Dagur - 23.02.1988, Blaðsíða 13

Dagur - 23.02.1988, Blaðsíða 13
 hér & þar Don Johnson og Barbara Streisand: Nýjasta paríð í Hollywood huggulegar. Þetta er í fyrsta sinn sem hann velur sér eldri konu og Streisand er ekki beinlínis fríð. Það tala allir um þau sem „Fríðu og Dýrið" þegar þau eru saman. Don er brúnn, grannur, gengur í tískufötum og er mjög myndar- legur, en Barbara er föl, of feit og hallærisleg. Þrátt fyrir þetta er hún það eina sem hann talar um nú orðið. Þeir sem komu til að horfa á heimsmeistarakeppnina í þunga- vigt, þar sem Tyson og Holmes áttust við, urðu mjög undrandi þegar saman komu stormandi Don Johnson og Barbara Streis- and, en vinir þeirra segja að framundan sé ástarsamband milli þeirra. Þetta var þeirra fyrsta opin- bera stefnumót, en þau munu hafa þekkst í u.þ.b. eitt ár og hafa hist nokkrum sinnum um síðustu jól í Aspen. Þar fóru þau saman í samkvæmi, dönsuðu, töl- uðu og hlógu mikið saman. „Á þessum tíma „gerðist“ eitthvað milli okkar,“ sagði Streisand vini sínum. „Don er einhver áhuga- verðasti maður sem ég hef hitt lengi og við höfum orðið góðir vinir á stuttum tíma.“ Vinur Johnson’s sagði Don hafa sagt sér að hann og Barbara nytu þess að vera saman, „það er mjög gaman að tala við hana og hún hlustar vel,“ sagði hann. Johnson var fyrst kynntur fyrir henni í febrúar 1987 þegar Grammy verðlaunin voru afhent í Los Angeles. Þegar þau voru kynnt hafði Don sagt við hana: „Ég er mikill aðdáandi þinn og mér finnst þú frábær." Barbara svaraði með því að segja: „Ég er líka mikill aðdáandi þinn. Þú ert ekki aðeins hæfileikamikill leik- ari, því ég hef heyrt plöturnar þínar og þú hefur góða söngrödd.“ Þau ku hafa talað saman í um 15 mínútur, lofað hvort öðru að hittast sem fyrst aftur en sakir anna mun ekkert hafa getað orðið af því. Þau munu þó hafa hringt einstaka sinnum hvort til annars á þessu 10 mánaða tímabili. Um jólin rákust þau svo hvort á annað í Aspen, rétt um það leyti að Streisand var nýskilin við unnusta sinn, Richard Baskin. Eftir jól, hafa þau verið í síma- sambandi hvort við annað, þar til Johnson bauð henni með sér að sjá hnefaleikakeppnina, sem hún þáði strax. Don og Barbara gengu í salinn um tíu mínútum áður en keppnin hófst og héldust í hendur. Þau hefðu getið látið minna fyrir sér fara með því að koma inn bak- dyramegin, en nei, þau komu inn um aðaldyrnar og gengu framhjá blaðamannasætunum svo þau fóru ekki framhjá neinum. Stjörnuparið sat svo á fremsta "*ð bekk á meðan keppnin fór fram og gerðu mikið af því að hlæja og hvísla hvort að öðru. Eftir keppnina fóru þau saman á spila- víti og léku rúllettu. Blaðafulltrúi Johnson’s full- yrðir að ekki sé um ástarsamband á milli þeirra að ræða, en bætti þó við: „Don og Barbara kunna vel hvort við annað. Vinir Don’s segja að það myndi ekki koma þeim á óvart þó að um alvarlegra samband yrði að ræða. „Sú ákvörðun þeirra að vera saman opinberlega sýnir alvöruna hjá þeim. Don getur valið úr fallegum stúlkum, en Barbara hefur svo margt annað fram að bjóða. Þau hafa ekki aðeins sameiginlegan áhuga á tónlist, heldur eiga þau margt annað sameiginlegt.“ Annar vinur segir: „Don er vanur að vilja hafa dömurnar Sömu sögu er að segja um Bar- böru og hún sagði vinkonu sinni að þau væru til og með að hugsa um að gefa út plötu saman. Hún sagði vinkonu sinni sömuleiðis að hann hefði boðið henni að vera með í þætti um Undirheima Miami og hún varð yfir sig hrifin. „Mér finnst æðislegt að vera með þessum náunga," hafði hún sagt. Barbara ku gjarnan vilja sjá meira af Don og kunnugir segja þess ekki langt að bíða að róm- antíkin muni blómstra milli þeirra. ra dagskrá fjölmiðla SJONVARPIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. febrúar. 17.50 Ritmálsfréttir. 18.00 Bangsi besta skinn. (The Adventures of Teddy Ruxpin). 18.25 Háskaslódir. (Danger Bay.) 18.50 Fréttaágrip og táknmáls- fréttir. 19.00 Poppkorn. 19.30 Matarlyst - Alþjóðlega matreiðslubókin. Umsjónarmaður: Sigmar B. Hauksson. 19.50 Landið þitt - ísland. Endursýndur þáttur frá 20. febrúar sl. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Svarthornamenn á veiðum. (Hornrabenmenschen.) Þýsk heimildamynd um ættflokk í Afríku sem hefur tamið sér afar sérstæðar veiðiaðferðir. 21.05 Reykjavíkurskákmótið. Bein útsending frá Hótel Loft- leiðum. Umsjón: Ingvar Ásmundsson og Hallur Hallsson. 21.15 Nýju umferðarlögin. Umsjónarmaður: ÓmarRagnars- son. 22.00 Paradís skotið á frest. (Paradise Postponed.) Áttundi þáttur. 22.50 Vetrarólympíuleikarnir í Calgary. Helstu úrslit. 23.00 Útvarpsfréttir í dagskrár- lok. SJONVARP AKUREYRI ÞRIÐJUDAGUR 23. febrúar 16.45 Sjaldan er ein báran stök. (Starcrossed.) Ung stúlka frá ókunnri plánetu er elt uppi af óvinum og leitar skjóls á plánetunni jörð, nánar tiltekið í stórborg í Bandaríkjun- um. Piltur á jörðinni verður hrif- inn af þessari dularfullu stúlku sem ekkert vill láta uppi um uppruna sinn og hefur ekki smekk fyrir hamborgurum. 18.20 Max Headroom. 18.45 Buffalo Bill. 19.19 19:19 20.30 Ótrúlegt en satt. (Out of this World.) 20.55 íþróttir á þriðjudegi. 21.55 Hunter. 22.40 Kardínálinn. (Monsignor.) írskur kardínáli á í vafasömum viðskiptum í góðum tilgangi, þ.e. samkvæmt eigin mati. 00.40 Svikari. (Traitor.) Háttsettur starfsmaður bresku leyniþjónustunnar rannsakar störf eins undirmanns sem hann hefur grunað um græsku. 01.35 Dagskrárlok. © RÁS 1 ÞRIÐJUDAGUR 23. febrúar. 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barnanna: „Húsið á sléttunni" eftir Lauru Ingalls Wilder. 9.30 Dagmál. 10.00 Fréttir • Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. 11.00 Fréttir • Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. 12.00 Fréttayfirlit • Tónlist • Til- kynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir Til- kynningar • Tónlist. 13.05 í dagsins önn - Hvað segir læknirinn. 13.35 Miðdegissagan: „Á ferð um Kýpur" eftir Olive Murray Chapman. 14.00 Fréttir • Tilkynningar. 14.05 Djassþáttur. 15.00 Fréttir. 15.03 Þingfréttir. 15.20 Landpósturinn - Frá Suðurlandi. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. Framhaldssagan um Baldvin Píff hinn þefvísa spæjara. Skari símsvari rekur inn nefið og lætur gamminn geysa. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Saint- Saéns og Gade. 18.00 Fréttir. 18.03 Torgið - Byggðamál. Tónlist • Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. 19.40 Glugginn - Leikhús. 20.00 Kirkjutónlist. 20.40 Börn og umhverfi. 21.10 Norræn dægurlög. 21.30 Útvarpssagan: „Þrítugasta kynslóðin" eftir Guðmund Kamban. 22.00 Fréttir • Dagskrá morgun- dagsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma. Séra Heimir Steinsson les 19. sálm. 22.30 Leikrit: „Mangi grásleppa" gamanþáttur eftir Agnar Þórð- arson. 23.25 íslensk tónlist. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. & ÞRIÐJUDAGUR 23. febrúar 7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með fréttayfir- liti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00. Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Fregnir af veðri, umferð og færð og litið í blöðin. Viðtöl og pistlar utan af landi og frá útlöndum og morg- untónlist við allra hæfi. 10.05 Miðmorgunssyrpa. M.a. verða leikin þrjú uppá- haldslög eins eða fleiri hlustenda sem sent hafa Miðmorgunssyrpu póstkort með nöfnum laganna. Umsjón: Kristín Björg Þorsteins- dóttir. 12.00 Á hádegi. Dægurmálaútvarp á hádegi hefst með yfirliti hádegisfrétta kl. 12.00. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Á milli mála. Umsjón: Rósa Guðný Þórsdóttir. 16.03 Dagskrá. Flutt skýrsla dagsins um stjórnmál, menningu og listir og það sem landsmenn hafa fyrir stafni. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Spurningakeppni fram- haldsskóla. Önnur umferð, 2. lota: Menntaskólinn að Laugarvatni - Fjölbrautaskóli Suðurnesja. 20.00 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi. 22.07 Bláar nótur. Djass og blús. 23.00 Af fingrum fram. - Gunnar Svanbergsson. 00.10 Vökudraumar. 01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í nætur- útvarpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00 verð- ur endurtekinn frá föstudegi þátturinn „Ljúflingslög*1 í umsjá Svanhildar Jakobsdóttur. Veðurfregnir kl. 4.30. / FM 102,2 4104 ÞRIÐJUDAGUR 23. febrúar 07.00-09.00 Morgunþáttur Þorgeirs Ástvaldssonar. 09.00-12.00 Jón Axel Ólafsson sér um seinni hluta morgunþátt- ar. 12.00-13.00 Hádegisútvarp með Bjarna Degi Jónssyni. 13.00-16.00 Helgi Rúnar Óskars- son. Létt lög við vinnuna og námið. 16.00-18.00 Mannlegi þátturinn. Árni Magnússon. 18.00-19.00 íslenskir tónar. Sígild íslensk dægurlög. 19.00-20.00 Gullaldartónlist rokksins. 20.00-21.00 Breski vinsældalist- inn. 21.00-24.00 Síðkvöld á Stjörn- unni. 24.00-07.00 Næturútvarp Stjörn- RlKJSUIV/ ÁAKUl V/ARPfÐ^ V AKURJEYRlJ Svædisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni. ÞRIÐJUDAGUR 23. febrúar 8.07- 8.30 Svædisútvarp Nordur- lands. 18.03-19.00 Svæöisútvarp Nordur- lands. Umsjón: Gestur Einar Jónasson. FM 102,8 ÞRIÐJUDAGUR 23. febrúar 08.00-11.00 Salt-hnetur. Kynning á opnum dögum og tónlist í bland. Umsjón: Stefán og Stefán. 11.00-14.00 Spennum beltin. Gummi og Maggi greina frá umbyltingu stundaskráa, spila tónlist og verða með ýmsan fróð- leik. 14.00-17.00 Örbylgjupopp. Helgi og Jón Stefán segja frá skíðaferð nemenda og spila góða tónlist. 17.00-20.00 Rymtur. Árni Þór og Jónas Þór leika laus- um hala um miðbik dags. 20.00-21.00 Viðtalið. 21.00-24.00 AUir daudir fyrir hlé. Afleitur skíðamaður tekinn í létt spjall. Umsjón: Jón H. og Rúnar. Hljóðbylgjan FM 101,8 ÞRIÐJUDAGUR 23. febrúar. 08-12 Morgunþáttur. Olga Björg kemur Norðlending- um á fætur með tónlist og spjalli um daginn og veginn. Upplýs- ingar um veður og færð. 12- 13 Ókynnt tónlist. 13- 17 Pálmi Guðmundsson á léttu nótunum með hlustend- um. Gullaldartónlistin ræður ríkjum að venju. Síminn hjá Pálma er 27711. 17-19 Ómar Pétursson og íslensku uppáhaldslögin. Ábendingar um lagaval vel þegnar. Síminn er 27711. Tími tækifær- anna klukkan hálf sex. 19- 20 Ókynnt tónlist. 20- 22 Alvörupopp. Stjórnandi Gunnlaugur Stefáns- son. Gæðatónlist frá flytjendum á borð við U2, Japan, Bowie, Syk- urmola, Smiths og fleiri. 22-24 Kjartan Pálmason leikur ljúfa tónlist fyrir svefninn. Fréttir sagðar kl. 10.00, 15.00 og 18.00. 989 BYLGJAN ÞRIÐJUDAGUR 23. febrúar 07.00-09.00 Stefán Jökulsson og Morgunbylgjan. Stefán kemur okkur réttum meg- in fram úr með góðri morguntón- list. Spjallað við gesti og litið yfir blöðin. 09.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. Hressilegt morgunpopp gamalt og nýtt. Getraunir, kveðjur og sitthvað fleira. 12.00-12.10 Fréttir. 12.10-15.00 Ásgeir Tómasson á hádegi. Létt tónlist, innlend sem erlend - vinsældalistapopp og gömlu lögin í réttum hlutföllum. Saga dagsins rakin kl. 13.30. 15.00-18.00 Pétur Steinn Guð- mundsson og Síðdegisbylgjan. Pétur Steinn leggur áherslu á góða tónlist í lok vinnudagsins. Litið á vinsældalistana kl. 15.30. 18.00-19.00 Hallgrímur Thor- steinsson i Reykjavík siðdegis. 19.00-21.00 Bylgjukvöldið hafið með góðri tónlist. 21.00-24.00 Þorsteinn Ásgeirs- son. Tónlist og spjall. 24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgj- unnar. - Bjami Ólafur Guðmundsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.