Dagur - 28.01.1988, Page 13

Dagur - 28.01.1988, Page 13
28. janúar 1988 DÁGÚR 13 hér & þar Úr kvikmyndasögunni: Kauðaleg ástaratlot Handritahöfundar Hollywood- borgar hafa margsinnis látið frá sér fara yndislega rómantískar senur þar sem fleygar og meitlað- ar setningar, þrungnar ást og hlýju hitta áhorfandann í hjarta- stað þannig að hann situr eftir með tárin í augunum. Öðrum tekst öfugt upp þegar þeir ætla sér að ná fram þessum áhrifum með senum ástar og unaðar, og áhrifin verða eitthvað á þá leið að áhorfendur grípa fyrir andlitið og snökta af skömm eða bresta sam- an í krampakenndum hlátri. Tveir „illa innrættir" menn þar vestra hafa látið frá sér fara bæk- ur sem heita eitthvað á þá leið: „Gullnu klaufaverðlaunin" og „Smánir Hollywood-borgar.“ Eins og nöfnin gefa til kynna eru í þessum bókum teknar fyrir setningar sem þykja frekar til- heyra síðarnefnda flokki hand- ritabrota hér að ofan. Hér á eftir fylgja nokkur dæmi sem þessir félagar telja vera dæmi um ein- staklega klaufalega framsetn- ingu. í myndinni „Sigurvegarinn“ reynir Genghis Khan, sem leik- inn er af John Wayne, að faðma að sér prinsessuna Bortai, sem leikin er af Susan Hayward. Hún bregst við þessum atlotum með því að kasta spjóti í hausinn á honum og sparka reglulega ruddalega í nárann á honum. „Ég unni mér ekki friðar fyrr en þú ert dauður, Mongóli,“ hreytir hún í ástfanginn manninn. Wayne svarar að bragði: „Hananú...þú ert falleg svona reið.“ í „Boðorðunum tíu“ reynir Anna Bancroft sem egypska prinsessan Nefretiri að plata Moses, sem leikinn er af Charl- ton Heston, til að giftast sér. „Hví krýpur þú ekki á kné fyrir framan prinsessu?“ spyr hún Moses þar sem hann stendur teinréttur fyrir augliti hennar. „Því miður eru hné mín stirð eftir drullupyttina, yðar náð.“(?) „Á ég að kalla á verðina?" „Heldurðu að þeir geti beygt á mér hnén?“ „Oh Moses, Moses, þrjóska, dýrlega, aðdáunarverða fífl.“ í „Sheena“ sem gerð var árið 1984, leikur Tanya Roberts ein- hvers konar Tarsan-stelpu í ein- hverjum frumskógi. Þegar hún þrífur amerískan ævintýramann og kyssir hann segir hún: ,.Þú munt verða velkominn í Zukulu.“ Síðan bætir hún við þessum rómantísku setningum: „Lystug- ar baunakökur foringjans munu verða þínar“ og síðar „Flóaða buffalomjólkin hans mun einnig verða þín flóaða buffalomjólk.“ í „Oskarinn“ frá 1966 segir Stephen Boyd við Elke Sommer: „Þú átt betur við mig en nokkur „Þú ert falleg svona reið.“ önnur stúlka sem ég þekki...kona sem ég þekki. Hvort ert þú Kay, stúlka eða kona?“ Elke svarar: „Ég vil halda að ég sé kona.“ Boyd segir þá: „Kona. Eyddu með mér nóttinni á ströndinni. Ég held að ég sé ástfanginn af þér.“ Síðasta dæmið sem við lítum á er úr myndinni „Plan 9 from out- er space.“ Þotuflugmaður sem leikinn er af Gregory Walcott kveður konu sína þegar hann er að fara að berjast við verur utan úr geimnum, með þessum orðum: „Þú lofar svo að loka á eftir mér urn leið og ég er farinn!“ Baunakökur og buffalo-mjólk. Tanya Roberts og „Jane“. Og Mona svarar: „Ég lofa því auk þess verð ég komin í rúmið innan hálftíma með koddann þinn mér við hlið.“ „Koddann minn?“ „Já ég verð að hafa einhvern félagsskap á meðan þú ert í burtu.“ Þetta eru nú ekki beinlín- is meðmæli með flughetjunni en hér látum við þessum tilvitnunum lokið. ra dagskrá fjölmiðla Spurningin er: Hvert er hugarástand konu sem stekkurfram af svölum í einum skó? Sjá Stöð 2 kl. 23.40. SJONVARPIÐ FIMMTUDAGUR 28. janúar 17.50 Ritmálsfréttir. 18.00 Stundin okkar. 18 30 Anna og fólagar. Nýr ítalskur myndaflokkur fyrir börn og unglinga. 18.55 Fréttaágrip og táknmáls- fréttir. 19.05 íþróttasyrpa. 19.25 Austurbæingar. (East Enders.) 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. 21.10 Nýjasta tækni og vísindi. 21.40 Matlock. 22.30 Griðland. Sænsk fréttamynd um flótta- menn frá ýmsum löndum, eink- um þá sem fara huldu höfði og hafa ekki dvalarleyfi í Svíþjóð. Einnig er fjallað um samtök sem aðstoða slíkt fólk við að fela sig í landinu. 23.00 Dagskrárlok. SJONVARP AKUREYRI FIMMTUDAGUR 28. janúar 16.35 Að vera eða vera ekki. (To Be Or Not To Be.) Endurgerð kvikmyndar Ernst Lubitsch frá árinu 1942 þar sem grín er gert að valdatíma Hitlers. Aðalhlutverk: Mel Brooks og Anne Bancroft. 18.20 Litli folinn og félagar. Teiknimynd með íslensku tali. 18.45 Handknattleikur. Sýnt frá helstu mótum í hand- knattleik. 19.19 19.19. Lifandi fréttaflutningur ásamt umfjöllun um málefni líðandi stundar. 20.30 Á heimaslóðum. 60 ára afmæli KA; norræn úra- samkeppni skólabarna og tann- verndarvika. Umsjón: Helga Jóna Sveinsdótt- 21.15 Benny Hill. 21.45 Hættuspil. (Rollover.) Viðskiptaheimurinn laðar til sín auðuga ekkju og kaupsýslu- mann en einhver fylgist með gerðum þeirra. Aðalhlutverk: Jane Fonda og Kris Kristofferson. 23.40 Einn skór gerir gæfumun- inn. (One Shoe Makes it Murder.) Auðugur spilavítaeigandi ræður einkaspæjara til að leita eigin- konu sinnar. Aðalhlutverk: Angie Dickinson, Robert Mitchum og Mel Ferrer. 01.15 Dagskrárlok. e RÁS 1 FIMMTUDAGUR 28. janúar 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið. Margrét Pálsdóttir talar um dag- legt mál kl. 7.55. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barnanna: „Húsið á sléttunni" eftir Lauru Ingalls Wilder. 9.30 Upp úr dagmálum. 10.00 Fréttir • Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. 11.00 Fréttir • Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. 12.00 Fréttayfirlit • Tónlist • Til- kynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Tilkynning- ar • Tónlist. 13.05 í dagsins önn - Börn og umhverfi. 13.35 Miðdegissagan: „Óskráðar minningar Kötju Mann." 14.00 Fréttir • Tilkynningar • Tónlist. 15.00 Fréttir. 15.03 Landpósturinn - Frá Norðurlandi. Umsjón: Sigurður Tómas Björg- vinsson. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið - Litli sótar- inn og börnin. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á siðdegi - Britten og Nielsen. 18.00 Fréttir. 18.03 Torgið - Atvinnumál - þróun, nýsköpun. Tónlist • Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir • Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Að utan. 20.00 Tónlistarkvöld Ríkisút- varpsins. 22.00 Fréttir • Dagskrá morgun- dagsins • Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 „Svanborg tók sér skæri, sneið hún börnum klæði." Mynd skálda af störfum kvenna. Fjórði þáttur. 23.00 Draumatíminn. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. FIMMTUDAGUR 28. janúar 7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með fréttayf- irliti, fréttum og veðurfregnum. Fastir liðir en alls ekki allir eins og venjulega - morgunverkin á Rás 2, talað við fólk sem hefur frá ýmsu að segja. Hlustenda- þjónustan er á sínum stað en auk þess talar Hafsteinn Haf- liðason um gróður og blómarækt á tíunda tímanum. 10.05 Miðmorgunssyrpa. Einungis leikin lög með íslensk- um flytjendum, sagðar fréttir af tónleikum innanlands um helg- ina og kynntar hljómplötur. 12.00 Á hádegi. Dægurmálaútvarp á hádegi hefst með fréttayfirliti. Stefán Jón Hafstein flytur skýrslu um dægurmál og kynnir hlustendaþjónustuna, þáttinn „Leitað svars" og vettvang fyrir hlustendur með „orð í eyra". Sími hlustendaþjónustunnar er 693661. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Á milli mála. Meðal efnis er Söguþátturinn þar sem tíndir eru til fróðleiks- molar úr mannkynssögunni og hlustendum gefinn kostur á að reyna sögukunnáttu sína. Umsjón: Snorri Már Skúiason. 16.03 Dagskrá. Megrunarlögreglan (hollustueft- irlit dægurmálaútvarpsins) vísar veginn til heilsusamlegra lífs á fimmta tímanum, Meinhomið verður opnað fyrir nöldurskjóður þjóðarinnar klukkan að ganga sex og fimmtudagspistillinn hrýtur af vörum Þórðar Kristins- sonar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Niður í kjölinn. Skúli Helgason fjallar um vand- aða rokktónlist í tali og tónum og lítur á breiðskífulistana. 22.07 Strokkurinn. Þáttur um þungarokk og þjóð- lagatónlist. Umsjón: Kristján Sigurjónsson. (Frá Akureyri.) 00.10 Næturvakt Útvarpsins. Guðmundur Benediktsson stendur vaktina til morguns. Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. JKISUIVA-______ AAKUREYRW Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni. FIMMTUDAGUR 28. janúar 8.07- 8.30 Morgunútvarp. 18.03-19.00 Síðdegisútvarp. Umsjón: Margrét Blöndal og Sigurður Tómas Björgvinsson. Hljóðbylgjan FM 101,8 MIÐVIKUDAGUR 27. janúar 08-12 Olga Björg Örvarsdóttir og rólegheit i morgunsárið. Afmæliskveðjur og óskalög. 12- 13 Ókynnt tónlist í hádeginu. 13- 17 Hinn fjallhressi stuðkarl Pálmi 11Bimbó,, Guðmundsson leikur gömlu, góðu tónlistina fyr- ir húsmæður og annað vinnandi fólk. 17-19 islensk tónlist i öndvegi meðan verið er að undirbúa kvöldmatinn. Stjóm- andi Ómar Pétursson. 19- 20 Tónlist á meðan kvöldmaturinn rennur niður. 20- 24 Kvöldskammturinn. Marinó V. Marinósson á léttum nótum. Fréttir klukkan 10.00, 15.00 og 18.00. 989 BYLGJAN, FIMMTUDAGUR 28. janúar 07.00-09.00 Stefán Jökulsson og morgunbylgjan. Góð morguntónlist hjá Stefáni, hann tekur á móti gestum og lit- ur í morgunblöðin. 09.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. Hressilegt morgunpopp gamalt og nýtt. 12.00-12.10 Hádegisfréttir. 12.10-15.00 Ásgeir Tómasson á hádegi. Létt tónlist, gömlu góðu lögin og vinsældalistapopp í réttum hlut- föllum. Saga dagsins rakin kl. 13.30. 15.00-18.00 Pétur Steinn Guð- mundsson og síðdegisbylgjan. Pétur Steinn leggur áherslu á góða tónhst í lok vinnudagsins. Litið á helstu vinsældalistana kl. 15.30. 18.00-19.00 Hallgrímur Thor- steinsson i Reykjavik síðdegis. Kvöldfréttatimi Bylgjunnar. Hallgrímur lítur á fréttir dagsins með fólkinu sem kemur við sögu. 19.00-21.00 Anna Björk Birgis- dóttir. Bylgjukvöldið hafið með góðri tónlist. 21.00-24.00 Júlíus Brjánsson - Fyrir neðan nefið. Júlíus fær góðan gest í spjall. 24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgj- unnar. - Felix Bergsson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.