Dagur - 29.03.1988, Side 22
22 - DAGUR - 29. mars 1988
Aðalfundur
Bílaklúbbs Akureyrar
veröur haldinn þriöjudaginn 29. mars nk. kl. 20.00 aö
Hótel Varðborg.
Bílaklúbbur Akureyrar.
Laus staða
Staða bókavarðar í Háskólabókasafni er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil og störf, skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 23. apríl nk.
Menntamálaráðuneytið, 24. mars 1988.
Norrænir starfs-
menntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs og
Svíþjóðar veita á námsárinu 1988-89 nokkra styrki handa
íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum.
Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðn-
skólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í
iðnskólum eöa framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og
ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á
Islandi. Fjárhæð styrks í Danmörku er 15.000 d.kr., í Finn-
landi 19.800 mörk, í Noregi 19.400 n.kr. og í Svíþjóð 10.000
s.kr. miðað við styrk til heils skólaárs. - Umsóknir skulu ber-
ast menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík,
fyrir 25. apríl nk., og fylgi staðfest afrit prófskírteina, ásamt
meðmælum. Sérstök eyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 23. mars 1988.
Opnunartímar
Kjönmarkaður KEA
Hrísalundi
verður opinn miðvikudaginn 30. mars frá kl. 9-22 og
laugardaginn 2. apríl frá kl. 10-16.
Sölulúgur verða opnar til kl. 20
laugardaginn 2. apríl
Kjörbúðin Sunnuhlíð
verður opin miðvikudaginn 30. mars frá kl. 9-20 og
laugardaginn 2. apríl frá kl. 10-16.
M^Matvörudei Id
¥
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG SIGMARSDÓTTIR,
Furulundi 3 c, Akureyri,
er lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 25. mars verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 5. apríl kl. 13.30.
Þeir sem vilja minnast hinnar látnu láti líknarstofnanir njóta
þess.
Ragnar Malmquist,
Sigurður Malmquist, Ólöf Magnúsdóttir,
Selma Sigurðardóttir.
„Þetta var svaka-
legur dagur“
- segir Þóra Hjaltadóttir formaður AN í viðtali
að afloknum „Akureyrarsamningum“
Nýafstaðnir kjarasamningar
vinnuveitenda og verkalýðsfé-
laganna marka tímamót í sög-
unni. Astæðan er ekki sú að
plaggið sjálft er viðameira en
nokkru sinni fyrr heldur frekar
sú staðreynd að viðræðurnar
fóru nú að miklu leyti fram
utan Garðastætisins og það
sem meira er, utan Reykjavík-
ursvæðisins.
Viðræður fóru fram á þremur
stöðum utan Reykjavíkur, í
Vestmannaeyjum, á Egilsstöðum
og Akureyri þar sem lokasprett-
urinn var þreyttur. Forystumenn
vinnuveitenda voru þeir Þórarinn
V. Þórarinsson og Hjörtur Eir-
íksson en viðræðurnar fóru fram
undir stjórn Guðlaugs Þorvalds-
sonar ríkissáttasemjara. Hjá
launþegum var ekki um að ræða
nein formleg samtök en óhætt er
að fullyrða að Þóra Hjaltadóttir
formaður Alþýðusambands
Norðurlands og Snær Karlsson
varaformaður hafi verið í lykil-
hlutverkum þeim megin
borðsins. Þóra er hér komin í
spjall um „Akureyrarsamning-
ana“.
Garðastrætið er
hálfgerð ljónagryfja
„Það er mikill léttir að þessu
skuli vera lokið og okkur skuli
hafa tekist að skrifa undir samn-
ing sem við getum verið nokkuð
ánægð með. Þungamiðja þessara
samninga eru réttindamálin.
Auðvitað vill maður alltaf fá
fleiri krónur en það er til lítils ef
það skilar fólkinu engu öðru en
gengisfellingu. Við verðum bara
að gera okkur grein fyrir sam-
henginu þarna á milli og viður-
kenna það. Við settum okkur
það mark að halda kaupmætti
síðasta árs og það tókst.“
- Finnst þér það hafa ein-
hverja sérstaka þýðingu að samn-
ingarnir hafi verið undirritaðir á
Akureyri?
„Það hefur auðvitað verið
brotið blað í sögunni. Samningar
í þessu umfangi hafa ekki verið
gerðir hér fyrr. Fyrir um það bil
10-15 árum voru hér gerðir
Norðurlandssamningar og ég
held að Austurland hafi verið
með í því. Hér erum við með
þessi svæði og auk þess Suður- og
Vesturland og tvö félög úr
Reykjavík og Hafnarfirði. Þetta
sannar bara að það er hægt að
semja víðar en í Reykjavík.
Ég held að aðilar hafi verið
sammála um að aðstæðurnar hafi
verið mun betri en við höfum
nokkurn tíma haft þar syðra.
Raunar virkar „Garðastrætið“
þannig á mig að einhverra hluta
vegna vil ég helst ekki stíga fæti
þar inn fyrir. Þetta er hálfgerð
ljónagryfja.
Það að vera á sínum heimaslóð-
um og geta kallað í baknefndir
þegar tók að líða á samnings-
gerðina, og geta tekið á „púlsin-
um“, er gífurlega. mikils virði.“
Þá var ég hrædd
- Samningarnir hér á Akureyri
voru í raun gerðir á mjög stuttum
tíma enda hafði undirbúnings-
vinnan að mestu leyti verið unnin
við gerð VMSÍ-samninganna. í
Alþýðuhúsinu var því fyrst og
fremst verið að skera agnúa af
þeim samningum.
„Það fór gífurlegur tími í að
ræða um sveigjanlegan vinnu-
tíma. Við vildum fá eina yfir-
vinnu í stað eftirvinnu og nætur-
vinnu, án þess að sveigja til
vinnutímann. Atvinnurekendur
voru lengi að átta sig á því að það
þýddi ekkert að ræða um þetta
atriði við okkur.
Ég heyrði það í fréttum að
samningaviðræður hefðu hangið
á bláþræði þegar verið var að
ræða um þetta atriði. Ég held þó
að bláþráðurinn hafi verið ennþá
blárri þegar við vorum að ræða
um launamálin á föstudaginn. Þá
vissi maður ekki hvað myndi ger-
ast á næstu mínútum.“
- Varstu þá hræddust um að
uppúr slitnaði?
„Já. Ég var vægast sagt mjög
hrædd um það. Þetta var svaka-
legur dagur.“
Svona menn rýra álit
á verkalýðshreyfingunni
- Þórarinn Þórarinsson sagði í
viðtali við Dag fyrir helgina, að
ósætti innan ykkar raða, hefði
tafið mjög fyrir framgangi samn-
inganna. Fyrir undirritun gengu
svo fulltrúar þriggja verkalýðsfé-
laga af fundi og skrifuðu ekki
undir. Er upplausn í ykkar
röðum?
„Nei, ekki vil ég nú segja það.
Þarna voru saman komnir aðilar
frá sjö „samflotum" verkalýðsfé-
laga, hvert með sína kröfugerð-
ina og auðvitað tekur nokkurn
tíma að samræma það. Varðandi
útgönguna þá get ég vel skilið
afstöðuna hjá Snótarkonum úr
Vestmannaeyjum. Þær voru bún-
ar að vera í verkfalli í hálfan
mánuð vegna kröfu um 40 þús-
und króna lágmarkslaun og því
eðlilegt að þær gætu ekki gengist
þegjandi inn á það sem um
samdist. Einnig fannst mér eðli-
legur framgangsmáti hjá þeim að
taka með sér eintak af samningn-
um, undirritað af vinnuveitend-
um, til að sýna sínum félagskon-
um og láta þær taka afstöðu.
Hvað verkalýðsfélag Akraness
og Verkalýðsfélag Vestmanna-
eyja varðar þá fannst mér óþarfi
af þeim að vera að flagga með
„einritaðan" samning. Það rúm-
ast ekki alveg inni í mínu höfði
að þau skuli hafa beðið um slíkan
samning með sér, eins og allt var
í pottinn búið. Það kom mér hins
vegar ekkert á óvart að þetta fólk
skuli hafa gengið út því mér skilst
að þessir aðilar hafi ekki skrifað
undir samflotssamningana nema
einu sinni á undanförnum árum.
Svona samningamenn rýra álit
almennings á verkalýðshreyfing-
unni.
Til að svara Þórarni þá vil ég
hins vegar leyfa mér að halda því
fram að óeiningin hafi ekki verið
minni innan þeirra raða.“
- Heldur þú að þetta fólk hafi
aldrei ætlað sér að skrifa undir
einhvern „Akureyrarsamning“
„Ég efast mjög um það.“
Þetta eru bara menn
eins og við
- Hvemig er nú andrúmsloftið
milli deiluaðila þegar staðið er í
samningaviðræðum sem þessum.
Getið þið rætt saman á léttum
nótum yfir kaffibolla?
„Ég hef aldrei verið svona
nærri þessu eins og ég var núna,
maður var alveg á slagæðinni.
Mér fannst þetta vera mjög
spennuþrungið og á litlum fund-
um gátu oft og iðulega risið upp
hávaðadeilur. Mér finnst það
hins vegar skipta miklu máli að
ekki var um neina persónulega
óvild að ræða. Ég var að halda
mínu fram og þeir sínu. Þetta eru
bara menn eins og við og þeir eru
að gæta sinna hagsmuna.
Það var hins vegar alveg á því
hæpnasta að menn spjölluðu
saman yfir kaffibolla og a.m.k.
lenti ég ekki í því.“
- Mun forysta þín í þessum
samningum leiða af sér frekari
frama innan verkalýðshreyfingar-
innar?
„Mér er nóg að sitja í mið-
stjórn ASÍ og vera formaður AN.
Ég hef frekar í hyggju að draga
saman seglin og slappa af yfir
pottunum. Ég hef í þessari lotu
þurft að reiða mig á dagmömm-
una mína og án hennar hefði ég
ekki getað staðið í þessu,“ sagði
Þóra Hjaltadóttir. ET