Dagur - 28.01.1988, Síða 5
Tilmæli iðnaðarráðuneytisins:
Sveitarfélög
lækki eða
felli niður
aðstöðugjöld
af ullariðnaði
Iðnaðarráðuneytið sendi í lok
desember síðastliðins bréf til
sveitarstjórna allra þeirra
sveitarfélaga sem hýsa ullar-
iðnað, með þeim tilmælum að
þau felli tímabundið niður
aðstöðugjöld á þennan iðnað
eða lækki a.m.k. til samræmis
við það sem sjávarútvegsfyrir-
tæki greiða.
Páll Flygering ráðuneytis-
stjóri iðnaðarráðuneytisins sagði
í samtali við Dag að þessi bréf
hefðu verið send út í framhaldi af
viðræðum ráðherra við forráða-
menn ullariðnaðar í landinu. í
viðræðunum kom m.a. fram
óánægja forráðamanna iðnaðar-
ins með þá mismunun sem er á
milli fyrirtækja í fiskiðnaði og
annarra iðnaðarfyrirtækja hvað
aðstöðugjöld varðar.
I lögum um tekjustofna sveit-
arfélaga er kveðið á um að
aðstöðugjöld af almennum iðn-
rekstri, öðrum en fiskvinnslu,
megi í mesta lagi nema 1% af
svokölluðum aðstöðugjaldstofni,
þ.e. veltu. Hjá fiskvinnsiufyrir-
tækjum má þetta hlutfall mest
vera 0,65%.
Bréf þetta hefur verið lagt
fram í viðkomandi sveitarstjórn-
um en ekki verið afgreitt. Akur-
eyrarbær hefur til þessa nýtt
þessa heimild til fulls en við
afgreiðslu fjárhagsáætlunar árs-
ins verður erindið tekið fyrir.
Erindi þetta á jafnt við um
sveitarfélög sem hýsa hinar fjöl-
mörgu prjónastofur víða um
land, sem og Akureyri þar sem
Álafoss hf. hefur aðalstöðvar
sínar. Pessi fyrirtæki hafa átt í
umtalsverðum rekstrarerfiðleik-
um og með þessu væri reynt að
létta undir með þeim. ET
Afmælishátíð KA:
Matur, dans
eða hvort
tveggja
Það verður mikið um dýrðir
hjá KA-mönnum annað kvöld,
en þá ætla þeir að lialda upp á
nýafstaðið 60 ára afmæli
félagsins með glæsibrag. Fagn-
aðurinn fer fram í Sjallanum
og hefst með borðhaldi en síð-
an verður dansað fram eftir
nóttu. Seldir hafa verið eða
fráteknir 250-300 miðar á
borðhaldið og eru fáir eftir.
„Þetta verður glæsileg
skemmtun. Þarna munu ungir og
eldri KA-menn eiga saman góða
kvöldstund," sagði Stefán Gunn-
laugsson, sem sæti á í afmælis-
nefnd, í samtali við Dag.
Borðhald hefst klukkan 19.30
og á meðan á því stendur verður
boðið upp á skemmtiatriði. Erla
Stefánsdóttir og Páll Jóhannes-
son syngja, Dansstudíó Alice
verður með sýningu, Jón Arn-
þórsson flytur annál og Kristinn
G. Jóhannsson hátíðarræðu í
léttum dúr. Veislustjóri verður
Sigbjörn Gunnarsson.
Stefán vildi sérstaklega láta
koma fram að eftir að borðhald
og skemmtiatriði eru afstaðin
verður húsið opnað þeim KA-
mönnum og gestum þeirra, sem
þá viija bætast í hópinn og dansa
við undirleik Ingimars Eydal.
Sölumadur —
Heildverslun
Óskum eftir að ráða sölumann fyrir heild
verslun.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
FELL hf. Kaupvangsstræti 4 - Akureyri - simi 25455
28. janúar 1988 - DAGUR - 5
-----------------------
Jámtækni auglýsir
ný símanúmer
26610 og 26620
JÁRNTÆKM
FR0STAGÖTU 1a
IÐGJALDA Tll IIFEYRISSJOÐA
Breyttar reglur um iðgjaldagreiðslur til lífeyrissjóða SAL.
Samkvæmt kjarasamningi ASÍ og VSÍ frá 26. febrúar 1986 aukast iðgjöld til
lífeyrissjóða í áföngum, þartil l.janúar 1990 aðstarfsmenn greiða4% aföllum
launum til lífeyrissjóða og atvinnurekendur með sama hætti 6%. Til iðgjalda-
skyldra launa telst m.a. yfirvinna, ákvæðisvinna og bónus. Sérstakar reglur
gilda þó um iðgjaldagreiðslur sjómanna.
Umsamið hlutfall iðgjalda af öllum launum er sem hér segir:
Árin 1987-1989:
a) Starfsmenn: 4% iðgjald skal greiða af öllum tekjum starfsmanna á
mánuði hverjum, hverju nafni sem nefnast, þó skal
ekki greiða 4% iðgjald af hærri fjárhæð, en sem
svarar til iðgjalds fyrir 1731/3 klst. miðað við tíma-
kaup hlutaðeigandi starfsmanns í dagvinnu, að við-
bættu orlofi.
Atvinnurekendur: 6% iðgjald af sömu fjárhæð.
b) Ef launatekjur eru hærri, en sem nemur tekjum fyrir 173 1/3 klst. að
viðbættu orlofi, sbr. a-lið, skal greiða til viðbótar sem hér segir:
1987
1988
1989
Hluti
starfsmanna:
1,0%
2,0%
3,0%
Hluti
atvinnurekenda:
1,5%
3,0%
4,5%
Frá 1. janúar 1990 greiða starfsmenn 4% af öllum launum og atvinnurekendur
með sama hætti 6%.
SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA
Samræmd lífeyrisheild
Lsj. Björg, Húsavík
Lsj. Austurlands
Lsj. Vestmanneyinga
Lsj. Rangæinga
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurnesjum
Lsj. verkafólks I Grindavík
Lsj. Hlífar og Framtíðarinnar
Lsj. byggingamanna
Lsj. Dagsbrúnar og Framsóknar
Lsj. Félags garðyrkjumanna
Lsj. framreiðslumanna
Lsj. málm- og skipasmiða
Lsj. matreiðslumanna
Lsj. rafiðnaðarmanna
Lsj. Sóknar
Lsj. verksmiðjufólks •
Lsj. Vesturlands •
Lsj. Bolungarvíkur •
Lsj. Vestfirðinga •
Lsj. verkamanna, Hvammstanga •
Lsj. stéttarfélaga í Skagafirði •
Lsj. löju á Akureyri •
Lsj. Sameining, Akureyri •
Lsj. trésmiða á Akureyri