Dagur - 28.01.1988, Blaðsíða 8

Dagur - 28.01.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 28. janúar 1988 - segir Njáll Eiðsson þjálfari Einherja Einherjarnir frá Vopnafirði voru á ferð og flugi um síðustu helgi. Þá tóku þeir þátt í íslandsmótinu innanhúss í knattspyrnu og stóðu sig með prýði. A leið norður aftur eftir mótið rakst blaðamaður Dags á piltana úr liðinu á Reykjavík- urflugvelli. Þar tókum við Njál Eiðsson þjálfara liðsins tali og spurðum hann um gengið á mótinu og hvernig honum lítist á tímabilið næsta sumar. „Miðað við þá aðstöðu sem við höfum á Vopnafirði, lítinn sal 9x15 m, þá held ég að við getum vel við unað. Við leikum í 2. deildinni og lentum í öðru sæti í riðlinum og héldum því sæti okk- ar í 2. deild. Þetta voru frekar sterk lið með okkur í riðli; FH, ÍBK og Víkverji, en með smá heppni hefðum við getað far- ið upp í 1. deild.“ Nú félluð þið niður í 3. deild síðasta sumar. Hvernig eru möguleikar ykkar á því að vinna ykkur sæti aftur í 2. deild? „Það verður hörku keppni í 3. deildinni á næsta keppnistíma- bili, þannig að við erum ekkert öruggir að komast upp. Við miss- um þrjá sterka menn frá síðasta tímabili; Einar Björn Kristbergs- son fer til Danmerkur í nám, Árni Ólason og Eiríkur Sverris- son fara síðan til Tindastóls á Sauðárkróki. Ég mun að sjálf- sögðu spila með liðinu, en ennþá höfum við ekki fengið neinn ann- an liðsauka." Einherji með eitt leikreyndasta lið landsins - Nú varðst þú íslandsmeistari með Valsmönnum síðasta sumar og spilar með Ólympíuliði íslands. Er ekki erfitt að fara síð- an út á land og þjálfa í 3. deild? „Er ekki sagt að menn eigi að hætta á toppnum?,“ sagði Njáll og kímdi. „Nei, í alvöru þá var ég ákveðinn fyrir tímabilið í fyrra, að það yrði mitt síðasta í 1. deildinni. Mig langaði að stefna á toppinn, því ég er nú orðinn 30 ára og eiginlega síðasti „sjens“ að reyna við Islandsmeistaratiti!. Það tókst og það var því létt að hætta! Þegar ég gerði samning við Einherja voru þeir í 2. deildinni og það leit ekki út fyrir að það yrði breyting þar á. Það var auð- vitað mjög svekkjandi að liðið skyldi fara niður, en það breytti engu í fyrirætlunum mínum í sambandi við að taka liðið. Ég þekki liðið mjög vel frá fyrri tíð og veit að þessir strákar gefa 100% í knattspyrnuna. Það að ég þekki þessa stráka svona vel var ein aðalástæðan fyrir því að ég ákvað að fara til Vopnafjarðar. Liðið er mjög ieikreynt og er lík- lega eitt það leikreyndasta á landinu - meðalaldurinn er lík- lega í kringum 28 ár.“ Hverjir verða ykkar helstu andstæðingar á komandi tíma- bili? „Það er dálítið erfitt fyrir mig að átta mig á því, vegna þess að ég spilaði ekki í fyrra. En miðað við úrslitin í fyrra, þá er ekki ólíklegt að sömu lið verði í topp- baráttunni aftur þ.e. Magni frá Grenivík, Sindri frá Hornafirði og Þróttur frá Neskaupstað. Huginn gæti verið með ágætt lið og við ætlum okkur að sjálfsögðu að vera með í toppbaráttunni. Annars er voðalega erfitt að spá fyrir um þetta því alls konar ástæður geta breytt röðinni t.d. meiðsli og sumarfrí leikmanna." Þessir strákar gefa sig 100% í knattspyrnuna, segir Njáll Eiðsson. Njáll Eiðsson þjálfari fyrir miðju í aftari röð ásamt hinum köppunum úr Einherjaliðinu. Stefnir hátt í þjálfuninni Er ekki erfitt að flytja frá höfuð- borginni í svona lítið þorp eins og Vopnafjörð? „Það eru voðalega margir fyrir sunnan að vorkenna mér að flytja í fámennið á Vopnafirði. Þeir verða líka mjög undrandi þegar ég segi að mjög gott sé að búa þama og ég sé mjög sáttur við það. Annars er ég fæddur og uppalinn í enn minna plássi, Borgarfirði eystra, þannig að fámennið leggst bara vel í mig. Þetta er miklu minna stress en í Reykjavík og þarna hefur maður mun meiri tíma fyrir fjölskylduna." Nú ert þú menntaður kennari og starfar sem slíkur á Vopna- firði. Liggur metnaður þinn í kennslunni eða boltanum? „Ég hef mikinn áhuga á knatt- spyrnuþjálfun og stefni hærra á því sviði. En mér finnst mjög gaman að kenna og þjálfun og kennsla fer vel saman. Þegar aðalálagið er í boltanum, þá er maður laus við kennsluna og þeg- - ar aðalálagið er í kennslunni er „Á maður ekki að hætta á toppnum?“ Verðkönnun á brauði gerð af NAN í desember ’87 og janú; í byrjun desember 1987 lagði NAN leið sína í bakaríin þrjú á Akureyri og gerði verðkönnun á 18 vinsælum brauðtegundum. Eitt og annað kom í veg fyrir að þessi verðkönnun yrði birt þá en hún var geymd til góða. Hún er hér birt með verðkönnun sem var gerð 26. janúar 1988 og geta neytendur borið saman verðmuninn fyrir og eftir söluskattinn fræga. Verð á brauði og kökum hækkar í kjölfar söluskattshækkunar í byrjun þessa árs. Hins vegar var fellt nið- ur vörugjald á sömu vörum frá 1. janúar sl. Áhrif breytinganna voru 10,3 kökum. Það skal tekið fram að þegar kleinur, snúðar og fleira smábrauð var vigtað v an og fundin meðalþyngd. Ekki er gerð könnun á gæðum - það er hvers og eins að meta þau og se smekk. - NAN vonar að þessi verðkönnun verði neytendum til nokkurs gagi Brauðgerð KEA ; Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co. ; Einarsbakarí des 1987 26.jan.88 i des 1987 26.jan.88 í des.1987 Tegund brauis byngd gr.verJ st. KílóverJ verJ st. KílóverJ Híkkun 7. _ 1 öyngd gr. VerJ st. KílóverJ VerJ st. KílóverJ Hekkun '/. i byngd gr. VerJ st.KílóverJ FormbrauJ óskoriJ 520 58 111.54 66 126.92 1 13.8 i i 610 61 100.00 69 113.11 i 13.1 ! 625 55 88.00 ForubrauJ skoriJ 508 65 127.95 74 145.67 13.8 i 600 67 111.67 76 126.67 13.4 i 595 55 92.44 briggjakornabrauJ éskoriJ t 1 600 81 135.00 93 155.00 14.8 i 545 80 146.79 briggjakornabrauJ skoriJ 520 86 Í65.38 98 188.46 14.0 i 595 87 146.22 99 i 66.39 13.8 i 560 80 142.86 Rúnstykki «eJ birkt 35 18 514.29 20 571.43 11.1 i 45 18 400.00 20 444.44 11.1 i 40 17 425.00 Heilhveitihorn 107 33 308.41 38 355.14 15.2 i 1 1 100 22 220.00 Gró-ft rúnstykki 63 18 285.7! 20 317.46 11.1 i 74 20 270.27 23 310.81 15.0 i 65 19 292.31 VínarbrauJ 125 42 336.00 48 384.00 14.3 i 90 44 488.89 50 555.56 13.6 1 85 36 423.53 SérbakaJ vínarbrauJ 91 49 538.46 56 615.38 14.3 i 91 48 527.47 55 604.40 14.6 : 85 37 435.29 Kleina 44 21 477.27 24 545.45 14.3 : 55 25 454.55 29 527.27 i6.o : 55 19 345.45 Kleinuhringur i/súkkulaJi 66 19 287.88 22 333.33 15.8 í 50 23 460.00 26 520.00 13.0 1 50 17 340.00 Kleinuhrtngur án súkkulaJis 45 16 355.56 18 400.00 12.5 i 40 18 450.00 20 500.00 11.1 i 41 16 390.24 Tebolla 103 49 475.73 56 543.69 14.3 i 110 48 436.36 55 500.00 14.6 1 90 40 444.44 SnúJur 188 42 223.40 48 255.32 14.3 i 182 44 241.76 50 274.73 13.6 : 200 36 180.00 Kringla 60 18 300.00 20 333.33 11.1 i 63 18 285.71 20 317.46 n.i : 60 18 300.00 DjöFlaterta 746 290 388.74 330 442.36 13.8 : 835 305 365.27 346 414.37 13.4 i 840 318 378.57 Jólakaka 516 162 313.95 184 356.59 13.6 : 532 173 325.19 197 370.30 13.9 i 535 182 340.19 Sandkaka 496 184 370.97 209 421.37 13.6 í 504 195 386.90 221 438.49 13.3 i 470 182 387.23

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.