Dagur - 23.02.1988, Blaðsíða 1
71. árgangur Akureyri, þriðjudagur 23. febrúar 1988 37. tolublað
Full búð
af nýjum
vörum
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Norsku flóðabílamir
eru byrjaðir að gefa sig
- segja starfsmenn Subaru-umboðsins um bílana sem flæddi í við Drammen
„Við erum búnir að afgreiða
varahluti í mörg ár og vitum
alveg hvað er að gerast. Menn
vakna upp við það einn góðan
veðurdag að bfllinn er bilaður.
Það liggur á borðinu að bilanir
í þessum bílum fara vaxandi,“
sagði Jóhann Guðjónsson,
starfsmaður í varahlutadeild
Ingvars Helgasonar hf. í
Reykjavík.
„Það er rétt, að menn eru farn-
ir að kaupa hjólalegur, kúpl-
ingslegur o.fl í flóðabílana.
Einnig hefur verið beðið um
„relay“, en það er rofi í sambandi
við rafdrifnar rúður. Það kom
t.d. eitt slíkt „relay“ úr flóðabíl
hingað í verslunina, og það var
þakið spanskgrænu. Þetta tiltekna
„relay“ er staðsett hátt í bílun-
um, ofarlega í hurð eða mæla-
Akureyri:
Athugun á sam-
komustöðum
- með tilliti til eldvarna
og öryggismála
Fyrirhugað er að byggingafull-
trúi og slökkviliðsstjóri á
Akureyri framkvæmi skoðun á
samkomustöðum í bænum um
þessar mundir. Tilgangurinn er
að gera úttekt á þeim stöðum,
þar sem fólk safnast saman,
með það fyrir augum að benda
á atriði sem betur mættu fara
með tilliti til eldvarna og ann-
arra öryggismála.
Tómas Búi Böðvarsson,
slökkviliðsstjóri, sagði að með
samkomustöðum væri átt við
skemmtistaði, kvikmyndahús,
hótel, salarkynni fyrir 60 manns
eða fleiri, og viðlíka húsnæði.
Hér er um viðamikið verk að
ræða, og er áætlað að það taki
tvo til þrjá mánuði.
Það skal tekið fram, að hér er
um frumkvæði slökkviliðs og
byggingafulltrúa að ræða á Akur-
eyri, en ekki ákveðna tilskipun
frá öðrum aðilum að átak sé gert
í úttekt á brunavörnum og öryggi
samkomustaða. EHB
borði, þannig að allt bendir til að
mikið hafi flætt inn í bílinn,“
sagði Jóhann.
- En vita starfsmenn Ingvars
Helgasonar hf. það fyrir víst að
þessir varahlutir eru keyptir í
flóðabílana en ekki aðra bíla?
„Við vitum það örugglega þegar
menn eru aðTcaupa svona hluti í
nýja bíla og kannski 2-3 kúpl-
ingslegur í einu, og taka það fram
að þetta sé í árgerð 1987. Það er
saltið, sem skemmir legurnar á
skömmum tíma. Við vissum, að
vatn var á drifum, t.d., en þeir
hlutir sem eru í mestri hættu eru
sá hluti rafkerfisins, sem er inni í
bílnum. í venjulegum Subaru eru
þrjú „relay“ í gólfinu á bílnum,
og nítján óvatnsvarðar rafmagns-
kúplingar. Þegar straumur kem-
ur á þessa hluti eftir saltbaðið
myndast spanskgræna, og við vit-
um að þessir hlutir eru að bila,“
sagði Jóhann að lokum.
Sigurður Valdimarsson er með
umboð fyrir Subaru og Nissan á
Akureyri. Hann sagði, að mikið
væri spurt um legur í alternatora,
fóðringar í startara og díóðumót-
stöður fyrir túrbínuvélar í Subaru
flóðabílana, og kæmu þessar
fyrirspurnir frá Reykjavík.
Blaðamaður sá ennfremur mynd-
band af flóðunum, þar sem öldur
brotnuðu á framrúðum sumra
Subaru-bílanna. Það skal tekið
fram, að eins árs ábyrgð er á
flóðabílunum. EHB
Nagladekkin
hafa spœnt upp
götur á Akureyri
og þarfnast þœr
lagfœringar við.
Mynd: TLV
Mikið slit á götum:
Innflutt granít til að gera
malbikið endingarbetra?
Þegar snjóar hafa minnkað á
götum Akureyrar undanfarna
daga, hafa skemmdir á götum
- ekki á þessu ári, segir yfirverkfræðingur
komið berlega í Ijós og sums
staðar virðast göturnar vera
mjög illa farnar.
Tívolíbombur:
Rannsókn á lokastigi
ttnn/ilrM HnMMn/\lr„nul/v/. ' ■ • . ■
Rannsókn rannsóknarlög-
reglu ríkisins á Tívolíbombun-
um er nú á lokastigi. Þeirra
þáttur rannsóknarinnar, sem
snýr að því að rannsaka áverka
sem mennirnir er slösuðust
fengu, yfirheyrslu á þeim og
nálægum vitnum er langt
kominn.
Tæknihlið rannsóknarinnar er
unnin af Landhelgisgæslunni, en
þegar þeirra þætti rannsóknar-
innar lýkur verður saksóknara
skýrt frá niðurstöðum. Landhelg-
isgæslan hefur enn ekki skilað sín-
um skýrslum.
Það verður síðan dómsmála-
ráðuneytið sem sker úr um hvort
sala á þessum flugeldum verður
alfarið bönnuð eður ei. VG
Sú gata sem hvað verst hefur
orðið úti er Tryggvabrautin en að
sögn Guðmundar Guðlaugssonar
yfirverkfræðings hjá Akureyrar-
bæ er það svipað og menn gátu
búist við.
Skýringin á þessum malbiks-
skemmdum er sú að þegar nagla-
dekk hafa spænt götuna upp, og
slitlagið orðið þunnt, þá brotnar
það hreinlega undan þunga bíl-
anna þegar þiðnar. Undirlagið er
þá viðkvæmara og lætur eftir.
Síðastliðið haust var eins og
menn muna nær tveggja mánaða
snjólaus kafli eftir að flestir bílar
voru komnir á nagiadekk, og
vafalaust er slit því meira nú en
venjulega.
Tvennt kemur til greina til að
draga úr sliti á inalbiki. Annars
vegar er um það að ræða að stytta
leyfilegan notkunartíma á nagla-
dekkjum en að sögn Guðmundar
hefur slíkt ekki komið til tals.
Hinn möguleikinn hefur verið
ræddur, en hann er að setja end-
ingarbetri steinefni í malbikið en
hið íslenska basalt.
Fyrir nokkrum árurn var gerð
tilraun með norskt granít í mal-
biki í Reykjavík og víðar. Guð-
mundur sagði þetta koma vel til
greina en af því myndi þó ekki
verða á þessu ári. ET