Dagur - 23.02.1988, Blaðsíða 6

Dagur - 23.02.1988, Blaðsíða 6
'* 6- 4ÍDAX&UR -S Í183 febrúar 1088 Þorvaldur Jónsson og Steinar Ingimundarson. „Ætlum okkur að leggja ÍA að velli“ - Rætt við Leifturspiltana Þorvald Jónsson og Steinar Ingimundarson Þaö gekk frekar illa hjá þeim Þorvaldi Jónssyni og Steinari Ingimundarsyni aö komast frá Akureyri. Þeir höfðu verið með félögum sínum úr Leift- ursliðinu að spila á Bautamót- inu. Þegar þeir ætluðu að kom- ast til Reykjavíkur með Ilugi á sunnudagskvöldið var ófært. Á mánudagsmorguninn var einn- ig ófært og það var einmitt þá sem blaðamaður Dags rakst á þá, syfjulega og slæpta, og tók þá tali. - Jæja strákar, eruð þið ánægðir með árangurinn á Bauta- mótinu? Þorvaldur varð tyrst fyrir svörum: „Já, ég held að við get- um verið svona þokkalega ánægðir. Við höfum aldrei spilað svona knattspyrnu áður og það var svo sem ágætt að spila um 3.- 4. sætið.“ Steinar kinkaði kolli og bætti við: „Helmingur af liðinu er fyrir sunnan og helmingurinn í Olafsfirði, þannig að við höfum ekki haft neinn möguleika á þvf að æfa saman. Með það í huga er árangurinn alveg viðunandi." - Nú er Leiftursliðið eitt mesta spútnikliðið í íslenskri knattspyrnu. Þið farið úr 3. deild í þá fyrstu, haldið þið að þið get- ið staðið undir þeim væntingum sem til ykkar eru gerðar? Þeir félagarnir litu hvor á ann- an og brostu. Steinar sagði síðan: „Það eru nú margir fyrir sunnan búnir að segja að við fáum ekki stig í deildinni. Þetta var nú líka sagt við okkur fyrir 2. deildar keppnina í fyrra, þannig að viö látum svoleiðis svartsýnishjal ekki hafa mikil áhrif á okkur.“ Þorvaldur hélt áfram: „Stuðning- ur fólksins heima í Ólafsfirði er ómetanlegur og ég er þess fullviss að þar eigum við eftir að hala inn mörg stig.“ - Nú er helmingur liðsins fyrir sunnan og helmingur í Ólafsfirði. Hvernig farið þið að því að æfa? „Óskar Ingimundarson þjálfari okkar býr fyrir sunnan, þannig að hann stjórnar æfingum þar,“ sagði Þorvaldur. „Rúnar Guð- laugsson aðstoðarþjálfari sér síð- an um æfingarnar fyrir strákana heima í Ólafsfirði. Þetta er nú ekkert nýtt að helmingur liðsins sé í skóla fyrir sunnan þannig að þetta gengur sjálfsagt jafn vel í ár og fyrri ár,“ bætti hann við. - Nú fáið þið Akurnesinga heim í fyrsta leik. Er ÍA drauma- andstæðingur eða hefðuð þið frekar viljað fá „veikara“ lið í byrjun? Leyfum Steinari að eiga loka- orðið í viðtalinu, því blaðamað- urinn hafði varla lokið við spurn- inguna, þegar loksins var kallað út í vélina: „ÍA er draumaliðið því við ætlum að sýna að við eig- um fullt erindi í 1. deildina og ætlum því að leggja Skagamenn- ina að velli í þessum fyrsta leik Leifturs í 1. deild." Þar með voru þeir Þorvaldur og Steinar roknir út í vél og blaðamaðurinn rétt náði að þakka þeim fyrir viðtalið og óska þeim velgengni í sumar. AP Skipstjornarbraut Dalvíkurskóla: í fyrsta sinn kennt á öðru stigi Skipstjórnarbraut hefur verið starfrækt við Dalvíkurskóla frá árinu 1981. Þá var tekin upp kennsla á fyrsta stigi en kennsla á öðru stigi var hafin í vetur. Á hausti komanda er vonast til að komið verði á fót sjávarútvegsskóla á Dalvík og kemur skipstjórnarbraut Dal- víkurskóla þá til með að falla undir hann en auk þess mun verða kennt á fiskvinnslubraut við skólann. Frá árinu 1981 er skipstjórnarbrautinni var kom- ið á fót hafa verið útskrifaðir um 60 nemendur en nú í vetur eru fleiri nemendur en nokkru sinni fyrr við nám á fyrsta stigi eða 20 talsins. Fyrsta stig veitir stýrimanns- og skipstjórnarréttindi á allt að 200 tonna skipum en annað stig veitir ótakmörkuð réttindi á fiskiskip og 400 tonna fraktskip. Skipstjórnarbraut Dalvíkurskóla er hliðstæð skipstjórnarbraut sem starfrækt er í Vestmannaeyjum og við Stýrimannaskólann í Reykjavík. Ef nemendur vilja taka þriðja stig skólans verða þeir að fara í Stýrimannaskólann í Reykjavík. Frá því skipstjórnarbrautin við Dalvíkurskóla tók til starfa hafa að jafnaði verið um 10 nemendur á fyrsta stigi en kennsla á öðru stigi var tekin upp í haust. í vetur eru alls 34 nemendur við nám, 20- á fyrsta stigi og 14 á öðru stigi. Einnig hefur verið starfrækt réttindanám við Dalvíkurskóla en það nám var á vegum mennta- málaráðuneytis. Réttindanámið var ætlað fyrir skipstjórnarmenn sem starfað höfðu við skipstjórn’ á undanþágum síðustu tvö árin áður en réttindanámið hófst. Á 10 vikna námskeiði gátu menn fengið 80 tonna réttindi og ef tek- ið var annað 10 vikna framhalds- námskeið fengust réttindi á 200 tonna skip. Þetta réttindanám sóttu aðallega menn sem verið höfðu skipstjórar eða stýrimenn fiskiskipa. „Við teljum okkur hafa fækk- að stórlega undanþágum á fiskiskipum hér á Norðurlandi en af þessu svæði koma nemendur okkar aðallega. Hér við Eyja- fjörðinn held ég að réttindaleysi sé nánast að hverfa,“ segir Júlíus Kristjánsson, leiðbeinandi við skipstjórnarbraut Dalvíkurskóla. Utgerðaraðilar á Dalvík og Árskógsströnd hafa sýnt stofnun Sjávarútvegsskóla á Dalvík mik- inn áhuga og ætla að gefa sigl- inga- og fiskileitartæki til nota við kennsluna. Sparisjóður Svarf- dæla hefur einnig gefið þrjár tölv- ur til kennslu og sagði Júlíus að þær kæmu til með að nýtast við kennslu á öðru stigi skipstjórnar- brautarinnar og einnig til kennslu á fiskvinnslubraut. Búið er að panta þessi tæki og er vonast til að þau verði komin upp innan tíðar. „Við vonumst til að þegar þessi tæki verða komin upp þá getum við boðið skipstjórum upp á endurhæfingarkennslu. Slík endurhæfingarnámskeið hafa verið haldin í Stýrimannaskólan- um í Reykjavík en þegar við verðum búnir að koma þessum tækjum upp þá verður deildin fullbúin til að halda námskeið sem þessi,“ segir Júlíus Kristjáns- son. JÓH Húnvetningar takið eftir Blaðamaður Dags fyrir Húnavatnssýslur er Frímann Hilmarsson, Húnabraut 27, Blönduósi, sími 95-4070. Athygli skal vakin á því að hann tekur við auglýsing- um til birtingar í Degi. Verð smáauglýsingar er kr. 700.- Staðgreiðsluverð kr. 580.- og verð á sömu auglýsingu sem er endurtekin kr. 120.-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.