Dagur - 23.02.1988, Blaðsíða 16
KONTRA
skrifstofuhúsgögn með ótal réttar lausnir.
Hönnuður: Valdimar Harðarson.
(Höfundur verðlaunastólsins Sóleyjar)
Framleiðandi: 3K.
Kontra skrifstofuhúsgögnin í allar skrifstofur.
Sýningarbás á staðnum.
Hrísalundi 5
Kjallara
Stúdentagarðar
á Akureyri:
„Erum að tala
um raun-
hæft dæmi“
- segir Guðmundur
Stefánsson formaður
Skjaldar
Skjöldur, félag áhugamanna
um Háskólann á Akureyri, var
stofnað í gamla Iðnskólahús-
inu sl. laugardag. Rúmlega 30
manns mættu á stofnfundinn
og þar var kjörin 9 manna
stjórn og lög iclagsins
samþykkt. Þar segir: „Tilgang-
ur félagsins er að efla og styrkja
Háskólann á Akureyri og
vinna að því að reisa stúdenta-
garða sem síðar verða afhentir
Félagsstofnun stúdenta á
Akureyri.“
Guðmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri ístess, var kjörinn
forntaður Skjaldar. Aðrir í stjórn
eru: Halldór Blöndal, Margrét
Tómasdóttir, Tómas Ingi Olrich,
Gunnar Karlsson, Erna Indriða-
dóttir, Þórir Sigurðsson, Por-
björn Jónsson og Helgi Bergs.
Guðmundur sagði að Skjöldur
væri undirbúningsfélag, fyrsta
verkefnið væri að koma á fót
stúdentagörðum sem sjálfseign-
arstofnun, með sama sniði og
Félagsstofnun stúdenta í Reykja-
vík, myndi síðan fá til eignar og
annast reksturinn.
Hann sagði félagið myndi
sinna fleiri verkefnum sem til
féllu, en um skeið hefur það
undirbúið stofnun stúdenta-
garða. Félagið hefur augastað á
tveimur efstu hæðum hússins að
Glerárgötu 26 í því sambandi og
Húsnæðisstofnun hefur tekið vel
í erindi þeirra. „Við erum að tala
um raunhæft dærni og vonandi
verður fljótlega ráðist í að kaupa
húsnæði," sagði Guðmundur. SS
Stjarnan
FM 104 á
Akureyri
„Við ætlum okkur að sinna
hlustendum á Akureyri mjög
vel, það er engin hætta á
ööru,“ sagði Ólafur Hauksson,
útvarpsstjóri Stjörnunnar. I
dag munu útsendingar Stjörn-
unnar heyrast á Akureyri og
nágrenni á FM 104, ef engar
tæknilegar hindranir verða.
„Við vörpum okkur í faðm
Akureyringa og vonandi verður
okkur vel tekið,“ sagði Ólafur,
en undanfarið hefur verið unnið
að uppsetningu sendis og teng-
ingu við kerfi Pósts og síma á
Akureyri. Loftnet og sendir
Stjörnunnar verða á þaki Barna-
skóla Akureyrar, eins og sendir
Bylgjunnar.
„Við álíturn að Stjarnan kynni
sig sjálf hvað auglýsingar snertir.
Við höfum mjög góð tengsl við
allt hlustendasvæði okkar, þaö
hefur einkennt Stjörnuna frá því
hún hóf útsendingar í júní,“
sagði Ólafur Hauksson. EHB
Úrsögn hestamanna úr LH:
„Veröur að
vera hægt
að tala
saman“
- segir formaður LH
„Vissulega veikir það sam-
bandið þegar menn geta ekki
starfað saman í félagsskap,“
sagði Leifur Kr. Jóhannesson
formaður LH í samtali við Dag
þegar hann var inntur álits á
því að öll eyfirsku hesta-
mannafélögin hafa sagt sig úr
LH. „En menn leysa ekki slík
mál með því að standa utan
félagsskaparins og enn síður
með hótunum. Eftir þeim
fréttum sem nú berast, virðast
félögin ekki lengur tilbúin til
viðræðna um framtíðarlausn
og er það þeirra ákvörðun.“
Leifur sagði alvarlegt að full-
trúar eyfirsku félaganna skyldu
ganga út af síðasta þingi. „Pað
verður að vera hægt að tala sam-
an til að komast að niðurstöðu en
því miður hefur tónninn sem
komið hefur úr þessari átt verið
neikvæður. Nú er boltinn hjá
þeim, því við höfum stungið upp
á því að menn úr öllum lands-
hlutum komi saman, ræði málin
og reyni að finna lausn. Petta er í
raun ekki eingöngu mál Norð-
lendinga, því landsmót er mót
fyrir allt landið.
Ákvörðun unt landsmótsstað
var tekin af stjórn LH samkvæmt
fyrirmælum landsþings. Tvívegis
hafði verið samþykkt á ársþingi
að stjórnin tæki þessa ákvörðun.
Vegna ágreinings við eyfirsku
hestamannafélögin var málið lagt
fyrir síðasta ársþing til umfjöllun-
ar. Þingið vildi ekki breyta
ákvörðun stjórnarinnar og undu
eyfirsku félögin því ekki og vilja
ekki vinna innan samtakanna
nema að fá landsmótið 1990. Þeir
eru einir um þetta og er það
óvenjulegt og afar torskilið í
félagsskap,“ sagði Leifur að
lokum. VG
Akureyri:
Níu metra hátt útilistaverk
- Skiptar skoðanir um staðsetningu og umfang
Bæjaryfirvöld á Akureyri
ákváöu fyrir nokkru aö minn-
ast 100 ára afmælis KEA meö
því að láta reisa útilistaverk
gegnt aðalstöðvum kaupfélags-
ins á mótum Hafnarstrætis og
Kaupvangsstrætis. Leitað var
til Jóns Gunnars Arnasonar
myndhöggvara í Reykjavík og
nú er Ijóst að listaverkið verð-
ur 9 metrar á hæð, staðsett viö
suðurenda göngugötunnar.
Mjög skiptar skoðanir hafa
verið um staðsetningu og umfang
verksins, en þessi staðsetning
mun hafa verið ákveðin um leið
og bæjaryfirvöld samþykktu að
ráðast í listaverkakaupin. Að
sögn Finns Birgissonar skipulags-
stjóra lágu ekki fyrir neinar upp-
lýsingar um hvers konar verk
þarna ætti að reisa þegar stað-
setningin var ákveðin.
„Fyrstu hugmyndir listamanns-
ins voru lágt verk, en umfangs-
mikið að flatarmáli. Hann kallaði
það umhverfislistaverk. Ég veit
hins vegar ekki hvers vegna þær
hugmyndir breyttust og niður-
staðan varð 9 metra hátt lista-
verk,“ sagði Finnur.
Þegar göngugatan var skipu-
lögð var ekki gert ráð fyrir mann-
virki af neinu tagi við suðurenda
hennar og Finnur sagðist hafa lát-
ið í ljós efasemdir um að staður-
inn myndi hæfa listaverkinu og
listaverkið staðnum. Hann sagöi
að gömlu húsin við austanverða
götuna, t.d. París, væru 8-9
metra há en kaupfélagshúsið öllu
hærra.
Útilistaverkið kemur því til
með að vera ansi áberandi í
hjarta Miðbæjarins og menn hafa
velt því fyrir sér hvort það loki
ekki fyrir útsýni úr mörgum
verslunum svo og hvort börn
muni nota verkið sem klifurgrind
nteð tilheyrandi slysahættu. SS
Styrkur stólpi í hringiðu mannlífsins.
Mynd: TLV
Bíræfnir þjófar á
Stela hjólkoppum
Hjólkoppaþjófar hafa verið á ferðinni á Bifreiðarverkstæði Sigurdar Valdi-
marssonar. Mynd: ehb
ferð á Akureyri:
og þurrkublöðum
„Við verðum að taka alla
hjólkoppa af bílum, sem
standa hérna fyrir utan, því
annars er þeim stolið,“ sagði
Sigurður Valdimarsson, en
undanfarna mánuði hefur tölu-
vert borið á því að lauslegum
hlutum eins og þurrkublöðum
og hjólkoppum væri stolið af
nýjum bílum, sem standa fyrir
utan Bifreiðaverkstæði Sigurð-
ar Valdimarssonar að Óseyri 5
á Akureyri.
Sigurður sagði, að vegna tíðra
þjófnaða og jafnvel innbrota í og
við bílaverkstæðið hefði hann
leitað til öryggisþjónustunnar
Securitas, og væru þeir með tölu-
vert stranga gæslu í og við húsið.
Öryggisverðir kæmu 3-4 sinnum
fyrir miðnætti og a.m.k. jafnoft
eftir miðnætti, færu inn í húsið og
huguðu að mannaferðum á lóð-
inni. Þrátt fyrir þetta tekst mönn-
um að stela hjólkoppum og
þurrkublöðum af bílunum, ef
slíkt er ekki tekið inn.
„Við höfum ekki pláss fyrir
alla bílana hérna inni, og því
verðum við að geyma þá á lóð-
inni. En ég hef þá skoðun að hér
séu fullorðnir menn á ferðinni,
en ekki einhverjir krakkar,"
sagði Sigurður.
Hjólkopparnir, sem um er að
ræða, passa aðeins á Subaru og
Nissan-bifreiðir. Það er furðuleg
bíræfni að fullorðnir viti bornir
menn steli hlutum á þennan hátt,
og að ekki sé hægt að skilja bíla
íftir nema hjólkoppalausa á
almannafæri. EHB