Dagur - 23.11.1987, Blaðsíða 15

Dagur - 23.11.1987, Blaðsíða 15
23. nóvember 1987 - DAGUR - 15 Minning: Jóhann Ámi Guðlaugsson f Reykholti Fæddur 10. júní 1912 - Dáinn 7. nóvember 1987 Það voru heldur döpur tíðindi sem síminn færði okkur hjónum árla morguns laugardaginn 7. nóvember. Þá voru okkur færð þau tíðindi að einn bestu vina okkar væri látinn. Hann Árni G. hafði naustað skip sitt. Öllum að óvörum barst honum kallið mikla. Hann og við öll, vinir hans höfðum fengið aðvörun, en ég held að engan hafi grunað að svo stutt væri skapadægranna að bíða. En sá er gaf honum lífið og hefur einnig gefið okkur það, hann sendi sendiboða sinn til hans á ljúfan og geðþekkan hátt. Hann sagði: „Komdu nú barnið mitt. Þessi stund er þín stund. Gakk þú nú inn til fagnaðar míns og til samfunda við vindana sem ég hefi áður kallað." Og þessi ljúfi og góði vinur brást fljótt við og hann var skjótur í heimanbún- aði sem oft áður er til hans var kallað. Og nú erum við eftir skil- in um sinn. Það er tómleiki í hug og hjarta og stórt og mikið skarð sem seint mun fyllast. Við höfum öll mikið misst en þá er líka að geta þess að við höfum mikið átt. Ég er orðinn of gamall til að sakast við Drottin minn og Guð minn. Og ég veit líka að honum sem hér hefur kvatt, myndi ekki vera það að skapi. Én mikið hefðum við nú viljað hafa þetta á annan hátt. Örlögin eða hvað sem það ann- ars er valda því að við hjónin get- um ekki fylgt honum síðustu sporin. En hugur okkar verður með honum og ykkur ástvinum. Um leið og við kveðjum þennan mæta vin og góða dreng með innilegri þökk fyrir hina löngu og tryggu vináttu biðjum við Guð að blessa hann og ykkur öll ástvini hans. Við notum orð Ritningar- innar: „Sárt trega ég þig bróðir minn . . . mjög varstu mér hug- Ijúfur.“ 2. Sam. 1.26. Stefán Snævarr. Passa- myndir Gott úrval mynda- ramma myna LJÓSMYN DASTOFA Slmi 96-22807 • Pósthólf 464 Glerárgötu 20 602 Akureyri Auglýsing Kjararannsóknanefnd opinberra starfsmanna óskar eftir að ráða mann til starfa fyrir nefndina. Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun eða reynslu á sviði hagfræði, viðskiptafræði, tölfræði eða talna- vinnslu. Um getur orðið að ræða ráðningu í hlutastarf eða fullt starf. Umsóknarfremstur ertil 24. nóvember n.k. Umsóknum skal skilað til: Kjararannsóknanefnd opinberra starfsmanna b/t. fjármálaráðuneytið Arnarhvoli Reykjavík. Framsóknarvist Þriðjudaginn 24. nóvember verður spiluð fram- sóknarvist á Hótel KEA og hefst hún kl. 20.30. ★ Vegiegir vinningar. ★ Allir velkomnir. Framsóknarfélag Akureyrar. Sauðfjárslátrun Tilkynna ber fjölda sláturfjár í síðasta lagi mánudaginn 30. nóvember í síma 24306. Sláturdagar og móttaka á sauðfé auglýst síðar. ♦ Sláturhús KEA. Nám í tannsmíði Ákveðið hefur verið að taka 4 nemendur til náms í Tannsmíðaskóla íslands í janúar 1988. Inntökuskilyröi eru grunnskólapróf og kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er svarar til stúdentsprófs. Auk þess þarf að fylgja vottorð um eðlilegt litskyggni. ( umsókn skal tilgreina aldur (kennitölu), menntun og fyrri störf. Umsóknir skal senda til Tannsmiðaskóla íslands, Vatns- mýrarvegi 16, 101 Reykjavík fyrir 5. desember næstkom- andi. Menntamálaráðuneytið. Takið eftir! Ákveðið hefur verið að hætta um næstu áramót rekstri frystiklefa félagsins á Hauganesi. Viðskiptavinir vorir sem geyma matvæli í frysti- klefanum eru því vinsamlegast beðnir að fjarlægja þau eigi síðar en 31. des. nk. Kaupfélag Eyfirðinga. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Hafnarstræti 98, hluta, Akur- eyri, þingl. eigandi Hótel Akureyri hf., fer fram í dómsal emb- ættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember '87 kl. 13.45 Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóður Akureyrar, fnnheimtu- maður ríkissjóðs, Gunnar Sólnes hrl., Iðnaðarbanki Islands hf., Björn Ólafur Hallgrímsson hdl., Klemens Eggertsson hdl., Landsbanki íslands, Ásgeir Thoroddsen hdl., Guðmundur Þórðarson hdl., Baldvin Jónsson hrl., Guðmundur Jónsson hdl., Jón Þóroddsson hdl., Bæjarsjóður Akureyrar og ÓlafurB. Árnason hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Hjallalundi 17a, Akureyri, þingl. eigandi Björk Dúadóttir, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 27. nóvember '87 kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru: Jónas Aðalsteinsson hrl., Landsbanki íslands og Veðdeild Landsbanka íslands. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Mið-Samtúni, Glæsibæjar- hreppi, þingl. eigandi Ingi Guðlaugsson ofl., ferfram í dómsal 'embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyrl föstud. 27. nóvember '87 kl. 14.15. Uppboðbeiðandi er Stofnlánadeild landbúnaðarins. Sýslumaðurinn ( Eyjafjarðarsýslu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.