Dagur


Dagur - 29.03.1988, Qupperneq 20

Dagur - 29.03.1988, Qupperneq 20
20 - DAGUR - 29. mars 1988 Gluggað í markaskrá bœndur & búfé Nú er minna um soramörk Eyrnamörk í þeirri mynd sem við þekkjum þau hafa verið notuð hér á landi svo lengi sem menn vita. Hvernig saga þeirra er og hvernig þróun þeirra hefur verið væri gaman að vita meira um. Margir hafa haft af því gaman að grúska í mörkum og læra utanað markaskrána fyrir sitt hérað og jafnvel víðar um landið. Oft var líka vinsælt að sitja og spyrja út úr, uppúr skrá þessari og börn urðu læs við lestur hennar þar sem minna var um bækur. í reglugerð fyrir Þingeyjarsýslu um fjallskil sem samin var af sýslu- nefndinni eftir fyrirmælum til- skipunar frá 4. maí 1872 segir svo: „Hver maður skal einkenna fé sitt með glöggu marki á eyrum en ef soramarkað er, með brenni- marki á hornum eða klaufum. Enginn má hafa nema eitt mark á fé sínu, nema sýslunefndin leyfi. Yngri menn en 16 ára mega ekki fjármark upp taka né brúka. Eigi þeir fé skuíu þeir brúka fjármark feðra sinna, og einkenni auk.“ Ennfremur segir að öll fjármörk sýslunnar skuli rita í eina skrá og skuli prenta hana og útbýta í sýsl- unni svo víða sem sýslunefndin telji nægilegt. Soramark er mark þar sem upphaflegu marki kindarinnar hefur verið breytt í annað mark. Oft voru prestar og kaupmenn með slík mörk þar sem greitt hafði verið með sauðfé á fæti til kirkju eða í verslun. Menn sem bjuggu afskekkt vildu ógjarnan hafa fé sitt soramarkað því þá losnuðu þeir undan grun um sauðaþjófnað. Marka-Leifi Hjörleifur Sigfússon eða Marka- Leifi var fæddur 12. maí 1872 og barnfæddur Skagfirðingur. 1 einni af markaskrá Skagfirðinga er hann kynntur sem einn mark- gleggsti maður sem sögur fara af. Hann kunni á fingrum sér flest mörk á Norðurlandi vestan- verðu og trauðla komu Hreppa- og Biskupstungnamenn að tóm- um kofanum hjá honum. Þekk- ing hans náði líka víðar og var hann lifandi markaskrá. Að hafa svo mikla kunnáttu á valdi sínu hefur Marka-Leifi byggt á stál- slegnu minni sem honum var gef- ið með hjálp síns mikla áhuga. Mannanöfn og mörk hafa breyst I fyrstu eru markaskrár hand- skrifaðar en fyrsta prentaða Umsjón: Atli Vigfússon markaskráin kemur út 1851 og var fyrst prentað fyrir Mýrarsýslu síðan Þingeyjarsýslu. í gegnum árin hafa sum mörk horfið og vart vitað hvernig form þeirra var. Mörk eins og alreka, blað- reka, hringsýlt, vindfjaðrað og samfjaðrað sjást nú ekki. Vissar tegundir marka einkenna ákveð- in svæði eins og laufað í Árnes- sýslu, blaðrifað í Borgarfirði, tvísýlt í stúf í Svarfaðardal og geirskorið í nánd við Hofsós. Við samanburð á markaskrám 1866 og 1970 fyrir Þingeyjarsýslu kem- ur ýmislegt í ljós í fljótu bragði sem rannsaka mætti enn frekar. Fjöldi markeigenda er svipaður eða 1555 árið 1866 en 1622 árið 1970. f Ijós kemur að 83 hafa alheilt á hægra eyra 1970, en mjög fáir í gömlu skránni hafa hægra eyra alheilt og líklega eru það leifar frá fyrri tímum. Nokk- ur mörk eru með öllu horfin 1970 svo sem tvísýlt í stúf, þrír bitar framan, geirsýlt og þrínumið. Öðrum hefur fækkað svo sem hamarskorið á hægra eyra sem 64 markeigendur notuðu 1866 en aðeins 22 1970. Þá fækkaði mjög mörkum eins og miðhlutað í stúf, stýft gagnfjaðrað og tvírifað í stúf. Árið 1866 eru 106 konur skráð- ar fyrir mörkum en 1970 eru þær 343. Sé litið á mannanöfn þá er þar ýmislegt sem hægt er að kom- ast að. 1866 heita 51 Jón Jónsson, 194 heita Jón, 279 eru Jónsson eða Jónsdóttir en 1970 heita ein- ungis 9 Jón Jónsson, 99 heita Jón og 124 eru Jónsson eða Jónsdótt- ir. Mjög fáir eru skráðir með tveimur nöfnum í eldri skránni. Þá virðast nöfn eins og Jóakim, Jónatan, Jósafat og Jósef hafa verið algeng sem mjög lítið er af nú. Ný markaskrá á döfinni Á hausti komanda verða komnar út nýjar markaskrár en að baki því liggur mikil vinna því fara þarf eftir reglum um sammerk- ingar sem kveða á um að í vissum héruðum má ekki vera sammerkt við önnur héruð. Þau mörk sem finnast sammerkt þarf þá að aldursgreina hversu lengi þau hafa verið í markaskrá og hafi þau t.d. verið jafnlengi á báðum svæðum, þá þarf að rannsaka ætt- Soramarkaður kynhótahrútur. artengsl þeirra og hafi eitthvert ákv. mark verið lengur í sömu ætt frekar en annað þá heldur sá markinu sem það á, en hinn miss- ir það. Þetta veldur ekki alltaf ánægju og fólk heldur fast við sín mörk en reglugerðin hefur verið hert. Erfitt getur oft verið að rekja ættartengsl manna og Hægra eyra Vinstra eyra Markeigendanöfn og heimili Hreppar Gat Sneiðrifað a Jósef Magnússon Ósi Vindh. Gat Tvírifað í stúf Erlendur Guðmundsson Grundarkot Bólst. Geirsýlt Geirsýlt Gísli Jónsson Neðrimýrum Engih. Geirsýlt Hvatrifað Brynjólfur Brynjólfss. Forsæludal Ás Geirsýlt, gat Sneitt fr Ingibjörg Jónsdóttir Illugastöðum Engih. Geirsýlt Tvístýft fr., biti a. .. Jóhannes Erlendsson Grundarkoti Bólst. Geirsýlt Tvístýft a., biti fr. .. Jón Jónsson Syðrmjóadal - Geirstýft Gagnfjaðrað Gunnl. Guðmundsson Selhaga Bólst. Geirstýft Geirstýft Kammerráð Christjánsen Geitaskarði Engih. Geirstýft, lögg a Geirstýft Prestur G. Vigfússon ... Meistað Tr.st. Geirstýft Hálfurstúfurfr., b. a. Magnús B. Steindórsson Ási Ás. Geirstýft Hamrað PresturH. Einarsson Blöndudalshólum .... Bólst. Geirstýft Hvatt Eyjólfur Guðmundsson Eyjarbakka K.k. Geirstýft Sýlt, gagnfjaðrað ... Hjálmar Jónasson Króki Vindh. Geirstýft Sýlt í helfing a Þorvarður Gestsson .... Tungukoti Þork. Geirstýft Sneittfr.,vaglskoraa. Björn Hannesson Rútstöðum Sv.v. Geirstýft Sneiðrifað a Magnús Pálsson Þverárdal Bólst. Geirstýft Stýft, biti a Samúel Sigurðsson Helgavatni Sv.st. Geirstýft Stúfrifað, biti a Prestur Ó. Thorberg ... Breiðabólstað Þverár. Geirstýft Tvírifað í stúf Sigríður Pjetursdóttir Flögu Ás. Geirstýft Tvístýft fr., fj. a. ... Guðm. Arnljótsson Guðlaugsstöðum Sv.v. Geirstýft Tvístýft a Prestur J. Finnbogas. Staðarbakka Tr.st. Geirstýft, gat Tvístýft a Jónas Jónsson Hnausakoti Geirstýft Tvístýft a., biti fr. .. Gunnl. Guðmundsson Selhaga Bólst. Markaskrár hafa að geyma miklar upplýsingar um menn og mörk. stundum þurfa ættfræðingar að grípa inní. Markaverðir eru: Eiríkur Björnsson fyrir Eyjafjörð, Guð- mundur Jónsson Ærlæk f. N.- Þing., Jón Fr. Jónsson Blá- hvammi f. S.-Þing. og Lilja Óladóttir Kárastöðum fyrir Skagafjörð. Undirbúningsvinna byrjaði í haust og verður líklega lokið í apríl. Ef markeigandi sættir sig ekki við úrskurð marka- varða getur hann vísað til marka- nefndar Búnaðarfélags íslands sem gefur endanlegan úrskurð og getur jafnvel þurft að varpa hlutkesti. Stýfingamörk með undirbenjum algeng Lilja Óladóttir markavörður Kárastöðum Skagafirði vill að ættarmörk fái að halda sér og segir einnig algengt að allir á heimilum hafi sín mörk. Einnig segir hún að fólk sem hætt er með fé vilji halda sínum mörkum. Flést mörk einstaklinga í Skaga- firði eru 6 talsins og algengustu mörkin eru sneiðingarflokkar og stýfingamörk með undirbenjum. Hvað hrossamörk varðar þá eru heileyrn mörk vinsælust þ.e. ekki með yfirmarki því komið hefur fyrir að hestar hafi ekki selst með slíku. Einnig hefur mjög minnk- að að fólk hafi myndir, rúnir, gríska stafi og merki sem brenni- mörk. Mörkin þróast meir og meir í það að vera einföld. Mývatnssveit er paradís vélsleðamanna. Páskavika 1 Mývabissveit - boðið upp á fjölbreytta dagskrá Um páskahátíðina verður mik- ið um að vera í Mývatnssveit. Sett hefur verið upp viðamikil dagskrá allt frá skírdegi fram á annan páskadag. Boðið verður upp á dorgveiðiferðir með leiðsögumanni, opnar skíða- göngubrautir, vélsleðaleigu, sundlaug og sauna og margt fleira. Á skírdag og föstudaginn langa verða opnar göngubrautir, leið- beint í skíðagöngu, boðið upp á vélsleðaleigu og fleira. Að kvöldi skírdags verður boðið upp á lif- andi tónlist í Hótel Reynihlíð. Laugardaginn 2. apríl verður farið í dorgveiðiferð með leið- sögumanni, opnaðar skíða- göngubrautir og leiðbeint í skíða- göngu en kl. 15.00 fer fram Mývatnsgangan sern er um 4 km. löng skíðatrimmganga. Um kvöldið verður fiskréttahlað- borð, bingó og lifandi tónlist í Hótel Reynihlíð. Á páskadag verða opnar göngubrautir og kl. 10 gefst fólki kostur á að fara í Hlíðarfjall við Akureyri þar sem fram fer Flug- leiðatrimm. Einnig geta þeir sem vilja farið í guðsþjónustu í Reykjahlíðarkirkju og ferming- armessu í Skútustaðakirkju. Á annan páskadag verður farið í skoðunarferð um Mývatssveit, auk þess sem fólk getur leigt sér vélsleða, farið í sund og sauna eða eitthvað annað. Ferðafélag Mývatnssveitar stendur fyrir þessari páskadag- skrá og í samvinnu við Sérleyfis- bíla Akureyrar hefur verið útbú- inn pakki fyrir þá sem vilja kaupa í einu ferðir og hótelgistingu. í páskavikunni stendur yfir í Hótel Reynihlíð myndlistarsýn- ing 15 listamanna frá Reykjavík, Akureyri og Mývatnssveit. Sýnd verða grafík-, akrýi-, vatnslita- og olíumálverk. Þetta er í fyrsta sinn sem dagskrá sem þessi er sett upp á páskum í Mývatnssveit. JOH

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.