísland áður en Bogdan
Wenta skoraði 23. mark Pól-
verja. Næstu tvö mörk voru
íslensk og staðan 24:23 og um 2
mín. til leiksloka. Pólverjar jöfn-
uðu 24:24 en Kristján bætti við
enn einu marki fyrir ísland. Enn
jöfnuðu Pólverjar 25:25 þegar
tæp ein mín. var til leiksloka en
það var svo Guðmundur Guð-
mundsson sem tryggði íslenska
liðinu sigur með snilldarmarki úr
horninu eins og fyrr sagði.
íslenska liðið lék ekki nægilega
vel í vörn en gerði marga laglega
hluti í sókninni. Sérstaklega gekk
okkar strákum illa með þá Bogd-
an Wenta og Leslaw Dziuba sem
voru langbestir í pólska liðinu.
En einnig á átti hornamaðurinn
Plechoc góða spretti. Einn
pólsku leikmannana fékk að líta
rauða spjaldið í upphafi leiksins
fyrir að brjóta gróflega á Guð-
mundi í hraðaupphlaupi.
Kristján Arason, Þorgils
Óttar, Sigurður Gunnarsson sem
aðeins lék í seinni hálfleik og
Guðmundur Guðmundsson voru
bestir í íslenska liðinu og þá lék
Geir Sveinsson mjög vel í vörn-
inni í sínum 100. landsleik.
Mörk íslands: Kristján S/5,
Þorgils Óttar 6, Karl Þráinsson 3,
Guðmundur Guðmundsson 3,
Sigurður Gunnarsson 2, Atli
Hilmarsson 2 og Páll Ólafsson 1.
Mörk Póllands: Wenta 7, Dzi-
uba 7/3, Plechoc 4/1, Kordow-
iecki 4, Staszewski 1, Bugaj 1 og
Maston 1.
Norsku dómararnir Bolstad og
Anthonsen dæmdu leikinn vel.
Lokastaðan
Úrslit leikja og lokastaðan á
KEA fjögurra þjóða mótinu í
handknattleik um helgina urðu
þessi:
ísland-ísrael 20:15
Pólland-Portúgal 27:16
Ísrael-Pólland 16:28
Portúgal-ísland 18:29
Ísrael-Portúgal 13:18
Ísland-Pólland 26:25
ísland 3 3-0-0 75:58 6
Pólland 3 2-0-1 80:58 4
Portúgal 3 1-0-2 52:69 2
ísrael 3 0-0-3 44:66 0
Portúgal sigraði
ísrael og varð
í þriðja sæti
Landslið Portúgals kom
nokkuð á óvart og sigraði lið
ísraels í leik liðanna um 3.
sætið á KEA fjögurra þjóða
mótinu í handknattleik í
Höllinni á Akureyri í gær.
Bæði höfðu liðin tapað
tveimur leikjum fyrir leikinn í
gær og þau spiluðu því um 3.-
4. sætið.
Leikurinn var jafn framan af
en um miðjan fyrri hálfleik fór
að draga í sundur með liðunum.
Portúgalar léku mun betur og
náðu yfirhöndinni. í leikhléi
hafði liðið yfir 10:5.
f síðari hálfleik hélst þessi
munur að mestu og ísraelar
náðu aldrei að ógna sigri Portú-
gala í leiknum. Þeir náðu að
minnka muninn í tvö mörk
12:14 en nær komust þeir ekki.
Áður en flautað var til leiksloka
höfðu Portúgalar aukið muninn
aftur í 5 mörk og sigruðu 18:13.
Portúgalar léku þennan leik
af krafti og unnu nokkuð
óvæntan en sanngjarnan sigur.
ísraelar voru lítt sannfærandi og
ógnuðu lítið að marki Portú-
gala.
Atkvæðamestur Portúgala
var Jorge Rodrigues með 5
mörk en flest mörk ísraela skor-
aði Raz Somekh 5.
Stefán Arnaldsson og Ólafur
Haraldsson dæmdu leikinn
ágætlega.
Sagt eftir
leik
„Þetta var alveg stórkostlegur
cndir, en þetta var mjög
erfitt,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson hetja íslenska
liðsins eftir leikinn við Pól-
verja í gær. „Við lentum undir
nokkrum sinnum en sýndum
mjög sterkan karakter og náð-
um að vinna það upp. Vörnin
var ekki nógu góð hjá okkur
þegar á heildina er litið og
sóknarleikurinn mjög köfl-
óttur. Okkur gekk illa að
stoppa Bogdan Wenta og
hann eiginlega spilaði einn á
móti okkur, var allt í öllu.“
- Var þetta ekki vonlaust
færi sem þú skoraðir úr?
„Það var mjög þröngt færi
en ég náði að taka snúning í
hornið nær, náði boltanum út
fyrir löppina á markverðinum
og það dugði til.“
- Hvernig fannst þér mótið
í heild?
„Mér fannst það mjög
skemmtilegt og það er til-
breyting að spila hér fyrir
norðan og mætti gera meira af
því,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson.
„Það var gaman að þessu enda
mikil spenna. Þetta var mjög
erfiður leikur og varnarleikur
okkur var ekki nógu góður en
náðum skemmtilegum töktum
í sókninni. Og markið hans
Guðmundur var virkilega
skemmtilegt enda er þetta atr-
iði margæft,“ sagði ÞorgUs
Óttar Mathiesen fyrirliði
íslenska liðsins.
- En hvernig fannst þér
mótið?
Portúgalar og ísraelsmenn
eru ekki ineð mjög sterk liö og
það cr oft erfitt að spila á móti
þannig liðum. En við vorum
einu sinni B þjóð en vildum þá
spila við A þjóðir og því verð-
urn við að hafa samskipti við
sem flestar þjóðir,“ sagði
Þorgils Óttar.
„Mér fannst þessi leikur frek-
ar slakur en hann hefur örugg-
lega verið góður fyrir áhorf-
endur. Hann bauð upp á
spennu og var jafn allan tím-
ann en var lélegur handbolta-
lega séð og þá sérstaklega
varnarlega,“ sagði Geir
Sveinsson sem lék sinn 100.
landsleik í gær.
- En hvaða leikir af þessuin
100 eru þér eftirminnilegastir?
„Það eru allt leikir gegn
Júgóslavíu. Þeir eru þrír tals-
ins og standa upp úr af þessum
100. Við höfum unnið þá
20:13, 24:20 í Höllinni og svo
unnum við þá 18:15 úti,“ sagöi
Geir Sveinsson.
„Þaö voru dómararnir sem
sáu til þess að íslendingar
unnu þennan leik,“ sagði Zen-
on Lakomy þjálfari pólska
landsiiðsins eftir leikinn í gær,
„Þetta var bcsti leikurinn af
þeim þremur sem liðin léku að
þessu sinni en íslendingar
voru mjög heppnir að vinna
þennan leik í dag en það hafð-
ist nteö hjálp dómaranna,“
sagði Lakomy.