Dagur - 29.03.1988, Side 1

Dagur - 29.03.1988, Side 1
71. árgangur Akureyri, þriðjudagur 29. mars 1988 62. tölublað Einingabréf ★ Hámarks ávöxtun ★ Alltaf laus áéll<AUPÞING NORÐURLANDS HF Ráðhústorg 5 Akureyri Sími 96-24700 Akureyri: - 32 umsóknir um tvær 2ja herb. íbúðir Leigumarkaðurinn á Akureyri er ógreiðfær frumskógur þar sem margir villast en fáir kom- ast á leiðarenda fyrr en eftir miklar raunir. Félagsmála- stofnun Akureyrar auglýsti nýverið tvær 2ja herbergja íbúðir til leigu og bárust alls 32 umsóknir um þessar íbúðir þannig að ástandið á leigu- Lóð vestan nótastöðvar: Hafnarstjórn mælir með Járntækni - fjórar umsóknir bárust um lóðina Fjórar umsóknir bárust um lóð norðan Hjalteyrargötu, vestan Nótastöðvarinnar Odda. Bygg- inganefnd hefur óskað umsagn- ar hafnarstjórnar um umsókn- irnar og mælir hún með því að Járntækni hf. verði veitt umbeðin lóð. Umsóknirnar sem bárust voru frá Aðalgeiri Finnssyni hf., suðurbílstjórum bifreiðastöðvar- innar Stefnis, Járntækni hf. og frá Guðmundi Jóhannssyni. Á fundi hafnarstjórnar síðast- liðinn föstudag var samþykkt að mæla með því við bygginganefnd að Járntækni verði veitt lóðin. Hafnarstjórn telur að starfsemi fyrirtækisins falli vel að þeirri starfsemi sem er þarna í nágrenn- inu og er í samræmi við aðal- skipulag Akureyrarbæjar og skipulag Akureyrarhafnar. Stór þáttur í þjónustu fyrir- tækisins er þjónusta við fiski- skipaflotann bæði hvað varðar viðgerðir og smíði og ýmiss kon- ar búnaðar í fiskiskip og því telur hafnarstjórn það augljósan kost fyrirtækisins og viðskiptavina þess að það sé staðsett í námunda hafnarinnar. ET markaðinum virðist lítið hafa batnað. Félagsmálaráð vekur sérstaka athygli á fjölda umsækjenda og getur þess að langflestir þeirra er sóttu um þessar tvær íbúðir hafi brýna þörf fyrir húsnæði. Ráðið leggur mikla áherslu á nauðsyn þess að fjölga leiguíbúðum í eigu bæjarins og hvetur bæjarráð til að leita leiða til að nýta heimild þá sem Húsnæðisstofnun hefur veitt til að hefja framkvæmdir við 10 leiguíbúðir. Það er ekki aleinasta skortur á leiguíbúðum í eigu bæjarins held- ur og á hinum frjálsa markaði. Daglega má sjá auglýst eftir húsnæði á smáauglýsingasíðum Dags og í síðustu viku voru t.a.m. 4-6 slíkar auglýsingar á hverjum degi en aðeins voru 3 íbúðir auglýstar til leigu á sama tíma. Nýlega greindum við frá því að hreyfing á fasteignamarkaðinum á Ákureyri hefði aukist en sú hreyfing virðist ekki hafa náð til leiguíbúða. Viðmælendur okkar eru þó sammála um að ástandið hljóti að batna innan tíðar því uppsveifla hefur verið í byggingu íbúða í bænum og framboð þar af leiðandi vaxandi. Þá er gjarnan bent á að eitt- hvað af því fólki sem nú er á leigumarkaðinum muni kaupa sér húsnæði þegar lán Húsnæðis- stofnunar koma til útborgunar og einnig benda menn á að þegar íbúðir fyrir aldraða sem byggja á við Víðilund verða tilbúnar muni framboð á húsnæði í bænum enn aukast. SS Á göngu í góða veðrinu. Mynd: TLV Breytingar á bæjarskrifstofunni: „Kostnaðurínn kom mér á óvart“ - segir bæjarstjóri - hönnun kostaði tæpa milljón Nú er lokið breytingum á 2. hæð á húsnæði bæjarskrifstofa Akureyrar við Geislagötu. Bæjarráðssalnum var breytt í annað skrifstofuhúsnæði, en bæjarráð mun eftirleiðis halda fundi sína í bæjarstjórnarsaln- um á 4. hæð hússins. Á 2. hæð eru nú launadeild bæjarins, skrifstofur bæjarstjóra, bæjar- Teikningum að stórmarkaði KEA verði breytt: „Aðgengi fatlaðra áfatt“ Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra hefur tekið til athug- unar samþykktar teikningar að stórmarkaði KEA við Glerár- götu á Akureyri og komist að þeirri niðurstöðu að aðgengi fatlaðra sé áfátt í fyrirhugaðri byggingu. Nefndin hefur sent hönnuði byggingarinnar og húsbyggjanda bréf þar sem óskað er eftir úrbótum. Helstu athugasemdir nefndar- innar eru þær að samkvæmt teikningum virðist sem hjólastól- ar komist ekki á milli búðarkassa og að fatlaður maður komist ekki án aðstoðar á 2. hæð aðalbygg- ingarinnar þar sem stjórnmiðstöð og öll starfsmannaaðstaða á að vera til húsa. Þá telur nefndin að gera þurfi ráð fyrir a.m.k. einu salerni á hverri hæð í eldri bygg- ingunni sem sé aðgengilegt fötluðum. „Hafandi þessi atriði í huga telur nefndin útséð að fatlaður maður geti starfað í verslunar- húsnæði þessu nema aö hugað verði að úrbótum varðandi það sem hér að framan er rakið,“ seg- ir í áliti nefndarinnar. SS lögmanns og starfsmanna- stjóra ásamt biöstofu. Að sögn Gunnars Eðvaldsson- ar, umsjónarmanns húseigna bæjarins, tók trésmíðavinnan sjálf um þrjár vikur. Nýtt gólf- teppi var sett á gólfin, skipt var unt alla ofna og raflagnir endur- nýjaðar. Bæjarstjórinn á Akureyri, Sig- fús Jónsson, var spurður um kostnaðarhlið þessara fram- kvæmda, en samkvæmt kostnað- aráætlun átti verkið að kosta 3,6 milljónir króna. Sigfús sagði, að kostnaður við þessar fram- kvæmdir hefði farið fram úr áætl- un og hefði það komið sér á óvart. Hefði hann sent arkitekt- inum, Svani Eiríkssyni, og húsa- meistara bæjarins, Ágústi Berg, bréf þar sem farið væri fram á skýringar á kostnaðaraukanum, en hönnunar- og teikni- kostnaðurinn var tæp ein milljón króna. Inni í þeirri tölu er kostnaður við teikningu raflagna. Bæjarstjóri skýrði frá því á fundi bæjarráðs í síðustu viku að þessi mál væru í athugun. Þegar arkitektinum barst umrætt bréf fór hann fram á að fá að skoða bókhald yfir vinnu iðnaðar- manna, efniskostnað o.s.frv. og var honum heimilað það. Stend- ur sú athugun nú yfir. EHB D Síðasta blað fyrir páska kemur út á morgun. Skilafrestur aug- lýsinga fyrir það blað er til hádegis í dag. Fyrsta blað eftir páska kemur út þriðjudaginn 5. apríl og vilji menn koma auglýsingum þangað þurfa þær að hafa borist fyrir hádegi á morgun. Mikill skortur á leiguíbúðum

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.