Dagur - 23.11.1987, Síða 10

Dagur - 23.11.1987, Síða 10
10 - DAGUR - 23. nóvember 1987 íþróttir Enska knattspyrnan: Ekki dagur toppliðanna - Tap hjá Arsenal, Nott. Forest og Man. Utd. - Jafnt hjá Liverpool heima Það var nokkuð um óvænt úr- slit í ensku knattspyrnunni á laugardaginn. Engu af fimm efstu liðunum í 1. deild tókst að sigra, Arsenal tapaði mjög óvænt á heimavelli og Liver- pool tókst ekki að færa sér heimavöllinn í nyt gegn Norwich. Everton tókst að merja sigur á útivelli gegn Portsmouth í hörðum leik þar sem tveir leikmenn voru reknir útaf. Kevin Dillon og Mick Kennedy báðir í Portsmouth voru sendir í bað undir lok leiksins. Sigurmark þessa leiks skoraði Graeme Sharp 13 mín. fyrir leikslok með góðu skoti eftir undirbúning Peter Reid. Nott. For. réði ekkert við Tony Cottee og tapaði fyrir West Ham. Tap Arsenal á heimavelli gegn Southampton kom mjög á óvart. Leikmenn Southampton lögðust strax í vörn þar sem þeir börðust með kjafti og klóm, 4 leikmenn þeirra bókaðir í leiknum, og treystu síðan á skyndisóknir. Arsenal átti leikinn, en gekk illa að finna veikan blett á vörn Sout- hampton og eftir því sem leið á leikinn urðu leikmenn Arsenal óþolinmóðari og gættu sín ekki 10 mín. fyrir leikslok er Danny Wallace skoraði úr einni skyndi- sókninni eina mark leiksins. Gamla kempan í liði Southamp- ton, Jimmy Case átti stórleik með liðinu. Markvörður Norwich, Bryan Gunn kom í veg fyrir að Liver- pool sigraði í heimaleik sínum gegn Norwich á laugardag. Hann varði frábærlega vel í leiknum og hélt liði sínu á floti. Steve McMa- hon og Ray Houghton komust báðir einir innfyrir vörn Norwich í fyrri hálfleik, og síðan í þeim síðari varði hann frá Gary Gill- espie og John Aldridge í dauða- færi, auk þess sem varið var á línu. Norwich fékk síðan færi á að stela sigrinum 15 mfn. fyrir leiks- lok, en Bruce Grobbelaar varði mjög vel frá Kevin Drinkell í dauðafæri. En leiknum lauk án þess að mark væri skorað og þar með missti Liverpool af efsta sæti deildarinnar. West Ham og Nottingham For. áttust við í skemmtilegum og vel ieiknum leik í London. Tony Cottee náði forystu fyrir West Ham með skallamarki eftir undirbúning Kevin Keen, en Neil Webb jafnaði fyrir lok fyrri hálf- leiks. West Ham komst síðan í 3:1 snemma í síðari hálfleik, Ray Stewart skoraði úr vítaspyrnu eftir að brotið var á Cottee og Cottee skoraði síðan þriðja markið sem var sérlega glæsilegt, Mark Ward tók aukaspyrnu inn- fyrir vörn Forest og Cottee skor- aði með hjólhestaspyrnu. Nigel Clough skoraði síðasta mark leiks- Danny Wallace skoraði mark Southampton í hinum óvænta sigri gegn Arsenal. ins fyrir Nottingham For., en sig- ur West Ham ekki í hættu og virðist liðið vera að rétta úr kútnum. Sjónvarpsáhorfendur fengu að sjá ieik Wimbledon og Manchest- er Utd. í beinni útsendingu hjá Bjarna Fel. Eftir mjög lélegan fyrri hálfleik lifnaði heldur yfir leiknum í þeim síðari og Man. Utd. náði forystu með marki Clayton Blackmore á 21. mín. eftir að Bryan Robson hafði rennt boltanum til hans úr auka- spyrnu utan vítateigs. Aðeins 6 mín. síðar jafnaði Carlton Fairweather eftir að John Fas- hanu hafði skotið í stöng og bolt- inn borist út til Fairweather. Bakvörðurinn John Scales skor- aði síðan sigurmark Wimbledon 2 mín. fyrir leikslok með skoti af löngu færi sem breytti um stefnu er það lenti í Remi Moses. David Beasant markvörður Wimbledon var mjög öruggur í leiknum og varði frábærlega vel frá Jesper Olsen í síðari hálfleik. Totten- ham tapaði enn einum leiknum, nú á útivelli gegn Luton, en aðdáendur liðsins geta huggað sig við það að Terry Venables tekur við framkvæmdastjórastöðunni fyrir næsta leik liðsins sem verður gegn Liverpool og verður sýndur beint í íslenska Sjónvarpinu. Á 38. mín. tóic Luton foryst- una með marki Ian Allinson og leikmenn Tottenham virtust gef- ast upp við markið. Steve Hodge bjargaði á línu frá Steve Foster, en markið lá í loftinu og Allinson bætti við sínu öðru marki í leikn- um í síðari hálfleik, en Allinson þessi var keyptur frá Arsenal. Mark Stein hjá Luton var rekinn af leikvelli í leiknum, en ekki tókst Tottenham að færa sér það í nyt. Q.P.R. gerði aðeins jafntefli í leik sínum á heimavelli gegn Newcastle. Paul Gascoigne var rekinn út af eftir hálftíma leik fyrir að lemja Paul Parker í liði Q.P.R. 10 mín. síðar varð New- castle fyrir öðru áfalli er Ken Wharton skoraði sjálfsmark. Pet- er Jackson tókst að jafna fyrir Newcastle í síðari hálfleik og tryggja liði sínu stig úr leiknum. Charlton var aðeins 3 mín. frá því að komast af botni 1. deildar. Andy Jones náði forystu fyrir Charlton á heimavelli gegn Coventry í fyrri hálfleik. Mark Stuart bætti við marki fyrir liðið í þeim síðari og Greg Downs skor- aði fyrir Coventry úr vítaspyrnu. Pað voru síðan aðeins 3 mín. til leiksloka þegar Micky Gynn jafn- aði fyrir Coventry. Oxford og Watford gerðu jafn- tefli í leik sínum, Luther Blissett náði forystu fyrir Watford í fyrri hálfleik með skallamarki, en Les Phillips jafnaði fyrir Oxford í þeim síðari. Elton John hefur nú selt hlut sinn í Watford og er hættur sem stjórnarformaður í félaginu, segist ekki hafa efni á að reka félagið lengur. Sá er keypti hlut hans er Robert Max- well milljónamæringur sem á nú þrjú 1. deildar lið. Auk Watford eru það Derby og Oxford og ótt- ast nú ýmsir að hann gæti farið að hagræða úrslitum í innbyrðisleikj- um liðanna. í 2. deild sigruðu efstu liðin, öfugt við það sem gerðist í 1. deildinni. Bradford sigraði Leicester á útivelli með marki frá Ron Futcher í fyrri hálfleik og þeir bættu öðru við í lokin. Middles- borough sigraði einnig á útivelli, Gary Hamilton skoraði eina mark leiksins gegn Plymouth. Billy Askew skoraði sigurmark Hull City gegn W.B.A. Leeds Utd. vann góðan sigur á heima- velli gegn Swindon David Rennie, Bobby Davison, nýkeyptur frá Derby og Bob Taylor komu lið- inu í 3:0 fljótlega í fyrri hálfleik. P.L.A. Þýska knattspyrnan: Stuttgart lá fyrir Mannheim Stuttgart tókst ekki að fylgja eftir góðum sigri á Bayern Múnchen um síðustu helgi, er liðið sótti Mannheim heim á laugardag í v-þýsku úrvals- deildinni í knattspyrnu. Mann- heim sigraði í leiknum með tveimur mörkum gegn einu. Leikmenn Bayern Múnchen voru hins vegar búnir að ná sér eftir skellinn frá helginni áður og lögðu Bayer Leverkusen að velli 3:2 á heimavelli. Köln er komið á sigurbraut á ný eftir að hafa tap- að þremur stigum í síðustu tveimur leikjum. Á laugardag sigraði liðið Hannover mjög örugglega 2:0. Lárus Guðmunds- son og félagar hans í Kaiser- slautern tapa enn. Á laugardag sótti liðið Gladbach heim og sigr- uðu heimamenn 1:0. Lið Atla Eðvaldssonar á einnig mjög erfitt uppdráttar um þessar mundir og á laugardag gerði liðið jafntefli 2:2 við Homburg á úti- velli. Pað gengur hins vegar allt í haginn hjá Frankfurt eftir að Uli Stein fór í markið og að þessu sinni lagði liðið Karlsruher á heimavelli með fjórum mörkum gegn engu. Þá sigraði Hamburger lið Dortmund á útivelli með þremur mörkum gegn tveimur og Nurnberg heldur sínu striki og lagði Bochum að velli heima með tveimur mörkum gegn einu. í þýsku bikarkeppninni mætt- ust úrvalsdeildarliðið Werder Bremen og áhugamannaliðið Wolfsburg. Bremen átti í hinu mesta basli með að knýja fram sigur og það hafðist ekki fyrr en í framlengdum leik. Liðið skoraði fimm mörk á móti fjórum mörk- um Wolfsburg. Arsenal sleppir ekki deilda- bikamum í sl. viku fór fram 4. umferð í deildabikarnum og urðu úrslit leikja þessi: Arsenal-Stoke City 3:0 Aston Villa-Sheffield Wed. 1:2 Bury-Manchester Utd. 1:2 Everton-Oldham 2:1 Ipswich-Luton 0:1 Manchester City-Watford 3:1 Oxford-Wimbledon 2:1 Reading-Bradford 0:0 Arsenal núverandi handhafi bikarsins eftir sigur í úrslita- leiknum í fyrra gegn Liverpool heldur enn í bikarinn, Kevin Richardson 2 og Dayid Rocastle gerðu mörkin gegn Stoke City. Bury sem sló Q.P.R. út í 3. umferð lék heimaleik sinn á Old Trafford leikvelli Man. Utd. og náði forystu í leiknum, en mörk frá Norman Whiteside og Brian McClair tryggðu Utd. sigur. Að þessum leikjum loknum var dregið til 5. umferðar sem verður leikin 20. janúar og tókst stórliðunum sem eftir eru í keppninni að forðast hvert annað. En drátturinn lítur þannig út: Everton - Manchester City. Luton - Bradford eða Reading. Oxford - Manchester Utd. Sheffield Wed. - Arsenal. Oxford sem vann keppnina 1986 hefur aldrei tapað leik á heimavelli sínum í keppninni og verður fróðlegt að sjá hvort lið- inu tekst að slá Man. Utd. út. Arsenal fær erfiðan útileik gegn Sheff. Wed. og þarf örugg- lega að halda vel á spilunum ef bikarinn á ekki að renna þeim úr greipum. Þ.L.A. Knatt- spymu- úrslit Úrslit leikja í 1. og 2. deild ensku knattspyrnunnar á laug- ardag urðu þessi: 1. deild: Arsenal-Southampton 0:1 Charlton-Coventry 2:2 Derby-Chelsea 2:0 Liverpool-Norwich 0:0 Luton-Tottenham 2:0 Oxford-Watford 1:1 Portsmouth-Everton 0:1 Q.P.R.-Newcastle 1:1 West Ham-Nott.Forest 3:2 Wimbeldon-Man.United 2:1 2. deild: Borunemouth-Huddersf. 0:2 Barnsley-Shrewsbury 2:1 Blackburn-C.Palace 2:0 Hull-W.B.A. 1:0 Ipswich-Oldham 2:0 Leeds-Swindon 4:2 Leicester-Bradford 0:2 Man.City-Birmingham 3:0 Plymouth-Middlesbro 0:1 Sheff.Utd.-Reading 4:1 Stoke-Millwall 1:2 Getraunaröðin er þessi:2xl- x2x-lll-212 Staðan 1. deild Arsenal 16 Liverpool 14 Q.P.R. 16 Nottm.Forest 15 Everton 16 Man.United 16 Chelsea 16 Wimbledon 16 Southampton 16 Tottenham 17 Luton 15 Oxford 16 Derby 15 West Ham 16 Coventry 16 Newcastle 15 Sheff.Wed. 16 Portsmouth 16 Watford 15 Norwich 17 Charlton 16 11-2-3 30:1135 104-0 33: 8 34 9-5-2 21:13 32 9-3-3 31:14 30 8-4-4 25:12 28 6-8-2 26:18 26 8-1-7 25:26 25 6-5-5 23:20 23 6-5-5 23:22 23 6-4-7 17:19 22 6-3-6 22:18 21 6-3-7 20:25 21 5-5-5 13:14 20 4- 6-6 18:22 18 5- 3-8 19:27 18 3- 6-6 16:24 15 4- 3-9 15:29 15 3-5-8 14:33 14 3-4-8 9:1813 3-3-11 12:25 12 2-4-10 15:28 10 Staðan 2. deild Bradford Middlesbro Hull Ipswich Aston Villa C.Palace Millwall Man.City Blackburn Birmingham Barnsley Lceds Swindon Stoke Leicester Sheff.Utd. Plymouth W.B.A Bournem. Shrewsbury Oldham Reading Huddersf. 20 13-4-3 34:17 43 20 12-4-4 31:14 40 20 10-7-3 29:18 37 20 10-6-4 28:16 36 20 9-7-4 27:17 34 19 10-3-6 39:28 33 19 10-3-6 31:25 33 19 9-6-5 44:26 32 19 8-6-5 25:21 30 20 8-6-6 23:28 30 20 8-5-7 29:25 29 20 6-8-6 23:27 26 18 7-4-7 31:27 25 20 6-5-9 16:27 23 19 6-4-9 29:28 22 21 6-4-11 23:33 22 20 5-6-9 31:36 21 20 6-3-11 26:34 21 19 5-5-9 24:30 20 20 3-7-10 17:28 16 18 4-4-10 14:27 16 18 3-4-11 18:34 13 19 2-6-11 21:47 12

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.