Dagur - 29.03.1988, Blaðsíða 9
886 r 3-ism .8S - HUiDAG - 8
29. mars 1988 - DAGUR - 9
Björg Karlsdóttir og Helga Stefánsdóttir leiðbeina við ungaframleiðsluna.
flugið fékk að njóta sín. Eftir
heimsóknina á deildirnar var
spjallað um framleiðsluna við
forstöðumann.
„Við erum að vinna að þessu
hefðbundna páskaföndri, það er
nokkuð svipað frá ári til árs.
Páskaegg eru skreytt og búnir til
ungar af ýmsum stærðum og
gerðum sem má hengja upp í loft
eða í glugga, eða þá að þeir geta
staðið á borði. Þeir eru ýmist
málaðir eða litaðir og misstórum
flögum af eggjaskurni stráð á þá.
Það er líka vinsælt að búa til kan-
ínur og héra. Einstaka sinnum
hafa verið búnir til páskaungar úr
dúskum og filti. Páskamyndir eru
líka málaðar. Mjög vinsælt er að
móta úr leir eða deigi. Deigið
samanstendur ' af vatni, olíu,
hveiti og salti. Petta er hægt að
móta á ýmsan hátt og er síðan
látið harðna. Hægt er að lita deg-
ið með matarlit og fá úr því
skemmtilegar fígúrur. Börnin eru
að sjálfsögðu mislagin eftir aldri
og þjálfun en út úr þessu koma
oft mjög skemmtilegir hlutir.
Aðan voru gerð hreiður, egg og
ungar úr deiginu."
- Eru börnin spennt fyrir að fá
páskafrí?
„Ég held að það sé ákaflega
mismunandi. Eftir svona frí heyr-
ir maður oft að fríið hafi verið
talsvert langt og sum börnin hafi
viljað koma hingað yfir frídag-
ana. Petta er einstaklingsbundið
og fer trúlega eftir því hvort
börnin eru ein á heimili eða hafa
leikfélaga. Sum sakna þessarar
daglegu rútínu við að fara á dag-
heimili eða leikskóla og starfa
þar, fyrir þeim er þetta nokkurs
konar vinna eða skóli. Hitt er
annað að þau hafa öll gott af
fríi.“
- Finnst börnunum gaman að
vinna að undirbúningi hátíðar-
innar hérna?
„Það er auðvitað takmarkað
sem við komum til skila til svona
ungra barna um sjálfa páskana,
af hverju við höldum páska. Þó
reynum við alltaf að gera það,
segja þeim hver tilgangur pásk-
anna er og eins tölum við um
jólin. Þetta eru hlutir sem oft er
erfitt að koma til skila á réttan
hátt og erfitt að meta hversu vel
það kemst til skila að páskarnir
séu ekki bara páskaegg og
föndur." IM
Páskaunginn tilbúinn.
Frá kjörbúðum KEA
Páskatilboð
á Fransman frönskum kartöflum
Fjölbreytt úrval
fermingargjafa
Bókabúðin Edda
. - Hafnarstræti 100 Akureyri Sími 24334 ■■■
----------------------------
Að veiða niður um ís
getur verið spennandi
Alls konar veiðivörur
ísborir, stengur, önglar, hjól
Leiruveg
j
Ferðasjóður
„Nordisk Forum“
Jafnréttisnefnd Akureyrar hefur stofnað ferðasjóð til
styrktar þeim konum á Akureyri sem fara á norræna
kvennaþingið „Nordisk Forum“.
Þær konur sitja fyrir styrkveitingum sem engrar
aðstoðar njóta frá samtökum eða stéttarfélögum.
Umsóknum fylgi eftirfarandi upplýsingar: Nafn,
heimilisfang, sími, starf, stéttarfélag.
Umsóknir sendist jafnréttisnefnd Akureyrar, Geisla-
götu 9 fyrir 10. apríi næstkomandi.
Jafnréttisnefnd Akureyrar.
Auglýsing
um endurgreiðslu söluskatts af aðföng-
um fiskvinnslufyrirtækja
Á grundvelli I. nr. 10/1988 hefur verið ákveðið að
endurgreiða fiskvinnslufyrirtækjum uppsafnaðan
söluskatt af aðföngum vegna útflutnings frá og
með desember 1987 til og með nóvember 1988.
Endurgreiðslan verður miðuð við fob-verðmæti
útflutnings. Tollstjóraembættið í Reykjavík mun
annast framkvæmd endurgreiðslunnar. Útflytj-
endur þurfa fyrir 15. apríl n.k. að afhenda toll-
stjóraembættinu skrá um útflutning frá 1. des-
ember 1987 til og með 29. febrúar 1988. Síðan
þarf að senda embættinu skrá vegna útflutnings
hvers mánaðar fyrir 15. dag næsta mánaðar á
eftir. í skránum skal fram koma heiti flutningsfars,
útflutningsdagur, útskipunardagur og fob-
verðmæti í íslenskum krónum samkvæmt hverri
útflutningsskýrslu. Ennfremur skal fylgja skrá
miðuð við lögsagnarumdæmi þar sem fram
koma upplýsingar um fob-verðmæti útfluttra
sjávarafurða sundurliðað eftir framleiðendum
ásamt kennitölu og póstfangi viðkomandi aðila.
Endurgreiðsla á uppsöfnuðum söluskatti í sjávar-
útvegi, vegna útflutnings frá og með ágúst til og
með nóvember 1987, mun fara fram á næstunni í
samræmi við ákvæði 1. nr. 13/1988. Þeir útflytj-
endur sem enn hafa ekki sent tollstjóraembætt-
inu í Reykjavík ofangreind gögn vegna útflutn-
ings á þessu tímabili, eru hvattir til að gera það án
tafar.
Sjávarútvegsráðuneytið, 23. mars 1988