Dagur - 23.02.1988, Blaðsíða 7

Dagur - 23.02.1988, Blaðsíða 7
3231 febrúar 198& 4 DAGUR - 7 Frá blaðamannafundinum í Amtsbókasafninu, talið frá vinstri: Ingólfur Ármannsson, skóla- og mcnningarfulltrúi, Ágúst Berg, húsameistari, Sigríður Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, Þóroddur Jóhannsson, varafulltrúi í menningar- málanefnd, Gunnar Ragnars, formaður menningarmálanefndar og Lárus Zophoníasson, amtsbókavörður. Mynd: ss Útboð Akureyrarbæjar: Nýbygging við Amtsbókasafnið - Amtsbókasafn, Héraðsskjalasafn og listadeild Nýverið var haldinn blaða- mannafundur í Amtsbókasafn- inu á Akureyri í tilefni af sam- keppni um hönnun nýbygging- ar við safnið. Þrír dómnefnd- armenn, þau Gunnar Ragnars, forseti bæjarstjórnar, Sigríður Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, og Agúst Berg, húsameistari Akureyrar, ásamt þeim Lárusi Zophoníassyni, amtsbókaverði og ritara dómnefndar, Ingólfi Armannssyni, menningarfull- trúa og Þóroddi Jóhannssyni, varafulltrúa í menningarmála- nefnd, kynntu nýútkomna keppnislýsingu. „Upphaf málsins er það að á 125 ára kaupstaðarafmæli Akur- eyrar í haust var samþykkt í bæjarstjórn að gera nýbyggingu við Amtsbókasafnið. Þetta var gjöf Akureyrar til sjálfrar sín á þessum tímamótum og í fram- haldi af því var menningarmála- nefnd falið málið. Hún ákvað að láta fara fram samkeppni um þessa byggingu. Ástæðan fyrir því að samkeppnisleiðin var farin er sú að við teljum þetta við- kvæman stað og viðkvæma bygg- ingu og við töldum heppilegast að láta fara fram samkeppni meðal arkitekta,“ sagði Gunnar Ragnars í upphafi fundarins. Þar með hefur samkeppnin verið auglýst og skilafrestur er til 18. maí. Dómnefnd áætlar að úrvinnslu verði lokið í júní og úrslitin liggi þá fyrir. Aðspurður sagðist Gunnar ekkert geta sagt um framkvæmdahraða, hann yrði að ráðast af efnum og aðstæðum hverju sinni. Á þessu ári er t.a.m. gert ráð fyrir 3 milljónum í hönnunarkostnað, en verðlaun í samkeppninni nema 1,3 milljón- um króna. Hlutverk nýja hússins þríþætt Lóð Amtsbókasafnsins á horni Brekkugötu og Oddeyrargötu er á mörkum miðbæjarskipulagsins. Keppendur fá uppdrátt af lóðar- mörkum og er ætlast til að þeir skipuleggi lóð, s.s. aðkomuleiðir, bílastæði o.s.frv. Mikill halli er á lóðinni að Brekkugötu og þétt byggð í kring og því er mikilvægt að ný bygging falli vel að lands- lagi og núverandi byggingu. Við norðausturhlið Amtsbóka- safnsins standa tvö illa farin 70 ára gömul silfurreynitré. Lífaldur silfurreynis á íslandi er 70-100 ár og þurfa keppendur ekki að taka tillit til trjánna. Gert er ráð fyrir að húsið Brekkugata 21 víki af lóðinni. Keppendur þurfa því ekki að taka tillit til þess í tillög- um sínum. En hvert er hlutverk nýrrar byggingar? „Hlutverk nýja hússins er í megindráttum þríþætt. í fyrsta lagi þarf Amtsbókasafnið sjálft meira húsrými og það er gert ráð fyrir því að það fái nýtt og stærra húsnæði í þessari byggingu, ekki síst með tilliti til geymslurýmis fyrir bækur, skjöl og muni. Ánn- ar liðurinn er Héraðsskjalasafnið sem er hér líka þótt við tölum alltaf um Amtsbókasafn. Það er gert ráð fyrir að Héraðsskjala- safnið fái aukið húsrými og geymslupláss í þessari nýbygg- ingu. í þriðja lagi hefur það löng- um verið í umræðunni á Akur- eyri að hér vantaði aðstöðu fyrir ýmsa menningarviðburði, s.s. málverkasýningar og minni tón- leika, og um það hefur verið rætt allt frá því hugmyndin að nýbygg- ingunni kom upp, að slá tvær flugur í einu höggi. Bæta aðstöðu safnanna og skapa aðstöðu fyrir menningarstarfsemi," sagði Gunnar Ragnars. Myndlistarsalur og fjölnýtisalur Lítum þá á stærð og skipan nýbyggingarinnar. Nettóflatarmál er 1.225 fermetrar og skiptist á eftirfarandi hátt: Amtsbókasafn 300 m , Héraðsskjalasafn 315 m , listadeild 390 m\ forsalur og almennt húsrými 200 m og að- staða starfsfóiks 20 m\ Listadeildin skiptist að mestu í tvennt: Myndlistarsal og fjölnýti- sal. Þá er gert ráð fyrir málverka- geymslu, aðstöðu fyrir umsjón- armann listasafns, vinnuaðstöðu fyrir sýningar, fundaherbergi, aðstöðu fyrir tæknifólk og geymslu fyrir leikmuni, hljóðfæri o.fl. í bæklingi sem Akureyrarbær gaf út um samkeppnina segir eftirfarandi um listadeildina: „Jafnframt auknu húsrými fyrir söfnin á að vera í nýbyggingunni aðstaða fyrir fjölbreytta menn- ingarstarfsemi. í forsal bygging- arinnar, í tengslum við sali, skal gera ráð fyrir minniháttar mót- tökum bæjarstjórnar. Tveir salir skulu vera í húsinu. Annar þeirra er eingöngu hugs- aður sem myndlistarsalur, en hinn sem fjölnýtisalur fyrir tónlist, leikflutning, fyrirlestra o.þ.h. Æskilegt er að sameina megi salina í einn, ásamt forsal, ef þörf krefur. I tengslum við myndlistarsal mun listasafn bæjarins hafa mið- stöð sína. Gera þarf ráð fyrir málverkageymslu, aðstöðu fyrir umsjónarmann listasafns (list- ráðunaut) og geymslu fyrir umbúðir og vinnuaðstöðu vegna listsýninga. í tengslum við fjölnýtisal skal gera ráð fyrir herbergi sem nýtist fyrir fundi, en jafnframt sem aðstaða fyrir tónlistarmenn, leikara og aðra flytjendur. Þar skal vera snyrtiherbergi. Reikna þarf með aðstöðu fyrir tæknifólk vegna Ijósa, hljóðupptöku o.þ.h., ásamt geymslu fyrir leik- muni, tónflutningstæki o.fl." Nauðsynlegar úrbætur Um eða fyrir 100 ára kaupstaðar- afmæli Akureyrar 1962 var tekin ákvörðun um byggingu Amts- bókásafns á horni Brekkugötu og Oddeyrargötu. Þá var orðið mjög þröngt um bókasafnið og Hér- aðsskjalasafnið og því ákvcðið að ráðast í hina tilkomumiklu bygg- ingu sem sett hefur svip á bæinn. Hún var tekin í notkun árið 1968 og hefur því hýst söfnin og starf- sem þeirn tengda í 20 ár, en fyrir nokkrum árum fór að bera á plássleysi sem hefur verið höfuð- verkur síðan. Á næstu áruni má búast við að nýbyggingin rísi og leysi þetta vandamál, auk þess sem hún mun bæta aðstöðu til menningarstarfsemi í bænum og er það vel. SS Aukaefni eða eitur Vegna fréttar í Helgarpóstin- um um „Eiturát ísiendinga“, sem birtist í blaðinu fimmtu- daginn 11. 02. 1988, vill Holl- ustuvernd ríkisins koma með eftirfarandi athugasemdir. 1. Samkvæmt upplýsingum frá franska sendiráðinu, verður að telja þau gögn sem Helg- arpósturinn notar sem heimild fyrir fréttinni fölsuð. 2. Fréttamaður Helgarpóstsins, Freyr Þormóðsson, ræddi við starfsmann Hollustuverndar ríkisins varðandi reglur um notkun aukaefna hér á landi og eftirlit með notkun þeirra. Efnisleg atriði varðandi til- greind aukaefni í þeirri skýrslu sem fréttamaður hafði undir höndum voru ekki rædd, en fram kom að það væri skýrsla frá frönsku há- skólasjúkrahúsi í Chaumont. Starfsmaður Hollustuverndar ríkisins tjáði þá fréttamannin- um að stofnunin hefði áður t'engið fyrirspurnir um auka- efni vegna upplýsinga sem fram kæmu í skýrslu frá frönsku sjúkrahúsi. Var fréttamanni bent á, að ef um sömu skýrslu væri að ræða. þá kæmu þar fram upplýsingar sem væru rangar. Meðal ann- ars var bent á að þar væru skaðlaus efni talin til efna seni gætu verið krabbameinsvaid- andi. 3. Stofnunin hefði talið eðlilegt, sbr. framanritað, að frétta- maður Helgarpóstsins hefði aflað sér gagna um réttmæti þeirra upplýsinga sem fram koma í áðurnefndri skýrslu. Frétt Helgarpóstsins getur augljóslega valdið neytcndum óþarfa áhyggjum og söluaðil- um og framleiðendum ómæld- um skaða. Því er brýnt að athugasemdir þessar komist á framfæri eins fljótt og auðið er og verður að átelja vinnu- brögð af þessu tagi. Vísitala byggingar- kostnaöar Hagstofan hefur reiknað vísi- tölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi í febrúar 1988. Reyndist hún vera 107,3 stig, eða 0,09% lægrí en í janúar (júní 1987=100). Þessi vísitala gildir fyrir mars 1988. Sam- svarandi vísitala miðuð við eldri grunn (desember 1982=100) er 343 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 15,3%. Breytingar á tollalögum og lög- um um vörugjald, sem tóku gildi um áramótin, leiddu samtals til um 0,4% lækkunar byggingar- vísitölunnar frá janúar til febrú- ar. Þar má t.d. nefna, að verð- lækkun á raflagnaefni olli tæp- lega 0,2% lækkun á byggingar- vísitölu. Á móti þessu kemur, að ýmsir vöru- og þjónustuliðir höfðu í för með sér 0,3% hækkun vísitölunnar, þar af um 0,1% vegna hækkunar leigu fyrir bygg- ingarmót. Þess má að lokum geta, að verðlækkunaráhrif vegna breyt- ingar á tollalögum og lögum um vörugjald munu að mestu leyti komin fram í byggingarvísitöl- unni í febrúar. % 0 Hvar á nýbyggingin að rísa? Það munu keppendur ákveða.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.