Dagur - 15.02.1988, Side 6

Dagur - 15.02.1988, Side 6
6’D'AGUR I—1$ i «f ébHÍari § 98B Amór Oiego er Herra ísland ’88 Aðstæður í Zebra eru ekki mjög hentugar fyrir áhorfendur. með dómnefndina í baksýn. Myndir: EHB - Hallgrímur Óskarsson kosinn vinsælasti karlmaðurinn „Herra ísland 1988 er . . . Arnór Diego,“ hrópaði Bryn- dís Schrain og áhorfendur trylltust af fögnuði, greinilega á sama máli og dómnefndin. Mikil spenna var í loftinu í Zebra sl. laugardagskvöld, svo mikil að rafmagnskerfið brann yíir og varð um hálftíma töf á keppninni af þessum sökum. Kynnir kvöldsins, Bryndís Schram, reytti af sér brandara á meðan og stytti gestum stundir. Hauksson frá Reykjavík, Stefán Pétursson frá ísafirði, Hlynur Jónsson úr Eyjafirði og Einar Þ. Karlsson, Hallgrímur Óskarsson og Hermann S. Jónsson frá Akureyri. Eftir að gestir og dómnefnd höfðu skoðað vaxtarlag kepp- enda var boðiö upp á hárgreiðslu- sýningu frá Passion og tískusýn- ingu frá Akurliljunni. Þegar keppendur áttu aö koma fram í samkvæmisfötum um kl. 22.30 fóru Ijósin að blikka ótæpilega og leikari frá Reykjavík, var síðan kosinn Herra Island 1988 og hlaut hann fyrir vikið sólarlanda- ferð með Utsýn, 100 þús. kr. fataúttekt í JMJ, pípuhatt frá Herradeild KEA, silfursleginn af Gullsmíðastofunni Skart. Vin- sælasti karlmaðurinn hlaut vöruúttekt í Sportbúðinni Sunnu- hlíð. Allir keppendurnir fengu viöurkenningu; Ijósatíma frá Stjörnusól á Akureyri og Sólar- megin í Reykjavík, Rokford snyrtivörur, árskort í Zebra á Akureyri og Evrópu í Reykjavík og blómvendi frá blómabúðinni Akri. Dómnefndina skipuðu Anna Margrét Jónsdóttir, ungfrú ísland, Birna Björnsdóttir snyrtifræðingur, Gígja Birgis- dóttir, fyrrverandi ungfrú ísland, Bjarni Hafþór Helgason sjón- varpsstjóri og Ragnar Sverrisson kaupmaður í JMJ. SS Bryndís Scliram gerði storinandi lukku, sérstaklega í rafmagnsleysinu. Peir sem lögðu leið sína í veit- ingahúsið Zebra á laugardags- kvöldið urðu vitni að fremur óvenjulegum og sjaldgæfum atburði. Fegurðarsamkeppni kvenna er daglegt brauö en karl- menn hafa ekki látið hafa sig út í slíkt. Zebra, Stjörnusól og Hijóðbylgjan ákváðu að breyta þessari hefð og halda keppnina „Herra ísland 1988" og skal henni nú lýst nánar. Upp úr kl. 21 á Inugardags- kvöldið fóru gestir að streyma inn í Zebra og komu sér fyrir á 1. og 2. hæð. Kl. 22 komu keppend- urnir 7 fram á sundskýlu, en þeir voru: Arnór Diego og ívar dóu loks út. Eftir hálftíma baráttu við rafmagnsöflin tókst að kippa þessu í lag og drengirnir gengu inn í jakkafötum frá JMJ og í Classico skóm. Dómnefnd fór nú afsíðis til að bera saman bækur sínar, en keppendur höfðu gengið fyrir nefndina fyrr um daginn þar sem þeir voru teknir í stutt viðtal og höfðu dómnefndarmeðlimir því nokkra nasasjón af kostum kepp- enda. Keppendur sjálfir kusu Itins vegar vinsælasta karlmann- inn og þann titil hlaut Hallgrímur Óskarsson frá Akureyri. Arnór Diego, 18 ára dansari og Hér sést Arnór spóka sig í sundskýlu Akureyri: Starfsmannaskipti hjá Tollgæslunni Ævar Karl Ólafsson, tollfull- trúi á Akureyri, lætur af störf- um við Tollgæsluna á Akureyri um þessar mundir. Við starfi hans tekur Sigurður Pálsson, en hann hefur starfað hjá rann- sóknadeild Tollstjóraembættis- ins í Reykajvík frá árinu 1983. Ævar Karl Ólafsson hóf störf hjá bréfapóststofunni á Akureyri vorið 1962, og hefur hann því starfað í 26 ár í opinberri þjón- ustu. Hann starfaði sem póstfull- trúi til ársins 1974, en 1. sept- ember það ár hóf hann störf við Tollgæsluna á Akureyri. Auk þess hefur hann sinnt öðrum trúnaðarstörfum á vegum hins opinbera á Akureyri. Ævar hefur verið virkur félagi í Lúðrasveit Akureyrar um áratugaskeið. „Eg hef átt góð samskipti við viðskiptavini Tollgæslunnar og kynnst ntörgu góðu fólki á þess- nt tíma," sagði Ævar. „Ég akna auðvitað margs hér í bæn- um því hér hef ég dvalið allan minn aldur og hér á ég ágæta vini. Ég kvíði því þó ekki að flytja til Reykjavíkur því ég mun - Ævar Karl Ólafsson lætur af störfum en Sigurður Pálsson tekur við starfa áfram við tollgæslu þar, auk þess sem ég á einnig góða vini og kunningja í höfuðborg- inni,“ sagði Ævar. Blaðamaður spurði Ævar Karl um hvaða breytingar hefðu orðið á vinnuaðstöðu við tollgæslu á Akureyri síðan hann hóf störf. „Þetta hefur mikið breyst þvj við vorum í húsnæði sem vaí bæði kalt og of lítið áður en við feng- um inni hjá Eimskipafélaginu um 1980. Ég hef að vísu alltaf haft áhuga fyrir því að breyta vinnu- tilhöguninni hérna í þá veru að allur útreikningur og afgreiðsla geti farið fram í sama húsnæði, en þetta hefur ekki hlotið hljóm- grunn hér. Þó er ég ekki í vafa um að slíkt væri mun einfaldara fyrir alía afgreiðslu á tollskjölum. Innflutningur hefur aukist geysilega mikið frá 1974 og margt hefur breyst í þeint efnum á fjór- tán árum. Vörutegundir eru ntun fjölbreyttari og vörumeðferð er betri, því miklu núnna skemmist í gámaflutningum. Að lokum vil ég þakka öllu samstarfsfólki mínu og sendi kveðjur til þeirra fjölmörgu aðila sem reglulega leita hingað vegna innflutnings. Síðast en ekki síst vil ég minnast ánægjulegrar sam- vinnu og nábýlis við Eimskipafé- lag íslands gegnum árin,“ sagði Ævar að lokum. Sigurður Pálsson, tollvörður, fæddist á Akureyri árið 1953. Hann fluttist barn að aldri til Reykjavíkur, en dvaldi þó oft á Akureyri á sumrum ásamt móður sinni, Þóru Aðalheiði Sigtryggs- dóttur. Faðir Sigurðar heitir Páll Þórir Jóhannsson, frá Stokkseyri. Kona Sigurðar heitir Sigurbjörg Guðmundsdóttir, fædd á Sauðár- króki en að mestu uppalin á Mar- bæli í Seyluhreppi í Skagafirði. Sigurður starfaði að vélvirkjun áður en hann gekk í þjónustu Tollgæslunnar fyrir 5 árum. „Það er mikil tilbreyting að koma hing- að frá erlinum í Reykjavík,“ sagði Sigurður. „Hér kynnist maður fólki e.t.v. betur og mér finnst allt vera miklu persónu- legra en fyrir sunnan. Það má segja að það hafi blundað löngun í okkur hjónunum um lagt skeið í þá veru að flytja til Akureyrar.“ EHB Á skrifstofu Tollgæslunnar. F.v.: Ævar Karl Olafsson og Sigurður Pálsson.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.