Dagur - 23.11.1987, Side 8
8 - DAGUR - 23. nóvember 1987
23. nóvember 1987 - DAGUR - 9
Atli Hilinarsson hefur greinilega náð sér af meiðslunum sem hafa hrjáð hann í haust. Hann sýndi skemmtilega takta og skoraði
falleg mörk á KEA mótinu. Mynd: rþb.
KEA fjögurra þjóða mótið í handknattleik:
ísland sigraði ísrael
í opnunarleiknum
íslenska landsliðið í handknattleik
sigraði það ísraelska með 20 mörk-
um gegn 15 í opnunarleiknum á
KEA fjögurra þjóða mótinu í
Iþróttahöllinni á Akureyri á föstu-
dagskvöld. íslenska liðið hafði
mikla yfirburði og mun meiri en
lokatölurnar gefa til kynna. En
Ieikmenn liðsins gerðu sig seka um
fjölmörg byrjendamistök og þá sér-
staklega í fyrri hálfleik. I síðari
hálfleik voru hlutirnir teknir alvar-
legar og þá komu yfírburðirnir bet-
ur í Ijós.
íslenska liðið skoraði tvö fyrstu
mörkin en ísraelar náðu að jafna 2:2.
Þá skoraði Bjarki Sigurðsson sitt ann-
að mark í leiknum úr horninu en ísra-
elar svöruðu því með tveimur mörk-
um og komust yfir 4:3. Jafnræði var
áfram með liðunum allan fyrri hálf-
leikinn og í leikhléi var staðan jöfn
8:8. Það var aðeins góð markvarsia
Brynjars Kvaran sem kom í veg fyrir
að ísraelar hefðu yfir í leikhléi.
ísraelar skoruðu fyrsta markið í síð-
ari hálfleik og náðu forystunni á ný,
9:8. Þá komu fjögur íslensk mörk í
röð og staðan breyttist í 12:9. Þegar 10
mín. voru liðnar af hálfleiknum var
staðan 14:10 og á næstu mín. misnot-
aði íslenska liðið tvö hraðaupphlaup.
Um miðjan hálfleikinn var fimm
marka munur 16:11 og þegar flautað
var til leiksloka var enn fimm marka
munur 20:15.
Bogdan landsliðsþjálfari lét leik-
menn sem minna hafa fengið að
spreyta sig með liðinu leika í sókninni
í fyrri hálfleik og gekk það alls ekki
nógu vel. í síðari hálfleik lét hann
Kristján Arason, Þorgils Óttar og
Guðmund Guðmundsson leika i sókn-
inni og gekk það mun betur. Þó lék
nýliðinn Bjarki Sigurðsson vel í hægra
horninu í fyrri hálfleik. Kristján Ara-
son náði sér nokkuð vel á strik í síðari
hálfeik og einnig Guðmundur Guð-
mundsson og þá varði Brynjar Kvaran
vel.
fsraelar leika ekki agaðan hand-
bolta og sóknarleikur liðsins var oft
ráðleysislegur. Liðið lék nokkuð fram-
arlega í vörninni og truflaði sóknarleik
íslenska liðsins með því. Amir Geyra
var besti maður liðsins.
Mörk íslands: Kristján Arason 7/2,
Bjarki Sigurðsson 3, Atli Hilmarsson
2, Guðmundur Guðmundsson 2, Jakob
Sigurðsson 2, Sigurður Gunnarsson 2,
Sigurður Sveinsson 1 og Þorgils Óttar
1.
Mörk ísrael:Amir Geyra 6, Yoav
Drukner 4, Doron Dayan 2, Erik
Ackerman 1, Izzi Rafaeli 1, og Dan
Belder 1.
Leikinn dæmdu þeir Öjvind Bolstad
og Terje Anthonsen frá Noregi og
gerðu það vel.
KEA fjögurra þjóða mótið í handknattleik:
Öruggt hjá Pól-
verjum gegn ísrael
Önnur umferðin í KEA fjögurra
þjóða mótinu í handknattleik fór
fram á laugardag í íþróttahöllinni á
Húsavík. Fyrri leikurinn var viður-
eign Pólverja og ísraela og sigruðu
Pólverjarnir mjög örugglega i
leiknum 28:16.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik og skiptust þau á um að hafa
forystu. Pólverjum gekk illa að hrista
ísraelana af sér en í hálfleik var liðið
komið með þriggja marka forystu
12:9.
Pólverjar gerðu síðan út um leikinn
í upphafi síðari hálfleiks með því að
skora fyrstu fimm mörkin og breyta
stöðunni í 17:9. Um miðjan síðari
hálfleik var munurinn 10 mörk 21:11
en í leikslok var hann orðinn 12 mörk
28:16.
Sem fyrr voru það þeir Leslaw
Dziuba og Bogdan Wenta sem voru í
aðalhlutverkunum hjá pólska liðinu.
Dziuba skoraði 10 mörk og þar af 2 úr
vítum en Wenta skoraði 7 mörk og þar
af 3 úr vítum. Amir Geyra var sem
fyrr aðalmaðurinn í ísraelska liðinu og
skoraði 6 lagleg mörk. ísraelska liðið
stóð sem fyrr sagði í því pólska í fyrri
hálfleik en í þeim seinni fór að draga
af liðinu og virtist sem úthaldið væri
ekki nægilegt.
Þeir félagar Stefán Arnaldsson og
Ólafur Haraldsson
ágætlega.
dæmdu leikinn
w KEA fjögurra þjóða mótið í handknattleik:
Atakalítill sigur
Islands á Portúgal
Islenska landsliðið sigraði það
portúgalska mjög örugglega í
2. umferð á KEA fjögurra
þjóða mótinu í handknattleik á
Húsavík á laugardag. Lokatöl-
ur leiksins urðu 29:18 eftir að
staðan hafði verið 16:9 í hálf-
leik. Bogdan landsliðsþjálfari
hvfldi nokkra af lykilmönnum
íslenska liðsins á laugardag,
fyrir leikinn við Pólverja í gær.
Yfirburðir íslenska liðsins voru
engu að síður miklir, enda höf-
um við á að skipa breiðum
hópi sterkra leikmanna.
Það leit þó ekki vel út í byrjun
hjá okkar mönnum, því Portúgal-
arnir skoruðu tvö fyrstu mörkin.
Atli Hilmarsson minnkaði mun-
inn í 2:1 en Portúgalarnir bættu
þá við þriðja markinu. Þá komu
þrjú mörk í röð frá fyrirliðanum
Þorgils Óttari og staðan breyttist
í 4:3. Portúgalarnir jafna 4:4 en
Þorgils Óttar skorar sitt fjórða og
staðan orðin 5:4. Portúgalar
jafna 5:5 en þá komu þrjú mörk
íslensk mörk í röð og staðan
breyttist í 8:5. Þegar 20 mín.
voru liðnar af fyrri hálfleik hafði
íslenska liðið yfir 9:7. Á næstu
mín. skoraði landinn fimm mörk
í röð og breytti stöðunni í 14:7. I
hálfleik var staðan 16:9.
í síðari hálfleik dró enn í sund-
ur með liðunum og þegar flautað
var til leiksloka var munurinn
orðinn ellefu mörk 29:18. Sigurð-
ur Sveinsson lék allan leikinn
gegn Portúgal enda var Kristján
Arason hvíldur og er orðið nokk-
uð langt síðan Sigurður hefur
leikið heilan leik fyrir íslands
hönd. Hann sýndi ágæta takta en
hefur þó leikið mun betur. Leik-
menn íslenska liðsins voru hálf
kærulausir í þessu leik enda mót-
spyrnan sem liðið fékk lítil sem
engin. Bestir voru þeir Atli Hilm-
arsson og Jakob Sigurðsson.
Portúgalarnir virkuðu frekar
ráðvilltir í sókninni og misstu
boltann oft klaufalega frá sér.
íslenska liðið skoraði alls 10
mörk úr hraðaupphlaupum.
Mörk íslands: Atli Hilmarsson
5, Sigurður Sveinsson 5/1, Júlíus
Jónasson 4, Jakob Sigurðsson 4,
Þorgils Óttar Mathiesen 4, Páll
Bjarki Sigurðsson stóð fyrir sínu með íslenska iandsiiðinu á KEA mótinu um helg-
ina. Hér skorar hann gegn Portúgal á Húsavík á laugardag. Mynd: kk.
Ólafsson 3, Bjarki Sigurðsson 2
og Sigurður Gunnarsson 2/1.
Mörk Portúgals: Jorge Rodrig-
ues 4/2, Jose Pires 3, Luis Graöa
2, Luis Lacerda 2, Joco Gonöal-
ves 2, Rui Val Ferreira 1, Anton-
io Leite 1 Mario Gentil 1 og Luis
Lopes 1.
Leikinn dæmdu þeir Bolstad
og Anthonsen og gerðu það vel.
Þetta var þriðji landsleikurinn
sem fram fer í nýju íþróttahöll-
inni á Húsavík. í júní síðastliðinn
léku ísland og Danmörk lands-
leik í Höllinni og á laugardag
voru leiknir þar tveir leikir. Höll-
in sem tekur um 1000 manns var
ekki alveg troðfull af fólki en
engu að síður var stemmningin
mjög góð.
KEA fjögurra þjóða mótið:
Yfirburðir hjá
Pólverjum
- unnu Portúgala með 11 marka mun
Pólland og Portúgal mættust
innbyrðis í fyrstu umferðinni á
KEA fjögurra þjóða mótinu í
handknattleik í íþróttahöllinni
á Akureyri á föstudagskvöld.
Pólverjar höfðu mikla yfir-
burði í leiknum og sigruðu
með ellefu marka mun 27:16.
Það var aðeins rétt í upphafi
leiksins að Portúgalar stóðu í
Pólverjunum. Jafnt var 2:2 en
síðan komust Portúgalar yfir 3:2 í
eina skiptið í leiknum. Þá tóku
Pólverjarnir leikinn í sínar hend-
ur og breyttu stöðunni í 10:3. I
hálfleik hafði liðið yfir 13:7.
Portúgalar náðu að minnka
muninn í 10:13 en þá tóku Pól-
verjar aftur góðan sprett og
breyttu stöðunni í 18:11. Um
miðjan hálfleikinn var staðan
19:12 en í leikslok var munurinn
orðinn ellefu mörk 27:16.
Leslaw Dziuba lék mjög vel
með pólska liðinu og skoraði 9
mörk og þar af 5 fyrstu mörk
liðsins. Marek Kordiwiecki skor-
aði 6 mörk og fyriliðin Bogdan
Wenta 4 mörk. Atkvæðamestir
Portúgala voru þeir Luis Lacerda
og Joco Gonöalves með 4 mörk
hvor.
Sigurður Baldursson og Björn
Jóhannesson dæmdu leikinn og
gerðu það ágætlega.
Þórsarar hafa enn ekki hlotið stig í úrvalsdeildinni og á laugardag unnu KR-ingar nauman sigur á liðinu hér á Akur-
eyri. Á myndinni brýst Bjarni.Óssurarson í gegnum vörn KR og skorar tvö stig. Mynd: rþb.
Úrvalsdeildin í körfubolta:
Enn tapa Þórsarar
- töpuðu 100:108 fyrir KR á laugardag
A laugardaginn tók úrvals-
deildarlið Þórs í körfubolta á
móti KR-ingum í íþróttahöll-
inni á Akureyri. Fyrir leikinn
höfðu Þórsarar tapað öllum
sínum leikjum í deildinni á
keppnistímabilinu og ekki riðu
þeir feitum hesti frá þessum
leik því KR-ingar fóru með sig-
Körfubolti 1. deild:
Tindastóll þurfti fram-
lengingu gegn Stúdentum
Tindastólsmenn lentu í hinu
mesta basli þegar Stúdentar
komu í heimsókn á Krókinn.
Það er svo sem ekkert nýtt að
Páll sæmdur
gullmerki
KDSI
Á ársþingi KDSI sem haldið
var um helgina tilkynnti Ingi
Jónsson, fráfarandi formaður
KDSÍ að ákveðið hefði verið
að sæma Pál Magnússon
Akureyri gullmerki Knatt-
spyrnudómarasambands ís-
lands.
Ingi sagði við þetta tækifæri að
Páll hefði verið í forystusveit í
knattspyrnumálum á Akureyri í
áratugi og ávallt látið dómara-
málin til sín taka. Ingi lét þess
einnig getið að Páll hefði dæmt
sinn 1000. leik í fyrrasumar og
hefði langt í frá látið staðar num-
ið á þeim vettvangi.
Páll Magnússon sat ekki þingið
en Þóroddur Hjaltalín veitti
merkinu viðtöku fyrir hans hönd.
BB
þessi lið eldi grátt silfur saman.
Leikir liðanna á síðasta vetri
voru mjög jafnir og unnu þá
langskólamennirnir oftar en
ekki. Leikurinn á föstudags-
kvöldið var æsispennandi frá
upphafi til enda og það var
ekki fyrr en framlengt hafði
verið einu sinni að heimamenn
losnuðu við öndina úr hálsin-
um.
Stúdentar komu galvaskir til
leiks og komu Stólunum hvað
eftir annað í opna skjöldu. Um
miðjan hálleikinn var staðan orð-
in 22:11 og gekk ekkert upp hjá
heimamönnum á þessum tíma.
Hittnin t.d. slæm og var reyndar
léleg allan leikinn. En með firna
góðri baráttu og feikigóðum
stuðningi áhorfenda náðu þeir að
rétta sinn hlut fyrir leikhlé og
komast einu stigi yfir 32:31.
Áfram hélt baráttan í seinni
hálfleiknum og mátti ekki á milli
sjá hvort liðið færi með sigur af
hólmi. Þó freistaðist maður til að
halda að Stólarnir hefðu tryggt
sér stigin þegar þeir náðu 5 stiga
forystu undir lokin. En svo var
aldeilis ekki. Stúdentarnir náðu
að jafna og Tindastólsmönnum
mistókst síðan tvívegis úr upp-
lögðum færum í lokin að tryggja
sér sigurinn. Kári brást undir
körfunni og Eyjólfur hitti ekki úr
vítaskotum þegar 6 sekúndur
voru eftir. Staðan var því jöfn
eftir venjulegan leiktíma 66:66.
Á síðustu mínútu framlenging-
arinnar er staðan var 73:72 fyrir
gestina gerði svo Kári Marísson
lærifaðir Tindastólsstrákanna út
um leikinn með því að skora 3ja
stiga körfu. Heimamenn bættu
síðan annarri körfu við og loka-
tölur urðu því 77:73 fyrir Tinda-
stól.
Haraldur Leifsson fyrrum ungl-
ingalandsliðsmaður lék sinn
fyrsta leik með Tindastól síðan
hann slasaðist fyrir einu og hálfu
ári. Barðist hann vel og á örugg-
lega eftir að styrkja liðið mikið í
vetur. Kári hitti nú mun betur en
í síðustu leikjum. Ágúst Kárason
átti góða kafla og er greinilegt að
sá piltur getur ýmislegt ef hann
virkilega ætlar sér. Annars var
Tindastólsliðið jafnara í þessum
leik en oft áður. Eyjólfur skoraði
mest 26, Kári 19, Björn Sigtryggs
9, Sverrir og Ágúst 6 hvor, Har-
aldur 5 og Jónarnir Jósefsson og
Már Guðmundsson 2 hvor.
Þeir Helgi Gústavsson og
Valdimar Guðlaugsson voru
langakvæðamestir hjá Stúdent-
um. Helgi skoraði 24 stig, Valdi-
mar 17 og Auðunn Elísson kom
næstur með 13. Jóhann Dagur og
Hrafnkell Túliníus dæmdu leik-
inn og voru fremur slakir að
þessu sinni. -þá
ur af hólmi, sigruðu með 108
stigum gegn 100.
KR tók forustuna strax í byrj-
un og hélt henni allt til leiks-
loka. Stigamunurinn jókst jafnt
og þétt í upphafi leiks og útlit var
fyrir að KR-ingar ætluðu að taka
afgerandi forustu. Er fyrri hálf-
leikur var tæplega hálfnaður kom
afleitur kafli hjá Þórsurum, liðið
gerði mörg mistök og kapp
leikmanna var of mikið. KR-ing-
ar kunnu að nýta þessi mistök og
breyttu stöðunni á stuttum tíma
úr 24:16 í 31:16. Eftir þennan
kafla reyndu Þórsarar að róa leik
sinn niður og tókst þeim að halda
í við KR-ingana og í leikhléi var
staðan 64:47 KR í vil. Sannarlega
dökkt útlit.
Seinni hálfleikur var mun betri
en sá fyrri og nú bar á köflum á
góðu spili hjá Þórsurum sem gáfu
af sér stig. Með þessum leik tókst
Þórsurum að minnka muninn
niður í tíu stig og voru þeir Kon-
ráð Óskarsson og Guðmundur
Björnsson iðnastir við að hitta í
körfuna. Þessum tíu stiga mun
héldu Þórsarar fram yfir miðjan
hálfleikinn en þá kom slæmur
kafli hjá KR og Þór komst í 6
stiga mun, 86:92. Nú virðist sem
leikmenn Þórs hefðu gert sér
grein fyrir að hægt var að vinna
upp forskot KR en ekki virtist
baráttan alveg nægjanleg og KR
jók aftur muninn fyrir leikslok.
Þannig urðu lokatölur leiksins
100:108.
Leikurinn var heldur fum-
kenndur á tímabili og áttu bæði
liðin slæma kafla. Þórsarar töp-
uðu hér enn einum leiknum á
tímabilinu og hafa nú tapað sex
leikjum í röð. Líkt og í leiknum
við ÍR um síðustu helgi tók liðið
ágætan kafla um miðbik síðari
hálfleiks en slíkir kaflar mættu
koma fyrr í leikjunr liðsins. En
vonandi er að liðið nái upp bar-
áttunni og komi öflugt í næstu
leiki.
Allir leikmenn Þórs skoruðu
stig í leiknum. Flest stig skoraði
Konráð Óskarsson, 27 stig en
Guðmundur Björnsson skoraði
20 stig og Jóhann Sigurðsson
skoraði 12 stig. Aðrir leikmenn
skoruðu færri stig.
Guðni Guðnason var iðnastur
KR-inga við körfuna og skoraði
27 stig, Símon Ólafsson skoraði
24 stig og Birgir Mikaelsson skor-
aði 20 stig en aðrir færri.
Dómarar leiksins voru Krist-
björn Albertsson og Jóhann Dag-
ur Björnsson. JÓH
Ársþing KDSÍ:
Ein breyting
- á 15 manna hopnum
Ein breyting var gerð á 15
manna hópi knattspyrnudóm-
ara sem dæma leikina í fyrstu
deild Islandsmótsins. Magnús
Theodórsson Víkingi féll niður
í B hóp en Guðmundur Stefán
Maríasson tekur sæti í A hópn-
um í hans stað.
Haukur Torfason KA er fyrsti
varamaður í 15 manna hópnum
ef einhver forföll verða, Friðjón
Eðvaldsson Akranesi er annar
varamaður og Ólafur Sveinsson
Fram er þriðji varamaður. Haf-
liði Þórðarson Fram vék úr ann-
arrar deildar hópnum en Geir
Þorsteinsson KR kom í hans
stað. Tveir dómarar voru færðir í
hóp milliríkjadómara, þeir
Friðgeir Hallgrímsson KR og
Sveinn Sveinsson Fram en fyrir
eru þeir Eysteinn Guðmundsson
Þrótti, Guðmundur Haraldsson
KR og Óli B. Ólsen Þrótti. Ingi
Jónsson sem verið hefur formað-
ur KDSÍ síðastliðin þrjú ár gaf
ekki kost á sér til endurkjörs.
Heimir Bergmann var einróma
kjörinn formaður Knattspyrnu-
dómarafélagsins í hans stað. BB.
Körfubolti:
Staðan
Útvalsdelld
Úrslit leikja í 6. umferð
úrvalsdeildarinnar í körfu-
bolta urðu þessi:
ÍBK-ÍR 104:52
Haukar-UMFN 66:76
Þór-KR 100:108
Valur-UMFG 89:80
Staðan í
UMFN
ÍBK
KR
Valur
UMFG
Haukar
ÍR
Þór
UBK
deildinni er þessi:
6 6-0 550:408 12
5 4-1 385:313 8
5 4-1 432:377
5 3-2 411:349
6 3-3 435:437
5 2-3 352:348
5 2-3 352:426
6 0-6 484:592
5 0-5 268:419
1. deild
Úrslit leikja í 1. deild íslands-
mótsins í körfuknattleik um
helgina urðu þessi:
UMFT-IS
ÍA-Léttir
HSK-UMFS
77:73
63:77
70:55
Staöan í deildinni er þessi:
UIA
UMFT
Léttir
HSK
ÍS
ÍA
UMFS
Reynir
6 6-0 420:325 12
5 5-0 408:313 10
4 2-2 247:239 4
4 2-2 267:272
3 1-2 176:184
5 1-4 284:353
3 0-3 188:234
4 0-4 222:292
Blak:
Staðan
1. deild karla
Úrslit leikja í 1. deild karla
blaki um helgina urðu þessi
HK-Þróttur R 2
HSK-Þróttur N 3
Víkingur-HSK :
Staðan í deildinni er þessi:
Þróttur R
ÍS
HK
KA
Fram
Víkingur
HSK
Þróttur N
6 6-0 18:6 12
5 5-0 15:3 10
7 4-3 15:10 8
5 3-2 9:9
5 2-3 10:10
6 2-4 11:13
5 1-4 3:12
6 0-8 3:18
1. deild kvenna
Úrslit leikja í 1. deild kvenna í
blaki um helgina urðu þessi:
HK-Þróttur N 3:1
Staðan í deildinni er þessi:
UBK
Víkingur
Þróttur R
ÍS
HK
Þróttur N
KA
5 5-0 15:1
5 4-112:4
5 3-2 11:6
5 3-2 7:6
7 3-4 9:15
61-5 6:17
5 0-5 3:15
10
8
6
6
4
2
0
Knattspyrna:
Jón Þórir
kemur ekki
Jón Þórir Jónssnn knatt-
spyrnumaður úr Breiðabliki
hefur ákveðiö að leika áfram
með liði sínu í 2. deildinni
næsta keppnistímabil.
Jón Þórir hafði átt í viðræð-
um við KA um að hann kæmi
norður og léki með liðinu í
sumar. Af því verður hins veg-
ar ekki en KA vantar tilflnn-
anlega framherja fyrir kom-
andi keppnistímabil, þar sem
bæði Tryggvi Gunnarsson og
Sigurður Harðarson hafa skipt
um félag.