Dagur - 15.02.1988, Síða 1
71. árgangur
Akureyri, mánudagur 15. febrúar 1988
31. tölublað
fáðu þér
Hiatjaliitffi
- þaö hressir
Hafísinn:
Siglingaleiðir færar
en fiskimið lokuð
Hafísinn við Norðurland virð-
ist á undanhaldi, a.m.k. í bili,
og siglingaleiðir ágætlega fær-
ar í björtu. Þór Jakobsson
veðurfræðingur fór í könnun-
arflug í gær og sagði hann að
ísinn hefði færst fjær landi við
Eyjafjörð og austur eftir, en á
ísbjarnarslóðum í Skagafirði
var ís enn þétt upp við strönd-
ina.
Þór sagði að enn væri töluvert
af stökum ísjökum úti fyrir
Norðurlandi og vestan og norðan
við Grímsey væri allmikill ís.
Norðurland:
Snjóflóð og
illfærir vegir
Miklum snjó hefur kyngt niður
á Norðurlandi að undanförnu
og vegir hafa víða verið ófærir
af þeim sökum og einnig hafa
snjóflóð sett strik í reikning-
inn. Snjóflóð féllu í Ólafsfjarð-
armúla á laugardaginn og var
vegurinn enn ófær í gær að
sögn lögreglunnar þar.
A Siglufirði hafa menn verið í
viðbragðsstöðu vegna snjóflóða-
hættu. Að sögn Iögreglumanns í
bænum var komið ágætis veður
þar í gær en gríðarlega mikill
snjór og þarf að leita mörg ár
aftur í tímann til að finna hlið-
stætt fannfergi. Nokkur minni-
háttar snjóflóð hafa faliið í firð-
inum, en ekkert fyrir ofan kaup-
staðinn. Almannavarnir fylgdust
þó grannt með gangi mála.
A Dalvík var sömuleiðis ágætt
veður í gær, mikill snjór og skafl-
ar þéttir. Vegurinn milli Dalvík-
ur og Akureyrar tepptist á kafla
af völdum skafrennings en var
opnaður aftur. Á Húsavík hefur
verið mikil ofankoma en vegir
sæmilega færir í gær, nema hvað
ökunienn lentu í erfiðleikum á
Tjörnesi vegna ófærðar. SS
Áskrifendagetraun Dags:
Dregið
á morgun
A morgun verður í þriðja sinn
dregið I áskrifendagetraun
Dags. Að þessu sinni er vinn-
ingurinn Kanaríeyjaferð fyrir
tvo að verðmæti um 100 þús-
und krónur.
Frestur til að skila inn getrauna-
seðlunum fyrir þennan hluta
rennur út í dag og er ástæða til að
hvetja fólk til að halda opnum
möguíeika á að vinna svo glæsi-
legan vinning.
í fjórða hluta getraunarinnar
verður dregið um vöruúttekt að
verðmæti 100 þúsund krónur, þá
kemur sumarferð fyrir tvo að eig-
in vali og loks síðasti vinningur-
inn, bifreið af gerðinni Opel
Kadett. • ET
„Við flugum norður að Kolbeins-
ey og þar er jaðarsvæði, ekki
fastur ískantur en breiðar og
langar ísspangir. Þar er enn mjög
mikill ís og þótt suðvestlægar átt-
ir hafi losað ísinn frá landi þá get-
ur hann komið fljótt aftur ef
vindur verður norðlægur," sagði
Þór.
Siglingaleiðir í Eyjafirði, aust-
ur í Skjálfanda og fyrir Melrakka-
sléttu voru orðnar greiðfærar í
gær, a.m.k. í björtu veðri, en alls
staðar voru smájakar svamlandi.
Þór sagði að tveir sjómenn sem
fóru með í könnunarflugið hefðu
sagt að ísinn lokaði fiskimiðum
við Kolbeinsey, þannig að ísinn
ér enn til vandræða þótt sjómenn
varpi vissulega öndinni léttar í
bili.
Þór sagði að spár gerðu ráð
fyrir suðlægum og jafnvel aust-
lægum vindum og ef austanáttin
nær völdum gæti ísinn færst nær
landi á Norðvesturlandi og Vest-
fjörðum. SS
Bjarndýrið unga við húshurnið í Langhúsum og Sigurbjörn Þorleifsson bóndi sem varð því að aldurtila. Mynd: -pá
Ungt bjarndýr fellt við Haganesvík
„Jú, ég var svolítið hræddur
þegar ég sá hann skjótast und-
an bátnum. Ég vissi um leið að
þetta var ísbjörn. Svo labbaði
hann niður í fjöruna og synti
inn í Mósvíkina og þar skutu
þeir hann,“ sagði Atli Þór
Ómarsson 8 ára frá Lauga-
landi. Hann kom fyrstur auga
á bjarndýrshúninn sem skotinn
var við Haganesvík í gær.
Ómar Olafsson bóndi á
- Óttast að móðir þess sé ekki langt undan
Laugalandi, faðir Atla, og
Zóphonías Frímannsson bóndi á
Syðsta-Mói voru mættir niður í
Haganesvík á ellefta tímanum í
gærmorgun. Bændurnir hugðust
fara á sjó um daginn til að vitja
um rauðmaganet. Atli litli hafði
verið að leik niðri í fjörunni og
var nýkominn inn í dráttarvél
sem nota átti við snjómokstur á
bryggjunni. Sá hann þá hvar dýr-
ið skaust undan bátnum í naust-
Arnór Diego, 18 ára Rcykvíkingur, var kosinn Herra ísland ’88. Hallgríniur
Óskarsson, tvítugur Akureyringur, var hins vegar kosinn vinsælasti kepp-
andinn. Sjá bls. 6. Mynd: ehb
inni. Ómar faðir hans kallaði
strax uppi Sigurbjörn Þorleifsson
bónda í Langhúsum, sem lagði
þegar af stað vel vopnaður.
Þegar Sigurbjörn kom í Víkina
hafði dýrið lagt til sunds og synt
í átt til Mósvíkur sem er um
tveim kílómetrum vestar. Álítur
Sigurbjörn að bangsi hafi ætlað
að komast upp á jaka sem er
skammt frá Sandósi en ekki kom-
ist upp á hann. Bangsi synti svo
upp að Mósvfkinni og sást til
hans á sundi eftir að hann hafði á
tímabili horfið sjónum manna.
Um hádegisbilið var hann svo
nýkominn upp úr fjörunni þegar
Sigurbjörn kom á hann skoti.
Dýrið er mjög ungt, talið vera
innan við ársgamalt, og aðeins
um 50 kíló á þyngd. Er óttast að
móðir þess sé ekki langt undan
og þá e.t.v með hitt ungviðið
með sér. En bjarndýr eru sögð
eiga oftast 2 afkvæmi í einu og
séu þau í fygld nióður til a.m.k.
tveggja ára aldurs. Munu bændur
í Fljótum þvt svipast um næstu
daga, en síðdegis í gær hafði ekki
unnist tími til þess. Töluverðan ís
hefur rekið þarna upp að strönd-
inni síðustu dægrin. Sigurbjörn
sagði að ekki hefði verið þorandi
annað en fella dýrið þar sem
skepnur eru þarna í nágrenninu
og fólk á ferli. Slóð sást eftir dýr-
ið frá Borginni vestan við Haga-
nesvíkina og að bátnum, þar sem
þess varð fyrst vart. Sögusagnir
eru til um hvítabirni á þessum
slóðum og mun bjarndýr seinast
hafa verið fellt þarna einhvern
tímann á áttunda tug síðustu
aldar. Síðustu fréttir herma að
nokkrir Siglfirðingar á vélsleðum
hafi séð bæli og spor eftir stærra
dýr við Hraunakrók. Verður það
kannað nánar í dag. -þá
Dalvík:
Fiskeldiskviar
færðar til hafnar
Kvíar fískeldisstöðvarinnar
Öluns hf. á Dalvík sem siað-
settar voru úti á víkinni fyrir
utan Dalvík voru á föstudaginn
fluttar inn í Dalvíkurhöfn. Um
er að ræða 6 kvíar sem í eru 25-
30 tonn af eldisfíski.
Að sögn Þórólfs Antonssonar,
framkvæmdastjóra Öluns þótti
ljóst að þegar íshrafl var komið
inn á Eyjafjörð á föstudagsmorg-
un þyrfti að grípa til aðgerða.
Strax var hafist handa við að
flytja kvíarnar og var verkinu
lokið fyrir föstudagskvöld.
Þórólfur sagði að það réðist af
vindátt næstu daga hvort veruleg-
an ís ræki inn á fjörð. Af því ráð-
ist hversu lengi þurfi að hafa kví-
arnar í höfninni.
íshrafl rak inn með vestan-
verðum Eyjafirði aðfaranótt
föstudags en á föstudaginn var
sunnan andvari og færðist því
ísinn nokkuð austur yfir fjörð.
Nánast enginn ís var kominn inn
á Ólafsfjörð á föstudag. JÓH