Dagur - 15.02.1988, Side 16

Dagur - 15.02.1988, Side 16
DACKJR Akureyri, mánudagur 15. febrúar 1988 Hafið þið reynt okkar þjónustu? cpediömyndir’ Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520. £j Ökumenn á Akureyri: Leggja gjarnan ólöglega Á síðasta ári voru 1985 öku- menn sektaðir fyrir ólöglega stöðu bifreiða sinna á Akur- eyrlog er þetta töluverð aukn- ing frá árinu áður. Auk þess voru 700 ökumenn sektaðir fyrir að hafa ekki greitt í stöðu- mæla. Flestir ökumenn sem kærðir voru fyrir ólöglega stöðu bifreiða höfðu lagt í portinu sunnan við Skipagötu 14, eða sunnan Al- þýðubankans. Þessir ökumenn voru 576, 401 var kærður fyrir að leggja á gangstétt og 276 fyrir að leggja við norðurenda göngugöt- unnar. Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryf- irlögregluþjónn sagði í samtali við Dag að ástæða þessarar fjölg- unar væri fyrst og fremst aukið eftirlit. Hann sagði það mjög slæmt þegar ökumenn leggja í portinu við bankann. Þarna væri um göngustíg að ræða og ekki væru nema 200-300 metrar í stærsta bílastæði bæjarins þar sem yfirleitt alltaf er hægt að fá bílastæði. Með því að leggja fyrir endum göngugötunnar kæmu ökumenn í veg fyrir að sjúkra- og/eða slökkvibílar kæmust að ef þörf væri á. Við Sundlaugina voru 70 öku- menn kærðir fyrir ölöglega lagn- ingu bíla, og benti Ólafur á að skammt frá t.d. við gamla Iðn- skólann og íþróttahöllina væri gnægð stæða. VG Á þessum stað eru margir bílstjórar kærðir dag hvern fyrir að leggja ólög- lega. Lögreglan á Akureyri beinir því eindregið til ökumanna að virða rétt hinna gangandi, en þarna er um göngustíg að ræða. Skammt er í stærsta bíla- stæðið í bænum eða aðeins nokkur hundruð metrar. Mynd: tlv Húsavík: Könnun á húsnæðis- þörf aldraöra - „Alltaf bætist á biðlistann,“ segir Hörður Arnórsson forstöðumaður Hvamms Trúnaðarráð Dvalarheimilis aldraðra sf. gerði könnun á áhuga aldraðra fyrir frekari uppbyggingu íbúða á vegum félagsins í formi búseturéttar- íbúða. Svara var óskað fyrir 5. febrúar sl. Hörður Arnórsson, forstöðu- maður Hvamms, heimilis aldr- aðra á Húsavík sagði að fyrir könnunina hefði verið búið að skrá nokkra aðila sem áhuga hefðu á búseturéttaríbúð og nú hefðu níu manns bæst við. Trún- aðarráð hefði þó átt von á að fleiri létu skrá sig miðað við fyrir- spurnir að undanförnu. Við Hvamm hafa verið byggð sjö hús, 88 fm að stærð, sam- kvæmt búseturéttarkerfinu og sagði Hörður að þetta fyrirkomu- lag hefði gefist vel. Fólkið væri mjög ánægt og húsin þægileg í alla staði auk þess sem íbúum þeirra gæfist kostur á þjónustu á Hvammi. Stjórn dvalarheimilisins mun halda fund nú í mánuðinum og fara að huga að byggingu fleiri íbúða. Haft verður samráð við aldraða um hvernig hús þeir vilja fá, hvort um verður að ræða raðhús, hús svipuð þeim sem fyr- ir eru eða aðrar gerðir íbúða. Aðspurður sagði Hörður að alltaf bættist við biðlistann á Fjölskyldan Kringlumýri 4: r Fekk 100 þúsund króna afslátt - á heimilistækjum frá Akun/ík Stefán G. Jónsson og fjöl- skylda hans misstu allt sitt innbú er heimili þeirra að Kringlumýri 4 eyðilagðist í eldsvoða skömmu fyrir jól. Með aðstoð ættingja, vina og annarra greiðvikinna manna hefur þeim tekist að hefja endurbyggingu á húsinu og þau stefna að því að ílytja inn fyrir páska. Stefán sagði í viðtali við Dag fyrir skömmu að hann væri lítiö farinn að huga að innbúi, mestu máli skipti að fá þak yfir höfuðið. Þau hjónin, Stefán og Sigríöur Jónsdóttir, fóru þó á stúfana og hittu forsvarsmenn Akurvíkur að rnáli og þar var tekið á nióti þeim af góðvild og hlýhug. „Megnið af heimilistækjum og hljómtækjum þeirra hafði oröið eldinum að bráð og við tókum vel í það að hjálpa þeim eins og við gætum. Við höföum einnig sam- band við innflytjendur tækjanna í Reykjavík, þ.e. Heimilistæki og Gunnar Ásgeirsson og Vöru- markaðinn. Útkoman varð 100.000 króna afsláttur, rniðað við það verð sem gilti fyrir hækk- unina 1. janúar síðastliðinn," sagði Guðmundur Þórðarson forstjóri Akurvíkur. Sannarlega vel að verki staðið hjá Akurvík og mikilvægt fyrir tjölskylduna að vita að hún á hvarvetna góða að. Starfsfólk Akurvíkur bað fyrir kveðjur og sagðist vona að Sigríður, Stefán og börn þeirra myndu njóta tækj- anna vel. SS Hvammi manns á þar. og nu væru biðlista eftir yfir 100 húsnæði IM Guðinundur Þórðarson í Akurvík er hér með Stefáni G. Jónssyni og Sigríði Jónsdóttur fyrir framan heimilistækin. Mynd: EHB Fóstrumál á Sauðárkróki: „Ástandið ekki mjög slæmt“ - segir félagsmálastjóri bæjarins „Okkur vantar fóstrur, en þaö er ekki hægt að segja að ástandið sé mjög slæmt í fóstrumálunum hjá okkur. A.m.k. ekki ef tekið er mið af fóstruskortinum víða um land,“ sagði Matthías Viktors- son félagsmálastjóri Sauðár- króksbæjar í samtali við Dag. Matthías sagði forstöðumenn beggja leikskólanna vera fóstrur. Fóstra hefði komið til starfa á Furukoti í haust og von væri á annarri með vorinu. Þá yrðu þær orðnar 3 í Furukoti, sem væri alveg viðunandi. Aftur á móti vantar fóstur á Glaðheima. Þar er forstöðumaðurinn eina fóstran á heimilinu. Ástæðan fyrir því að fóstra mundi bætast við í Furu- koti í vor en ekki Glaðheimum, sagði Matthías vera þá, að hún hefði sérstaklega sótt um þar. Þá starfar við leikskólana einn þroskaþjálfi, sem skiptir degin- um á milli heimilanna. Að sögn Matthíasar hefur verið reynt að liðka til fyrir fóstrum varðandi húsaleigumál á svipaðan hátt og gert er þegar kennarar eru ráðnir til starfa í bæinn. Samningarnir: Býsna mikil bjartsýni Fulltrúar Verkamannasam- bands íslands og Vinnuveit- endasambands Islands héldu áfram samningaviðræðum í gær í þremur hópum. Einn hópanna fjallaði um fiskvinnsl- una, annar um ræstingu og mötuneyti og sá þriðji um yfir- vinnu, en yfirvinnan brennur mjög á Verkamannasamband- inu sem vill einn yfirvinnu- taxta, en ekki aðgreiningu á eftir- og næturvinnu. Lítið virðist hafa þokast í sam- komulagsátt um helgina en menn eru tilbúnir að halda áfram við- ræðum og hefur nýr fundur verið boðaður kl. 3 í dag. Austfirðing- ar hafa verið lítt hrifnir af kröfu- gerð Verkamannasambandsins en þeim er að snúast hugur og ntunu að öllunt líkindum taka þátt í viðræðunum á næstu dög- um og vonast menn til að árangur muni nást í þessari lotu. SS

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.