Dagur - 29.03.1988, Side 15
29. mars 1988 - DAGUR - 15
lesendahornið
Athugasemdir vegna lóðar
Malar- og steypustöðvarinnar
Bílstjóri hringdi:
Ég get varla orða bundist vegna
fréttar sem birtist í Degi, 24.
mars. Þar er sagt frá því að
Hólmsteinn Hómsteinsson hjá
Möl og sandi hafi sótt um fram-
lengdan lóðarsamning á lóð Mal-
ar- og steypustöðvarinnar við
Glerárgil. Ég vil gera smávegis
athugasemdir við þá meðferð,
sem lýst er af þessum málum.
í fyrsta lagi finnst mér ein-
kennilegt að á sama tíma og sótt
er um framlengingu á lóðarsamn-
ingi til 4 ára með afnot af neðra
svæðinu, en harpan verður rifin,
þá skuli malarflutningabílar frá
Möl og sandi sturta óhemju mikl-
um sandi frá efra svæðinu niður á
það neðra. Þetta er í samræmi
við það sem hefur tíðkast allt frá
því að Möl og sandur fékk lóðina
fyrir nokkrum árum að nota hana
fyrir efnislager. Ég efast um að
fyrirtækið hefði fengið þessa lóð
ef bæjaryfirvöldum hefði verið
kunnugt um að þetta stæði til.
í öðru lagi vil ég segja, að nú er
komið miklu meira rusl á lóð
Malar- og steypustöðvarinnar en
var þar nokkurn tíma meðan það
fyrirtæki var og hét. Þarna ægir
saman járnarusli, leifum af
vinnuvélum, steypubílstunnu,
timbri, strengjasteypueiningum
og fleiru. Á sínum tíma sá bærinn
sér ekki annað fært en fjarlægja
rusl frá Malar- og steypustöðinni
á kostnað stöðvarinnar, en nú
finnst mér full ástæða til að þessi
saga endurtaki sig, ef ruslið verð-
ur ekki fjarlægt.
í þriðja lagi þá er þessi hug-
mynd Hólmsteins um að girða
svæðið með bárujárnsgirðingu
ekki nógu góð, að mínu mati.
Girðingin myndi fela ruslahrúg-
urnar, en girðing á þessum stað
meðfram árbakkanum er stór-
hættuleg. Við skulum hugsa okk-
ur að börn væru að leika sér í gil-
inu, þá kæmust þau ekki upp úr
því á löngum kafla á austurbakka
Glerár, og gætu hugsanlega hrap-
að niður í gilið ef þau gengju
meðfram girðingunni.
Af fréttinni má skilja, að öll
ummerki um Malar- og steypu-
stöðina verði fjarlægð fljótlega.
Ekki er ég að mótmæla því, en
bendi þó á að menn verða að
gera upp við sig hvort þarna á að
vera efnislager, ruslakista eða
autt svæði.
Með þökk fyrir birtinguna.
Lóð og mannvirki Malar- og steypustöðvarinnar við Glerá.
Furðuleg innheimta
bifreiðagjalda
Aðalsteinn Jónsson, Víðivöll-
um, hafði samband:
„í janúar sl. voru sendir út
gíróseðlar vegna hefðbundinna
bifreiðagjalda, skoðunargjalds,
vátryggingar ökumanns, kílóa-
gjalds o.fl. Eindagi þessara
gjalda var í febrúarlok.
Eigendur dísilbíla með öku-
mæli greiða ákveðna upphæð fyr-
ir hvern ekinn kílómetra sam-
kvæmt mælinum þrisvar sinnum á
ári, eftir aflestur. Síðasta af-
lestrartímabili lauk 10. febrúar,
og eindagi þungaskatts samkv.
mæli er í marslok.
Við, sem eigum bíla sam-
kvæmt framansögðu, fengum
nýjan gíróseðil um mánaðamótin
febrúar-mars, og þá var búið að
setja á þann seðil bifreiðagjöldin,
sem við áttum að vera búnir að
greiða fyrir febrúarlok, fyrir utan
þungaskattinn. í reit, sem ber
heitið „eftirstöðvar", og ekki
fylgja neinar skýringar á gíró-
seðlinum, er öllu steypt saman í
eina tölu, þungaskatti (kílóa-
gjaldi), vátryggingu ökumanns,
skoðunargjaldi og gjaldi sam-
Fréttir af
Skákfélaqi UMSE
Blaðinu hafa borist fréttir af
Skákfélagi UMSE. Hraðskák-
mót UMSE var haldið 28.12.
1987 og urðu úrslit sem hér
segir:
1-2. Ingimar Jónsson 18V5 v. af 21
1-2. Jón Árni Jónsson 181h v. af 21
3. Jón Björgvinsson 18 v. af 21
Unglingaflokkur:
1. Jón H. Stefánsson 10!ó v. af 14
2. Valdemar Sævaldsson 10 v. af 14
3. Eiríkur Hauksson 9!ó v. af 14
Jólahraðskákmótið var haldið
7. janúar '88 og urðu úrslit þessi:
1-3. Gylfi Þórhallsson 8Vi v. af 12
1-3. Smári Ólafsson 8'^ v. af 12
1-3. Ingimar Jónsson 8W v. af 12
Gylfi vann í aukakeppni.
Skákþing Eyjafjarðar hófst 5.
febrúar. Tefldar voru 7 umferðir
eftir Monrad kerfi. Úrslit:
1. Jón Björgvinsson 6 v.
2. Rúnar Búason 5 v.
3-5. Ármann Búason 4Vi, 23,5 stig
3-5. Smári Ólafsson 4!ó, 23 stig
3-5. Rúnar Berg 4!ó, 18 stig
í unglingaflokki var teflt í
tveimur flokkum, eldri og yngri.
Eldri flokkur:
1. Daníel Pétursson 9 v. af 10
2. Hólmgrímur Bjarnason 8 v. af 10
3. Jón H. Stefánsson 7!ó v. af 10
Yngri flokkur:
1. Asmundur Stefánsson ll!ó v. af 12
2. Benedikt Benediktsson 10 v. af 12
3. Hreinn Hringsson 10 v. af 12
1. Hjörleifs 15 mín. mótið var
haldið 18. mars sl. og urðu úrslit
þessi:
1. Smári Ólafsson 5!ó v., 28,5 stig
2. Bragi Pálmason SVi v., 25,5 stig
3. Ari Friðfinnsson 5 v. §§
kvæmt ökumæli. Mönnum er gef-
inn mánaðarfrestur til að greiða
almenn bifreiðagjöld með þess-
um seðli umfram aðra bílstjóra,
án dráttarvaxta, en jafnframt er
tekið fram að ekki megi breyta
tölum. Þá er þessi seðill orðinn
ómögulegur í meðförum til að
greiða eftir fyrir þá sem gerðu
skil á réttum tíma á gjaldi sam-
kvæmt ökumæli.
Þeir, sem höfðu trassað að
greiða almenn bifreiðagjöld,
fengu samkvæmt þessum seðli
aukalega einn mánuð, dráttar-
vaxtalausan, til að gera skil á
almennum bifreiðagjöldum, en
þeir sem gerðu skil á eðlilegan
hátt þurfa að hafa samband við
gjaldheimtu og fá leiðbeiningar á
hvernig þeir geti komið skuld
sinni samkv. ökumæli í skil, því
ekki er hægt að greiða það með
nýja seðlinum sem raunverulega
var verið að rukka um. Þetta
fyrirkomulag gerir gjaldheimtum
mjög erfitt fyrir því margir gerðu
skil á réttum tíma og þurfa leið-
beiningar, en trassarnir sleppa.
í mínu tilviki þá þurfti ég að
fara í banka og fá innleggsnótu
og greiða síðan inn á tékkareikn-
ing. Á nótuna þurfti að skrifa fyr-
ir hvað var verið að greiða, af
hvaða bíl (númeri) ásamt fasta-
númeri bílsins. Síðan þurfa
starfsmenn gjaldheimtunnar að
færa allar þessar upplýsingar inn
hjá sér og þeir fá greitt eftir
mörgum leiðum, með innlögnum
á tékkareikning, með gíróseðlum
og á annan hátt. Mér skilst að
þetta kerfi hafi verið eins í fyrra,
þrátt fyrir margar beiðnir um að
því yrði breytt og þessi vitleysa
ekki látin endurtaka sig.“
Amstrad - Epson
tölvur & búnaður
Bókabúðin Edda
: OH Hafnarstræti 100 - Akureyri - Sími 24334 ■■■
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ARMULA3
Aðalfundur Samvinnutrygginga g.t. og Líf-
tryggingafélagsins Andvöku, verða haldnir í
Samvinnutryggingahúsinu, Ármúla 3,
Reykjavík, föstudaginn 29. apríl nk. og hefj-
ast kl. 17.00.
Dagskrá verður samkvæmt samþykktum félaganna.
Stjórnir félaganna.
Akureyringar
Nágrannar
Opið 30. mars
frá kl. 9.00-22.00
Opið 2. apríl
frá kl. 10-00-16.00
Veríð velkomin
HAGKAUP
___Akureyri
PÁSKALAMB
Engin hátíð án
bragðgóða, norðlenska lambakjötsins