Dagur - 28.01.1988, Page 1
71. árgangur Akureyri, fímmtudagur 28. janúar 1988 19. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMHDIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
„Kom
okkur
geysilega
mikið á
óvart“
- segja tveir Akureyringar
um takmarkað
lóðaframboð í bænum
„Þetta kom okkur geysilega
mikið á óvart. Við fengum
ágætar upplýsingar, en engin
svör við því hvort við gætum
fengið lóðir undir raðhús á
einni hæð, parhús eða tvíbýlis-
hús nema þau, að slíkar lóðir
væru ekki á lausu,“ sagði ann-
ar tveggja Akureyringa sem
höfðu samband við Dag.
Orsök þessara ummæla eru
þau, að fyrir skömmu ætluðu
tveir menn á Akureyri að sækja
um lóðir fyrir raðhús á einni hæð,
parhús eða tvíbýlishús. Þeir leit-
uðu, eins og lög gera ráð fyrir, til
bæjaryfirvalda, en fengu enga
úrlausn sinna mála. Var þeim
sagt að bíða um ótiltekinn tíma,
því málin væru í athugun. Annar
mannanna sagði, að mikil eftir-
spurn væri eftir lóðum á Akur-
eyri, en af hálfu bæjarins hlyti að
vera frumskilyrði að hafa nægi-
legt framboð af lóðum þegar svo
bæri undir. „Við getum auðvitað
prófað að sækja um lóðir af þessu
tagi upp á von og óvon, en eng-
inn veit hver úrslitin verða,“
sögðu þeir félagar.
Hjá skipulagsdeild bæjarins
fengust þær upplýsingar, að
endurskoðað skipulag í hverfi
vestan Vestursíðu gæti orðið til á
næstu mánuðum. Skipulagsyfir-
völd hafa farið þess á leit við
þann, sem hannaði hverfið, að
athuga hvort hægt yrði að koma
þar fyrir nokkrum raðhúsum á
einni hæð, en að öðru leyti er
gert ráð fyrir að þarna rísi
tveggja hæða hús, eða hús með
risi. Verið er að huga að nýju
deiliskipulagi fyrir neðan sjúkra-
húsið, þar sem hugsanlega gætu
verið parhús, en vegna landhalla
er frekar ólíklegt að þau verði á
einni hæð. EHB
Skagaströnd:
Örvar landar
210 tonnum
- hásetahlutur
280 þúsund krónur
Hið þekkta aflaskip, frystitog-
arinn Örvar frá Skagaströnd,
landaði þann 25. janúar 210
tonnum af físki eftir 23 daga
veiðiferð.
Af þeim afla sem landað var úr
Örvari voru 167 t af fullunnum
flökum. 135 t voru af þorski og
gefur þessi veiðiferð u.þ.b. 280
þúsund krónur í hásetahlut. fh
Þessir strákar voru ákveðnir í að fara á skauta en þó hélt annar á fótbolta. Þeir sögðust báðir hafa mikinn áhuga
á íþróttum, eins og sést á útbúnaði þeirra. Mynd: tlv
Siglufjörður:
Vatnsleiðsla
skemmdist
í frostunum
I frosthörkunum í vikunni sem
leið og sérstaklega um síðustu
helgi urðu allmikil brögð að
því að vatn frysi í lögnum víða
á Norðurlandi. Siglflröingar
fóru ekki varhluta af þessu
frekar en aðrir íbúar Norður-
lands.
Fyrir nokkrum dögum upp-
götvuðu íbúar við Grundargötu á
Siglufirði að kalda vatnið hafði
frosið í jörðu, og voru menn því
sendir á vettvang frá áhalda-
skemmu bæjarins til að grafa upp
hluta vatnslagnarinnar, en álitið
var að hún hefði sprungið. Síðast
þegar fréttist var viðgerð langt á
veg komin eða við að ljúka.
Á fimmtudaginn rofnaði
kaldavatnsleiðslan að Leifsbak-
aríi á Siglufirði, og olli það
nokkrum vandræðum í bakarí-
inu. Baldvin Ingimarsson, bak-
ari, sagði að þeir hefðu notast við
heitt vatn í nokkra daga, en
óþægilegt væri að koma slíku við
því að kæla þyrfti vatnið áður en
það væri nothæft í brauðdeigs-
gerð. Hér var um gamla leiðslu
að ræða, og töldu menn líklegt að
frostið ætti sinn þátt í að hún gaf
sig. EHB
Lögreglan á Dalvík:
Fjarskiptabúnaöi
mjög ábótavant
Fjarskiptabúnaði lögreglunnar
á Dalvík er mjög ábótavant og
var ákveðið á fundi almanna-
varnanefndar á Dalvík fyrir
áramótin að senda sýslumanni
Eyjafjarðarsýslu bréf um
málið. Lögreglan er mikilvæg-
ur hlekkur í almannavarna-
kerfínu og þegar slys ber að
höndum er nauðsynlegt að
búið sé vel að fjarskiptamál-
um. Mikil þörf er á betri fjar-
skiptabúnaði og ekki síst litlum
handtalstöðvum. Þá eru slæm
fjarskiptaskilyrði út úr bænum
og talið til stórbóta ef endur-
varpa yrði komið upp ■ Hrísey.
Lögreglan á Dalvík hefur ein-
ungis litlar CB-stöðvar á lögreglu-
stöðinni og í lögreglubílnum og
að auki farsíma í bílnum. CB-
stöðvarnar eru kraftlitlar og duga
því illa til að ná fjarskiptasam-
Á undanförnum árum hefur
bráðadauði í kúm farið vax-
andi í Húnavatnssýslum en
hann hefur þó hvergi, svo vitað
sé, drepið eins margar kýr eins
og hjá Páli bónda í Sauðanesi í
Torfalækjarhreppi. Þar hefur
þessi vágestur drepið 25 kýr og
eitt geldneyti á undanförnum
þremur árum.
Blaðamaður Dags hafði sam-
band við Pál og spurði hann
hvort kýr hefðu drepist hjá hon-
um með þessum hætti frá áramót-
um. Hann sagði að ein kýr hefði
bandi út úr bænum. Farsímasam-
band á svæðinu er frekar slæmt
þannig að lögreglunni getur
reynst erfitt að ná fjarskipta-
sambandi með stuttum fyrirvara
úr bænum.
Almannavarnanefnd á Dalvík
telur að lögreglan þurfi að fá
legið dauð á básnum á sunnu-
dagsmorguninn og væri það sú
fyrsta sem hefði drepist á þessu
ári. Hann kvaðst stefna að því að
vera með svona liðlega þrjátíu
kýr í fjósi en það gengi misjafn-
lega vel að fylla í skörðin. Hann
sagðist vita ti! þess að brögð væru
að því að kýr dræpust svona á
mörgum bæjum í héraðinu en
líklega hefði enginn bóndi misst
jafn margar kýr og hann úr þess-
um svonefnda bráðadauða. Hlut-
fallið miðað við fjölda kúa væri
þó verra hjá Ragnari bónda í
Norðurhaga í Sveinsstaðahreppi.
örbylgju- og Gufunesstöð til að
bæta öryggið á staðnum og jafn-
framt þurfi endurvarpa fyrir fjar-
skiptabúnað í Hrísey til að betra
samband verði við Akureyri.
Nefndin telur að lögregluna
skorti einnig handstöðvar til
notkunar t.d. á slysstað. JÓH
Hann hefði misst hehninginn af
sínum kúm úr bráðadauða á síð-
asta ári, þá hefðu drepist sex af
tólf kúm sem Ragnar var með í
fjósi.
Páll sagði að það versta við
þetta allt væri þó að mikið væri
búið að taka af sýnum úr dauðum
kúm og senda til rannsóknar að
Keldum. Sýni þessi væru tekin úr
lifur, görnum og hinum og þess-
um líffærum en hann kvaðst ekki
vita annað en að öll þessi sýni
væru geymd í frysti fyrir sunnan
og ekki sýndur litur á að reyna að
rannsaka þau fh
Húnavatnssýslur:
Bráðadauði í kúm
mjög algengur
- ekkert gert til að kanna orsakir hans